Þjóðviljinn - 03.05.1983, Qupperneq 1
: V' ! f H |1V' i' ■ A * l t t \ f t - i t7 V v
Þriðjudagur 26. apríl 1983 ÞÍÖbVlUINN — StÖA ð
Magnús
þjalfar
Olsara
Magnús Teitsson, handknatt-
leiksmaðurinn kunni úr Stjörn-
unni, hefur tekið við þjálfun 3.
deildarliðs Víkings úr Olafsvík í
knattspyrnu og leikur jafnframt
með liðinu í sumar. Magnús kann
ýmislegt fyrir sér á knattspyrnu-
sviðinu, ekki síður en í handknatt-
leiknum, og hefur leikið með FH og
Stjörnunni.
Víkingar hafa fengið liðsstyrk
frá því í fyrra. Magnús Stefánsson
kemur frá FH og Logi Úlfljótsson
frá Þrótti Reykjavík en báðir eru
Ólsarar og fyrrum Víkingsleik-
menn. Þá hefur bæst í hópinn Við-
ar Gylfason, einn af burðarásum
nágrannaliðsins Reynis frá Hellis-
sandi.
-VS
Létt hjá
Köppen
og Frost
Dönsku badmintonsnillingarnir
Morten Frost og Lena Köppen
komust nokkuð örugglega í gegn-
um fyrstu umferð í einliðaleik á
heimsmeistaramótinu sem nú
stendur yllr í Danmörku. Frost
vann Kínverjann Yang Kesen 15-11
og 15-10 og mætir Indverja í næstu
umferð.
Broddi Kristjánsson og Guð-
mundur Adolfsson komust báðir í
gegnum fyrstu hindranirnar, hinn
norski andstæðingur Brodda gaf
sinn leik pg Guðmundur sigraði
Perúbúa. í næstu umferð tapaði
Broddi síðan fyrir Nígeríumanni og
Guðmundur fyrir Vestur-
Þjóðverja.
Syntu 75 kílómetra
„Trimmlandskeppnin fór vel af stað um helgina og það cr greinilega
mikill áhugi á henni. Maraþonsundið tókst vel, 67 manns syntu samtals
75 kílómetra í sundlauginni í Hátúni frá kl. 18 á laugardag til kl. 18 á
sunnudag. Greinilegt er að talsvert fé hefur komið inn af áheitum en
hversu mikið er ekki hægt að segja til um ennþá,“ sagði Markús
Einarsson, framkvæmdastjóri íþróttasambands fatlaðra í samtali við
Þjóðviljann í gær.
Norræna trimmlandskeppnin, sem hófst með maraþonsundinu og
þátttöku í 1. maígöngum um helgina, stendur út þennan ntánuð.
Keppnisgreinar eru ganga, hlaup, hestamennska, hjólastólaakstur,
hjólreiðar, kajakróður og sund. Reiknað er með góðri þátttðku hér á
landi og ætti það að standast, a.m.k. miðað við þessa góður byrjun.
-VS
Ólíkt hafast að - ís-
lenskir og kínverskir
Keflvíkingar óstöðv-
andi í litla bikarnum
íslenska karlalandsliðinu í
borðténnis hefur gengið öllu verr
en reiknað hafði verið með á
heimsmeistaramótinu sem nú
stendur yfir í Tokyo í Japan. Liðið
tapaði öllum sínum leikjum í H-
riðli 3. deildar og þarf að leika um
neðstu sætin á mótinu. Leikirnir
gegn Saudi-Arabíu, Filippseyjum,
Nýja-Sjálandi, Marokkó og Lux-
emburg töpuðust allir 0:5 en leikur-
inn gegn Líbanon 2:5.
Kínverjar eru hins vegar óstöðv-
andi á toppi keppninnar og eru
komnir í úrslit bæði í karla og
Toni Schumacher, sá frægi
ma^kvörður vestur-þýska lands-
Getraunir
í 34. leikviku getrauna var
enginn með 12 rétta leiki en 28
með 11 rétta og var vinningur á
röð kr. 7.325.00. Alls voru 406
raðir með 10 réttum og vinning-
ur fyrir hverja kr. 216.00.
kvennaflokki. Kínversku karlarnir
sigruðu Ungverja 5:0 í undanúrslit-
um og mæta Svíum í úrslitaleik en
Svíarnir unnu Englendinga 5:0 í
hinum undanúrslitaleiknum. I
kvennaflokki leika Kína og Japan
til úrslita um heimsmeistaratitil-
inn. í undanúrslitum vann Kína So-
vétríkin 3:0 og Japanir sigruðu
Norður-Kóreu 3:1. Á síðasta
heimsmeistaramóti, í Júgóslavíu,
náðu Kínverjar í öll sjö gullin sem
keppt var um og þeir virðast í svip-
uðum hugleiðingum nú.
- VS
liðsins í knattspyrnu, slasaðist illa í
andliti á laugardaginn þegar lið
hans, Köln, lék við Bochum í
„Bundesligunni". Schumacher
lenti í árekstri við samherja sinn,
varnarmanninn Herbert Zimmer-
mann, með þeim afleiðingum að 24
sentimetra langur skurður opnað-
ist í andliti hans. Þrátt fyrir þetta
óhapp er talinn möguleiki á að
Schumacher geti varið mark Köln-
ar næsta laugardag.
-VS
Moses
í bann
Remi Moses, miðjumaðurinn
sterki hjá Manchester United,
var rekinn af leikvelli í gær þeg-
ar lið hans tapaði 3-0 fyrir Arsc-
nal í 1. deild ensku knattspyrn-
unnar. Afleiðingarnar eru þær
að Moses getur ekki leikið með
United í úrslitalcik ensku bikar-
keppninnar gegn Brighton á
Wembley þann 21. maí nk. Lið
Brighton hefur einnig veikst tals-
vcrt; allt bendir til að Steve
Foster, miðvörðurinn kunni,
verði einnig í banni þegar að
úrslitaleiknum kemur.
Allt um leikina í ensku knatt-
spyrnunni í gær og á laugardag
er að finna í opnunni.
Keflvíkingar tryggðu sér sigur í
Litlu Bikarkcppninni í knatt-
spyrnu, meistaraflokki karla, á
laugardaginn er þeir sigruðu FH
3:1 í Hafnarfirði. Þeir Keflvíkingar
hafa verið nánast ósigrandi það
sem af er vetri og vori og verður
fróðlegt að fylgjast með þeim þegar
1. deildarkeppnin hefst.
Skúli Rósantsson, Einar Ás-
björn Ólafsson og Björgvin
„Gutti“ Björgvinsson skoruðu
fyrir ÍBK en Jón Erling Ragnars-
son fyrir FH. Viðar Halldórsson,
landsliðsbakvörður úr FH, var rek-
inn útaf í leiknum.
Þá léku einnig Breiðablik og
Haukar og varð sú viðureign all
söguleg því tveimur leikmönnum
Víkingar komust í efsta sætið á
Reykjavíkurmótinu í meistara-
flokki karla í knattspyrnu í gær-
kvöldi er þeir sigruðu Þrótt 2-0 á
Melavellinum. Á laugardaginn
unnu Valsmenn KR-inga 1-0. Stað-
an á mótinu er nú þessi:
úr 4. deildarliði Hauka var vísað af
leikvelli. Brást annar þeirra hinn
versti við, hrifsaði flautuna af dóm-
aranum og þeytti henni útí loftið.
Breiðablik sigraði 5:2 og hlaut sín
fyrstu stig í mótinu. Ungu piltarnir
Sævar Geir Gunnleifsson og Ing-
valdur Gústafsson skoruðu tvö
mörk hvor og „gamli maðurinn"
Vignir Baldursson eitt. Loftur
Eyjólfsson og Henning Hennings-
son skoruðu fyrir Hauka.
Keflavík hefur hlotið átta stig í
keppninni, Akranes 4, FH og
Breiðablik 2 en Haukar ekkert.
Síðustu leikirnir eru um næstu
helgi en þá mætast Akranes-
Breiðablik og Haukar-FH.
Vikingur...............5 5 0 0 10-1 11
Fram..................4 3 1 0 8-1 9
Valur..................4 2 0 2 6-3 5
KR.................. 4 1 1 2 3-6 3
Þróttur................5 113 3-8 3
Fylkir................4 1 0 3 3-7 2
Ármann.................4 0 13 1-8 1
Valur og Fylkir mætast á Mela-
vellinum í kvöld kl. 19.
Schumacher fékk 24 sm
skurð á andlitið!
- VS
Víkingar í efsta sæti
eftir sigurá Þrótti