Þjóðviljinn - 11.05.1983, Page 7
Miðvikudagur 11. maí 1983 ÞJOÐVILJINN - SÍÐA 19
íþróttir
Umsjón:
Víðir Sigurðsson
Eyþór
sigraði
Eyþór Pétursson, HSÞ, varð sig-
urvegari í Íslandsglímunni 1983
sem fram fór með mikilli leynd að
Laugum í Suður-Þingeyjarsýslu
þann 30. apríl sl. Eyþór hlaut 67:
vinning, lagði alla keppinauta sína
nema Halldór Konráðsson. Úrslit í
glímunni urðu þessi:
EyþórPétursson, HSÞ.....6V2
Jón Unndórsson, KR........6
Halldór Konráðsson, UV..5V2
Kristján Ingvarsson, HSÞ..4
Hjörtur Þráinsson, HSÞ....3
Geir Gunnlaugsson, U V.1V2
Karl Karlsson, UV......1 '/2
Hjörleifur Pálsson, KR....0
Atli fer
tfl FH
Atli Hilmarson, fyrrum lands-
liðsmaður í handknattleik úr Frant,
leikur með FH í 1. deildinni næsta
vetur. Atli hefur að undanförnu
dvalið í V-Þýskalandi og spilað þar
með Hamelm við góðan orðstír.
Ekki er að efa að hann kemur til
með að styrkja hið efnilega lið FH
verulega.
Vaiur á
1 •
Knattspyrnufélagið Valur í
Reykjavík á afmæli í dag; það var
stofnað fyrir 72 árum, þann 11. maí
1911. Valsmenn hafa eins og
venjulega opið hús og kaffiveiting-
arfrá kl. 17-19 ídagog bjóða þang-
að velkomna alla félagsmenn og
velunnara.
Fram Reykjavíkurmeistari
Eftir æsispennandi lokamínútur í úrslitaleik Reykjavíkurmótsins í
knattspyrnu, sem fram fór í norðangarra á Melavellinum í gærkveldi,
stóð knattspyrnufélagið Fram uppi sem sigurvegari á mótinu, eftir 3-2
sigur á Víkingum.
Staðan í hálfleik var eitt márk gegn einu, en snemma í síðari hálfleik
náðu Framarar að skora, en Víkingar misstu ekki móðinn og jöfnuðu
aftur. Á síðustu mínútum leiksins fengu Framarar síðan dæmda víta-
spyrnu, sem Ögmundur Kristinsson náði að verja, en Framarar fylgdu
vel eftir og þriðja markið gaf þeim aukastigið, scm fleytti þeim upp
fyrir Víkinga í lokastöðu Reykjavíkurmótsins. Fram hlaut alls 12 stig,
Víkingar 11 og í þriðja sæti urðu Valsmenn með níu stig.
Á myndinni hampar Jón Pétursson, fyrirliði Fram, bikarnum, sem
afhentur var í leikslok. - Mynd: -eik.
Þessir þrír piltar höfnuðu í þremur efstu sætum í flokki 10-14 ára pilta í
Víðavangshlaupi Hafnarfjarðar sem fram fór við Lækjarskóla á sumar-
daginn fyrsta. Þeir eru, frá vinstri, Finnbogi Gylfason, sem varð annar,
Einar Páll Tamini, sem sigraði, og Þorsteinn Gíslason sem varð þriðji. 1
elstu flokkunum sigruðu Magnús Haraldsson og Ragnheiður Olafsdóttir.
Göngudagur fatl-
aðra á sunnudag
Norræna trimmlandskeppnin
fyrir fatlaða hefur gengið mjög vel
fram að þessu og er þátttaka sér-
lega góð á fjölmörgum heimilum og
dvalarstofnunum fyrir fatlaða.
Víðá hefur hún verið allt að hundr-
að prósent. Vinsælustu greinarnar
fram að þessu eru án efa sund, hjól-
astólaakstur og ganga.
Til þess að auðvelda sem flestum
þátttökuna í norrænu trimmlands-
keppninni hefur íþróttasamband
Fatlaðra ákveðið að efna til sér-
stakra göngudaga. Þeir verða sem
hér segir:
1. Sunnudaginn 15. maí kl. 13.30
2. Laugardaginn 21. maí kl. 11.00
3. Sunnudaginn 29. maí kl. 13.30.
Gengið verður frá Sjálfsbjargar-
húsinu, Hátúni 12, og eru sem
flestir hvattir til að mæta í göngurn-
ar. Allar nánari upplýsingar um
keppnina, sem lýkur 31. maí, eru
veittar hjá íþróttasambandi Fatl-
aðra, héraðssamböndum, Sjálfs-
bjargarfélögum og íþróttafélögum
fatlaðra. Hjá ofangreindum aðil-
um er einnig hægt að fá þátttöku-
kort fyrir keppnina.
Bogdan landsliðsþjálfari
Bogdan Kowalczyk verður nán-
ast örugglega þjálfari íslenska _
landsliðsins í handknattleik næstu
tvö árin. HSÍ hefur komist að sam-
komulagi við Pólverjann kunna
sem hefur náð einstökum árangri
með Víkinga undanfarin fimm ár
og nú er einungis eftir að undirrita
samningana. Bogdan gjörþekkir
íslenskan handknattleik, og verk-
efnið sem við honum blasir er B-
keppnin í Noregi árið 1983.
Reiknað er með að hann hefji störf
í sumar.
Sigurður, Ragnheiður og
Omar efst í stigakeppninni
Stigakeppni víðavangshlaupa á
vegum Frjálsíþróttasambands ís-
lands 1982-83 er lokið og sigruðu
FH-ingar í öllum flokkum. Loka-
staða hjá þeim efstu í einstökum
flokkum varð þessi:
Karlar:
SigurðurP. Sigmundsson, FH........150
Sighvatur D. Guðmundsson, HVÍ/ÍR... 132
Hafsteinn Óskarsson, IR...........106
Stefán Friðgeirsson, IR............94
Einar Sigurðsson, UBK,.............93
Gunnar P. Jóakimsson, ÍR...........85
Gunar Birgisson, ÍR................78
Ingvar Garðarsson, HSK.............70
SteinarFriðgeirsson, ÍR............67
Magnús Haraldsson, FH..............57
Konur:
Ragnheiður Ólafsdóttir, FH........120
HrönnGuðmundsdóttir, UBK/ÍR.......114
Rakel Gylfadóttir, FH.............108
Fríða Bjarnadóttir, UBK............49
Guðbjörg Haraldsdóttir, KR.........35
Björg Kristjánsdóttir..............35
Linda B. Loftsdóttir, FH............24
Marta Leósdóttir, ÍR................24
Kristin Eggertsdóttir, USVH.........21
SigríðurSigurjónsdóttir, ÍR.........20
Drengir:
ÓmarHólm, FH.......................111
Viggó Þ. Þórisson, FH................64
Helgi F. Kristinsson, FH............53
GarðarSigurðsson, ÍR................47
Lýður Skarphéðinsson, FH............44
Arnþór Sigurðsson, UBK..............29
Góð þátttaka var í hlaupum
vetrarins, 105 tóku þáft í karla-
flokki, 45 í kvennaflokki og 40 í
drengjaflokki. Næsta hlaup á veg:
urn Víðavangshlaupanefndar FRI
er Meistaramót íslands í 25 km
gönguhlaupi sem fer fram á Hvols-
velli laugardaginn 14. maí og hefst
kl. 14. Þátttaka tilkynnist til Sig-
urðar Haraldssonar í síma 52403
fyrir fimmtudaginn 12. maí.
Sigurður P. Sigmundsson, sigur-
vegari í karlaflokki.
Útlendingamir útflokaðir?
Allt bendir til að engir er-
lendir leikmenn leiki í úr-
vaisdeildinni í körfuknatt-
leik næsta vetur. Tillaga
þess efnis verður borin upp
á ársþingi KKÍ um næstu
helgi og flest aðildarfélög
munu henni fylgjandi. Talið
er að einungis þrjú félög
leggist gegn henni, Kefla-
vík, Grindavík og Þór frá
Akureyri.
Ársþingið fer fram að Hó-
tel Heklu í Reykjavík og
hefst kl. 20 á föstudags-
kvöldið, 13. maí. Þingstörf-
um verður síðan haldið
áfram daginn eftir. _Vs
v