Þjóðviljinn - 11.05.1983, Síða 8

Þjóðviljinn - 11.05.1983, Síða 8
20 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur 11. maí 1983 ALÞYÐUBANDALAGIÐ Frá Æskulýðsfylkingu Alþýóubandalagsins. Friöarvaka um hvítasunnu. Æskulýðsfylkingin hefur fyrirhugað að efna til hópferðar á Snæfellsnes um hvítasunnuna. Haldið verður til í félagsheimilinu Skildi við Stykkishólm og farið þaðan í skoðunarferðir um nágrennið undir leiðsögn heimamanna. Svo verða friðarmálin rædd á samkomum í félagsheimilinu. Farið veröur á laugardaginn 21. maí og komið til baka á mánudeginum 23. maí. Verði verður mjög stillt í hóf. Þeir ungu sósíalistar sem hefðu áhuga á að koma með eru vinsamlegast beðnir um að tilkynna þátttöku í síma: 17500. - Dagskrá auglýst nánar síðar í Þjóðviljanum. - Undirbúningsnefnd. Alþýöubandalagiö í Kópavogi Kosningahappdrættiö Skrifstofan í Þinghóli verður opin í dag frá kl. 17-20. Við minnum á heimsenda happdrættismiða og hvetjum félaga til að gera skil á skrifstof- unni á ofangreindum tima, simi 41746. Sýnum samstöðu! ABK Aðalfundur 1. deildar ABR Stjórn 1. deildar ABR boðar til aðalfundar þriðjudaginn 17. maí kl. 17 að Hverfisgötu 105. Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstöf. Stjórnin. AB Selfossi og nágrenni Félagsfundur verður haldinn 19. maí næstkomandi kl. 15.30 að Kirkjuvegi 7 Selfossi. Fundarefni: Stjórnmálaviðhorfið að loknum kosningum. Svavar Gestsson formaður Alþýðubandalagsins mætir á fundinn. Önnur mál. Stjórnin. Stóra ferðahappdrættið Geriö skil sem allra fyrst. Drætti hefur verið frestað til 1. júní. Hægt er að greiða gíróseðla í öllum bönkum og pósthúsum. 25% AFSLATTUR! Fyrir elli- og örorkulífeyrisþega Sjúkranuddstofa Hilke Hubert Hverfisgötu 39 Opið mánudaga til föstudaga kl. 8.00 - 11.00 og 13.30 - 19.00. Pantanir í síma 13680 kl. 14 -18. BEINN I BAKI - BELTIÐ SPENNT jUMFEROAR |p Tilkynning til garðeigenda í Reykjavík um nauðsyn aðgæslu við notkun sterkra eiturefna við garðúðun. Fjölmargir garðeigendur láta ár hvert úða garða sína með eiturefnum úr X- og A- flokkum eiturefna í því skyni að útrýma skordýrum. Af þessum efnum mun parathion algengast. Hér gengur það undir verslunar- heitinu Egodan-Parathion sem er 35% upp- lausn hins virka efnis (parathions). Efni þessi eru ekki einungis eitruð fyrir skordýrin sem þeim er ætlað að eyða heldur koma verkanir þeirra fram hjá öllum dýrum, sem fyrir þeim verða, þ.á.m. fuglum og þau valda gjarnan eitrunareinkennum hjáfólki. Eigi ertalið unnt að komast hjá notkun þessara sterku efna enn sem komið er, svo sem í gróðurhúsa- ræktun, en leyfi til notkunar þeirra í þágu almennings eru mjög takmörkuð og bundin þeim einum sem hafa undir höndum sérstök leyfisskírteini frá lögreglustjórum, sem þeir skulu bera á sér þegar úðun fer fram. Jafnframt þessari aðgát er nauðsynlegt, að garðeigendur geri sér grein fyrir, að æskilegt er að draga sem mest úr notkun hinna sterku eiturefna og fullreyna i þeirra stað önnur hættuminni efni, sem leyft er að selja al- menningi (sjá yfirlit útgefið af heilbrigðis- og tryggingaráðuneytinu 1. júní 1982). Þeim garðeigendum, sem samt sem áður vilja fá garða sína úðaða með eiturefnum úr X- og A-flokkum skai bent á eftirfarandi: 1. Að ganga úr skugga um að þeir sem fram- kvæma úðunina hafi undir höndum gild leyfisskírteini, útgefin af lögreglustjóra. 2. Einungis má úða í þurru og kyrru veðri. 3. Egodan-Parathion má aðeins nota með styrkleikanum 0.03-0.08% þ.e. 30-80 ml. í 100 I. vatns. 4. Úðun er þýðingarlítil og jafnvel gagnslaus nema á aðalvaxtarskeiði lirfunnar, sem algengast er að eigi sér stað fyrstu 3 vik- urnar í júní. 5. Virða skal að öllu leyti aðvörunarspjöld þau sem skylt er að hengja upp í görðum að lokinni úðun með áðurnefndum eitur- efnum. Garðeigendum er bent á að kynna sér ræki- lega hvaða trjátegundir er óþarft að úða til varnar gegn skordýrum og ennfremur að afla sér upplýsinga um hvenær hægt er að kom- ast af með notkun hættuminni efría til útrým- ingar þeim. Reykjavík 5. maí 1983. Borgarlæknirinn í Reykjavík. Sæmundur Sigmundsson, Borgarnesi Oplð bréf til stjórnarmanna íslenska járnblendifélagsins hf. Opið bréf tii stjórnarmanna ís- lenska járnblendifélagsins hf., þeirra, Hjartar Torfasonar, Guð- mundar Guðmundssonar, Eggerts G. Þorsteinsonar, Páls Bergþórs- sonar, Kolfs Nordheim, Leifs Kopperstad og Gunnars Viken, frá Sæmundi Sigmundssyni, sérleyfis- hafa, Borgarnesi. Abyrgu stjórnarmenn, Ég vísa til viðskipta minn við Járnblendifélagið, en ég hef annast akstur á vaktavinnufólki og fleiri starfsmönnum félagsins frá Akra- nesi til Grundartanga síðustu þrjú árin eða þar um bil, án kvartana af hálfu félagsins. Jafnframt vísa ég til útboðs Járn- blendifélagsins á flutningi starfs- fólks þess frá 25. mars sl. og leyfi mér að vitna í endurrit fundargerð- ar frá 11. apríl 1983, sem Stefán Reynir Kristinsson, fjármálastjóri félagsins, samdi þegar tilboð voru opnuð: I fundargerðinni segir auk annars: Sæmundur Sigmundsson, Borgar- nesi Liður A: 2.300 kr/dag Liður B: 1.200 kr/dag Liður C: 350 kr/ferð. Þetta tilboð gildir ef um alla liði er samið. 3.2. Sæmundur Sigmundsson B-liður 1.200 kr/dag C-liður 350 kr/ferð 3.3. Sæmundur Sigmundsson A-liður 2.500 kr/dag Rekstraráætlun fylgdi öllum til- boðunum.“ Reynir Jóhannsson A-liður 3.744 kr/dag Biliður ef tilboði A ekki tekið 1.560 kr/dag B: liður ef A tilboði er tekið 1.040 kr/dag þegar ferðir eru sam- kvæmt A lið en 1.560, kr. aðra daga. C. liður ef tilboði í Bi eða B2 tekið 350 kr/ferð. Rekstraráætlun fylgir tilboðinu." Vegna tilboðs Reynis Jóhanns- sonar í B ferðir þar sem ein B ferð er sameinuð A ferð þvert ofan í ákvæði í útboðsgögnum vil ég taka fram að ekkert var því til fyrirstöðu að ég gerði það einnig, eféghefði vitað um, að forstjóri félagsins, Jón Sigurðsson, hefði talið það eðli- legt. Mér virðist, miðað við forsendur útboðsgagna og tilboða og A ferðir í 250 daga á ári, að Járnblendifélag- ið hefði getað fengið mína flutn- ingsþjónustu í A ferðum kr. 361.000.- ódýrari en Reynis, sem virðist hafa verið samið við, og í B ferðum kr. 131.400.- ódýrari mið- að við verðlag í mars 1983. Eða samtals 492.400.- lægri útgjöld á ári. C ferðir okkar beggja voru á sama verði. Mér þykir sú afstaða Járnblendi- félagsins, að semja við aðila sem býður mun dýrari þjónustu, undar- leg, og leyfi mér því að ítreka óskir um svör við því hvers vegna ekki var samið við lægstbjóðanda og hvers vegna var verið að bjóða flutningana út. Vænti heiðraðs svars eða svara ykkar við fyrsta tækifæri. Borgarnesi, 4.5. 1983. Virðingarfyllst, Sæmundur Sigmundsson, Borgarnesi.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.