Þjóðviljinn - 11.05.1983, Qupperneq 11

Þjóðviljinn - 11.05.1983, Qupperneq 11
MiSvikudagur 11. maí 1983 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 23 RUV © 11. maí 7.00 Veðurfregnir. Fréttir. Bæn Gull í mund. 7.25 Leikfimi. 8.00 Fréttir 8.15 Veðurfregnir. Morgunorð: Sigurbjörg Jónsdóttir talar 9.00 Fréttir. 9.05 Morgunstund barnanna: „Rumm- ungur ræningi“ eftir Otfried Preussler i þýðingu Huldu Valtýsdóttur. Helga Ein- arsdóttir les (6). 9.20 Leikfimi. tilkynningar. Tónleikar. 10.00 Fréttir. 10.10 Veðurfregnir. Forustugr. dagbl. (útdr.). 10.35 Sjávarútvegurog siglingarUmsjón: Guðmundur Hallvarðsson. 10.50 íslenskt mál. Endurtekinn þáttur Jóns Hilmars Jónssonar frá laugardegin- um. 11.10 Létt tónlist 11.45 Úr byggðum Umsjónarmaður: Rafn Jónsson 12.00 Dagskrá. Tónleikar. Tilkynningar. 12.20 Fréttir. 12.45 Veðurfregnir. Tilkynn- ingar. ( fullu fjöri Jón Gröndal kynnir létta tónlist. 14.30 „Sara“ eftir Johan Skjaldborg Einar Guðmundsson þýddi. Gunnar Stefáns- son les (4). 15.40 Tilkynningar. Tónleikar. 16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veðurfregnir. 16.20 Útvarpssaga barnanna: Sögur frá æskuárum frægra manna eftir Ada Hensel og P. Falk Rönne „Andinn i fjöllunum", saga um William Tell Ást- ráður Sigursteindórsson les þýðingu sína (10). 16.40 Litli barnatíminn Stjórnendur: Sess- elja Hauksdóttir og Selma Dóra Þor- steinsdóttir. 17.00 Bræðingur Umsjón: Jóhanna Harð- ardóttir. 17.55 Snerting Þáttur um málefni blindra og sjónskertra í umsjá Gísla og Arnþórs Helgasona. 18.05 Tónleikar. Tilkynningar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Kvöldfréttir 19.45 Tilkynningar. Daglegt mál. Árni Böðvarsson flytur þáttinn. Tónleikar. 20.00 Einleikur og samleikur í útvarpssal a. Arnþór Jónsson leikuráselló. Einleiks- svítu nr. 2 í d-moll eftir Johann Sebastian Bach. b. Þóra Johansen og Elín Guð- mundsdóttir leika á tvo sembala. Sónötu eftir Francois Couperin. 20.25 Fræg hljómsveitarverk. 21.40 Útvarpssagan: Ferðaminningar Sveinbjörns Egilssonar Þorsteinn Hannesson les (13). 22.15 Veðurfregnir. Fréttir. Dagskrá morg- undagsins. Orð kvöldsins 22.35 Iþróttaþáttur Umsjónarmaður: Ragnar örn Pétursson 23.00 Kammertónlist Leifur Þórarinsson kynnir. 23.45 Fréttir. Dagskrárlok RUV 27, aDríl 19.45 Fréttaágrip á táknmáli 20.00 Fréttir og veður 20.25 Auglýsingar og dagskrá 20.40 Myndir úr jarðfræði íslands 1. Mó- bergsfjöll Fræðslumyndaflokkur í tíu þáttum sem kynna helstu atriði íslenskrar jarðfræði og jarðsögu á Ijósan og á stundum nýstárlegan hátt. Þættirnir verða á dagskrá Sjónvarpsins vikulega á miðvikudögum og er röð þeirra sem hér segir: Móbergsfjöll, Jöklarnir, Eldstöðvar, Stöðuvötn, Árnar, Landrek, Frost og þíða, Ströndin, Jarðhiti og Saga lands og lífs. Höfundar og umsjónarmenn þátt- anna eru jarðfræðingarnir Ari Trausti Guðmundsson og Halldór Kjartansson, Gísli Helgason sér um Snertingu ásamt Arnþóri Heigasyni. Snerting Snerting, þáttur um máletni blindra og sjónskertra, verður á dagskrá út- varpsins kl. 17.55 í dag. Þeir bræður Gísli og Arnþór Helgasynir hafa verið með þennan ágæta þátt á dag- skránni um nokkurn tíma en þeir hafa fyrir löngu getið sér gott orð sem af- bragðs útvarpsmenn. Öllum er í fersku minni Eyja-pistill þeirra eftir aö Vestmannaeyjagosið skall yfir en með þeim útvarpsþætti var viðhaldið mikilvægu sambandi milli Eyja og út- laganna sem um stund bjuggu uppi á móðurlandinu. frá le Rót verðbólguvandans Afborgunarkjör á öllum hlutum Lesandi hringdi: „Þegar allir eru að fjargviðrast yfir því hve mikil verðbólgan er orðin hér innanlands og flestir sjá ekki önnurtfáð við vandanum en þau gömlu og úreltu að skerða kaupið, sem aldrei hefur borið neinn árangur, nema síður væri, þá finnst mér tími til kominn að menn skoði dæmið til enda og geri sér grein fyrir rótinni að þess- ari þenslu í peningamálum þjóð- arinnar. Égþykist fullviss um að megin- skýringuna rnegi finna í þeim breyttu verslunarháttum sem ruðst hafa hér til rúms á síðustu árum. Kaupahéðnar hafa gripið til þess ráðs, að bjóða fóiki upp á afborgunarkjör á öllum sköp- uðum hlutum. Fólkið kaupir orð- ið ekki þann smáhlut í innbú hvað þá stærri tæki að ekki sé boðið upp á margvíslegustu afborgun- arskilmála. Lítið sem ekkert út, restin borgast á næsta hálfa ári eða svo. Þetta leiðir til þess að kaupmenn selja betur, en það hættulega er að almenningur sér færi á að kaupa alls kyns hluti sem iiann hefur í raun alls ekki efni á, þegar dæmið er gert upp. Kaupæðið er algert, og innflutn- ingur að keyra þjóðina í kaf í vöruskiptahalla. Hvað getur slíkt haldið lengur áfram? Hér þarf að taka í taumana. Rót verðbólg- unnar er einmitt grafin þar sem er þetta sívaxandi afborgunarskil- málafyrirkomulag í allri verslun. Að 8efnu tilefni Kristján Jónsson Fjallaskáld; rangt farið með ljóð hans. Orðsending til stjórnanda þátt- arins „Ég man þá tíð“ í Ríkisút- varpinu: Kvæði Kristjáns Jónssonar Fjallaskálds hefst svo: „Þar sem aldrei á grjóti gráu...“, en ekki: „Þar sem aldrei á grjóti grær...“. - Og ljóð Guðmundar skóla- skálds Guðmundssonar hefst þannig: „Taktu sorg mína, svala haf“, en ekki „Taktu sorg mína, svala lind...“, - en þannig var rangfarið með bæði þessi öndveg- iskvæði í nefndum þætti þ. 6. mat sl.. Ráðlegg ég þeim, sem vilja vitna í kvæði, hvort heldur er í ræðu eða riti, að kunna þau, - ella getur illa farið, eins og dæmin sanna. Vinsamlegast, Sverrir Haraldsson Borgarf. eystra. TVÆR KÍNVERSKAR REIKNINGS- ÞRAUTIR Þessir tveir reikningsleikir eru upprunnir í Kína. Þegar þið hafið lært þá getið þið látið kunningja ykkar spreytá sig á þeim. Ef 6 kettir éta 6 mýs á 6 mín- útum, hve margir kettir gætu þá étið 96 mýs á 96 mínútum? Hugsið ykkur nú vel um. - Ef þið haldið að það séu 96 kettir þá hafið þið rangt fýrir ykkur, og verðið að brjóta heilann enn betur um dærnið. - Ef 6 kettir éta 6 mýs á 6 mín- útum er hver köttur 6 mínútur að éta eina mús. Á 96 mínútum getur hver köttur því étið 16 mýs. Þessir sömu kettir geta því ótið 96 mýs á 96 mínútum. Ef ein og hálf hæna verpir einu og hálfu eggi á einum og hálfum degi, hve' mörgum eggjum verpa þá sex hænur á sex dögum? Dettur ykkur í hug að það séu annaðhvort 6 eða 36? - Nei, ekki aldeilis. Ef ein og hálf hæna verpir einu og hálfu eggi á einum og hálfum degi, þá munu 3 hænur verpa 3 eggjum og 6 hænur 6 eggjum á sama tíma. Ef þið hugsið ykkur um þá vitið þið að 6 dagar eru fjórum sinnum 1 'lz dagur. Ef 6 hænur verpa 6 eggjum á 1 degi, þá verpa þær fjórum sinnum meira á 6 dögum - og það eru 24 egg. FONDUR í þetta sinn ætlum við að sýna ykkur hvernig útbúa má bókastoðir á einfaldan hátt. Efnið er fjórir spýtukubbar. Tveir þeirra eiga að vera 20x15 cm, en hinir aðeins minni. Þið neglið kubbana saman tvo og tvo eins og sýnt er á myndinni. Þegar því er lokið er næst að mála bóka- stoðirnar og er þá um að gera að gefa hugmyndafluginu lausan tauminn. Á myndinni sjáið þið snjalla hugmynd en þið getið líka notað hinar og þessar skemmti- legar fígúrur, t.d. Mikka mús eða Andrés Önd. Eins og þið sjáið er ákaflega fljótlegt að útbúa bókastoðirnar og þær eru einkar hentugar gjafir.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.