Þjóðviljinn - 11.05.1983, Page 12
MOÐVIUINN
Aðalsími Þjóðviljans er 81333 kl. 9-20 mánudag tll föstudags. Utan þess tíma er hægt að ná í blaðamenn og aðra startsmenn blaðsins í þessum símum: Ritstjórn Aðalsími Kvöldsími Helgarsími
81382, 81482 og 81527, umbrot 81285, Ijósmyndir 81257. Laugardaga kl. 9 - 12 er hægt að ná í afgreiðslu blaðsins í síma 81663. Prentsmiðjan Prent hetur síma 81348 og eru blaöamenn þar á vakt öll kvöld. 81333 81348 81663
Húsgögn frá Trésmiðjunni
Víði slógu í gegn á sýningu ytra
Sala upp á
miljón dollara!
„Það er óhætt að segja að við| eska heitið á víði. Það var finnski
séum ánægðir því þessi samningurí hönnuðurinn Athi Taskinen sem
sem_ við gerðum við bandarískan hannaði húsgögnin, en þessi pönt-
aðila er upp á eina miljón dollara, un til Bandaríkjanna fer til
en það er svipuð pöntun að verð- dreifingarfyrirtækis sem þjónustar
gildi og öll eigin húsgagnafram- um 500 sérverslanir með barnahús-
lciðsla okkar var á öliu síðasta ári“, gögn víða um Bandaríkin. Auk
sagði Reimar Charlesson forstjóri þessara barnahúsgagna seldi Víðir
Trésmiðjunnar Víðis í Kópavogi. á sýningunni í Kaupmannahöfn 6
Á alþjóðlegu húsgagnasýning- ný leðursófasett, sem vöruþróun-
unni í Bella Center í Kaupmanna- arhópur í fyrirtækinu hefur hannað
höfn vöktu íslensku húsgögnin og vakti settið mikla athygli á sýn-
verðskuldaða athygli. Að þessu ingunni.
sinni voru sýnd húsgögn frá Víði, „Það er Ijóst að þessi samningur
Axel Eyjólfssyni hf. og Ingvari og hleypir krafti í okkur í þessum
Gylfa. iðnaði því með honum opnast ýms-
Samningurinn sem Trésmiðjan ir möguleikar. Við höfum verið
Víðir gekk frá hljóðar upp á sölu á beðnir um að senda tilboð um sölu
um það bil 240 kojusettum í barna- á húsgögnum til um 50 fyrirtækja
herbergi. Mun fyrsta sendingin til víða um heim og síðast í morgun
Bandaríkjanna fara af stað í sept- hringdi til mín aðili í Þýskalandi
ember nk. og verður öll pöntunin sem bað okkur um að hraða tilboði
afhent á l'/2 ári þaðan í frá. Hús- sem allra mest“, sagði Reimar
gögn þessi eru markaðsfærð undir Charlesson forstjóri Trésmiðjunn-
vörumerkinu Salix, sem er latn- ar Víðis að lokum. - v.
Barnahúsgögnin sem vöktu mikla athygli á Alþjóðlegri húsgagnasýningu í
Kaupmannahöfn. Trésmiðjan Víðir hefur gert samning um sölu á þessum
settum til Bandaríkjanna fyrir eina miljón dollara.
Gert upp við borgina:_
Fagna þessum
málalyktum
Hvort skyldu þau nú heyra undir skólaskrifstofuna eða fræðsluskrifstofuna þegar þau byrja í fyrsta bekk
þessi? Ljósmyndari Þjóðviljans, -eik, rakst á þessa myndarlegu krakka niðri við Tjörn í blíðviðrinu í gær.
Leynisamningurinn um fræðsluskrifstofuna:
Gengur þvert á
grunnskólalögin
Báknið tvöfaldað og fræðslustjóri settur út í horn!
Sex vikna gamalt samkomulag um breytta skipan fræðslumála í Reykja-
vík var lagt fram í borgarráði í gær og vísað til umsagnar fræðsluráðs. Þar
var málið hins vegar á dagskrá í fyrradag og felldi meirihlutinn í fræðslu-
ráði tillögu um að leita umsagnar kennara og skólastjóra um efni þess. I gær
fengu fræðsluráðsmenn hcimsenda lögfræðilega álitsgerð Arna Guðjóns-
sonar hæstaréttarlögmanns þar sem hann leiðir rök að þeirri niðurstöðu
sinni að samkomulagið gangi þvert á grunnskólalögin. Jafnframt fengu
fræðsluráðsmenn sent álit Bcnedikts Sigurjónssonar fyrrverandi hæsta -
réttardómara, sem tekur undir með Arna.
Samkvæmt samkomulaginu á að
leggja fræðsluskrifstofu Reykja-
víkur og embætti fræðslustjóra nið-
ur í núverandi mynd frá 1. ágúst
nk. Fræðsluskrifstofan og fræðslu-
stjóri eiga þó að starfa áfram að
nafninu til ser,. ^ms konar útibú frá
menntamálaráðuneytinu og til
eftirlits með t.d. framkvæmd
skólaskyldu, gerð vinnuskýrslna,
félagsstörfum sem ríkissjóður
greiðir o.fl.
Hins vegar skal sett upp nýtt
apparat, - Skólaskrifstofa Rcykja-
víkur, þar sem áætlanagerð vegna
rekstrar, kennslu og skólabygginga
á að fara fram svo og starfsmanna-
hald og skipulag skólahalds.
Yfir hvorri skrifstofu fyrir sig á
;að vera kjörin nefnd, á þessu kjör-
tímabili reyndar sú hin sama, þe.
núverandi fræðsluráð. Þegar ráðið
stjórnar skólaskrifstofunni, nefnist
það skólanefnd og fundirnir skóla-
nefndarfundir og hefur fræðslu-
stjóri þar seturétt, málfrelsi og
tillögurétt. Þegar ráðið fjallar um
málefni fræðsluskrifstofunnar
nefnist það hins vegar fræðsluráð
og fundirnir fræðsluráðsfundir og
þar á fræðslustjóri að vera fram-
kvæmdastjóri!
Samkvæmt samkomulaginu á
sérkennsla og sálfræðiþjónusta að
falla undir fræðsluskrifstofuna og
eiga starfsmenn við þessa þjónustu
að fara af launaskrá hjá borginm
31. júlí nk. í samkomulaginu er
gert ráð fyrir að menntamálaráðu-
neytið endurráði þá alla eða hluta
þeirra sem ríkisstarfsmenn og þeir
verði undir stjórn fræðslustjóra.
Ekki er vitað til þess að þetta hafi
verið borið undir viðkomandi
starfsmenn.
Að sögn Þorbjörns Brodda-
sonar, fulltrúa Alþýðubandalags-
ins í fræðsluráði er meginniður-
staða lögfræðinganna sú að hér sé
um að ræða gjörbreytingu á yfir-
stjórn fræðslumála í Reykjavíic og
gangi hún þvert á gildandi lög.
Lögskipuð verkefni verði ekki
tekin af fræðslustjóra með samn-
ingum eða reglugerðum heldur
aðeins með lagabreytingum . Álits-
gerðirnar eru unnar fyrir Áslaugu
Brynjólfsdóttur fræðslustjóra, en
óánægja Sjálfstæðisflokksins með
skipan skólamála í Reykjavík varð
til sl. haust þegar hún var skipuð í
stöðuna en ekki Sigurjón Fjeld-
sted, kandidat flokksins.
segir Svavar Gestsson
S t j órnarmyndunin:____________________
Úrsllt ráðast í dag
sögðu Steingrímur Hermannsson og Geir Hallgrímsson
„Ég haf lagt mikla áherslu á því
að ljúka þessum málum þann tíma
sem ég hef verið hér í ráðuneytinu
og fagna því að við lok starfstíma-
bils fráfarandi ríkisstjórnar skuli
loks komið hreint borð í þessurn
efnum“, sagði Svavar Gestsson,
heilbrigðisráðherra í gær, um
skuldauppgjör ríkissjóðs og
Reykjavíkurborgar.
„Fjárhagsleg samskipti borgar-
Svavar Gestsson
innar og ríkisins vegna byggi ga
heilbrigðisstofnana hafa verið ólj-
ós um langt árabil", sagði Svavar,
„og það er ekki fyrr en nú að Al-
þýðubandalagið fer bæði með fjár-
málaráðuneyti og heilbrigðisráðu-
neyti að lausn hefur fengist þar á.
Ég hef enda lagt á það mikla
áherslu sem þingmaður Reykvík-
inga að við svo búið megi ekki
lengur standa.“
Svavar sagði að á síðustu árum
hefði engin skuld af þéssu tagi
myndast hjá ríkissjóði. „Hér er
fyrst og frmst um að ræða skuldir
frá þeirn tíma þegar borgin fór
langt fram úr ríkisframlögum með
framkvæmdir í heilbrigðismálum",
sagði hann. „Vinstri meirihlutinn i
borgarstjórn breytti um stefnu í
þessu efni og lagði á það áherslu að
framlög ríkis og borgar yrðu nokk-
uð samhliða. Ég tel sérstaka á-
stæðu til að fagna því að þessi niður-
staða hefur fengist nú, þanmg að
við lok starfstímabils fráfarandi
ríkisstjórnar er loks komið hreint
borð í þessum efnum gagnvart
Reykjavíkurborg“, sagði Svavar
Gestsson að lokum. _ ÁI.
Eftir látlaus fundahöld ýmis
samningancfnda eða þingflokka
Framsóknar og Sjálfstæðisflokks í
gær, var það samdóma álit þeirra
Geirs Hallgrímssonar og Stein-
gríms Hcrmannssonar að í dag
(miðvikudga) myndi fást úr því
skorið hvort þessir flokkar ná
saman cða ekki. í gær var það ein-
hver útreikningur Þjóðhagsstofn-
unar sem kom ekki fyrr en um
kvöldmat, sem allt valt á að því er
manni virtist af ummælum þing-
manna.
Geir Hallgrímsson sagði síðdegis
<að hann þyrði engu um það að spá
hvort uppúr slitnaði eða saman
drægi með flokkununr.
Menn geta nú sagt sér það sjálfir
að ekki hefur náðst neitt sam-
komulag milli flokkanna um
aðgerðir 1. júní, sagði Geir.
Okkar leið er afar skýr, við mun-
um hafa niðurtalninguna að
leiðarljósi í þessum stjórnarmynd-
unarviðræðum, sagði Steingrímur
Hermannsson, aðspurður um
hverjar væru efnahagstillögur
Framsóknarflokksins. Hann bætti
við að Framsóknarmenn vildu
Lm kvöldmatarleytið í gær héldu
samninganefndir Framsóknar og
Sjálfstæðisflokks áfram viðræðum
sínum og höfðu þá fengið til liðs við
sig „aðmírála“ íslenskra peninga og
efnahagsmála, þá Jón Sigurðsson
forstjóra Þjóðhagsstofnunar, sem
kom með nýja útrcikninga fyrir
breyta eða afnema vísitölu á kaup,
skerða vísitöluna strax nú 1. júní og
menn éteru kannski ekki á eitt sátt-
ir um hvort bæturnar ættu að verða
4% - 6% eða 8%. Svo væru menn
að ræða hvað ætti að koma á móti
til að vernda kaupmátt þeirra
lægstlaunuðu. _ S.dór.
flokkana og dr. Jóhannes Nordal,
seðlabankastjóra.
Að því er þeir Geir og Steingrím-
ur sögðu í gær var hér um afar
nierkilegar tölur og útreikninga að
ræða, sem Jón Sigurðsson kom
með á fundinn.
-S.dór.
Sérfræðingar í spUið