Þjóðviljinn - 12.05.1983, Síða 4
12 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN
Kimmtudagur 12. maí 1983 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 13
BLAÐAUKI BLAÐAUKI
ERU
BAKTERÍUR
LAUSNIN?
„Það er miklu meira af
eggjum á trjánum núna en
var í fyrravor, en það er alltof
snemmt að spá því hvert
framhaldið verður“, sagði
Jón Gunnar Ottósson,
skordýrafræðingur, þegar
Þjóðviljinn spurði hann um
horfur á maðkaplágu í sumar
og varnirgegn
fiðrildalirfunni.
„Ef eggin klekjast út áöur en trén
laufgast, verður ekkert fyrir
lirfurnar að hafa og þær drepast“,
sagði Jón Gunnar. „Ef þau hins
vegar klekjast út á eftir laufguninni
ráða lirfurnarekki við laufin.
Klakið þarf því að hitta á
laufgunartíma trjánna til þess að úr
þessu verði plága og eins skiptir
veðurfarið á vaxtarskeiði lirfanna
talsverðu máli. Það er því ekkert
hægt að segj a um horfurnar á plágu
fyrrennærdregur
mánaðamótum.“
í fyrrasumar urðu miklar
umræður um varnir gegn
fiðrildalirfunni sem herjaði mjög á
garða Reykvíkinga og
eitrunaráhrif úðunarinnar, sem
óspart var beitt. Nú hefur
Borgarlæknisembættið í Reykjavík
ákveðið að herða eftirlit með
úðuninni og hefur öllum
garðyrkjumönnum íborginni verið
skrifað þar um. Þá hefur embættið
birt auglýsingu, þar sem
garðeigendur eru hvattir til að úða
ekki garða sína nema nauðsynlegt
sé, fylgjast grannt með því að
aðeins séu úðuð þau tré, sem
ormur er í, og aðeins í lygnu veðri
af garðyrkjumönnum sem hafa
leyfitil úðunar.
Baneitrað
efni
„Menn hafa úðað á öll tré og alla
garða allt sumarið, í stað þess að
úða á réttum tíma þær trjátegundir
einar sem skordýrin leggj ast á“,
sagði Jón Gunnar. „Það eru helst
lauftré eins og reynir, birki, víðir
og álmur, en lirfan sést yfirleitt
ekki á öspinni og hún sækir ekki á
barrtré.
Efnið sem notað er til
úðunarinnar er baneitrað," sagði
hann. „Það stoppar taugaboð og
hefur sömu áhrif á öll dýr, þó það
þurfi meira magn á manninn en
fiðrildalirfuna. Það er því fráleitt
að umgangast þetta eitur eins og
gert hefur verið, auk þess sem það
er vitagagnslaust að úða á
vitlausum tíma og óþarft að úða tré
sem engin dýr eru í.“
- En hvenær er þá rétti tíminn til
aðúða?
„Eggin klekjast yfirleitt um
mánaðamótin maí/júní. Lirfan er í
trénu 2-3 vikur eftir hitastiginu, fer
síðan niður í moldina á silkiþræði
og púpar sig þar. Eftir 3 vikur af
júní á þvf aldrei að úða án þes að
skoða trén mjög vel áður.“
- Nú bentir þú í fyrra á aðrar
aðferðir til að losna við
fiðrildalirfuna og þann skaða sem
hún veldur?
„Já, það er hægt að beita ýmsum
öðrum aðferðum, sem ekki hafa
verið reyndar hér að neinu marki.
Þannig má t.d. beita vetrarúðun til
þess að drepa eggin. Ég álít það
mun auðveldari og skynsamlegri
leið og hún er ekki ný, enda lýsir
Geir Gígja henni í bók sinni sem
kom út 1944. Efnið sem notað er er
veik tjörublanda, sem lokar
eggjunum og drepur þau. Tjaran
skolast síðan af trénu aftur en það
má ekki úða barrtré með henni.
Það gerir í sj álfu sér ekkert til því
fiðrildalirfan sækir ekki í barrtré
hér hjá okkur. Að öðru leyti er
þetta skaðlaust efni. Ég sprautaði
nokkra garða í Reykj avík í vetur og
fékk tjöruna auðvitað á fötin mín
og hendurnar en það rann af.
Gallinn er bara sá að Sölufélagið,
sem flytur inn þetta efni á það ekki
til semstendur."
Límrönd
um stofninn
„Önnur aðferð er að koma í veg
fyrir varpið, og það er einfalt hjá
haustfetanum. Kvendýriðer
ófleygt og þegar það kemur úr
púpunni þarf það að skríða upp
trjástofninn til að verpa. Aðferðin
er fólgin í því að setja límrönd
umhverfis stofninn neðanverðan,
þannig að dýrið festist þar. Þetta er
mj ög algengt t. d. í ávaxtatrj árækt í
Mið-Evrópu og ég prófaði þetta
s.l. haust í Rannsóknastöð
Skógræktar ríkisins að Mógilsá
með ágætum árangri. í sumum
trjánum veiddiéghvertdýrsem .
ætlaði upp og nú þegar trén eru
skoðuð eru engin egg í þeim. Það
er hins vegar svo að það er enginn
sem flytur þessi sérstöku límbönd
inn ennþá og því er erfitt að nálgast
þau. Þessi aðferð hentar
sérstaklega vel þar sem tré eru fá
og hávaxin í görðum en verr við
runna.“
Bakteríur
sem drepa
lirfurnar
t vor fékk Jón Gunnar leyfi
heilbrigðisráðuneytisins til að
flytja inn í tilraunaskyni sérstakar
bakteríur, til að granda
fiðrildalirfunum. Við báðum hann
að segja nánar frá þeim.
„Þetta eru jarðvegsbakteríur,
em framleiða glycoprótein sem
kristallast og leysist ekki upp nema
í basísku umhverfi, þar sem
sýrustigið er 8-10. í flestum dýrum
er umhverfið í meltingarveginum
mjög súrt, þar á meðal í
manninum, þannig að kristallinn
leysist ekki upp þar. Undantekning
er fiðrildalirfan, sýrustig í görnum
hennar er 8-10 og þegar hún étur
bakteríurnar með laufunum leysist
kristallinn upp og drepur hana.
Hins vegar á maðurinn að öllum
líkindum að geta étið fleiri kíló af
þessu án þess að verða meint af, því
kristallinn sj álfur á ekki að skaða. “
Bakteríurnar sem hér um ræðir
koma frá Sviss og sagði Jón að þær
hefðu verið reyndar víða erlendis
og notaðar lengi. Hann hyggst
sprauta þeim á tré í
Rannsóknastofnuninni að Mógilsá
í sumar og ennfremur gera tilraunir
á ýmsum skordýrum inni við til að
ganga úr skugga um hvort efnið er
skaðlaust öðrum kvikindum en
fiðrildalirfunni. Árangur
tilraunarinnar ætti væntanlega að
vera ljós í júlímánuði.
Margar betri aðferðir en sumarúðun, segir Jón Gunnar Ottósson, skordýrafræðingur
Haustfeti, óf leygt kvendýrið til
vinstri og karldýr til hægri.
Kvendýrið verður að skriða
upp stofninn til að verpa og þá
för má hindra með lími. Ljósm.
gel.
Jón Gunnar Ottósson við
trjáskoðun ífyrrasumar. Til
hægri má sjá illa út leikin lauf á
loðvíði, öll sundurnöguð af
fiðrildalirfunni. Ljósm. gel.
Grill
utan
dyra
Fyrir nokkrum árum þekktist
ekki að íslendingargrilluðu
mát utan dyra en nú er vart til
sú fjölskylda sem ekki á
útigrill. Hérerdæmi um
aðstöðu fyrir þessa vinsælu
matseld, sem koma má upp
utan dyra og það án þess að
leggja í mikinn kostnað.
í einhverju dimmu skoti
garðsins, sem ekki er fýsilegt til
ræktunar, er upplagt að smíða
grillborð eins og það sem hér er
sýnt. Ofan á borðinu er komið
fyrir lágu grilli og auk þess er
pláss fyrir ýmislegt sem fylgir
matseldinni en á neðri plötunni
er hægt að geynra kolin. Þar sem
börn eru er þó ekki viturlegt að
geyma grillolíuna á slíkum stað.
Fyrir ofan er hægt að setja króka í
vegginn fyrir ýmis áhöld.
Komið ykkur upp ákveðnum stað fyrir útigrillið, þetta þarfaþing matargerðarlistarinnar!
Nu.er tími
qarðrosanna
^ Eigum nú eftirfaiandi
tegundir garörósa fyrirliggjandi:
EÐALRÚSIR:
Alexander ........................ orangerauð angandi blóm, langir stilkar, sniðrós
Dame de Coeur .................... dumbrauð
Duftwolke ........................ rauð mjög blómsæl, stendur vel af sér kvilla
Ena Harkness ..................... dökkrauð mjög harðgerð angandi blóm
Hanne ............................ dökkrauð angandi blóm, sendist vel
Kings Ransom ..................... gul gullgul angandi blóm
Manou Meilland ................... kirsuberjarauð
Mojave ........................... gul með rauðu næstum þyrnalaus margverðlaunuð
Peace ............................ gul/rósa friðarósin tvílit blóm
Pear Gynt ........................ gul stór gullgul blóm
Piccadilly ....................... gul/rauð stór ilmsæt blóm tvilit
Pink Peace ....................... bleik bleikt afbrigði af Peace
Prima Ballerine .................. gul/rauð afar ilmsæt tvíiit
Queen Elisabeth .................. rósrauð mörg stór blóm saman á stilk
Summer Holliday .................. orangerauð þolir regn mjög vel afb. Super Star
Super Star ....................... orangerauð óviðjafnanleg angandi blóm
Virgo ............................ hvít hreinhvit angandi blóm
White Queen Elisabeth ............ hvít hvítt afbr. af Q. Elisabeth
SKÚFRÚSIR:
Alain ............................ dökkrauð hálffylltblpmdaufangan
Allgold .......................... gul harðger blómin fölna ekki
Allotria ......................... orangerauð skær orangerauð
Dolly ............................ dökbleik
Ema Grootendorst ................. dökkrauð afar harðger
Europeana ........................ rauð Harðger þybbið vaxtarlag
Heidekind ........................ rós-bleik mjög góð gróðurskálarós
Irene af Danmark ................. hvít dauf angan afar blómsæl
Joseph Guy ....................... kirsuberjarauð mjög harðger liflega hlýrauð blóm
La Sevilliana .................... rauð
Lilli Marleen .................... dökkrauð eðalrósablóm með flauelsslikju
Nina Weibull ..................... rauð mjög frostþolin ónæm fyrir regni
Olala ............................ dökkrauð blóðrauð blóm i stórum skúffum
Orange Triumph ................... orangerauð . afar harðger þakin blómum
Schneewitchen .................... hvit stórvaxin harðger
TomTom ........................... rós-bleik angandi stór endingagóð blóm
SKRIBRÚSIR:
he Fairy ......................... rós-bleik góð gróðurskálarós
Red Ballerina .................... rauð langur blómgunartimi 100blóm iskúf
Swany ............................ hvit blómgast mjög mikið árvöxturinn
KUFURRÚSIR:
Chinatown ........................ gul blómgastá sumarvöxtin hæð 1-1,5 mtr.
Elsmhorn rauð stendur vel af sér alla kvilla 1,5 mtr.
Feunverk orangerauð glóðarrauð 1,5 mtr.
Flammentanz rauð sú alharðasta
Golden Showers gul eðalrósalík 2-3 mtr.
Heidelberg rauð velfyllt blóðrauð blóm 5 mtr.
Hamburger Phoenix rauð harðger mjög blómsæl
Lucia gul stór gullgul angandi blóm 1,5 mtr.
New Dawn rósrauð góð gróðurskálarós 2 mtr.
Polstjarna hvit gömul afar harðger sort
Purity hvit fin gróðurskálarós um 2 mtr.
Sympathie dökkrauð eðalrósalík blaðmikil
Westerland orangegul hálffyllt angandi blóm 1,5 mtr.
Wilhelm rauð stórir klasar,. mjög fin veggrós"
DVERGRÚSIR: Baby Masquerade gul með rauðu góð pottarós, mikið litaspil
Minuetto rauðorange hálfyllt glóðarrauð blóm, pottarós
Scarletta skarlatsrauð stórir skúfar, þybbið vaxtarlag
Little Buckero dökkrauð angandi blóm, bronsslikja á blöðum
RUNNARÚSIR:
Heiðaros — Domröschen - rósrauð árviss blómgun, eðalrósablóm.
gullrós - Persian Yellow - gul hreingul velfyllt blóm
Skáldarós — Splendens — rauð mjög spengileg og blómsæl.
Kinarós - arosa Hugonis - .... gul viðkvæm, finlegt laufskrúð.
Meyjarós - Rosa Moyesi - rauð dansandi vaxtarlag, harðger
Fjallarós - Rosa Pendulina - rauð blómviljugasta villirósin
Þymirós - Maigold - gul skærgul fyllt angandi blóm
ígulrós - F.J. Grootendorst - ... rauð viðkvæm en blómgast á ársvöxtinn
Igulrós - Hansa - rauð (fjólublá) örugg, þolir særok vel, angandi blóm
igulrós - Moje Hammerberg - fjólurauð eins og HANSA en lægri, stór blóm
ígulrós - Pink Grotndorst - .... rósrauð bleik F.J. GR00TEND0RST
Igulrós - Scheezwerg - hvit hálffyllt angandi blóm, harðger
Auk ofantalinna rósa höfum við svo á boðstolum rósir sem einkum eru ætladar til
ræktunar í stofum og litlum gróðurskálum.
Þessar rósir eru úr fiokki dvergrósa en eru samt dálitið viðkvæmari en þær
dvergrósir sem taldar voru upp í listanum hér að ofan:
POTTARÚSIR:
Morsdag fagurrauð litil eðalrósablóm. Snövit skjannhvit smá fyllt blóm.
Orange Morsdag með laxórange blómlit. Orange Meillandiana með glóðarrauð litil fyllt blóm.
Sendum gjaman um allt land.
Gróðurhúsinu við Sigtún: Símar 36770-86340