Þjóðviljinn - 21.06.1983, Qupperneq 2

Þjóðviljinn - 21.06.1983, Qupperneq 2
2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINNj Þriðjudagur 21. júní 1983 Bridge Það er einkenni á góðum fórnum að þær kosfa minna en „game" andstæðinganna, en besta „fórnin" er samt sú sem færir vinning í búið. Frá sumarbridginu í Domus, 9. júni. D- riðill: Vestur S D842 H 8543 T 6 LG1093 S gefur, N/S á hættu. Á allflestum borðum varð A sagnhafi í 4-hjörtum. Eitt borð skar sig úr. Þar fórnuðu N/S í 5-tígla, þrátt fyrir óhagstæðar hættur. Suður vakti á 3-tiglum, norður (Lárus Hermansson) lyfti í 4-tígla. Austur meldaði sitt „game“ og tvö pöss til Lárusar, sem hélt sér fast á baki; 5-tíglar; og austur flaggaði rauðu. Út kom lauf-gosi og heldur kætti það sagnhafa, því sýnt var nú að hjarta-úttektin stæði. 200 yrði áreiðanlega prýðisskor. En fyrst var nú að kanna hvort ekki væri unnt að drösla fórninni í mark. Útspilið tekið á ás og lauf trompað. Hjarta á tromp. Lauf á tromp, og birtist þá blessaöur kóng- urinn. Nú var bara að ákveða tromp-lengd austurs. Ef hann á kóng, stakan, er nauð- synlegt að leggja nú niður ás. En sagnhafi afréð að spila austur upp á kóng annan; Hjarta tromp Lauf drottningu húrrað út. Austur trompaði með gosa, yfirtrompað. Tígulás og hjarta á síðasta tromp blinds. Lauf-sjö sá síðan fyrir einu spaða niður- kasti. Austur var hneykslaður: ÉG átti 21 punkt...!“ Norður SG1063 H - T 9872 L AD754 Austur S AK HAK10762 TKG LK82 Suður S975 H DG9 TAD10543 L 6 Skák j | m W J U lx K0 ^ •\ M' U Kí F ' ' ' ^ íc4 * | É . UÆ Fulltrúar Reykjavíkurborgar og gestgjafarnir á Grænlandi, talið frá vinstri: Jörgen Sten Larsen, bæjarritari í NUUK, Markús Örn Antons- son, forseti borgarstjórnar, Peter Th. Högh, bæjarstjóri í NUUK, Sigurjón Fjeldsted, borgarfulltrúi, Guðrún Jónsdóttir, borgarfulltrúi, Vilhjálntur Þ. Vilhjálmsson, borgarfulltrúi, Gunnar Eydal, skrifstofu- stjóri borgarstjórnar, Guðrún Ágústsdóttir, borgarfulltrúi, Jón G. Kristjánsson, starfsmannastjóri. Nýtt vinabæjasamband Reykjavík — Nuuk Dagana 29. maí - 5. júní dvöld- ust 7 fulltrúar frá Reykjavíkur- borgar í Nuuk höfuðstað Græn- lands í boði bæjarstjórnarinnar þar. Var með þessu verið að endurgjaida heimsókn fulltrúa bæjarstjórnarinnar í Nuuk, sem komu til Reykjavíkur s.l. sumar í boði borgarstjórnar. Hér er unt að ræða fyrstu form- legu heimsóknirnar af þessu tagi milli höfuðstaða landsins. í íslensku sendinefndinni áttu sæti Markús Örn Antonsson, for- seti borgarstjórnar, borgarfull- trúarnir Guðrún Ágústsdóttir, Guðrún Jónsdóttir, Sigurjón Fjeldsted og Vilhjálmur Þ. Vil- hjálmsson ásamt tveimur emb-. ættismönnum, Gunnari Eydal, skrifstofustjóra borgarstjórnar, og Jóni G. Kristjánssyni, starfs- mannastjóra. Á fundi sem haldinn var með fulltrúum bæjarstjórnarinnar í Nuuk var ákveðið að taka upp formleg samskipti ntilli höf- uðstaðanna með því m.a. að skiptast á heimsóknum. Jafn- framt var um það rætt, að taka upp samvinnu varðandi atvinnu- mál á þann hátt, að nokkrum ungum Grænlendingum verði gefinn kostur á að dveljast í Reykjavík um nokkurra mánaða skeið til þess að kynnast íslensk- um atvinnuháttum og myndi Reykjavíkurborg hafa forgöngu um að útvega þeim störf við hæfi hvers og eins. Af hálfu Græn- lendinga komu fram sérstakar óskir um sjávarútveg og fisk- iðnað í þessu sambandi. Einnig var lögð áhersla á samskipti á sviði menningarmála. Af hálfu bæjarstjórnarinnar í Nuuk var ráðgerð sams konar fyrirgreiðsla gagnvart íslendingum. Þá bauð Reykjavíkurborg tveimur grænlenskum unglingum til hálfs mánaðar dvalar í Reykja- vík og mun framkvæmdastjóri æskulýðsráðs skipuleggja dvöl þeirra. Þeir eru væntanlegir í júlí- mánuði n.k. og munu m.a. taka þátt í æskulýðsstarfi því sem rek- ið er á vegum æskulýðsráðs. Karpov að tafli — 155 Karpov komst í snertingu við toppinn á Sovétmeistaramótinu 1976 meö þvi að vinna efsta mann Dorfman í 7. umferð mótsins. Sú skák var geipilega flókin og skemmtilega tefld af beggja hálfu. Karpov fórnaði manni þegar i 14. leik, fékk þrjú peð en svartur náði gagnsókn. Á mikilvægu augnabliki gaf hann ettir og Karpov náði yfirhöndinni. I þessari stöðu fór skákin í bið: Karpov - Dorfman Liðsafli er jafn en kóngsstaða svarts opin upp á gátt og því hefur hvítur mikla vinn- ingsmöguleika. En mikillar nákvæmni er þörf... 41. Hg8+ (Biðleikur Karpovs) 41. ... Ke7 42. Dh4 Kd7 43. D16! He7 (Ekki 43. - Dc7 44. Dxf7+ Kc6 45. Df6+ Kc5 46. Df1 De7 47. Dc4+ Kd6 48. Da6+ Kd7 49. Dc8+ o.s.frv.) 44. Df5 fd6 (Eða 44. - Kc6 45. Da5) 45. Dxa5 (Peð yfir og kóngssókn. Það nægir.) 45. ... He5 46. Dd8+ Ke6 47. Kb2 f6 48. Hf8 Dg7 49. Dc8 Kd5 50. Dc4+ - Svartur gafst upp. Eiðfaxi Út er komið 5.-6. tbl. Eiðfaxa og hefst það á forystugrein eftir Kára Arnórsson, þar sem hann ræðir um ræktunarmálin. Rætt er við Björn Jónsson, stjórnarformann „Melgerðis- mela“ en þar er fyrirhugað fjórðungsmót í sumar. Sigurður Sigmundsson spjallar við Jóhann Þorsteinsson á Miðsitju í Blöndu- hlíð, kunnan hestamann. Sveinn Runólfsson, landgræðslustjóri skrifar greinina „Ferðalög, beit og umgengni um landið“. Björn Steinbjörnsson fjallar um sumar- exemið og íslensk hross erlendis. Sagt er frá afkvæmaprófun stóð- hesta 1983. Eiríkur Jónsson skrif- ar um ljósmyndun á hesta- mótum. Hjalti Jón Sveinsson ræðir við Þorvald Árnason um rannsóknir hans á íslenskum stóðhestum og Ingimar Ingimars- son tamningamann og reiðkenn- ara á Hólum í Hjaltadal. Eru þá upptaldir viðamestu greinarnar en auk þeirra er mikill mýgrútur af fréttum og ágætum myndum í ritinu. - mhg Prentvilla í blaði var á þessa leið: Hann hlaut hvorttveggju verðlaunin. Þar átti að standa: Hann hlaut hvortveggju verðlaunin.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.