Þjóðviljinn - 21.06.1983, Side 6

Þjóðviljinn - 21.06.1983, Side 6
6 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN ÞríSjudagur 21. júní 1983 Merkur áfangi í heilbrigðisþjónustu landsmanna: Á innfelldu myndinni sést hvernig byggingin stóð óhreyfð þar til á ár- inu 1980 og á þeirri stóru er B-álm- an fullreist. Ljósm. -eik. 0 Rétt aðeins að þurrka af borðinu og þá er allt tilbúið. Ljósm.: -eik. í gærdag var merkum áfanga náð í heilbrigðisþjónustu lands- manna, - fyrsti sjúklingurinn var lagður inná B-álmu Borgarspítal- ans og í dag verður þessi veglega 7 hæða bygging formlega tekin í notkun. Það er 6. hæðin sem nú er fullgerð og mun rúma 29 sjúklinga en síðar á þessu ári verður 5. hæðin sem er jafnstór, væntanlega einnig tekin í gagnið. B-álman er reist af Reykjavíkur- borg og ríkinu og fékkst til hennar fé úr Framkvæmdasjóði aldraðra, sem stofnaður var 1980. Á árinu 1980 var staðfest að B-álman skyldi þjóna öldruðum langlegusjúk- lingum eingöngu og hefur Ársæll Jónsson, sérfræðingur í öldrunar- hverjum tveimur stofum er snyrti- herbergi og handlaug og skápar í hverri stofu. Á hæðinni er einnig stórt baðherbergi með sturtu og baðkeri sem hægt er að stilla í mis- munandi hæð og einnig annað bað- herbergi minna. Hægt er að fara um alla hæðina í hjólastól og er ekki að efa að svalirnar sunnan megin með sínu dýrlega útsýni munu njóta mikilla vinsælda þeirra sem eiga eftir að dvelja í B- álmunni. - AI 10 ára saga En B-álman á sér sannarlega lengri sögu en ætla mætti af þessum ártölum. Þörfin fyrir stóra og vel búna sjúkrastofnun fyrir 'aldraða hefur verið viðurkennd frá því um 1970 en því miður var það meira í orði en á borði lengst framan af. Farið var að huga að byggingunni 1973 en framkvæmdir hófust þó ekki fyrr en síðla árs 1977. Vorið 1978 var fyrsta verkþættinum lok- ið, komnir voru sökklar og botn- plata en þá hafði ekki verið séð fyrir fjármagni í framhaldið. Eftir kosningar 1978 ákvað stjórn Borg- arspítaians að einbeita sér við að ljúka nýju slysadeildinni, sem einnig stóð hálfköruð og tekið var til við að breyta teikningUm af B- álmunni og var hún m.a. stækkuð um tæplega 1000 fermetra. Pað var svo á árinu 1980 þegar slysa- deildinni var lokið að aftur var haf- ist handa við B-álmuna og hún rauk upp á árinu 1981 m.a. vegna tilkomu Framkvæmdasjóðs aldr- aðra. Húsið varð fokhelt í mars 1982 og til stóð að opna fyrstu hæðina í september sama ár. Það tókst hins vegar ekki en hálfs árs töf á lokasprettinum er nú kannski ekki mesta málið eftir allan þennan tíma. í för okkar Þjóðviljamanna slógust Adda Bára Sigfúsdóttir og Svavar Gestsson en þau hafa á undanförnum árum unnið markvisst að því að tryggja fé og framkvæmdir við B-álmuna. Hér eru þau á tali við Önnu Birnu Jensdóttur aðstoðardeildarstjóra og Brynjólf Jónsson viðskipta- fræðing. Ljósm. -eik. Uppbúin rúm fyrir 29 sjúklinga, fullgerð rúmar álman 174 sjúklinga Byggingarfulltrúi og eldvarnareftirlitsmenn huga að teikningum og örygg- isútbúnaði 6. hæðarinnar. Ljósm.: -eik. Sérhannað lyftibaðkar og stóll sem lyfta má sjúklingum úr rúmi með og keyra síðan beint inn í sturtuna, - betri hjálpartæki eru ekki á boðstólum. Anna Birna Jensdóttir aðstoðardcildarstjóri sýnir þeim Svavari og Öddu Báru baðherbergi deildarinnar. B-álman verður björt og falleg og á þeirri hæð sem nú er verið að opna er aðstaða öll mjög góð og betri en á eldri deildum spítalans, bæði fyrir starfsmenn og sjúklinga. Á hæðinni eru 29 rúm, 6 þriggja rúma stofur, 4 tveggja rúma stofur og 3 stofur með einu rúmi. Með lækningum, verið ráðinn að deildinni. Fullbúin mun álman rúma 174 sjúkrarúm á 2.-7. hæð en kjallari og 1. hæð verða þjónustu- og geymslurými. Vistun verður á- kveðin í samvinnu við þjónustu- miðstöð aldraðra og er ætlunin að sjúklingar komi jöfnum höndum af heimilum úti í bæ og af sjúkrastofn- unum. í tilefni af þessum tímamótum litu Þjóðviljamenn inn í B-álmuna í síðustu viku, þar sem múgur og margmenni voru að leggja síðustu hönd á verk sín. Á staðnum voru byggingarfræðingar, eldvarnareftirlitsmenn og iðnaðar- menn en auk þess starfslið sjúkra- hússins, hjúkrunarfræðingar, ræst- ingarkonur og starfsmenn skrifsto- funnar. Allt skyldi klappað og klárt fyrir fyrsta sjúklinginn sem vænt- anlegur var á mánudag, þ.e. í gær. Með í för okkar Þjóðviljamanna voru þau Adda Bára Sigfúsdóttir og Svavar Gestsson, en bygging B- álmunnar hefur verið þeim mikið metnaðarmál og á undanförnum árum hafa þau, að öllum öðrum ólöstuðum átt drjúgan hlut í að hún er nú orðin að veruleika: Adda sem formaður stjórnar Borgarspítalans 1978-1982 og sem stjórnarmaður í Framkvæmdasjóði aldraðra frá stofnun hans 1980 og Svavar sem heilbrigðisráðherra 1980-1983. B-álman tekin í notkun

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.