Þjóðviljinn - 21.06.1983, Side 9

Þjóðviljinn - 21.06.1983, Side 9
Vaxandi stjórnarandstaða í Chile_ Örvilnað fólk Segir John E. Löfblad, formaður Alþjóðasambands byggingamanna, sem var á ferð í Chile fyrir skömmu Fólk er örvilnað í Chile og ástandið er ólýsandi slæmt, sagði John E. Löfblad formaður Alþjóðasambands byggingamanna í viðtali við Þjóðviljann fyrir helgi, en hann var í Chile í mars sl. fyrir alþjóðasambandið John E. Löfblad var hér á íslandi til að taka þátt í þingi norræna sam- banda byggingamanna sem haldið var í Reykjavík í síðustu viku. John E. Löfbíad sem er Svíi, hélt erindi á ráðstefnunni þarsem hann sagði frá samhjálp Alþjóðasambandsins í löndum þriðja heimsins, þarsem verkalýðsfélög eru ólögleg og starf- semi þeirra bæld niður. En áður en við komum að þeim málum spurðum við Löfblad fyrst um al- þjóðasambandið: - Aðild að Alþjóðasambandi byggingamanna eiga 110 sambönd byggingamanna (þ.m.t. tré- iðnaðarmenn) í 60 löndum. Al- þjóðasambandið hefur aðsetur í Genf. Atvinnuleysi mikið valdamál Meðal byggingamanna í Evrópu er helsta vandamálið að sjálfsögðu atvinnuleysi og reynir Alþjóða- sambandið að sporna við fótum eftir mætti. í Belgíu og Hollandi er atvinnuleysi meðal bygginga- manna um 30%, í Vestur- Þýskalandi um 25%, í Bretlandi um 30%. Og í mörgum löndum þriðja heimsins er atvinnuleysi meðal byggingamanna allt að 50%. Og við hið hrikalega atvinnuleysi í fátækari löndununt bætist ófull- komin félagsleg samhjálp og jafn- vel harðsvíruð andstaða stjórn- valda við fagfélögin í þessum löndum. - Því miður hef ég ekki trú á að ástandið í atvinnumálum batni nokkuð að ráði á næstunni. Krepp- an er enn í gangi - en verst kemur hún niðurá þriðja heiminum. Okk- ar verkefni hafa að sjálfsögðu verið annars vegar baráttan gegn atvinn- uieysinu og hins vegar aðstoð við fagfélög í fátækari löndum heims. Með stéttarbræðrum í Chile - Meðal stórra verkefná hjá Alþjóðasambandinu hafa verið alls konar stuðningsaðgerðir við verka- lýðshreyfingar í Suður-Afríku, As- íu og Suður-Ameríku. Og nú síð- ustu misseri höfum við lagt mikið uppúr stuðningi við verkalýð og ólöglega verkalýðshreyfingu í Chile. Og þar látum við ekki sitja við ályktanir og aðrar slíkar aðgerðir, heldur höfum við og staðið fyrir fjársöfnunum, enda er þörfin brýn þar í landi. Við höfum einnig stutt sérstaklega við bakið á stéttarbræðrum okkar þar, sem staðið hafa í verkföllum. I rriars sl. fór ég svo til Chile til að kynna mér aðstæður og til aö veita verkfallsmönnum í Colbun 300 km suður af Santiago stuðning. Pinochet á fallanda fæti - Ástandið í Chile kom mér öm- urlega fyrir sjónir. Leiftursókn Pinochet ríkisstjórnarinnar hefur gengið afar hart að atvinnuvegun- um og öllum almenningi í landinu. Þarna sáum við fólk sem lifir á hungurmörkum, - og margir svelta heilu hungri í landinu. Um það leyti sem við komum til Chile höfðu víða verið verkföll, skæru- verkföll sem sums staðar höfðu verið barin niður af hörku og óbil- girni. Andi Friedmanns svífur yfir vötnum Leiftur- sóknin í Chile „Meir að segja ríkisstjórnin reynir ekki að þræta fyrir að landið er á kafi í efnahagslegu öngþveiti.Á árinu 1982 dróst þjóðarfrandeiðsla saman um 14.1% (sem er trúlcga eins- dærni í stóru landi frá því á fjórða áratugnum). Erlendar skuldir í Chile eru taldar vera um 17 miljarðar bandarískra dollara, tvöfalt á við Brasilíu og 30% hærri skuldir en hjá Mexíkó miðað við fjólks- fjölda. Opinber tala atvinnu- lausra er 20% en auk þess er 15% skráð í atvinnubótavinnu sem menn fá sáralítil laun fyrir. Þetta er gert samkvæmt sérstökum lögum ríkisstjórn- arinnar um atvinnuskapandi vinnu m.a. til að verðbólgan haldist innan 20%„ (Finaneial Times 9. mars) ____________________-óg - Eftir að ég fór hef ég fengið upplýsingar um áframhaldandi verkföll og mótmælaðgerðir við þessa óhugnanlegu stjórn í Chile. Og einsog kunnugt er kom til átaka nú í þessari viku. Ég fékk það á tilfinninguna og það var mat viðmælenda minna í Chile, að til að byrja með myndi Pinochet-stjórnin herða tökin enn í landinu og reyna að kæfa niður hvers konar inót- þróa, en þegar til lengri tíma er litið, muni hún gefast upp eða verða rekin frá völdum. Þessi ríkis- stjórn nýtur varla stuðnings nokk- urs manns, nema hersins og það er hann sem heldur henni við lýði. En það er greinilegt hjá talsmönnum verkalýðshreyfingarinnar, að síð- ustu misseri hefur lifnað yfir bar- áttu þeirra, fyrir faglegri tilveru þeirra og almennum lýðréttindum í landinu sem þar eru fótum troðin. Verkfalliö í Colbun - Ég heimsótti verkfallsstaðinn Colbun í Chile, þarsem 1500 menn hafa verið í verkfalli síðan um ára- mótin. Þessir menn höfðu 1 dollar í laun á dag, langt fyrir neðan það sem nægir til að framfleyta fjöl- skyldunum. Þessir menn mynduðu með sér samtök, kröfðust launa- hækkunar og viðurkenningar á verkalýðsfélaginu. - Fyrirtækið sem hér um ræðir er orkuver, sem fjölþjóðahringur að- allega undir franskri eign, hefur á sínum snærum. Fyrirtækið hefur notið stuðnings Chile-stjórnarinn- ar í átökunum við verkfallsmenn, sem hefur tekist að vekja mikla at- hygli á málstað sínum. Við höfum stutt þetta verkalýðsfélag og ver- kfallsmenn m.a. með fjár- stuðningi. Það er á margan hátt aðdáunar- vert við þessar aðstæður hve verk- fallsmenn hafa brugðist skynsam- lega við með innbyrðis samhjálp og stuðningi fjölskyldna þeirra. Þeir hafa einnig notið stuðnings ann- arra verkalýðsfélaga víðs vegar um Chile, en í auknurn mæli hefur kornið til verkfalla þar síðustu mánuði og vikur einsog kunnugt er. - Verkamenn og fjölskyldur þeirra hafa slegið saman; búa saman og hafa sameiginlegt mötu- neyti í námunda við Colbun. Við heimsóttum einn slíkan stað, Talca, þarsem 180 verkamenn og fjölskyldur þeirra, 500 manns í allt hafa mötuneyti. En okkur var gert ljóst að það hefði ekki tekist að halda jafn lengi út í þessu verkfalli hefði ekki alþjóðlegur stuðningur verkalýðshreyfingarinnar utan Chile komið til. - Við höfum einnig reynt að setja þrýsting á þann franska auðhring sem hefur með byggingu orkuversins að gera. Hingað til hefur ekki mikill árangur komið í ljós af þeim þrýstiaðgerðum. Handtökur og misþyrmingar Ég hef fengið bréf frá tveimur fylgdarmönnum mínum, forystu- mönnum í verkalýðshreyfingunni í Chile, þeim Atruro Valdes Prado, sem er í verkalýðsfélagi rafiðnað- armanna og Jósé Villegas sem er í forystu byggingaverkamanna í Coíbun. í bréfinu frá Arturo Valdes segir svo: „Daginn eftir að þú fórst, var ég handtekinn af leynilögreglunni (CNl), sem hélt mér föngnum í fimrn daga. Þar var ég í stöðugum yfirheyrslum og mér var misþyrmt og beittur sálrænum þrýstingi. Á meðan þessu stóð, var gerð húsleit heima hjá mér til að leita að leyni- skjölum (sem ég engin hef) og mik- ið af innbúi okkar hjóna var eyði- .. ’/sr, rr/r/t'. - - - ' ' Þriðjudagur 21. júní 1983 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 13 John E. Löfblad formaður Alþjóðasainbands byggingamanna. Fyrstu viðbrögð herforingjastjórnarinnar verða harkaleg, en ekki líður á löngu þartil hcnni verður komið frá. - (Ljósm. - Leifur) Lýðræði í Chile. Á þriðjudag í síðustu viku urðu víðtækustu mótmæla- aðgerðir við herforingjastjórnina sem hingað til hafa orðið í Chile. For- eldrar sendu börn sín ekki í skóla, bankar, verslanir og opinbcrar stofnan- ir og samgöngutæki voru ekki notuð af fólkinu. Aðgerðirnar nutu viðtæks stuðnings almennings. Og víða um lönd var tekið undir þessi mótmæli, sérstaklega þarsem Chilemenn eru landflótta. Þcssi mynd er tekin á Strik- inu í Kaupmannahöfn á þriðjudaginn. lagt. Fjölskylda mín hefur ekki ennþá jafnað sig eftir þetta áfall. Það var fylgst með okkur allan tímann sem þú varst hér, og þeir gáfu mér skýrslu í smáatriðum um heimsókn þína hér. Þetta er það sem gerist fyrir þús- undir Chilebúa, sem eru ekki fúsir til að una þegjandi þeirri ríkis- stjórn sem heldur okkur í þræl- dómi. En við munum sigra; sem Chilebúi fullvissa ég þig um það. í gær, 1. maí skoraði Alþýðusam- bandið á verkalýðinn að safnast saman á götunum til að mótmæla ríkjandi ástandi. Þúsundir manna urðu við áskoruninni þrátt fyrir að lögreglan brygðist við með fjölda- handtökum og misþyrmingum. Margir særðust í átökunum. Þessi dagur var sá virkasti 1. maí síðan herforingjastjórnin rændi völdum. Verkalýðurinn hefur hrist af sér idoðann. Hann mun aldrei sætta sig Ivið ósigur. Kæri vinur, það er ekki (allt lífið áþján og pína. Hin ný- glædda meðvitund alþýðu manna í Chile mun fyrr en varir færa okkur frelsi og lýðræði". Og í bréfinu frá José Villegas kveðurvið samatón. Hannsegirað sigurinn sé nærri, enda hafi fólk fengið nóg af hungri og fátækt þeirra dökku daga í Chile, sem þar hafa liðið síðustu tíu árin. Fasism- inn verði að taka enda. Alþjóðlegur stuðningur - fslendingar hafa ekki við atvinnuleysi að stríða í bygginga- iðnaðinum í sama mæli og ná- grannalöndin. En það eru ýmis hættumerki á lofti og ég óska þess að menn sjái nauðsyn þess að tryggja fjármagn í byggingaiðnað hér á landi. Ég vil enn fremur skora á íslendinga að fylgja samúð í garð fátækari landa eftir með virkum stuðningi, sagði John E. Löfblad formaður Alþjóðasambands bygg- ingamanna að lokum. -óg MIKAD á LAIGARIKKiFM i SFMAR Verzlunarmannafélag Reykjavíkur og Kaupmannasamtök íslands vilja hér með minna neytendur á að samkvæmt kjarasamningi verða verzlanir lokaðar á laugar- dögum yfir sumarmánuðina frá 20. júní til ágústloka. Verzlunarmannafélag Reykjavíkur Kaupmannasamtök íslands

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.