Þjóðviljinn - 23.07.1983, Side 10
• 10 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Helgin 23.-24. júlí 1983
Sögufrœgur
bœr úr
Skaftáreldum:
HEIMSÓKN í SKÁL
Hundarnir gelta eins og vitlausir þegar
viö göngum upp bæjarbrekkuna í Skál
og þagna ekki fyrr en Jóhanna
húsfreyja kemur út og sveiar þeim. Það
er greinilegt að ókunnugir eru hér ekki
daglegirgestir. Bærinn í Skál erdálítið
úr alfaraleið og hefur verið fremur
einangraður allt frá því að Skaftáreldar
brunnu fyrir 200 árum. Okkur langartil
að forvitnast svolítið á þessu forna
höfuðbóli sem eldarnir léku svo grátt,
þessum ævintýralega stað sem Jón
T rausti gerir að miðpunkti í Sögum f rá
Skáftáreldi.
Jóhanna segir að Árni bóndi sinn sé að
útiverkum en brátt kemur hann út úr bæjar-
sundinu, rólegur í fasi, lágvaxinn og
grannur með glettnisglampa í augnkrókum.
Hann verður áttræður á næsta ári. „Hér er
alveg ljómandi fallegt", segi §g við hann
eftir að hafa heilsað og horfi yfir grósku-
mikið túnið sem liggur niður að Skaftá en
handan við ána teygir sig grátt og úfið Eld-
hraunið eins langt og augað eygir. „Ég hef
nú aldrei tekið eftirpví, ég hef verið hér alla
mína ævi“, segir Árni að bragði og mér
finnst ekki laust við að stríðni gæti í rödd-
inni. Svona er að vera blaðasnápur og koma
blaðskellandi og óforvarandis. Hjónin
bjóða okkur nú blíðlega að ganga til bæjar
og þiggja kaffisopa.
Skál var metin til 30 hundraða að fornu
mati og er ein af stærstu jörðum sýslunnar.
Áður stóð bærinn niður á sléttlendinu og
þar var kirkja og höfðingjasetur. Þar bjó
Ormur Svínfellingur og Snorri Sturluson sat
þar að sæmd og vináttu er Sturla Sighvats-
son hafði hrakið hann frá eignum og völd-
um 1236 og þar var Gissur Þorvaldsson
hafður í haldi eftir Apavatnsfund. Jón
Trausti lýsir landi Skálar fyrir Skaftárelda í
sögu sinni og segir: „Allt þetta land var
nærri því óslitin breiða af grasi og gróðri og
víða skógi vaxið.“ Og þegar söguhetjan
Vigfús í Holti var að fara til launfundar við
Guðrúnu Alexandersdóttur, heimasætuna í
Skál, fór hann stundum þvert yfir Skálar-
fjall til þess að ekki sæist til hans og: „þá gat
hann líka af fjallsbrúninni litið ofan yfir alla
Skálatorfuna, - bæinn, túnið, engjarnar,
hagana og skógana, allt þetta fagra og ynd-.
islega land, sem átti eftir að verða hans að
einhverju leyti.“
En svo dundi ógæfan yfir. Eldflóðið úr
Lakagígum steyptist ofan Skaftárgljúfur og
rann yfir hið fagra Skálarland. Fólkið flýði
úr bænum og upp á brekku fyrir ofan hann
og lá þar við úthýsi og tjöld og tók í burtu
allt sem fémætt var úr bænum og kirkjunni
þ.á m. klukkumar. Vatn, sem hraunið stífl-
aði upp í kvosinni þar sem bærinn stóð,
kaffærði kirkju og bæjarhús. Bændurnir í
Skál, en þar var tvíbýli, náðu kúnum með
böndum og vindum upp úr ræfrinu á fjós-
inu. í Eldriti sr. Jóns Steingrímssonar segir:
„þann 2. Júlii kom kveikja og eldbál upp úr
honum neðan undir kirkju og húsum í Skál
og uppbrenndi hana og þann vel byggða bæ
til kaldra kola. Sú bóndaeign var til forna 30
hdr. að dýrleik, og kunni að bera að sögn 9
hdr. fjár, ef ei meir, var þó niðursett eftir
því sem eldhlaup hafði hana skemmt. En
þar sem fjallhagar halda sér að miklu leyti,
kann þar þó eitt býli að byggjast á plássi, er
fyrir ofan bæinn var, nær jarðþröngt verður
í byggð.“
Næsti bær sem fór undir hraun var Holt
og tóku þá Holtsbændur sig til með styrk
Skálarbónda að byggja sér hús þar uppi í
heiðinni en héldust þar þó ekki við vegna
eldsvælunnar og 17. júlí flúði Holts- og
Skálarfólkið úr heiðunum nema ein kerling
varð eftir og hírðist þar allan næsta vetur en
dó um vorið úr hor.
Hraunelfan rann með öllu Skálarfjallinu
og þröngvaði Skaftá upp að því. Þegar bær-
Horft til bæjar í Skál. Gamli burstabærinn stendur að baki nýja íbúðarhúsinu. Túnin liggja allt upp fyrir miðjar hlíðar Skálarfjalls.
Árni og Jóhanna í Skál i anddyri nýja hússins. Skaftárelda
bar ekki á góma nema í hálfum hljóðum í þeirra æsku.
Gengið til fjóss i gamla bænum. Það er enn notað en yfir því er síðasta
fjósbaðstofan sem búið var í á íslandi eða þar til fyrir 11 árum.
inn var endurreistur varð því að setja hann
upp í hlíðina og þar er hann enn. Túnin
teygja sig upp fyrir miðjar fjallshlíðar og er
því hið foma höfuðból orðið að hálfgerðu
heiðarbýli.
Við emm nú að koma okkur fyrir við
eldhúsborðið í hinu nýja glæsilega einbýlis-
húsi sem Skálarfólkið reisti fyrir 11 árum.
Þar búa hjónin Ámi Ámason og Jóhanna
Pálsdóttir ásamt Páli syni sínum. Og við
spyrjum Árna að því hvort hann sé e.t.v.
kominn af fólkinu sem bjó á bænum í Skaft-
áreldum.
- Gamla Skálarættin eða Alexandersætt-
in er líklega dreifð hér um sýsluna og ég hef
ekki haft tíma til þess að grúska í því hvort
ég er kominn af henni. Ég er fæddur að Á,
sem nú er eyðibýli, en ólst upp hjá fósturfor-
eldrum mínum hér á Skál. Þau vom systkin-
in Oddur Sigurðsson og Guðrún Sigurðar-
dóttir.
Árni er ekkert nema hógværðin og þegar
við spyrjum hann um Skaftárelda segir
hann að lítið hafi verið talað um þá í sfnu
ungdæmi og er hann ekki frá því að fólk hafi
fremur reynt að þurrka þessar miklu hörm-
ungar úr meðvitund sinni. í kjölfar þeirra
dó meira en þriðjungur fólks í sýslunni úr
hungri. Jóhanna er ættuð úr Meðal'landi og
Álftaveri og hún segir að fólkið sitt hafi oft
talað í hálfum hljóðum um eldinn.
Jóhanna: Það hefur verið hægt að sjá
hvemig fór fyrir fólkinu þegar allur fén-
aðurinn fór fyrir ekki neitt. Allt varð hag-
laust og ekki einu sinni hægt að éta féð.
Árni: Hraustasta fólkið lifði eftir en hitt
fór sína leið.
- Er ekki Skálarlandið með stærstu
jörðum hér, Árni?
- Þetta er óhemjuland. Stór hluti af Eld-
hrauninu tilheyrir jörðinni og það nær langt
upp til heiða.
- Veistu hvemig Skaftá rann áður hér
fyrir framan?
- Nei, það veit enginn.
- Hvernig búi býrðu?
- Þetta er hokur og hefur alltaf verið.
Við erum með rúmlega 200 kindur í það
heila og eina kú til að hafa mjólkurlögg fyrir
heimilið. Áður fyrr var um helmingur af
fénu sauðir meðan það var arðbært. Þeir
eru léttir á fóðrum á veturna.
- Er ekki erfitt að koma við vélum á
þessu bratta túni?
- Nei, ekki fyrir þá sem kunna að beita
vélunum.
- Hefur ekki hraunið verið mikill farar-
tálmi fyrir ykkur?
- Það er þæfingur að komast yfir það.
Féð gengur töluvert á hraunið og það er
vont að smala það.
Nú liggur ágætur vegur að Skálarbænum
beint yfir Eldhraunið frá þjóðveginum en
það var ekki fyrr en 1958 að Skaftá var
brúuð. Til þess tíma hélt Ámi í Skál feiju
fyrir framan bæinn og munu slíkir sam-
göngunættir líklega óvíða hafa haldist svo
lengi á byggðu bóli hérlendis. Síðasti ferju-
báturinn er nú varðveittur á byggðasafninu
á Skógum.
Og það er fleira merkilegt á Skál. Gamli
burstabærinn, sem byggður var fyrir um 60
árum stendur enn bak við nýja húsið og var
búið í honum þar til nýja húsið var reist. í
honum er fjósbaðstofa, líklega sú síðasta
sem búið var í hér á landi. Jóhanna fer nú
með okkur yfir í gamla bæinn. Við göngum
upp í baðstofuna en undir henni er fjós sem
enn er notað. Slíkir búskaparhættir voru
algengir áður fyrr í eldiviðarskortinum. Yl-
urinn frá kúnum hitaði baðstofufólkið.
Hún sýnir okkur líka eldhúsið. Það eru nokkr-
ir pokar með þurrkuðu taði og í bænum er
líka gamalt hlóðaeldhús. t eldhúsinu er
strokkur og í blámálaðri stofu má sjá rokk.
Við spyrjum Jóhönnu hvort hún spinni enn
á hann.
- Já, ég tók hann síðast í vetur en spinn
bara til heimilsbrúks.
í þessu húsi angar allt af gamla tímanum
og Jóhanna hefur gaman af því að sýna
okkur og segja frá. Að lokum förum við rétt
aðeins inn í fjósið undir baðstofunni og þar
er einn kálfur á bás. '
Við kveðjum þau hjón með virktum og
ökum á brott.
Þegar ég kom til Reykjavíkur hringdi ég í
Þórð Tómasson safnvörð á Skógum til að
forvitnast um fjósbaðstofur og sagði hann
að sú sem væri á Skál væri langbest
varðveitta fjósbaðstofan. Hann sagði að
leifar af slíku húsi væri líka í Skaftárdal en
ekki annars staðar. Hann sagði að Skálar-
heimilið hefði jafnan verið framúrskar-
andi myndarlegt og snyrtilegt heimili en
býsna einangrað. Þar blönduðust skemmti-
lega saman gamlir og nýir búskaparhættir.
Þórður sagði ennfremur að kirkjumunir úr
Skálarkirkju sem bjargað var áður en
hraunið rann yfir bæinn 1783 hefðu verið
lagðir til Langholts í Meðallandi og þar væri
enn kirkjuklukka úr gömlu Skálarkirkj-
unni.
- GFr
Helgin 23.-24. júll 1983 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 11
Fyrlr utan Prestbakka-
kíMy’u eftir messu þar sem
minnst var200 ára afmælis
eldmessunnar. Árni og J6-
hann í Skál heilsa upp á >
Helga Þorláksson fv.
skólastjóra en hanh les nú
einmitt Sögur úr Skaftár-
eldi eftir Jón Trausta sem
framhaldssögu i útvarp-
inu.
Þar kemur.Skál mjög við
sögu.
Gamla
fjósbaðstofan
er emi I
góðu horfi.
Hraunið
í farvegi
Skaftár
Hið mikla Eldhraun rann
yfir bestu lönd hins forna
stórbýlis Skálar og eyddi
bænum og kirkjunni. Það
þröngvaði Skaftá alveg
upp að Skálarfjallinu eins
og sést á myndinni.