Þjóðviljinn - 20.08.1983, Side 3
Helgin 20.-21. ágúst 19831 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 3
Sýning og
samkeppni
Heimilis-
iðnaðar-
félagsins
Heimilisiðnaðarfélag íslands er
70 ára í ár. í tilefni afmælisins verð-
ur efnt til samkeppni í gerð ís-
lenskra jólamuna. Hugmyndin er
að nota íslensku ullina á einhvern
hátt, t.d. prjónað, heklað, saumað
eða ofið. Nota má ullina óunna.
Einnig koma til greina munir úr
tré, t.d. renndir eða útskornir.
Þrenn verðlaun verða í boði í
samkeppni þessari og verða fyrstu
verðlaun 10 þúsund krónur. Fé-
lagið áskilur sér rétt á hugmyndun-
um, hvort heldur til sölu, birtingar
eða kennslu. Skilafrestur er til 1.
október 1983. Nánari upplýsingar
eru veittar í versluninni Islenskur
heimilisiðnaður í síma 11784.
Félagið hyggst vekja athygli á til-
veru sinni á afmælisárinu einnig
með kynningu á starfsemi þess. Því
hefur félagið komið á fót sýningu,
sem ferðast mun um landið á næst-
unni. Sýningin á að gefa inngrip í
það sem unnið var og unnið er á
íslenskum heimilum, gefa hug-
myndir um fjölbreytnina og vekja
fólk til umhugsunar um það, að
margt er hægt að gera sér til gagns
og gamans, og e.t.v. sér til hagn-
aðar, með lítilli fyrirhöfn.
Sýningin verður opnuð á Blöndu-
jósi fimmtudaginn 25. ágúst og
verður þar til 27. ágúst. A
Sauðárkróki verður sýningin frá
28. ágúst til 30. ágúst og á Akureyri
frá 1. september til 4. september.
Síðan verður farið um Suðurland
og Borgarfjörð, en ekki er búið að
ákveða daga þar eða í öðrum
landshlutum sem farið verður um
síðar. í tengslum við sýninguna
verður haldinn fyrirlestur um þær
útsaumsgerðir, sem kynntar eru á
sýningunni, og fatasýning á prjón-
uðum og ofnum fatnaði úr ull.
ast
Nýtt tímarit
um fuglalíf
Hafið hefur göngu sína nýtt tíma-
rit sem Bliki heitir og fjallar um
fuglalíf á íslandi. Ritið er gefið út af
dýrafræðideild Náttúrufræðistofn-
unar íslands, í samvinnu við Fugla-
verndarfélag íslands og áhuga-
menn um fugla.
Bliki er fyrsta rit sinnar tegundar
sem gefið er út hér á landi. Þar er
ætlað að birta sem fjölbreytilegast
efni um íslenska fugla, bæði fyrir
leikmenn og lærða. Áhersla verður
þó lögð á nýtt efni sem hefur ekki
birst áður á prenti.
Bliki mun koma út óreglulega en
a.m.k. eitt hefti á ári. Þeim sem
óska að fá ritið sent, er boðið að
vera á útsendingarlista.
Þetta fyrsta hefti Blika kostar kr.
130.00. Innheimt er með gíróseðli.
Afgreiðsla ritsins er á Náttúru-
fræðistofnun íslands, Laugavegi
105, 125 Reykjavík, en síminn er
(91)-29822.
Katrín Ágústsdóttir og Hallfríður Tryggvadóttir skipa sýningarnefndina, Jakobína Guðmundsdóttir, formaður Heimilisiðnað arfélagsins og Ragna
Þórhallsdóttir, varaformaður. - Ljósm. - Leifur.
GRANDAFERÐ
íslenskir bridgespilarar hafa aldrei
fengið tækifæri sem þetta:
Við efnum til viku skemmtisiglingar með M.S. Eddu og skipuleggjum tvö
stórmót um borð, þar sem spilað er um ein hæstu verðlaun sem sögurfaraaf
í íslenskri bridgesögu 160.000 kr.
Tvímenningskeppni
Sveitakeppni
Bridgenámskeið
2ja nátta hótelgisting í
Newcastle í boði fyrir
sama verð.
Viðkoma í Bremerhaven og Newcastle
Lúxus aðbúnaður
Verð aðeins kr. 7.800 pr. farþega
í tveggja manna klefa.
Upplýsingar og pantanir hjá Samvinnuferðum-Landsýn í Reykjavík og hjá
umboðsmönnum um land allt.
Spilið rétt úr draumahöndinni,
- tryggið ykkur þátttöku í tíma.
Samvinnuferdir - Landsýn
AUSTURSTRÆTI 12 - SÍMAR 27077 & 28899