Þjóðviljinn - 20.08.1983, Síða 5

Þjóðviljinn - 20.08.1983, Síða 5
Helgin 20.-21. ágúst 1983 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 5 „Sósíalisminn á ekki aðeins að þýða að verkamenn séu f relsaðir undan oki arðræningjastétta, heldur verður hann, til að tryggð sé f ullur þroski og f relsi einstaklingsins, að bjóða upp á meira frelsi og fleiri réttindi en borgaralegt lýðræði gat.“ Starf sáætlun Kommúnistaf lokks Tékkóslóvakíu, apríl 1968. „Innrás Sovétríkjanna og annarra Varsjárbandalagsríkja íTékkóslóvakíu er að mínu áliti brot á alþjóðlegum reglum og á móti sósíalískum viöhorfum og öllu mannlegu siðgæði.“ Magnús Kjartansson, Þjv. 25. ágúst 1968. laginu en aðeins 5% vildu snúa aft- ur til kapítalískra hátta. Vetur í Prag Það var við þessar aðstæður, að Sovétríkin og fylgiríki þeirra á- kváðu að nú þyrfti að „bjarga sósí- alismanum". Til þess að það var gert lágu margar ástæður og skulu aðeins tvær nefndar. í fyrsta lagi óttuðust Sovétmenn, að eftir 14. þing Kommúnistaflokks Tékkósló- vakíu, sem halda átti í byrjun sept- ember 1968, mundu þeir ekki lengur eiga neina hauka í horni í áhrifastöðum þar í landi. (Enga til að skrifa upp á hugsanlegt hernám til dæmis.) í annan stað hafa Sovét- menn blátt áfram óttast, að með því að Kommúnistaflokkur Tékk- óslóvakíu afsalaði sér sjálfur rétti við valdaeinokunar væri af stað far- in þróun um allan heimshlutann, sem yrði háskaleg sjálfu hinu so- véska kerfi. Hér verður það ekki rakið, hvernig forystumenn Tékka voru neyddir til að skrifa undir mála- miðlunarsamkomulag við Sovét- menn. Hvernig Dubcek og vinir hans reyndu að bjarga því ‘sem bjargað yrði af umbótunum and- spænis vaxandi þrýstingi Sovét- mannaog vinaþeirra. Hvernig Du- bcek var smám saman einangraður og Gustav Husák síðan látinn taka við - maður sem var reiðubúinn að skrifa undir töfraorðin „bróðurleg hjálp“, sem er orwellska fyrir her- nám. Hvernig hundrað þúsund manns flúðu land, hundrað þúsund voru reknir úr flokknum og 300 þúsundir strikaðir út úr honum. Hvernig Husák reyndi að kveða niður það sem eftir var af „vorinu" með því að reka úr störfum alla þá sem neituðu að skrifa upp á hina sovésku túlkun atburða, reka þá út á jaðar samfélagsins, meina þeim að tala og skrifa, meina börnum þeirra að mennta sig - og setja þá allra þrjóskustu í fangelsi. Hér verður heldur ekki rakin saga mannréttindasamtakanna Charta- 77, sem eru samtök þessa ofsótta fólks, en ekki einhverra fyrrver- andi kapítalista eins og reynt er að læða að sakleysingjum. (Nú um daginn barst hér inn á blað bréf frá 37 nýjum meðlimum, sem „hafa gefið leyfi til að nöfn þeirra séu prentuð" undir áskoranir Charta- 77 - af þeim eru þrjátíu verka- menn.) Nema hvað: þau mál sem reynt var að leysa með því að gifta sósíal- ismann lýðræðinu (orðalag „Le Monde“) íTékkóslóvakíu 1968 eru óleyst enn. Að vísu hafa orðið efnahagslegar framfarir á sumum sviðum í landinu síðan (eins og í öllum iðnaðarríkjum reyndar), en framleiðslukerfið er samt illa virkt, fjármálaspilling mikil, sinnuleysi og deyfð og stöðnun ríkjandi ástand á flestum sviðum, mann- réttindamál öll í skötulíki. Áhrif atburðanna Við fáum að sjálfsögðu aldrei að vita, hvað „hefði gerst“ ef tékk- neska vorið hefði fengið að lifa sitt sumar. Hitt er víst, að innrásin vakti upp gífurlega reiði, ekki síst kommúnista og sósíalista um víðan heim. Því þeir höfðu bundið miklar vonir við að tékkneska tilraunin mundi vísa Austur-Evrópu á leiðir út úr vítahring valdseinokunar og þar með ófrelsis. Það var því ekki að furða, þótt innrásin 1968 yrði til þess að bilið breikkaði og dýpkaði milli Sovétríkjanna og sósíalískra hreyfinga á Vesturlöndum, þar sem menn komust í vaxandi mæli að þeirri niðurstöðu að hið sovéska kerfi væri ekki aðeins stórgallað heldur beinlínis hindrun í vegi fyrir því að sósíalismi og lýðræði gengju í órjúfanlegan hjúskap saman - í það samband, sem hvorugt má án vera. Hindrun í vegi fyrir því að verkamenn „ekki aðeins losni undan kapítalísku arðráni heldur geti sósíalisminn boðið vinnandi fólki upp á meira frelsi og fleiri réttindi en borgaralegt lýðræði“ - eins og komist var að orði í „Starfs- áætlun“ Kommúnistaflokks Tékk- óslóvakíu frá því í apríl 1968. Stuðst m.a. við: Zdenek Hejzlar: Prag í Skugga Moskvu (Praha ve stínu Moskvy), 1976 og formála Lucio Rombardo Radice að bók Zdeneks Mlynars, Praga - questi- one aperta, 1977.) „Tilefnislaus innrás herja Sovétríkjanna og bandingja þeirra innan Varsjárbandalagsins í Tékkóslóvakíu er níðingsverk, sem hlýtur að vekja hryggðog reiði hjá öllum þeim sem unna þjóðf relsi og sósíalisma. Grið eru rofin á sjálfstæðu ríki í því skyni að svipta það sósíaliskri forystu, sem sýnt hefur að hún nýtur fádæma hylli og stuðnings þjóðarinnar.“ Framkvæmdanefnd Alþýðubandalagsins, 22. ágúst 1968. Nýr doktor Hinn 19. maí s.l. varði Eva Bene- diktsdóttir, líffræðingur, ritgerð sína „Airborne non-sporeforming anaerobic bacteria - A study of their dispersal and their occurrence in clean surgical wounds'* við lækn- adeild Uppsalaháskóla í Svíþjóð. Doktorsritgerðin fjallar um loft- fælnar bakteríur, sem tilheyra eðli- legri húðflóru mannsins en geta valdið sýkingum eftir skurðaðgerð- ir þegar stórum gerviliðum er kom- ið fyrir. Vegna þess að loftfælnar bakteríur krefjast sérstakra rækt- unarskilyrða hafa þær ekki komið frarn við venjulegar rannsóknir á smitleiðum baktería, og ekkert var vitað um dreifingarmáta þeirra áður en rannsóknir þessar hófust. Aðferðir við að einangra þær úr lofti og skurðsárum voru prófaðar, einnig var dreifing þeirra frá líkam- anum könnuð og rannsóknir gerðar á því á hvern hátt þær berast í skurðsár við aðgerðir. Eva er fædd á Siglufirði 17. sept. 1950, dóttir Hólmfríðar Magnús- dóttur skrifstofustúlku og Bene- dikts Sigurðssonar kennara. Hún lauk stúdentsprófi frá M.A. árið 1970ogB.S. prófi í líffræði frá H.í. árið 1975. Eva er gift Baldri Sig- urðssyni kennara og eiga þau tvær dætur. Safnamál Svo nefnist ársrit, sem gefið er út af Héraðsskjala- og Héraðsbóka- safni Skagfirðinga og er nú 7. árg, kominn. í Safnamálum er að venju birt ársskýrsla Héraðsbókasafnsins fyrir sl. ár, greinargerð um Hér- aðsskjalasafnið og haldið áfram að birta yfirlit um skjalasöfn hrepp- anna. Heildarútlán Héraðsbóka- safnsins jukust um 5,4% frá árinu áður og voru alls lánuð út 38.464 bindi. Söfnunum báðum barst enn sem fyrr mikið af gjöfum: bókum. blöðum, tímaritum, handritum o.fl. og eru nöfn gefenda birt í rit- inu. Þá er sagt frá úrslitum vísna- keppni 1982 ogreyndist Andrés H. Valberg þar sigurvegari. í vísna- keppnií áreróskaðeftirbotnumvið þessa fyrriparta: „Næðingur og nepjan köld / nú vill lýði þreyta“ og „Geislar sól um grænan völl, /gyllir hól og rinda". Auk þess er óskað eftir vísum um sumarleyfi. Kveðskapurinn sendist Héraðs- skjalasafninu, merktur dulnefni en höfundarnafn fylgi í lokuðu um- slagi. Hannes skáld Pétursson skrifar þáttinn Vísnamál og fjallar þar um sr. Tryggva H. Kvaran fyrrum prest á Mælifelli. Eru birtar nokkr- ar vísur eftir sr. Tryggva og sögð tildrög þeirra, en sr. Tryggvi var maður mjög vel skáldmæltur. Sú hefur verið venja að birta í Safnamálum hverju sinni örlítið sýnishorn þess, sem Héraðsskjala- safnið á í fórum síum. Að þessu sinni birtast tvö bréf frá sr. Matthí- asi Jochumssyni til Árna Þorkels- sonar, bónda á Geitaskarði í Lang- adal og kviðlingar eftir þá Stein- grím Thorsteinsson, Jón Mýrdal, sr. Þorstein á Hálsi og Káinn. Loks eru allmargar óþekktar manna- myndir úr myndasafni Héraðs- skjalasafnsins, ef einhverjir skyldu geta upplýst af hverjum þær eru. Stjórn safnanna skipa nú: Kári Jónsson, Rögnvaldur Gíslason og Sigurlaug Sveinsdóttir, tilnefnd af bæjarstjórn Sauðárkróks og Krist- mundur Bjarnason og sr. Gunnar Gíslason, tilnefndir af sýslunefnd. Safnverðir eru þeir Hjalti Pálsson og Kristmundur Bjarnason. -mhg. .Hvabe'ab^ • Hvermgsp°ru . Hvernlgend'8^"""" . SSSS--ET rWtingietdsneytiog smurnin9SO'iv þessum og °ta'oor SPTbLnN við h&ndina Ml®aörfaaðÞ'Má er ek ... areitt í betri endingu andvirðið g nýtlngu a ábUnumogmeiruy qG AUKIN

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.