Þjóðviljinn - 20.08.1983, Síða 8

Þjóðviljinn - 20.08.1983, Síða 8
8 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Helgin 20.-21. ágúst 1983 Uppákoma á Lækjartorgi á sunnudaginn „Eftir að hafa neytt POLLENS kynningar á samtökunum og starf- blómafræfla' í tvo mánuði var eins semi þeirra fyrir blaðafólk í tilefni og ég færi í fimmta gír.“ . af því, að hingað er kominn Noel „Blómafræflar auka kyngetuna Johnson, 83 ára gamall Bandaríkja hreint ótrúlega“.„Matarneysla maður, Maraþonhlaupari og þess hóps sem neytti biómafræfla heimsmeistari í hnefaleikum öld- minnkaði um 15 til 20%.“ unga. Nýlega kom út sjálfsaga hans Þannig hljóða auglýsingar sölu- hér á landi: „Lífskraftur" heitir fólks hér á landi um undraefnið hún og gefur Bókamiðstöðin út. blómafræfla, en nýlega var hafin Noel mun hlaupa á sunnudaginn sala á því í gegnum Sölusamtökin klukkan tvö frá Fellahelli í h.f., sem Hilmar Helgason setti á Breiðholti III og skorar á Reykvík- fót. Hilmar efndi í fyrradag til inga að hlaupa með sér niður á Heimir Br. Jóhannsson, útgefandi, Bergþóra Árnadóttir, söngkona og fræfíll, Hilmar Helgason, yfírfræfíll landsins. (Ljósm. -Leifur). Lækjartorg þar sem Bergþóra inn“. Sá blús er óður Bergþóru til Árnadóttir mun taka á móti blómafræflanna, en Bergþóra seg- hlaupurunum ásamt félögum og ist vera galvösk orðin á rúmlega syngja m.a. „Blómafræflablús- mánaðarneyslu þessara fræfla. Erlendur Patursson sjötugur Erlendur Patursson þingmaður í Færeyjum er sjötugur í dag, sunnu- daginn 21. ágúst. Hann er sonur frelsishetju Færeyinga, Jóhannesar Paturssonar kóngsbónda í Kirkju- bæ og konu hans Guðnýjar Eiríks- dóttur frá Karlsskála við Reyðar- fjörð á íslandi. Erlendur lauk stúd- entsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík árið 1933 og stundaði síðan hagfræðinám við Oslóarhá- skóla og lauk prófi í þeirri grein. Hann var í Danmörku á stríðsárun- um en er hann kom heim til Fær- eyja stóð hann við hlið föður síns í stjórnmálabaráttu í Fólkaflokkn- um en var síðan einn helsti stofn- andi Þjóðveldisflokksins og hefur verið þingmaður hans um árabil. Hann hefur setið sem ráðherra í ríkisstjórnum í Færeyjum og einnig verið þingmaður á danska þinginu fyrir hönd Færeyja. Erlendur Pat- ursson er mikilvirkur fræðimaður og eftir hann liggja tvö meiri háttar ritverk um fiskveiðisögu Færey- inga. Hið fyrra heitir Fiskveiði og fiskimennn í tveimur bindum en hið síðara Fiskvinna og fiskvinnu- mál 1940-1970 í þremur bindum. Erlendur er eins og faðir hans einn merkasti stjórnmálamaður Færey- inga á þessari öld og hefur jafnan barist fyrir algjöru sjálfstæði Fær- eyja. Þjóðviljinn sendir honum heillaóskir á afmælisdaginn. Noel Johnson þakkar blóma- fræflum fjör sitt og atorku - þeir séu lífsæðin, sem gefi honum þrek til allrar áreynslunnar, sem hann megnar að takast á heraðar nú. Og hvað eru svo þessir blóma- fræflar? Það ku víst vera karlfræfl- ar blóma, sem hunangsflugan hef- ur safnað í bú sitt og bundið hun- angi. Þegar hunangsflugan treður sér í gegnum margföld sigti býkúp unnar hrynja um 60 prósent af fræflunum í þar til gerða söfnunar- skúffu fræfla- „bóndans“.Fræfl- amir frá POLLENS eru þeir einu, sem vitað er um sem em hraðfrystir strax eftir söfnun, þannig að fræflarnir halda fersk- leika sínum og næringargildi. í tilefni af komu Noels Johnson mun veitingahúsið Hótel Borg í Reykjavík taka upp nýjan matseðil í næstu viku, unninn undir leiðsögu dr. Jóns Óttars Ragnarssonar, og mun þar verða á boðstólum algjört hollustufæði. Noel Johnson mun manna fyrstur smakka á góðgætinu. Af „Sölusamtökunum" er það að frétta, að sögn Hilmars Helga- sonar, að sölufólkið í blómafræfl- um hafi staðið sig miklu betur en búist var við, þannig að ekki var unnt að bæta við nýjum vöruteg- undum - fyrr en nú. í október mun fólkið hins vegar hafa einnig á boð- stólum bensínsparandi efni fyrir bfla og sömuleiðis olíusparandi efni fyrir hús og skip. Nefndi Hilm- ar sem dæmi, að efni þetta myndi spara manni í Breiðholti, sem ekur' um 20.000 kflómetra á ári, litlar 8 þúsundir króna á ári. Kvað Hilmar Chrysler og Ford bílaverk- smiðjurnar í Bandaríkjunum hafa prófað efnið og ábyrgst gæði þess. Þá hafa Sölusamtökin fengið einkasöluleyfi fyrir blómafræflana og bensínsparandi efnið í Skandin- avíu, Luxemborg og Hollandi og umboðsmenn samtakanna í þess- um löndum munu hafa sama hátt-1 inn á við söluna og gert er hér, þ.e.. sölu í heimahúsum. -ast ritstiórnargrein Iþróttahreyfingin þatf siðareglur Það var að mörgu leyti þarfa- verk hjá Morgunblaðinu að ráðast til atlögu gegn fjármála- samskiptum íþróttahreyfingar- innar við fyrirtæki. Að vísu var greinilega ætlun blaðsins að koma með því höggi á Samvinnu- hreyfinguna og Framsóknar- flokkinn en það er önnur saga. í ljós hefur þó komið að samningar Sambandsins og fyrirtækja þess við íþróttasambönd og félög eru íi engu frábrugðnir „íþróttasamn- ingum“ annarra fyrirtækja. Kvaðirnar eru áþekkar, en orða- lagið ef til vill eilítið gagnsærra og hégómlegra hjá Sambands- mönnum en öðrum sem eru hag- vanari á þessu sölutorgi. Vafasamt sölutorg • Því sölutorg er það vissulega. íþróttahreyfingin berst í bökkum fjárhagslega og hefur úti allar klær til þess að afla fjár til sinnar þjóðhollu starfsemi. Fyrirmyndir hafa í þessu sem öðru verið sóttar til annarra landa, og þaðan eru komnar hugmyndirnar um að í- þróttamenn og félög þeirra taki að sér að auglýsa fyrirtæki og vörur þeirra beint og óbeint gegn styrkjum, beinum greiðslum og fyrirgreiðslu af ýmsu tagi. • Menn sem eru þeirrar skoðun- ar að öll mannleg samskipti séu best komin sem söluvarningur ættu ekki að æja sér yfir þeirri þróun sem orðin er. Hún er engu að síður afar hvimleið og getur komið íþróttahreyfingunni illi- lega í koll. Fyrir utan þau ónot sem því fylgja að íþróttamenn skuli jafnan þurfa að vera sem gangandi vöruauglýsingar, þá verður erfiðara fyrir hreyfinguna að sækja í sameiginlega sjóði landsmanna, þegar hinir vísu landsfeður hafa fyrir augunum fjárstreymið frá fyrirtækjunum. Þá liggur fyrir að samnings- aðstaða íþróttasambanda sem hafa tekið á sig sérstakar auglýs- ingakvaðir fyrir ákveðin fyrirtæki gegn greiðslum, svo sem kvaðir um að sjónvarpa verði frá kapp- leikjum, svo nafn fyrirtækisins komist örugglega á skjáinn, eru fyrirfram búin að spilla sinni samningsstöðu við opinbera fjölmiðla. Hvar eru mörkin? • Fyrirtækin hafa margskonar hag af auglýsingasamskiptum við íþróttafélög. Þau fá beina og óbeina auglýsingu fyrir snúð sinn, velgengni kappliðs eða íþrótta- sambands færist yfir á vörumerki þeirra, og í sumum tilfellum er tilgangurinn að sleppa undan skattinum. Næstum hvaða stór- fyrirtæki (á íslenskan mæli- kvarða) sem er stundar þessi auglýsingaviðskipti, Sambandið, Eimskip, Morgunblaðið o.s.frv., og næstum hvaða íþróttasamtök sem færa sér þau í nyt, KSÍ, FRÍ, HSÍ, KR, ÍA, Fram o.s.frv. Sjálft Morgunblaðið lætur sig ekki muna um „að kaupa upp“ skíða- keppni, hlaup umhverfis landið og skokk yfir kaldan Kjöl. DV er enginn eftirbátur í þessu og fram- kvæmdastjórar og ritstjórar blaðanna fá að afhenda verðlaun og halda ræður. Þeir borga brús- ann. En endanlega borga hann almennir neytendur í vöru- verðinu. • Þjóðviljinn hefur meira að segja af sínum litlu efnum tekið þátt í firmakeppni íþróttafélaga og m.a. stært sig af því að vinna útiskákmót á Lækjartorgi 5 sinn- um í röð, enda ekki öll fyrirtæki sem hafa alþjóðlegan skák- meistara meðal starfsmanna sinna. • Hér er komið að kjarna máis- ins. Hvar eru mörkin? í kapítal- ísku þjóðfélagi er vonlaust verk að ætla sér að snúa þessari þróun til baka í einni svipan. Það er heldur ekki æskilegt að íþróttafé- lögin verði í einu og öllu á ríkis- Einar Karl Haraldsson skrifar framfæri. íþróttahreyfingin þarf hinsvegar að taka sér ærlegt tak og endurskoða sína stöðu. Ætlar hún að halda áfram að selja sig fyrirtækjum, á hvaða verði og með hvaða kvöðum? Á hér að þróast atvinnumennska í íþrótt- um, hálfatvinnumennska, eða á að halda fast við áhugamanna- íþróttir? Eru einhverjar aðrar fjáröflunarleiðir æskilegri en auglýsingamennska fyrir fyrir- tæki? Þetta eru allt spurningar sem íþróttahreyfingin hlýtur að leitast við að svara á þingum sín- um á næstunni. Siðbótar er þörf • Þjóðviljinn getur sem vegar- nesti gefið íþróttamönnum og fé- lögum þeirra þá ábendingu að hyggilegast væri að útbúa siða- reglurfyrir fjáröflun á vegum í- þróttahreyfingarinnar. Blaða- menn hafa komið sér saman um siðareglur og auglýsingastofur hafa náð saman um sínar siða- reglur. Slíkar reglur girða ekki fyrir það að blöðum og auglýsinga stofum sé misbeitt, en þær eru ákveðin viðmiðun sem menn vita af og eru dæmdir eftir innan við- komandi starfsgreina. Siðareglur fyrir fjáröflunarmenn íþrótta- hreyfingarinnar gætu komið í veg fyrir að talað sé um hana eins og hórkonu á sölutorgi. Við okkar aðstæður verður seint útrýmt kaupmennsku kringum íþróttir, en það má siðbæta þau viðskipti. Það verður íþróttahreyfingin að gera sjálf eigi hún að standa undir nafni og viðhalda drengskapar- anda íþróttanna. - ekh

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.