Þjóðviljinn - 20.08.1983, Síða 10

Þjóðviljinn - 20.08.1983, Síða 10
10 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Helgin 20.-21. ágúst 1983 heldur Svobodová Trida. Kona sem við hittum á leiðinni fylgdi okkur á hótelið, en sagði, að eigin- lega væri útgöngubann og ætti fólk ekki að vera á ferli eftir myrkur. Samt sáum við í sömu götu hóp tékkneskra ungmenna á tali við so- véska hermenn í skjóli skriðdreka. Svona viðræður eru mjög algeng sjón hér þessa dagana, og reyna Tékkarnir að leiða hermönnunum fyrir sjónir, hve innrásin og her- námið sé rangt, að hér hafi engin gagnbylting verið í vændum og engin hætta á henni. Dátarnir svara, sumir æstir, flestir þó ró- legir. „Okkar sannleikur og þeirra sannleikur", sagði maður sem ég spurði um hvað væri verið að tala. I byrjun var fólk hvatt til slíkra sam- ræðna við hernámsliðana, en þegar í ljós kom hve tilgangslausar þær voru, varð stefnubreyting og fólk beðið að skipta sér ekki af þeim. Andófið í Tékkóslóvakíu Aö kvöldi 21. ágúst 1968, fyrir réttum 15 árum, geröu herir 5 ríkja Varsjárbandalagsins inn- rás íTékkóslóvakíu og bundu þannig enda á tékkneska vorið. Tékkóslóvöskyfirvöldog allur almenningur í landinu mót- mæltu innrásinni. Svo geröu einnig sósíalistar víöa um heim þ.á.m. á íslandi. Vilborg Haröardóttir blaðamaður var á leiö inn í T ékkóslóvakíu nokkr- um dögum eftir hernámið og komst inn í landið þó aö ferðir útlendinga þangað væru mjög takmarkaðar. Hún lýsti reynslu sinni í tveimur blaðagreinum, sem birtust í Þjóðviljanum í septembersamaár. Hérverða birtar nokkrar glefsur úr þeim og látum þá Vilborgu hafa orð- ið. Ungmenni halda heiðursvörð um látna félaga við Venesláusarstyttuna í Prag. Ljósm.: Vilborg Harðardóttir. Það er einkum unga fólkið, sem enn reynir að tala við hermennina.------- Fyrsta morguninn okkar hérna, 30. ágúst, fórum við auðvitað strax í gönguferð um miðbæinn. Ég er viss um að ég fer ekki með ýkjur þegar ég segi að á hverju einasta húsi og í hverjum einasta búðar- glugga voru áletranir, málaðar eða á spjöldum. Sums staðar ljóð, til- kynningar og teikningar. Einnig eru límd upp dagblöðin sem koma út leynilega, Tékkar vilja ekki segja ólöglega.------ Vinkona mín á heima í götu sem heitir Natousová og er í hverfinu Smíshov. Þangað tók ég leigubíl til að heimsækja hana. En bílstjórinn þekkti ekki götuna og þar sem eng- in skilti né númer voru á húsunum lentum við í mestu vandræðum. Fólk sem við spurðum til vegar yppti öxlum og fylgdi þar með. boðorðunum tíu sem fræg urðu á stríðsárunum hér og hafa nú verið tekin upp aftur: Ég veit ekki, ég heyri ekki, ég segi ekki, ég skil ekki, ég man ekki, get ekki o.s.frv. og enda á ég gleymi ekki. Loks tókst bílstjóranum að sannfæra fólk um að ég væri hvorki svikari, njósnari né Rússi og reyndist þá auðvelt að finna bæði götu og hús- númer fyrir okkur. í Opletalová-götu, sem er í mið- bænum, áttum við í samskonar erf- iðleikum með að finna húsnúmer kunningja okkar og datt þá í hug að fara inn í hvert hús og lesa á póst- kassana. En heldur var það til lítils, því auðvitað höfðu öll nöfn verið fjarlægð af kössunum, jafnvel skrifað eitthvað annað, eins og t.d. í einu húsinu, þar sem á 21 póst- kassa stóð æ og aftur nafnið Josef Novák. Það var herra Josef Novák, Josef Novák 97 ára, Josef Novák elsti, Josef Novák junior, Josef No- vak þetta og hitt... Efst á Václavské Námestí stend- ur stytta heilags Venesláusar fyrir framan þjóðminjasafnið. Þarna varð einna mest skothríðin við inn- rásina og er framhlið safnhússins meira og minna skemmd. Enginn skilur hvers vegna var ráðist á safn- ið, þó hef ég heyrt þá skýringu, að hermennirnir hafi haldið, að þetta væri útvarpsstöðin. Við styttuna féllu þrjú ungmenni, þar af einn 14 ára, fyrir kúlum hermannanna, og á þessum stað stendur ungt fólk nú dag og nótt heiðursvörð um þessa látnu félaga sína og aðra sem féllu við innrásina í Prag. Þau standa þarna með þjóðfánann og með svartan sorgarfána, en við fótstall styttunnar leggur fólk daglega fersk blóm og tendrar kerti og er þarna heilt blómahaf.“ „Brautarstöðin í Cheb, fyrsta bænum innan landamæranna. Lestin stansar og enn undrumst við dirfskuna: „Sósíalismi já - Hernám aldrei - Við erum frjáls þjóð“, stendur á stóru spjaldi á stöðvar- byggingunni og einkennisklæddur brautarvörður kemur og dreifir leynilega prentuðu Práce, blaði verkalýðsfélaganna, inn um gluggana. Enn koma landamæraverðir, segjaokkur að bíða... Eftirnokkra bið koma verðirnir enn: „Þið getið farið til Prag!“ Þeir verða að endur- taka þetta áður en við trúum okkar eigin eyrum. Til Prag! Tilhlökkun og kvíði togast á. „Hringduð þið til Prag til að spyrja hvort ætti að hleypa okkur inn í landið?" spyr ég annan vörðinn. „Hringdum!" Nei, bann- settir Rússarnir hafa klippt á lín- una. Þeir leyfa sér hvað sem er. Þetta hafa verið skelfilegir dagar". „Vitið þið, að þið eigið stuðning um allan heim?“ „Það er líka það eina, sem við eigum eftir“, svarar hann bitur, „og virðist því miður ekki hafa á- hrif til eða frá. Við erum ekki ann- að en peð á skákborði stórveld- anna.“ Á leiðinni sjáum við æ fleiri dæmi um þessa aðdáunarverðu, hæglátu.en þó opinskáu ogákveðnu andstöðu tékknesku þjóðar- innar gegn innrásinni. Á hverri ein- ustu brautarstöð er fáninn ýmist dreginn í hálfa stöng eða sveipaður sorgarfána. Heiti stöðvanna hafa verið máð burt til að villa um fyrir innrásarherjunum, þess í stað er víða málað Dubcek - Svoboda - Cernik eða Lifi Cisar...Það er stansað í Plzen. Þar eru stórar á- letranir við brautarstöðina: Burt með hernámsliðið - Varið ykkur, kvislingar - Burt með svikarana. Ég er ekki laus við glímuskjálfta þegar ég tek myndir af þessum á- letrunum. Þegarég var íTékkósló- vakíu fyrir 11 árum var bannað að taka myndir á járnbrautarstöðvum og nú er meira að segja árásarher í landinu. En ekkert skeður, og tékkneskurlögregluþjónn, sem sér til mín, brosir aðeins vingjarnlega. Við getum varla slitið okkur frá gluggum lestarinnar alla leiðina og svo er reyndar um fleiri. Slóvaki, eldri maður, sem stendur við hlið mér í lestarganginum, þýðir fús- lega á þýsku það sem við skiljum ekki til fullnustu og fleira af sam- ferðarfólkinu hjálpar eftir bestu getu. Slóvakinn er frá Bratislövu, þar sem sagt er að átök hafi orðið einna harkalegust. Hann hefur ekkert heyrt frá konu og börnum síðan innrásin var gerð og er Vilborg Harðardóttir var komin til Prag nokkrum dögum eftir inn- rásina. Sósíalismi já - Hernám nei. Vegg- spjald í Prag í ágúst 1968. um hér. En nú voru göturnar illa lýstar, aðeins eitt og eitt götuljós á stangli og það sem verra var: engin götuskilti, engin húsnúmer. Við vissum varla hvar við vorum. Allt í einu stóðum við fyrir fram- an útvarpsstöðina. Við höfðum auðvitað heyrt um átökin þar í fréttunum. Samt fór hrollur um mann við að sjá sundurskotnar rúðurnar og skotbrot í veggjum og ekki síst gapandi tómar gluggatótt- ir brunninna húsa í kring. I algjör- lega óupplýstri hliðargötu við út- varpsstöðina stóðu margir skriðdrekar. í næstu hliðargötu líka. Þeir voru þá ekki komnir lengra burt en þetta, þótt sagt hefði verið í fréttunum að þeir væru horfnir af götunum í Prag. Við hröðuðum okkur burt, kom- umst loks að raun um, hvar við vor- um stödd og héldum þá að húsi alþjóðlegu stúdentasamtakanna, þar sem við eigum vini. Þar var búið að taka niður skilti samtak- anna en á húsveggnum stóð: Long live Dubcek! Auðvitað var enginn að vinna, en næturvörður vísaði okkur á hótel í næstu götu, sem auðvitað hét ekki lengur Zítna, Glefsur úr greinum Vilborgar Haröardóttur en hún var í Prag viku eftir innrás Rússa fyrir 15 árum kvíðinn. „Hefðu þau ekki verið, hefði ég orðið éftir í Þýskalandi", segir hann. „Það er alls staðar hægt að fá vinnu, en fjölskylduna yfir- gefur maður ekki“. Loks komum við á aðaljárn- brautarstöðina í Prag. Hvað nú? Enginn býst við okkur, enginn tekur á móti okkur, því að ekki var hægt að senda skeyti um komu okkar... Við ákváðum að biðja for- eldra tékkneskrar kunningjakonu á fslandi að skjóta yfir okkur skjólshúsi um nóttina. Við höfum heimilisfangið en vantar símanúm- erið. En í símaklefum járn- brautastöðvarinnar eru engar símaskrár. Ekki heldur í símaklef- unum utan húss. Það er sama hvernig við reynum, hvergi er símaskrá. - Síðar var okkur sagt að símaskrár hefðu verið fjarlægðar úr öllum opinberum símaklefum til að gera hernámsvöldunum erfið- ara fyrir ef þeir ætluðu að handtaka menn. Það var orðið dimmt og okkur tókst ekki að ná í nokkurn leigubíl svo við gengum af stað með ferða- töskurnar. Ætluðum að reyna að komast í sírha í einhverju veitinga- húsi, þurftu’m líka að fá okkur að borða, því enginn veitingavagn var í lestinni. Én hvernig sem við reyndum, var ekkert einasta veitingáhús, ekki smákrá opin. Öllu var lokað kl. 5 vegna hins ó- trygga ástands. Vegna viðgerða við Smetana- leikhúsið og byggingar þinghússins við hlið þess var gatan lokuð og við urðum að beygja af leið. Og nú hófst hálfgerð martröð. Hingað til höfðum við haldið að við þekktum Prag sæmilega vel, síðan við bjugg- Fólk að lesa og skrifa upp áletranir á spjöldum í Na Prihope. Ljósm.: Vilborg Harðardóttir. Brautarstöðin í Plzen. Burt með hernámið, stendur á veggnum. Ljósm.: Vilborg Harðardóttir.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.