Þjóðviljinn - 20.08.1983, Side 21
Helgin 20.-21. ágúst 1983 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 21
Þingflokkur Alþýðubandalagsins um námslánin
Stjórninni skylt
að leysa vandann
PÓST- OG
SÍMAMÁLASTOFNUNIN
óskar að ráða
FULLTRÚA á skrifstofu póst- og símamála-
stjóra - nokkur kunnátta í frönsku og vélritun
áskilin.
Þingflokkur Alþýðubandaiags-
ins telur að stefna núverandi rflds-
stjórnar í kjaramálum námsmanna
sé önnur en verið hefur um árabil.
Hins vegar sé það skylda hennar að
leysa fjárhagsvanda Lánasjóðs
námsmanna, enda er vanda hans
fyrst og fremst að rekja til gengis-
fellingar í maí og breyttra
aðstæðna frá því að fjárlög voru
samþykkt. Bent er á að fráfarandi
ríkisstjórn hafi jafnan leyst vanda
af þessu tagi.
Þingflokkur Alþýðubandalags-
ins gerði ályktun sína sl. fimmtu-
dag og hljóðar hún svo í heild:
„Þingflokkur Alþýðubandalags-
ins mótmælir fyrirhugaðri skerð-
ingu á námslánum og telur ríkis-
stjórninni skylt að sjá Lánasjóði ís-
lenskra námsmanna fyrir fjár-
magni svo sjóðurinn geti þjónað 1
því hlutverki sem honum ber sam-
kvæmt lögum.
Það er skilningur þingflokksins,
að lánasjóðnum beri í ár, Iögum
samkvæmt, að lána 95% af áætl-
uðum framfærslukostnaði náms-
manna umfram tekjur, nema laga-
breyting komi til. Þingflokkurinn
mótmælir hugmyndum um setn-
ingu bráðabirgðalaga til að leysa
sjóðinn að einhverju leyti undan
skyldum sínum og lýsir því yfir, að
Alþýðubandalagið mun ekki
standa að slíkri lagabreytingu. Það
er ljóst, að ekki er meirihluti fyrir
því á Alþingi að lækka lánshlutfall
sjóðsins, og það er því skylda ríkis-
stjórnarinnar að leysa fjárhags-
vanda sjóðsins, svo hann geti sinnt
sínu lögboðna hlutverki.
Ríkisstjórnin jók vanda Lána-
sjóðsins verulega með gengisfell-
ingunni í maílok og þangað er að
rekja það sérstaka vandamál sem
við er að etja. Auk þess hafa að-
stæður breyst frá því að fjárlög
voru samþykkt og hefur ríkis-
stjórnin því oft staðið frammi fyrir
því á undanförnum árum. Gerði
fráfarandi ríkisstjórn jafnan
ráðstafanir til þess, að sjóðurinn
gæti staðið við skyldur sínar, þann-
ig að ljóst er, að stefna núverandi
ríkisstjómar að því er varðar kjara-
mál námsmanna er önnur en hér
hefur ríkt um árabil. Viðbrögð nú-
verandi ríkisstjórnar endurspegla
viðhorf hennar til námsmanna með
afgerandi hætti og þar með and-
stöðu hennar við jafnréttisviðhorf í
þjóðfélaginu“.
-e.k.h.
FULLTRÚA í umsýsludeild, hagsýsludeild -
verslunar- eða stúdentspróf æskilegt -
SKRIFSTOFUMANN í tæknideild, skrifstofu
- verslunar- eða stúdentspróf æskilegt -
Nánari upplýsingar verða veittar hjá starfs-
mannadeild stofnunarinnar.
RIKISSPITALARNIR
lausar stöður
Kvennafriðarbúðir
í Rosyth
Greenham Comon kannast víst
flestir lesendur Þjóðviljans við en
þar hafa breskar konur haldið úti
friðarbúðum mjög lengi.
Konur í Bretlandi hafa látið til
sín taka á fleiri herstöðvum í Bret-
landi, t.d. við Rosyth herskipa-
stöðina í Skotlandi. Konur komu
upp friðarbúðum þar hinn 22. maí
sl. og hafa haldið þeim úti síðan.
Reykjavíkurvikan
Sýningar
og tón-
leikar
Áfram rúllar Reykjavíkurvikan
og dregur nú nær cndalokum henn-
ar í þetta sinn. Á sunnudagskvöld
heldur Kristinn Sigmundsson tón-
leika í Gerðubergi sem hefjast kl.
21.00. Undirleikari verður Jónas
Ingimundarson. Á sama tíma eru
rokkhljómleikar í Hljómskálagarð-
inum í samvinnu æskulýðsráðs og
s.a.t.t. - þar spilar hljómsveitin
Vonbrigði.
Á laugardag kl. 10.00 verður
skeiðað upp í Bláfjöll undir leið-
sögn Einars Þ. Guðjohnsen. Sama
dag kl. 14.00 er áformuð Viðeyjar-
ferð og þar munu Sigurður Líndal
og Örlygur Hálfdánarson segja frá
sögu eyjarinnar. Bátar ferja fólk
frákl. 14.00-15.00 ogheimafturfrá
kl. 16.00-18.00. Kl. 15.00 þanndag
er dagskrá á Kjarvalsstöðum sem
heitir „Reykjavík fyrr og nú“. Hún
er í tali og tónum. Um kvöldið er
svo ball í Þróttheimum og flugelda
sýning. Á sunnudag verða fundir:
Umferðarnefnd á Kjarvalsstöðum
kl. 14.00 og Vatnsveitan á sama
tíma í Gerðubergi. Kl. 16.00 er Ás-
mundarsafn skoðað og kl. 20.30
Kjarvalsstaðir-umsjónarmenn út-
skýra.
-gat
Aldarafmæli
góðtemplara
Þann 10. janúar 1984 verður
Góðtemplarareglan á íslandi 100
ára. Af því tilefni hefur verið á-
kveðið að gefa út veglegt afmælis-
rit. Ritið verður um 160
blaðsíður og gefið út í ca. 3000 ein-
tökum.
Góðtemplarareglan hefur unnið
brautryðjendastarf í félagsmálum
hér á landi og hefur starfað í flest-
um sveitarfélögum landsins. Á-
kveðið hefur verið að gefa almenn-
ingi kost á því að gerast áskrifendur
að ritinu og fá nöfn sín skráð á
heillaóskalista fremst í ritinu. Þeir
sem hefðu huga á að gerast áskrif-
endur að ritinu geta hringt í síma
Stórstúku íslands, Eiríksgötu 5, -
17594 - eða sent nöfn sín í pósti til
Stórstúkunnar fyrir 1. október
1983.
Hernám.
Fjallið stendur eitt í þögninni
langt í fjarskanum
eins og fíngert postulín
í nótt liggur fjöregg þitt
í dögginni
bak við ósk þína
situr svartur fugl
með morð í augum.
Ingólfur Sveinsson
Landspítalinn
Hjúkrunarframkvæmdastjóri óskast til starfa á
öldrunardeild spítalans frá 15. september n.k. eða
eftir samkomulagi. Framhaldsmenntun í stjórnun og
sérþekking á öldrunarhjúkrun æskileg. Umsóknir er
greini m.a. menntun og fyrri störf ber að senda
stjórnarnefnd ríkisspítalanna, Rauðarárstíg 31, fyrir 1.
september n.k. Nánari upplýsingar veitir hjúkrunarfor-
stjóri í síma 29000.
Sérfræðingar óskast á svæfingardeild Landspítala
frá 1. október n.k. til starfa í eitt ár. Umsóknir er greini
m.a. menntun og fyrri störf ber að senda stjórnarnefnd
ríkisspítalanna fyrir 20. september n.k. Nánari upplýs-
ingar veitir yfirlæknir svæfingardeildar í síma 29000.
Sjúkraþjálfari óskast til starfa á endurhæfingardeild
Landspítalans frá 1. september n.k. eða eftir sam-
komulagi. Nánari upplýsingar veitir yfirsjúkraþjálfari í
síma 29000.
Iðjuþjálfar óskast til starfa á öldrunariækningadeild
frá 1. september n.k. eða eftir samkomulagi. Nánari
upplýsingar veitir yfirlæknir deildarinnar í síma 29000.
Dei Idarmei natækn ir,
kennslumeinatæknir og
meinatæknir óskast til starfa á rannsóknadeildum
spítalans frá 1. september n.k. eða eftir samkomulagi.
Nánari upplýsingar veita deildarmeinatæknar í síma
29000.
Fóstrur óskast til starfa á Barnaspítala Hringsins frá
1. september n.k. eða eftir samkomulagi. Upplýsingar
veitir hjúkrunarforstjóri í síma 29000.
Næringarfræðingur eða
sjúkrafæðisfræðingur óskast í hálft starf á göngu-
deild sykursjúkra frá 1. september n.k. eða eftir sam-
komulagi. Nánari upplýsingar veitir yfirlæknir deildar-
innar í síma 29000.
Hjúkrunarfræðingar óskast til starfa, einkum á eftir-
taldar deildir: Almennar barnadeildir, vökudeild,
öldrunarlækningadeild svo og á göngudeild og dag-
deild öldrunardeildar. Upplýsingar veitir hjúkrunarfor-
stjóri í síma 29000.
Sjúkraliðar óskast á nokkrar legudeildir. Upplýsingar
veitir hjúkrunarforstjóri í síma 29000.
Ge&deildir ríkisspítala
Hjúkrunardeildarstjóri óskast til starfa á deild II frá 1.
september eða eftir samkomulagi.
Hjúkrunarfræðingar óskast nú þegar, eða eftir sam-
komulagi, einkum á deild X og 32 C.
Sjúkra*5ðar óskast til starfa nú þegar eða eftir sam-
komulagi. Upplýsingar um stöður þessar veitir hjúkr-
unarforstjóri í síma 38160 eða 29000.
Kópavogshæli
Þroskaþjálfar óskast tii starfa frá 1. september n.k.
eða eftir samkomulagi á nokkrar deildir.
Sjúkraliðar óskast til starfa nú þegar eða eftir sam-
komulagi.
Starfsmenn óskast til starfa, einkum við umönnun
vistmanna frá 1. september n.k. eða eftir samkomu-
lagi. Upplýsingar um stöður þessar veitir forstöðu-
maður í síma 41500.
Reykjavík, 21. ágúst 1983.