Þjóðviljinn - 20.08.1983, Qupperneq 22
Haraldur Ingi
í Kristjánsbakaríi
á Akureyri:
Lokar
í kvöld
I kvöld lýkur sýningu Haraldar
Inga Haraldssonar í kaffistofunni í
Kristjánsbakaríi á Akureyri og
verður hún opin frá klukkan eitt til
níu.
Haraldur sýnir þarna 39 myndir
sem unnar eru þannig, að teiknað
er á Ijósmyndapappír og síðan mál-
að á með ýmsum hætti. Að sögn
Haraldar hefur aðsókn verið afar
góð og mikið selst og nú fer hver að
verða síðastur að sjá þessa sýningu
sem er eins og fyrr segir í kaffistofu
Kristjánsbakaríis á Akureyri.
leiklist
Stúdentaleikhusið:
Elskendurnir í Metró eftir Jean
Tardieu í þýðingu Böðvars
Guðmundssonar, verður sýnt í Fé-
lagsstofnun stúdenta við Hring-
braut, laugardags- og sunnudags-
kvöld kl. 20.30. Fáar sýningar.
Ferðaleikhúsið:
Öll kvöld helgarinnar er dagskrá í
Tjarnarbíó fyrir túrista.
tónlist
Gamla bíó:
íslenska Óperan með fjölbreytta
dagskrá. Meðal annars íslensk
tónlist flutt af kór óperunnar og
Signýju Sæmundsdóttur og Kristni
Sigmundssyni. I kvöld kl. 21.00.
Gerðuberg
Tónleikar Kristins Sigmundssonar
kl. 21.00. Undirleikari Jónas Ingi-
mundarson.
Hljómskálagarðurinn:
Tónleikar S.A.T.T. og Æskulýðs-
ráðs. Vonbrigði.
myndlist
Nýlistasafnið:
Einar Garibaldi Einarsson, Georg
Guðni Hauksson, Óskar Jónsson,
Sigurlaugur Elíasson og Stefán
Axel Valdimarsson opna sýningu
kl. 14.00 í dag. Allt málarar.
Stúdentakjallarinn:
Kristján Steingrímur Jónsson og
Ómar Stefánsson sýna samvinnu-
myndir.
Norræna húsið:
Grænlenska listakonan Kistat
Lund sýnir í anddyri, lýkur á morg-
un. Grænlandssýning í kjallara.
Listasafn Einars Jónssonar:
Opið daglega frá 13.30-16.00
nema mánudaga.
Gallerí Langbrók:
Kristján Kristjánsson með póst-
kort.
DjUpið Hafnarstræti:
Jón Þór Gíslason með 17 olíumál-
verk.
Ásmundarsafn:
Yfirlitssýning yfir verk Ásmundar.
Mokkakaffi:
Hanna Jórunn Sturludóttir sýnir 20
blýants- og tússmyndir.
Kristjánsbakarí Akureyri:
Haraldur Ingi Haraldsson sýnir 39
teikningar sem unnar eru á Ijós-
myndapappír. Opið 13-19 laugar-
dag.
ýmislegt
Reykjavíkurvika:
Sjá annars staðar í blaðinu.
Kjarvalsstaðir:
„Reykjavík fyrr og nú“. Dagskrá í
tali og tónum kl. 15.00
Árbæjarsafn:
Opið frá 13.30-18. Elín Pálmadóttir
með erindi á sunnudag, Einar Ein-
arsson leikur á gítar kl. 16.00 sunn-
udag.
Lágplöntuferð:
NVSV með skoðunarferð undir
leiðsögn Harðar Kristinssonar.
Farið frá Norræna húsinu kl. 13.30.
22 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Helgin 20.-21. ágúst 1983
um helgina
r
Arbæjarsafn um helgina:
Sýning, erindi og
gítarspil
Árbæjarsafnið er að vanda opið
um helgina frá kl. 13.30-18.00. í
Eimreðarskemmu verður hægt að
fá kaffi og skoða um leið gömul
Reykjavíkurkort sem þar hanga
uppi.
Á sunnudag kl. 14.00 heldur El-
ín Pálmadóttir blaðamaður erindi
um fólkvang í Elliðarárdal og að
því loknu verður gönguferð um
svæðið. Klukkan 16.00 á sunnudag
leikur Einar Einarsson á gítar fyrir
gesti. SVR verður með aukaferðir í
safnið frá Hlemmi laugardag kl.
14.00 og kl. 16.00 til baka og á
sunnudag kl. 13.30 og til baka kl.
16.30.
Sunnudagur kl. 14.00
Reykjavíkurmót
barna í
Laugardagurkl. 13.30:
NVSV skoðar lágplöntur
Djúpið Hafnarstræti
Jón Þór Gíslason sýnir
Fimm málarar sýna
í Nýlistasafninu
„Meö allt á hreinu
endursýnd
um helgina
Frá Kvikmyndafjelaginu
Bjarmalandi sf. hefur borist
fréttatilkynning.
Þar segir að vegna fjölda
áskorana frá námsmönnum og
öðrum útlögum hafi verið á-
kveðið að endursýna hina geysi-
vinsælu mynd Stuðmanna og Ág-
ústs Guðmundssonar „Með allt á
hreinu.“
Sýningarnar hefjast nú um
helgina í A-sal Regnbogans þar
sem hún verður sýnd í fáein
skipti, síðan fer hún út á land.
Hljómskálagarði
Náttúruverndarfélag Suðvestur-
lands heldur uppi öflugu starfi um
þessar mundir. Þessa helgina er
ráðgert að skoða lágplöntur í ná-
grenni Reykjavíkur undir leiðsögn
Harðar Kristinssonar, og er sú ferð
farin í því skyni að kynna væntan-
legan grasafræðisal fyrirhugaðs
Náttúrugripasafns íslands.
Með lágplöntum er átt við
sveppi, fléttur og mosa og þar sem
ekkert safn er til verður að skeiða
út í náttúruna til að skoða þær.
Farnar verða nokkrar stuttar göng-
ur að þessu sinni og komið til baka
um kl. 17.00. Farið verðurfrá Nor-
ræna húsinu í dag kl. 13.30, verð er
kr. 150 og frítt fyrir börn. -gat
Laugardagur kl. 14.00:
Þann 18. ágúst s.l. opnaði Jón
Þór Gíslason málverkasýningu í
; Djúpinu, Hafnarstræti 15. Þar sýn-
ir hann 17 olíumálverk sem öll eru
unnin á þessu sumri.
Jón Þór hefur lokið námi frá
Myndlistar- og handíðaskóla ís-
lands og hyggur á frekara nám er-
lendis. Þetta er fyrsta einkasýning
hans en áður hefur hann tekið þátt í
fjölda samsýninga. Sýningunni lýk-
ur þann 4. september. Hún er opin
alla daga frá 11-23.30 og er sölu-
sýning.
í dag klukkan 2 er opnuð sýning í
nýlistasafninu við Vatnstíg og sýna
þar fímm menn málverk af ýmsum
gerðum.
Þeir sem sýna eru Einar Gari-
baldi Eiríksson, Georg Guðni
Hauksson, Óskar Jónasson, Sigur-
laugur Elíasson og Stefán Axel
Valdimarsson. Sýningin verður op-
in til 28. ágúst frá kl. 14.00-22.00
um helgar og frá 16.00-22.00 virka
daga. Myndirnar eru til sölu.
r
Asmundarsafn við Sigtún:
Yflrlitssýningu lýkur
Nú í sumar hefur staðið yfir sýn- hennilýkur31. ágúst n.k. ogferþví
ing á verkum Ásmundar Sveins- hver að verða síðastur að skoða
sonar mynhöggvara, en eins og þetta merkilega yfirlit yfir listferil
kunnugt er ánafnaði listamaðurinn Ásmundar, þessa gjöf hans til
Reykjavíkurborg safn sitt eftir sinn Reykvíkinga.
dag. Safnið verður lokað í september,
Sýningin hefur verið afar vel sótt en þá verður unnið að uppsetningu
og hafa þúsundir íslendinga og út- nýrrar sýningar á verkum Ásmund-
lendinga lagt leið sína í safnið. En ar, sem ráðgert er að opna 1.10 ’83.
nú fer að síga á seinni hlutann: _gat
Á morgun byrjar „Reykjavíkur-
mót barnanna“ sem var svo
skemmtilegt í fyrra. Það er í Hljóm-
skálagarðinum sem keppt er og
þetta byrjar klukkan 14.00 og
skráningin hefst kl. 14.10.
Keppt er í tíu greinum sem allir
krakkar hafa mikla þjálfun í: sippi,
snú-snúi, skjóta bolta í mark,
húlla, reiðhjólakvartmílu, 100 m.
hlaupi, kassabílaralli, skalla bolta
milli, labba á grindverki og að
halda bolta á lofti. í kassabílarall-
inu og í að skalla bolta á milli keppa
tveir og tveir.
Keppt er í tveimur flokkum í öll-
um greinum: 7-8 og 9 ára og svo
10-11 og 12 ára. Allir mega vera
með og allt er frítt. Hemmi Gunn
setur mótið en annars er það skáta-
félagið Árbúar í Árbæjarhverfi
sem stendur fyrir mótinu. Þeir lofa
svaka fjöri því utan keppninnar
verður margt fleira að gerast: víða-
vangsleikir, siglingar á tjörninni,
flugdrekaflug, brandarakeppni,
júdósýning, hljómsveitir,
skemmtiatriði og fleira og fleira...
-gat