Þjóðviljinn - 20.08.1983, Síða 27

Þjóðviljinn - 20.08.1983, Síða 27
Helgin 20.-21. ágúst 1983 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 27 Sendiráðiö lofar betrun Umfangsmikil leynivínsala bandarískra sendiráðsstarfsmanna í Reykjavík rannsökuð af lögreglunni „Um leið og ábyrgir menn í sendiráðinu fengu að vita um að þarna kynni að vera eitthvað svona í ekki góðu lagi, þá tóku þeir til sinna ráða og hafa lýst því yfir að þeir hafi gert þær ráðstafanir að ekki sé ástæða til athugasemda framvegis“, sagði Vilhelm Möller aðalfulltrúi lögreglustjórans í Reykjavík, þegar Þjóðviljinn innti hann eftir niðurstöðum umfangs- mikilla rannsókna lögreglunnar á meintri víðtækri leynivínsölu starfsmanna bandaríska sendiráðs- ins í Reykjavík. Vilhelm sagði að rannsókn máls- ins hefði mótast af því að hér ættu sendiráðsstarfsmenn í hlut og starf- semi í húsakynnum sendiráðsins sem væri utan lögsögu íslenskra yfirvalda. Engar ákærur hefðu því verið gefnar út vegna málsins. Grunsemdir hafa lengi verið uppi um að í sambandi við fjörugt skemmtanahald í íbúðarhúsnæði nokkurra starfsmanna sendiráðs- ins í Þingholtunum, ætti sér stað ólögleg vínsala til íslendinga sem hafa sótt sendiráðsstarfsmennina heim. Fjálgleg lýsing á skemmt- analífinu og leynivínsölunni í um- í ræddu húsi birtist í tímaritinu ] Samúel fyrr á þessu ári og vakti 1 athygli. „Það komu upp grunsemdir um að í sambandi við skemmtanahald væri ekki rétt á haldið öllum hlutum varðandi áfengisveitin'gar og athugasemdir um það hafa verið gerðar gagnvart sendiráðinu. Því hefur verið gert kunnugt um það að lögreglunni sýnist að þarna þurfi að bæta um betur. Að því er okkur hefur verið tjáð hefur þeim ábend- ingum verið tekið mjög alvarlega, og því heitið að það skuli gerðar þær lagfæringar að þetta endurtaki sig ekki“, sagði Vilhelm Möller. Starfsmenn sendiráðsins uppvísir að leynivínsöiu. Efbrúa á 90% fjárþarfar hjá LÍN 260 miljónir, en ekki 135 Eitthvað skolast til hjá mönnum segir framkvæmdastj. Lánasjóðsins ” Ef það sem haft er eftir Geir andi haustlán en 1981 hefði sjóð- Hallgrímssyni í Morgunblaðinu er urinn sloppið betur þvá þá var skilningur hans og ríkisstjórnar- gengiðfelitíjanúarogáhrifþeirrar innar þá er rétta talan 168 miljónir fellingar var aðeins á vorlánin. en ekki 135 miljónir eins og hann „Undanfarin 5 ár höfum við heldur, ef það er stefna þeirra að byggt okkar störf í Lánasjóðnum á miða við 90% fjárþörf í stað 95% því að afgreiðslan í ríkisfjárlögum sem er iögbundin“, sagði Sigurjón til okkar væri byggð á einhverjum Valdimarsson framkvstjóri Lán- forsendum. Ef þessar forsendur asjóðs íslenskra námsmanna í sam- stæðust hins vegar ekki þá komu til tali við Þjóðviljann. aukafjárveitingar svo sjóðurinn Sigurjón sagði að vegna þróunar gæti staðið við framkvæmd þeirra gengismála væri nú svo komið að laga sem hann á að starfa eftir. meira en helmingur lánagreiðslna Þessi stefna hefur verið viður- sjóðsins rynnu til námsmanna er- kennd hingað til og við fengið lendis eða 138 miljónir ef miðað aukafjárveitingar þegar þróunin væri við að 260 miljónir yrðu hefur orðið sú að verðbólgan hefur greiddútíhaustlán.en 122miljón- farið fram úr áætlun eða fjöldi ir til námsmanna innanlands. námslána orðið fleiri en gert var Gengisbreytingar frá 30. júní 1982 upphaflega ráð fyrir“, sagði Sigur- fram að síðustu gengisfellingu 1. jón. Þegar maður les í blöðum júní sl. hefðu numið um 140%. núna að í stað 95% eigi að lána Hins vegar skipti miklu fyrir lána- 90% og þá þurfi 135 miljónir í við- sjóðinn hvenær ársins gengisfell- bót, þá virðist eitthvað mikið hafa ingar yrðu. Gengisfellingin í júní skolast til hjá mönnum.“ myndi virka á heila 7 mánuði varð- -Ig. Ágóðinn afrekstri Laxárvirkjunar langt umfram það sem menn óraði fyrir. „Það hefur orðið orkusprenging í landinu66 segir Helgi Guðmundsson bæjarfulltrúi á Akureyri „Þó að menn séu nú að reka sig á að Laxárvirkjun skili miklu meiri arði en reiknað var með, þá hefur þessi niðurstaða ekki í för með sér breytta afstöðu til sameignar fyrir- tækisins við Landsvirkjun. Menn eru á því að þetta eigi að vera á einni hendi. Það sem hefur síðan gerst frá því grundvöllurinn fyrir samningana varð til, reikningar á arðsemishlutfalli . og eignarhlut- falli, er að ágóðinn af rekstri Lax- árvirkjunar er langt umfram það sem nokkurn óraði fyrir“, sagði Helgi Guðmundsson bæjarfulltrúi á Akureyri í samtali við Þjóðvilj- ann. Til marks um stöðu Laxárvirkj- unar sagði Helgi að á þessu ári væri óhætt að reikna með að rekstrar- hagnaður Laxárvirkjunarinnar á næstu árum verði um 170 miljónir á ári. „Til að gera sér betur grein fyrir af hvaða stærðargráðu þetta er má taka til viðmiðunar að 65 þús. tonna álver kosar 250 miljónir doll- ara. í slíkri fjárfestingu er talið eðlilegt að eigandinn leggi fram úr eigin sjóðum um 30% af fjárfest- ingarkostnaði. Annað sé lán. Þetta þýðir að eigið fé sem eigandi þyrfti að leggja fram sé um 75 miljónir dollara. Setjum sem svo að íslend- ingar ætluðu að reisa álver og eiga helming þess á móti öðrum. Lax- árvirkjun gæti þá lagt fram allan eignarhluta íslendinga með rek- strarhagnaði sínum á næstu 8 árum, því það er reiknað með að á föstu verðlagi sé hagnaður virkjun- arinnar um 5 miljónir dollara á ári. Það hefur orðið orkuverð- sprenging í landinu. Við skulum átta okkur á því að Laxárvirkjun selur orku sína eingöngu til hins almenna notanda fyrir 110 aura kwst að meðaltali. Landsvirkjun selur hins vegar aðeins helming sinnar orku á þessu sama verði, hinn helminginn selur hún á innan við 20 aura til stóriðju. Ég lagði áherslu á það við umræður í bæjar- stjórn Akureyrar um þessi mál, að þessar staðreyndir skýra betur en nokkuð annað sem ég hef í það minnsta séð í langan tíma, hversu gífurlega brýnt það er orðið að hækka orkuverðið til stóriðju.“ Minnti Helgi jafnframt á að orku- sala Landsvirkjunar til ísals á síð- asta ári nam um 150 miljónum króna sem er ekki mikið hærri upp- Helgi Guðmundsson: Arðsemis- hlutfall Akureyrar í Landsvirkjun þarf að hækka. hæð en hagnaðurinn af rekstri Lax- árvirkjunar á þessu ári, 120 milj- ónir. Að sögn Helga, hefur bæjarráð Akureyrar falið sínum samninga- mönnum að taka upp viðræður við Landsvirkjun um uppgjörið vegna sameiningar Laxárvirkjunar við Landsvirkjun en það á að miðast við 1. júlí sl. „Hvort þær viðræður leiða til einhverra breytinga frá samning- unum skal ég ekkert segja, en mín von og sannfæring er að arðsemis- hlutfall Akureyrar í hinu nýja fyrir- tæki ætti að hækka úr þeim 0,9% sem það er núna í 5,45% að minnsta kosti sem er talinn eignarhlutur Akureyrar í hinni nýju Landsvirkjun“, sagði Helgi Guðmundsson. -•g

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.