Þjóðviljinn - 30.08.1983, Side 1
Þriðjudagur 30. águst 1983 ÞJÖÐVILÍINN — SÍÐÁ 9 '
íþróttir
Umsjón: Víöir Sigurösson
Skagamenn „tollera“
þjálfarasinn, Hörð
Helgason, eftir
sigurinná
Eyjamönnum í
úrslitaleik
bikarkeppni KSÍ á
sunnudaginn.Sjá
nánarbls. 10-11.
Mynd: - eik
Enska knattspyrnan í gær:
Töp í Þýskal.,
sigrar í Belgíu
Liðum íslendingunna gekk illa í
vestur-þýsku bikarkcppninni í
knattspyrnu uni hclgina. Atli, Pét-
ur og félagar í Diisseldorf steinlágu,
0-3, gegn Schalke 04 sem leikur í 2.
deild og Fortuna Köln, lið Janusar,
sem komst alla leið í úrslit í fyrra,
tapaði heima, 2-3, gegn Borussia
Mönchepgladbach. Stuttgart lék
ekki um helgina.
Stórliðin fóru fyrirhafnarlítið í
gegn, Köln vann Aachen 6-1 úti,
Bayern Múnchen sigraði Hessen
Kassel 3-0 á útivelli og Hamburger
lagði Dortmund heima, 4-1. Ein-
tracht Frankfurt tapaði hins vegar
óvænt fyrir áhugamannaliðinu
Göttingen, 4-2.
í Belgíu gekk „íslensku" liðunum
betur. Arnór og co. í Anderlecht'
sigruðu 3. dcildarlið Bornem 1-0 á
útivelli, Waterschei (Lárus) vann
Bergen 1-0 úti, Antwerpen (Pétur
P.) sigraði Eisden einnig 1-0 úti en
CS Brúgge (Sævar) burstaði Dieg-
em 4-0, líka á útivelli. - VS
Hollendingarn-
ir skora grimmt
Hollenska 1. deildin hófst með
látum um hclgina, 44 mörk voru
skoruð í níu leikjum og því haldið
áfram þar sem frá var horfið í
fyrra. Mesti markaleikurinn var
viðureign Willem II og Go Ahead
sem lyktaði 6-4 fyrir Vilhjálm.
Ajax, meistararnir, sigruðu PEC
Zwolle 4-2 og PSV Eindhoven og
Feyenoord skoruðu timm stykki
hvort hjá andstæðingum sínum.
Keppni hófst einnig í Portúgal og
frægustu liðin þar unnu góða sigra.
Sporting Lissabon vann Penafiel 5-
1 og meistarar og bikarmeistarar
Benfica sigruðu Vitoria Setubal 3-2
á útivelli.
Þá var leikin þriðja umferð í
Austur-Þýskalandi. Magdeburg
burstaöi Dynamo Berlin 5-0 og er
eitt í efsta sæti nieð sex stig.
- VS
Heimsmet
Bykovu
og
Maree
Nicholas skoraði
tvö á Molyneaux!
Fyrsta heimatap Man. Utd í 16 mánuði!
Charlie Nichoias, hinn ungi skoski markakóngur sem Arsenal
keypti frá Celtic í sumar, er byrjaöur aö mala gull fyrir Lundúna-
liöiö. í gær lék Arsenal á útivelli gegn nýliðum Wolves í 1. deild
ensku knattspyrnunnar og sigraöi, 2-1. Wayne Clarke skoraði
strax á 3. mínútu fyrir heimaliðið en Nicholas jafnaði á 25. mínútu
eftir fyrirgjöf Brian McDermott.Tíu mínútum fyrir leikslok felldi svo
John Burridge, markvörður Úlfanna, Nicholas og hann skoraði
sjálfur sigurmarkið úr vítaspyrnunni sem dæmd var.
Manchester United tapaði í
fyrsta skipti heima í 16 mánuði,
hafði leikið 34 leiki í röð á Old
Trafford án taps. Gestirnir voru
Nottingham Forest sem höfðu ekki
einu sinni skorað mark gegn Unit-
ed í síðustu sex leikjum liðanna.
Ekki virtist ætla að verða breyting
þar á lengi vel. United réð gangi
fyrri hálfleiks, fékk fullt af mark-
tækifærum og Kevin Moran nýtti
eitt þeirra. En á 70. mínútu jafnaði
Viv Anderson fyrir Forest, skoraði
af stuttu færi eftir að Gary Bailey
markvörður United hafði varið
stórkostlega en ekki haldið knett-
inum. Forest tók völdin, Colin
Walsh skaut í stöng áður en Peter
Davenport skoraði sigurmark For-
est fjórum mínútum fyrir leikslok.
Úrslit í gær urðu þessi:
1. deild:
Aston Villa-Sunderland............1-0
Everton-West Ham.................0-1
Manch. Utd-Nottm.Forest...........1-2
Southampton-Q.P.R.................0-0
Wolves-Arsenal....................1-2
2. deild:
Cardift-Manch. City..............2-2
Leeds-Brighton..................3-2
Newcastie-Shrewsbury............0-1
Mjólkurbikarinn
1. umferö, fyrri leikir:
Bradford C.-Shetf. United......0-1
Millwall-Northampton............3-0
Steve Walford skoraði sigur-
mark West Ham á Goodison Park
gegn Everton af 40 m færi. Walford
var keyptur til Lundúnaliðsins frá
Norwich í sumar.
Mark Walters skoraði eina
markið í viðureign Aston Villa og
Sunderland og færði Villa öll þrjú
stigin.
Efstu lið í 1. deildinni eftir þessa
leiki eru:
WestHam.............2 2 0 0 5-0 6
AstonVilla..........2 2 0 0 5-3 6
Arsenal.............2 2 0 0 4-2 6
Southampton.........2 1 1 0 1-04
- vs
Coventry náði jöfnu
gegn Tottenham
Tveir leikir fóru síðan fram í gær-
kvöldi. Tottenham og Coventry
gerðu jafntefli 1:1. Glen Hoddle
skoraði fyrirTottenham í fyrri hálf-
leik en Graham Withey, sem kom
inn á sem varamaður, jafnaði fyrir
Coventry þremur mínútum fyrir
leikslok.
Stoke sigraði WBA 3:1. Ian Pa-
inter var maður kvöldsins hjá
Stoke. Hann skoraði tvö markanna
og lagði upp það þriðja fyrir Paul
Maguire. Hollendingurinn Martin
Jol skoraði mark WBA.
Tvö heimsmet í frjálsum íþrótt-
um féllu á stórmóti í Köln í V,-
Þýskalandi um helgina. Sydney
Maree, suður-afríski blökkumað-
urinn sem nú keppir fyrir Banda-
ríkin, hljóp 1500 m á 3:31,23 mín.,
og bætti þriggja ára gamalt heim-
smet Stcve Ovett um 12/100 úr sek-
úndu.
Tamara Bykova, sem ásamt Ul-
riku Meyfarth jafnaði heimsmetið í
hástökki kvenna, 2,03 m, fyrir
stuttu, gerði enn betur í Köln. So-
véska stúlkan leggjalanga vippaði
sér yfir 2,04 metra.
Aberdeen
samtals
með 12!
Lítið var um óvænt úrslit í 2. um-
ferð skosku dcildabikarkeppninn-
ar í knattspyrnu á laugardaginn en
hún fer nú fram með nýju sniði,
ekki leikið í riðlum eins og áður
heldur útsláttarkeppni frá byrjun.
Leikið er hcima og heiman og á
laugardag fóru síðari leikirnir
fram.
Helstu úrslit urðu þau að Jó-
hannes Eðvaldsson og félagar í
Motherwell sigruðu Berwick 2-0
úti, 4-0 samtals. Celtic gerði aðeins
jafntefli heima gegn Brechin, 0-0,
en vann 1-0 samanlagt. Aberdeen
sigraði Raith Rovers úti, 3-0, alls
12-0, Dundee United vann Dun-
fermline 2-0 (8-1) og Rangers sigr-
aði Oueen of the South 4-1 (8-1).
Önnur lið í gegn eru Hibernian, St.
Johnstone, Alloa, Airdrie, Clyde-
bank, Dundee, St. Mirren, Hearts,
Kilmarnock. Morton og Meadow-
bank.
USA fékk flest gullanna
Ameríkuleikunum í íþróttum lauk í Caracas ígœr. Bandaríkjamenn
urðu sigursœlastir, fengu alls 285 verðlaun, þar af 137 gull. Nœstir
komu Kúbumenn með 79 gull og Kanada sem hlaut 18. Fimm heimsmet
voru sett á leikunum en stemmning þeirru var að miklu leyti eyðilögð
með lyfjahneyksli sem upp komst. Sextán íþróttamenn voru dœmdir úr
keppni, flestir þeirra lyftingamenn.
V.-Þjóðverjar hættir við!
Vestur-Pjóðverjar drógu í gœr til baka umsókn sína um að halda
heimsmeistarakeppnina í knattspyrnu árið 1990. Fyrir Itelgi höfðu
Júgóslavar hœtt yið. Prjú ríkisœkja fastaðfá keppnina tilsin, Sovétrík-
in, England og Italía.Alþjóða knattspyrnusambandið tekur ákvörðun
um leikstað í desember.
Gross bætti heimsmetið
Vestur-Pjóðverjinn Michael Gross setti heimsmet í200 m flugsundi á
Evrópumeistaramótinu í Róm um helgina. Hann synti á 1:57,05 mínút-
um og bcetti met Craig Beardsley um tœpa sekúndu.
- VS