Þjóðviljinn - 30.08.1983, Síða 2
10 SIÐA — ÞJÓDVILJINN Þriðjudagur 30. ágúst 1983
íþróttir
Umsjón:
Víöir Sigurðsson
Þriðjudagur 30. ágúst 1983 , ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 11
4. deild:
Fjórða
þrenna
Helga!
Leiknir frá Fáskrúðsfirði fékk
óskabyrjun gegn Hvöt frá Blöndu-
ósi þegar félögin mættust í B-riðli
úrslitakcppni 4. deildarinnar í
knattspyrnu á laugardaginn. Um
200 manns fylgdust með lciknum á
Fáskrúðsfirði og sáu Leikni skora
þrívegis á fyrstu 20 mínútunum.
Eftirleikurinn var auðveldur,
Leiknir skoraði þrjú til viðbótar í
síðari hálfleik og sigraði 6-0.
Helgi Ingason var í aðalhlut-
verki, skoraði þrjú markanna,
fjórða þrenna hans í sumar og hann
hefur nú skorað 16 nrörk í 11
leikjum í 4. deild. Steinþór Péturs-
son skoraði tvö mörk og Jón
Hauksson eitt. Hvöt átti eitt stang-
arskot í leiknum, seint í fyrri hálf-
leik.
Staðan í B-riðli:
Leiknir F.................. 1 1 0 2 6-0 2
Leiftur.....................1 1 0 0 2-0 2
Hvöt........................2 0 0 2 0-8 0
Leiftur og Leiknir mætast á
Ólafsfirði annað kvöld.
-VS
Slysalegt
sigur
mark
Víkverji vann góðan sigur á
Haukum, 3-2, þegar félögin mætt-
ust í Hafnarfirði í A-riðli úrslita-
keppni 4. deildar í knattspyrnu á
laugardaginn. Haukar byrjuðu vel,
voru komnir í 2-0 eftir 8 mínútur
með mörkum Lofts Eyjólfssonar og
Hennings Henningssonar.
Þröstur Sigurðsson lagaði
stöðuna fyrir Víkverja, 2-1, og
Svavar Hilmarsson jafnaði tuttugu
mínútum fyrir leikslok. Guðmund-
ur Albertsson skoraði svo sigur-
mark Víkverja, sendi í áttina að
Haukamarkinu af 30 m færi, knött-
urinn small í jörðinni og hoppaði
yfir markvörðinn og í netið.
Staðan í B-riðli:
Víkverji.................2 110 5-43
Stjarnan.................1 0 112-21
Haukar...................10 0 12-31
Stjarnan mætir Haukum annað
kvöld.
-VS
Þrjú stig
af Skalla-
grími
Dómstóll KSI dæmdi þrjú stig af
Skallagrítni úr Borgarnesi á föstu-
dag, eitt gegn Grindavík og tvö
gegn ÍK. Skallagrímur er þó áfram
á toppi A-riðils 3. deildar og þar
með í 2. deild næsta sumar. Það
getur þó breyst, Ármann hefur
kært Garðar Jónsson, sömuleiðis
ÍK síðari leik liðanna, en það er
einmitt útaf Garðari sem stigin
þrjú voru dænrd Borgnesingum
töpuð. Vinni Ármenningar sína
kæru fer Selfoss upp í 2. deild en
Snæfell fellur í 4. deild.
Staðan að þessum kærum af-
greiddum er þannig:
Skallagrimur.14 10 1 3 33-13 21
Selfoss.......14 9 3 2 38-19 21
Grlndavik.....14 8 4 2 21-16 20
VíkingurÓI....14 3 6 5 16-19 12
IK............14 4 4 6 17-21 12
HV ...........14 5 0 9 21-30 10
Snaefell......14 3 3 7 13-32 9
Ármann........14 2 3 9 12-21 7
-vs
„Byrjun leiksins var hræðileg,
hreinasta martröð fyrir okkur. Is-
lensku stúlkurnar byrjuðu á góðri
sókn, hún var brotin aftur og Finn-
ar brunuðu upp. Skot utan af kanti
sigldi í hornið fjær á íslenska mark-
inu, gersamlega óverjandi, staðan
1-0 fyrir Finna. ísland sótti áfram
en á 10. mínútu nær Finnland
upphlaupi, cin þeirra kemst á
auðan sjó og skorar, 2-0. Þetta var
að sjálfsögðu mikið áfall og ís-
lensku stúlkurnar náðu aldrei að
sýna sitt besta eftir þetta,“ sagði
Sigurður Hannesson, lands-
liðsnefndarmaður kvenna, í sam-
tali við Þjóðviljann eftir að íslenska
kvennalandsliðið í knattspyrnu
hafði tapað 3-0 fyrir þvi finnska í
Provoo í Finnlandi á laugardaginn.
Þetta var lokaleikur íslenska liðsins
í Evrópukeppninni og hafnaði það í
neðsta sæti með eitt stig úr sex
leikjum.
Leikurinn var jafn eftir þessi
ósköp í byrjun, ísland meira með
boltann án þess að skapa sér afger-
andi færi. Erla Rafnsdóttir, Ásta
B. Gunnlaugsdóttir og Erna
Lúðvíksdóttir áttu þó góðar skot-
tilraunir og Erla skallaði naumlega
yfir finnska markið eftir horn-
spyrnu. Annars voru íslensku
stúlkurnar ragar við að skjóta að
marki Finnanna.
Um miðjan síðari hálfleik bætti
Finnland þriðja markinu við eftir
hörmuleg varnarmistök íslenskra.
Leikurinn þróaðist upp í gífurlega
hörku þar sem ekkert var gefið
eftir og dómarinn finnski, sem var
að dæma sinn fyrsta kvennaleik,
leyfði of mikið af brotum. „Þetta
var sex til sjö spjalda leikur, ég hef
aldrei séð harðari kvennaleik, en
hann gaf aldrei áminningu“, sagði
Sigurður. Þetta bitnaði þó jafnt á
báðum liðum og íslensku stúlkurn-
ar gáfu ekkert eftir.
„Við verðum að viðurkenna að
við stöndum hinum Norðurland-
aþjóðunum nokkuð að baki,
tæknilega og taktískt séð. Þátt-
takan í þessari Evrópukeppni hef-
ur hins veg'-«r verið lærdómsrík, við
vitum hvar íslensk kvennaknatt-
spyrna stendur og getum áttað
okkur betur á h vað þarf að lagfæra.
Ef við fáum að halda okkar upp-
byggingastarfi áfram á árangur
eftir að skila sér á næstu árum, liðið
er óreynt, ómótað og ungt miðað
við hin Norðurlandaliðin en for-
ráðamenn hinna liðanna eru sam-
mála um að íslenska liðið sé efni-
legt og eigi nokkra mjög góða ein-
staklinga sem standa jafnfætis kol-
legum sínum á hinum Norðurlönd-
unum,“ sagði Sigurður Hann-
esson.
Erla Rafnsdóttir og Ásta B.
Gunnlaugsdóttir voru bestar í ís-
lenska liðinu. Laufey Sigurðar-
dóttir stóð þeim ekki langt að baki.
Ein stúlka lék sinn fyrsta landsleik,
Eva Baldursdóttir lék síðustu 15
mínútur í markinu og stóð sig með
prýði.
-VS
íþróttir
Víðir Sigurðsson
„Eg hef aldrei séð
harðari kvennaleik“
Sigurður Lárusson og Sveinbjörn Hákonarson
lyfta bikarnum eftirsótta, annað árið í röð.
Mynd: - eik
„Markið verður
ógleymanlegt“
„Þetta mark verður mér ógleym-
anlegt, ég hef aldrei gert mikilvægara
mark á mínum ferli,“ sagði
Sveinbjörn Hákonarson Skagamað-
ur eftir bikarúrslitaleikinn, en hann
skoraði sigurmark ÍA þegar aðeins
tvær mínútur voru eftir af síðari
hluta framlengingarinnar.
„Það var skallað frá, boltinn barst
út í vítateiginn til mín og ég ætlaði
mér að lyfta yfir markvörðinn, í
hornið fjær, og það tókst.“
- Hverju viltu þakka sigurinn?
„Fyrst og fremst frábærum þjálf-
ara og liðsheild. Þá er stjórn mála
utan vallar mjög góð.“
- Verðið þið Skagamenn líka ís-
landsmeistarar?
„Já ég er bjartsýnn á að við vinn-
um tvöfalt. Staða okkar er góð og við
hljótum að fá þetta eina stig sem þarf
utúr síðustu tveimur leikjunum,"
sagði Sveinbjörn Hákonarson.
„Margir þættir að baki“
„Þetta var ekta bikarleikur, bar-
áttan mikil og stemmningin góð,“
sagði Hörður Helgason, þjálfari ÍA.
„Strákarnir tvíefldust þegar Siggi
Lár. var rekinn útaf og þá kom í ljós
hvort liðið var betra. Það liggja
margir þættir að baki þessum sigri,
strákarnir sjálfir, fólkið af Skagan-
um sem studdi okkur, konurnar okk-
ar, allt þetta og meira til myndar eina
sterka heild,“ sagði Hörður Helg-
ason.
„Góður leikur“
„Þetta var góður leikur fyrir áhorf-
endur, besti bikarúrslitaleikur sem
ég hef séð hér á landi,“ sagði Steve
Fleet, hinn breski þjálfari ÍBV.
„Annað liðið hlaut að sigra, mörkin
ráða úrslitum. Leikurinn var mjög
sérstakur fyrir mig, ég hef áður þjálf-
að ÍA og þekkti því leikmenn beggja
liða mjög vel.“
- Nú er staða ykkar í deildinni erf-
ið vegna frestana undanfarið.
Hvernig leggst baráttan þar í þig?
„Ef mínir menn leika eins vel þar
og í dag, hafa jafngaman af leikjun-
um og berjast af sama krafti, þá kvíði
ég engu um framhaldið.“
- VS
Sigur liðsheildar
Bikarmeistarar ÍA fagna sigri í leikslok. Frá vinstri: Sigurður Lárusson, fyrirliði, falinn, Sigurður Jónsson, Jón Askelsson, Júlíus Ingólfsson og, loks, hetjan
Bjarni Sigurðsson, Guðjón Þórðarson, Hörður Jóhannesson, Sigurður Hall- Sveinbjörn Hákonarson. Til hamingju, Skagamenn. Mynd: -eik
dórsson, Guðbjörn Tryggvason, Árni Sveinsson, Sigþór Ómarsson, að mestu
Akurncsingar virðast loks endanlega
vera búnir að kveða niður
bikardrauginni sem hefur fylgt þeim í
gegnum árin. Átta fyrstu úrslitaleikir
IA í bikarkeppni KSÍ enduðu með
tapi, múrinn var loks rofinn árið
1978, og á sunnudaginn tryggðu
Skagamenn sér bikarinn í þriðja
skipti, annað árið í röð, með því að
leggja Eyjamenn að velli í
stórskemmtilegum úrslitaleik á
Laugardalsvellinum, 2-1, eftir
framlengingu. Það þrátt fyrir að
fyrirliða þeirra, Sigurði Lárussyni,
væri vikið af leikvelli þegar sex
mínútur voru eftir af venjulegum
leiktíma.
Eyjamenn voru greinilega af-
slappaðri í byrjun, þeir áttu frum-
kvæðið fyrstu mínúturnar en síðan
jafnaðist leikurinn. Skagamenn
fengu dauðafæri strax á 11. mínútu,
Árni Sveinsson skaut, boltinn fór
þvert fyrir Eyjamarkið, framhjá
Sigþóri Óinarssyni sem var aleinn
inn við marklínu, og úr hættu hinum
megin. Fimm mínútum síðar þrum-
aði Tómas Pálsson rétt framhjá
marki ÍA eftir laglega sendingu
Sveins Sveinssonar.
Blautur völlurinn setti fljótlega
mark sitt á leikinn, menn réðu ekki
fullkomlega við sjálfa sig og boltann
og nokkuð var um aukaspyrnur fyrir
brot af þessum sökum. Annars náðu
bæði liðin góðu valdi á samleik, eink-
um var gaman að sjá hvernig Eyja-
menn léku hárnákvæmt saman upp
völlinn frá eigin vítateig. Engar lang-
spyrnur, alltaf reynt að byggja upp
spil útfrá vörninni.
Nú fóru marktækifærin að koma.
Hlynur Stefánsson komst í dauða-
færi við mark ÍA, skaut af 10 m færi
en Bjarni Sigurðsson varði glæsilega.
Hinum megin skaut Hörður Jóhann-
esson aðþrengdur framhjá og síðan
var Hlynur aftur á ferðinni, náði að
skalla einn fyrir innan vörn ÍA en
Skagamenn bikarmeistarar í knattspyrnu 1983:
skapaði mikinn usla í vörn ÍBV.
Jafnræði var nokkurt með liðunum í
fyrri hluta framlengingarinnar en í
þeim síðari voru yfirburðir tíu
Skagamanna algerir. Fimm mínút-
um fyrir leikslok fór Júlíus illa með
vörn ÍBV, sendi á Guðjón Þórðar-
son bakvörð sem allt í einu var frír í
vítateignum og skaut í stöng.
Loks, þremur nu'nútum síðar,
kom úrslitamark bikarkcppni KSI
1983. Júlíus skaut, Valþór skallaði
frá, Sveinbjörn tók boltann viðstöðu-
laust á lofti á vítateigslínu og lyfti
honum laust á lofti á vítatcigslínu og
lyfti honum laust en hárnákvæmt í
hornið fjær, út við stöng, 2-2. Frá-
bær leikur á enda, bikarinn á Akr-
anes.
Þetta var sigur liðsheildarinnar hjá
ÍA. Allir stóðu fyrir sínu, frá aftasta
manni til hins fremsta. Bjarni örugg-
ur í markinu, aftasta vörnin traust,
með Sigurð Halldórsson sem besta
mann. Á miðjunni sýndu Árni, Sig-
urður Jónsson og Sveinbjörn
skemmtilega takta, einkuni
Sveinbjörn sem skapaði hættu hvað
eftir annað. Sigþór stöðugt á ferðinni
frammi, Hörður átti ágæta spretti.
Heilsteyptasta íslenska liðið í dag er
ÍA, á því er enginn vafi.
Eyjamenn geta borið höfuðið hátt
þrátt fyrir tapið. Þeir léku vel, lengst
af, og sigurinn hefði hæglega getað
orðið þeirra, ekki síst ef Tómas hefði
nýtt sitt dauðafæri. Aðalsteinn átti
góðan dag í markinu og aftasta vörn-
in var sterkasti hluti Eyjaliðsins.
Miðjumennirnir eru liprir en skortir
hugmyndaflug. Hlynur var bestur,
fór oft illa með vörn ÍA og sýndi
skemmtilega takta.Ómar var einnig
góður, alltaf hætta þegar hann er ná-
lægt vítateig andstæðinganna. Evr-
ópukeppni bikarhafa blasir við ÍBV
þrátt fyrir tapið.
Grétar Norðfjörð dærndi og gerði
það virkilega vel.
- VS
boltinn straukst við stöngina utan-
verða. Hörður komst strax á eftir í
dauðafæri á markteig ÍBV, náði að
leika á Aðalstein Jóhannsson mark-
vörð en varnarmenn hreinsuðu á síð-
ustu stundu.
Og þá kom fyrsta markið, á 38.
mínútu. Vel útfærð hornspyrna
Eyjamanna, Ómar Jóhannsson
renndi inní vítateiginn á Hlyn, hann
braust skcmmtilega að endamörkum
og gaf inná markteig þar sem Valþór
Sigþórsson átti ekki í erfiðleikum
með að skora, 1-0 fyrir ÍBV.
Skagamenn mættu ákveðnir til
síðari hálfleiks og náðu strax tökum
á miðjunni. Eyjamenn vörðust á
eigin vallarhelmingi og skildu aðeins
Ómar og Tómas eftir frammi. Það
mátti þó aldrei af þim líta. Sóknartil-
raunir f A voru ágætar margar hverj-
ar, engin þó betri en sú á 59. mínútu.
Þá sendi Guðjón Þórðarson fyrir
mark ÍBV, Sigþór skallaði glæsilega
en Aðalsteinn kastaði sér og varði
með tilþrifum.
71. mínúta: Árni Sveinsson tekur
hornspyrnu, Hörður Jóhanncsson,
sá minnsti í vítateignum, skallar af
miklu harðfylgi, beint í mark ÍBV,
1-1.
Eyjamenn áttu hættulegar sóknir
eftir þetta og á 83. mínútu sneru Óm-
ar og Tómas illilega á rangstöðu-
leikaðferð ÍA. Tómas komst einn
inn að markinu en lék sig í þröngt
færi í stað þess að skjóta strax og
renndi boltanum í hliðarnetið utan-
vert. Mínútu síðar var Siggi Lár rek-
inn af leikvelli fyrir gróft brot, hár-
rétt hjá Grétari Norðfjörð dómara
sem áður hafði gefið honum gula
spjaldið og einn „séns“ að auki.
Skagamenn skynjuðu að framleng-
ing gæti orðið þeim hættuleg, þeir
sóttu látlaust til loka venjulegs
leiktíma, án árangurs.
í framlengingu hélt maður að
Eyjamenn gætu nýtt sér liðsmuninn
en á aðra leið fór. Grimmir Skaga-
menn áttu hana nánast með húð og
hári, Eyjamenn orðnir þreyttir og
furðulegt að þeir skyldu ekki senda
inná óþreytta varamenn. Það gerði
ÍA, Júlíus Ingólfsson kom inná og
Hörður hefur jafnað, Guðjón og Sigþór mættir til að fagna. Mynd: - eik
Siglfirðingar töpuðu í
rokinu á Vopnafirði
Siglfirðingar eru áfram í fall-
hættu í 2. dcildinni í knattspyrnu
eftir 2-1 tap á Vopnafirði fyrir Ein-
herja á föstudagskvöldið. Leikur-
inn var lciðinlegur á að horfa, rok
og rigning gerðu leikmönnum
beggja liða erfitt fyrir og lítið var
um skemmtileg tilþrif.
Einherjar byrjuðu betur en síð-
an jafnaðist leikurinn og liðin
skiptust á um að sækja. Seint í síð-
ari hálfleik tók Gústaf Baldvins-
son, þjálfari Einherja, auka-
spyrnu, þrumaði í þverslá og niður
á marklínuna (yfir hana sögðu
sumirjþarsemBaldurKjartansson Flestir leikmanna liðanna voru
sendi boltann í netið, 1-0. áþekkir og léku undir getu en yfir-
Steindór Sveinsson, kanttengil- burðamaður á vellinum var Mark
iðurinn skotfasti, bætti öðru marki Duffield hjá KS. Geysisterkur
Vopnfirðinga við um miðjan síðari miðvörður með gífurlega yfirferð.
hálfleik, þrumuskot beint úr auka- Birkir Kristinsson markvörður
spyrnu utan af kanti, með jörðunni Einherja var öruggur, sem oftar,
í hornið nær, 2-0. KS fékk víta- og greip vel inní leikinn.
spymu 15 mínútum fyrir leikslok, -JS/Vopnafirði.
varnarmaður Einherja handlék
boltann í eigin vítateig, og úr henni ■■ ■
skoraði Björn Ingimarsson, 2-1. ■! a
Það sem eftir var sóttu Siglfirðing- MmM
ar linnulítiö en náöu ekki að jafna
og herja út dýrmætt stig. Njarðvík-FH..............o-o
Einherji-KS.............2-1
_ ,, ~ KA...........16 8 5 3 26-18 21
FH-mgar topuðu aezEEsílllsa
** * N|arðvik.....16 7 3 6 17-13 17
^J, rn Einherii......16 5 7 4 14-15 17
stigi i Njarovik
J Fylkir........16 3 4 9 13-22 10
en gekk illa að ráða við sterka vörn R8ynirS.16 1 7 8 8-24 9
heimamanna. Njarðvík var nálægt Markahæstir:
því að ná forystunni í fyrri hálfleik, HinrikÞórhallsson,KA.9
skot í þverslá utan af velli, Unnar Pálmi Jónsson, FH..9
Ragnarsson fylgdi vel á eftir en ^‘^rGís^sof^’............7
skallaði yfir. I síðari hálfleik var HalldórArason,FramHZ'.Z~r.r6
FH-sóknin þung, án afgerandi Jón Halldorsson, Njarðvík..6
færa. Jón Erling Ragnarsson og JónasHallgrlmsson, Völsungi.6
Pálmi Jónsson komust þó einir í .1
gegn en Palmi skaut 1 Olaf Birgis- Jón Erling Ragnarsson, FH.5
son markvörð. VS
FH tapaði dýrmætu stigi í topp-
baráttu 2. deildarinnar í knatt-
spyrnu er liðið gerði jafntefli, 0-0,
við Njarðvíkinga í Njarðvík á föst-
udagskvöldið. FH er því áfram
tveimur stigumá eftirFram en þessi
félög eiga eftir frestaðan leik. Hann
hefur verið færður aftur fyrir
mótið og gæti orðið hreinn úrslita-
leikur um 1. deildarsæti.
FH var betri aðilinn í Njarðvík
„Það er mikil upplifun
að fylgjast með fólkinu“
GI frá Götu í Færeyjum varð á
sunnudaginn færeyskur bikar-
meistari í knattspyrnu eftir 5-1
sigur á 2. deildarliðinu Royn. ís-
lendingar komu mjög við sögu í ,
þessum úrslitaleik, Kristján Hjart-
arson þjálfar GÍ, Lárus Grétarsson
og Páll Guðjónsson leika með
liðinu í og herbúðum Royn er ís-
lendingurinn Sveinbjörn Daní-
elsson.
Lárus skoraði eitt marka GÍ í
úrslitaleiknum en hann er nú marka-
hæstur í 1. deildinni, hefur skorað
sjo mörk í tíu leikjum. Baráttan
þar er hörð, KÍ frá Klakksvík hefur
14 stig, GÍ og HB frá Þórshöfn 13
stig hvort.
„Við stöndum vel að vígi, eigum
eftir að leika bæði við KI og HB á
heimavelli,“ sagði Kristján Hjart-
arson í samtali við Þjóðviljann í
gær. „Fjórum umferðum er ólokið
og allt getur gerst. Áhuginn hér í
Götu er ótrúlegur, þetta er um 700
manna bær og meðaltalsfjöldi á
leik er um 400 manns. Það er mikil
upplifun að fylgjast með hve fólkið
lifir sig inní knattspyrnuna hér,
ekki síst þeir sem eldri eru. Það
hefur gengið úr hófi fram, tveir
eldri menn hafa látist úr hjartaslagi
á knattspyrnuleikjum hérí sumar.“
Að sögn Kristjáns eru Götubúar
yfir sig hrifnir.af Lárusi Grétars-
syni, hann hefur leikið mjög vel í
sumar, grimmur og sterkur, og
varnarmenn annarra liða óttast
hann mjög.
-VS