Þjóðviljinn - 30.08.1983, Síða 4
12 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN ÞriSjudagur 30. ágúst 1983
íþróttir
Umsjón:
Víðir Sigurðsson
Enska knattspyrnan:
Sá nýi fór illa með
landsliðsbakvörðinn
37 mörk skoruð í 1. umferð 1. deildarinnar
Opinn sóknarleikur og gnægö marka einkenndi óvenju marga
leiki í 1. umferö 1. deildar ensku knattspyrnunnar á laugardaginn.
Alls voru skoruð 37 mörk í 11 leikjum 1. deildarinnar, sjaldan svo
mikið í einni umferö, og sjö liö náöu aö skora þrjú mörk eöa meira,
sem er enn fágætara.
Jeff Palmer, hinn leikreyndi
bakvörður Wolves, varð fyrstur til
að skora í 1. deild á
keppnistímabilinu. Nýliðarnir
fengu Englandsmeistara Liverpool
í heimsókn á Molyneaux og hefðu
vart getað byrjað betur. Eftir
aðeins 90 sekúndur var Wolves í
stórsókn. Dale Rudge skaut,
Bruce Grobbelaar markvörður Li-
verpool varði, boltinn barst til
Andy Gray en Liverpool-
bakvörðurinn Alan Kennedy felldi
hann. Vítaspyrna og Palmer
skoraði af öryggi, 1-0.
Liverpool var með undirtökin í
leiknum eftir þetta en komst lítt
áleiðis gegn sterkri vörn Úlfanna.
Staðan óbreytt í leikhléi en eftir
aðeins 30 sekúndur í þeim síðari
fékk Ian Rush sendingu í gegnum
miðja vörn Wolves, lék á John
Pender og jafnaði, 1-1. Liverpool
sótti stíft, fram að miöjum síðari
hálfleik. Þá kom Tony Towner, 27
ára gamall útherji, keyptur frá
Rotherham í sumar, inná fyrir Ru-
dge í sinn fyrsta 1. deildarleik.
Hann gjörbreytti gangi leiksins,
plataði landsliðsbakvörðinn Phil
Neal hjá Liverpool. hrikalega hvað
eftir annað og Neal fékk fljótlega
áminningu fyrir brot á Towner. Li-
verpool náði aftur tökum á
leiknum síðustu tíu mínúturnar,
Rush komst í gegnum flata vörnina
á 85. mínútu en skaut hárfínt fram-
hjá, í hliðarnetið.
Arnold Muhren var maður dags-
ins hjá Manchester United sem
fékk nýliða QPR í heimsókn. Hann
skoraði úr vítaspyrnu á 10. mínútu,
eftir að Mike Duxbury hafði verið
felldur, og Stapleton bætti öðru
marki við með skalla á 17. mínútu
1. deild:
Arsenal-LutonTown..............2-1
Aston Villa-W.B.A..............4-3
Everton-Stoke City.............1-0
Ipswich-Tottenham..............3-1
Leicester-Notts County.........0-4
Manch. United-Q.P.R............3-1
Nottm. Forest-Southampton......0-1
Sunderland-Norwich.............1-1
Watford-Coventry City..........2-3
West Ham-Birmingham.......... 4-0
Wolves-Liverpool...............1-1
2. deild:
Barnsley-Fulham................3-0
Blackburn-Huddersfleld.........2-2
Carlisle-Cambridge.............0-0
Charlton-Cardiff City..........2-0
Chelsea-OerbyCounty............5-0
Cr.Palace-Manch.City...........0-2
Grimsby Town-Shrewsbury........1-1
Leeds United-Newcastle.........0-1
Oldham-Brighton................1-0
Portsmouth-Middfesboro....... 0-1
Swansea-Sheff.Wednesday........0-1
3. deild:
Boiton-Wimbiedon................2-0
Bournemouth-Preston N.E........ 0-1
Brentford-Millwall City.........2-2
Exeter City-Walsail........... 0-1
Hull City-Burnley...............4-1
Newport-Bristol Rovers..........2-1
Orient-Bradford City............2-0
Oxford United-Lincoln...........3-0
Piymouth-Wigan Athletic.........0-0
Port Vale-Scunthorpe............0-0
Sheff.United-Gillingham.........4-0
Southend-Rotherham..............2-2
4. deild:
Aldershot-Hereford..............1-4
Blackpool-Reading...............1-0
Bristol City-Mansfield..........4-0
Chester-Northampton.............1-1
Chesterfield-Swindon............1-0
Darlington-Colchester...........0-2
Doncaster-Wrexham...............3-0
Halifax-Torquay.................2-2
Peterborough-Hartlepool.........3-1
Rochdaie-Crewe................ 1-0
Stockport-York City.............0-2
Tranmere Rovers-Bury............1-1
Arnold Muhren átti stóran þátt í
sigri Manchester United.
eftir undirbúning Duxbury og Ray
Wilkins. QPR náði yfirhendinni á
vellinum ísíðari hálfleik, Clive All-
en skoraði stórgott mark, 2-1, og
John Gregory var nálægt því að
jafna. Muhren tryggði síðan sigur
United, 3-1, með sínu öðru marki
skömmu fyrir leikslok. United var
ekki sannfærandi, utan fyrstu 17
mínúturnar, framlínan var slök og í
heild var sigurinn alltof stór.
Coventry kom mjög á óvart,
vann 3-2 í Watford, en liðinu er af
mörgum spáð hrakförum í vetur
vegna sölu margra leikmanna. Joe
Bolton gerði fyrst sjálfsmark og
Pat Rice annað af 30 m færi, staðan
0-2 og leikmenn Watford búnir að
gera bæði mörkin! John Barnes
minnkaði muninn í 1-2 en Terry
Gibson, nýkominn frá Tottenham,
kom Coventry í 1-3. Richard Job-
son minnkaði muninn í 2-3 en Wat-
ford mátti sætta sig við tap. Perry
Suckling, hinn 17 ára gamli mark-
vörður Coventry, sýndi oft snill-
dartilþrif í leiknum. „Við vinnum
deildina,“ söng hinn fámenni
stuðningsmannahópur Coventry
allan tímann.
Tony Cottee kom West Ham á
bragðið gegn Birmingham, skoraði
tvö fyrstu mörkin í 4-0 sigrinum.
Alvin Martin skoraði, 3-0, fyrir
leikhlé og Davið Swindlehurts
bætti fjórða markinu við í síðari
Stuttar fréttir úr neðri deildunum:
Markmaðurinn búinn að
liggja í 45 sekúndur...
Alan Knight, markvörður
Portsmouth, var búinn að liggja
slasaður í 45 sekúndur á vellinum
þegar Heini Otto skoraði sigur-
mark Middlesboro. Dómara-
hneyksli í þessum fyrsta leik ný-
liða Portsmouth í 2. deildinni,
aðeins 4 bókaðir í stað 14-15, og
leikurinn ein vitleysa út í gegn.
Ahorfendur voru 17,500.
...Crystal Palace byrjaði vel
gegn Manchester City, en á 21.
mínútu skoraði Andy May með
þrumuskoti fyrir City eftir undir-
búning Jim Tolmie og eftir það
lék City sér að Lundúnaliðinu.
Tolmie átti stórleik, keyptur í
sumar frá Morton í Skotlandi, og
hann lagði upp síðara markið sem
Derek Parlane skoraði.
...Nigel Spackman, keyptur frá
Bournemouth, skoraði í fyrri
hálfleiknum fyrir Chelsea gegn
Derby og í síðari hálfleik skoraði
Kerry Dixon tvö mörk, Clive
Walker og Chris
hvor, úrslitin 5-0.
... Mark Ward
Hutchins eitt
sa um sigur-
Keith Edwards sendi boltann fjór
um sinnum í netið.
mark Oldham gegn Brighton.
...Gamla kempan, Mick
Lyons, sem um árabil lék með
Everton, sá um sigurmark Sheffi-
eld Wednesday á Vetch Field
gegn Swansea.
...Chris Jones, fyrrum
leikmaður Tottenham, og Kevin
Smith skoruðu fyrir Charlton
gegn nýliðum Cardiff.
...Tveir nýir leikmenn hjá
Barnsley skoruðu í 3-0 sigrinum á
Fulham, David Wilks 2 og Stuart
Gray eitt.
... Keith Edwards hjá Sheffield
United byrjaði þó keppnistíma-
bilið betur en nokkur annar,
hann skoraði öll fjögur mörk Un-
ited gegn Gillingham í 3. deild.
... Exeter skartaði tveimur
fyrrum enskum landsliðs-
mönnum, Gerry Francis og Stan
Bowles, en tapaði þó 0-1 heima
gegn Walsall í 3. deildinni.
-VS
hálfleik. Um 230 stuðningsmanna
Birmingham sáu aldrei leikinn,
þeir voru handteknir áður fyrir að
leggja járnbrautarvagn í rúst.
Sjö mörk á Villa Park, Aston
Villa-WBA 4-3. Romeo Zonderv-
an skoraði fyrir WBA eftir 5 mínút-
ur en Allan Evans jafnaði. Mark
Walters kom Villa yfir, 2-1, en
Garry Thompson jafnaði á sömu
mínútu, 2-2. Gary Shaw næstur, 3-
2 fyrir Villa, en Cyrille Regis jafn-
aði fyrir hlé, 3-3. Miðvörðurinn
Brendan Ormsby skoraði síðan
sigurmark Villa í þessum frábæra
leik nágrannaliðanna.
Paul Mariner var maðurinn á
bak við sigur Ipswich á Tottenham,
3-1. Eric Gates lék í fyrsta skipti
með Ipswich síðan í janúar, tá-
brotnaði þá í innanhússmóti, og
skoraði tvívegis. Fyrst á 37. mín-
útu, síðan á annarri mínútu síðari
hálfleiks, kornst þá inní slæma
sendingu Graham Roberts til
markvarðarins, Ray Clemence.
Steve Archibald kveikti vonarn-
eista hjá Spurs með marki, 2-1, en
Mariner skoraði sjálfur þriðja
mark Ipswich, 3-1. Hann lagði upp
bæði mörkin fyrir Gates.
Trevor Christie kann vel við sig á
heimavelli Leicester, Filbert
Street. Þar lék hann um árabil og
skoraði grimmt en á laugardag
kom hann í heimsókn með Notts
County og skoraði þrívegis í 4-0
sigri á nýliðunum. Martin O’ Neill,
norður-írski landsliðsmaðurinn,
lék sinn fyrsta leik fyrir County og
skoraði fyrsta mark leiksins. Síðan
tók Christie við.
Danny Wallace, blökkumaður-
inn smávaxni hjá Southampton,
kann hins vegar vel við sig á City
Ground í Nottingham. Þar skoraði
hann glæsimark í fyrra eins og
Bjarni Fel. hefur svo oft sýnt okk-
ur, og á laugardaginn gerði hann
sigurmark Southampton þar gegn
Forest.
Colin West færði Sunderland
forystuna gegn Norwich en Keith
Bertschin jafnaði fyrir gestina.
Bæði mörk komu í síðari hálfleik.
Brian McDermott átti stórgóðan
leik og skoraði sigurmark Arsenal
gegn Luton, 2-1. Tony Woodcock
skoraði fyrst eftir fyrirgjöf Paul
Davis en Paul Walsh jafnaði fyrir
Luton, 1-1 í hálfleik. Bæði lið
fengu fullt af færum en sigurinn var
sanngjarn. Graham Rix skaut
tvisvar í stöngina á marki Luton.
Graeme Sharp tryggði Everton
þrjú stig gegn Stoke, skoraði eina
markið í slökum og lítt spennandi
leik á Goodison Park. -VS
Tony Cottee, táningurinn efnilegi
hjá West Ham, skoraði tvö fyrstu
mörkin gegn Birmingham.
Sagt
eftir
leikina:
Charlie Nicholas, marka-
maskínan unga frá Skotlandi,
sem lék sinn fyrsta deildaleik
fyrir Arsenal á laugardag, gegn
Luton:
„Ég stefni fyrst og fremst að
því að halda sæti mínu í liðinu.
Ég þarf 4-5 leiki til að komast í
samband við aðra leikmenn, ég
fékk fáar sendingar í þessum
leik, einvörðungu vegna þess að
hinir átta sig ekki á mér ennþá.
Skilningurinn okkar á milli
kemur fljótlega, ég kvíði engu.
Arsenal hefur undanfarið verið
stimplað sem leiðinlegt lið sem
leiki varnarknattspyrnu. Því
ætlum við að breyta og sýndum
það í dag.“
Um 40.000 manns mættu á
Highbury, slík aðsókn hefur
ekki verið þar í áraraðir, og
Nicholas fékk mikið lófatak í
leikslok. Hann er 21 árs, nýliði í
skoska landsliðinu, og skoraði
um 50 mörk fyrir Celtic á síð-
asta keppnistímabili.
Tony Barton, framkvæmda-
stjóri Aston Villa, eftir sjö
marka leikinn gegn WBA sem
Villa vann 4-3:
„Þetta var ótrúlegur leikur,
eins og úrslit í bikarkeppni.
Stigin þrjú skipta öllu máli, ég
hef engar áhyggjur af því þótt
lið mitt fái á sig þrjú mörk á
meðan það vinnur leikinn.
Bæði lið sýndu virkilega góða
knattspyrnu." Liðin voru
klöppuð af leikvelli í hálfleik,
staðan þá 3-3, og einnig í
leikslok.
John Hollins, fyrrum stjarna
hjá Chclsca, nú kominn aftur,
38 ára, sem leikmaður og þjálf-
ari, eftir 5-0 sigurinn á Derby:
„Við byrjuðum vel og liðið átti
skínandi leik allan tímann. Allir
stóðu sig vel en ég er mest
ánægður með Kerry Dixon.
Hann lék stórkostlega, var
ávallt hættulegur, og hefði get-
að skorað ineira en tvö mörk í
þessum fyrsta leik sínijm með
liðinu.“ Dixon var markakóng-
ur 3. deildar með Reading í
fyrra en Chelsea keypti hann
fyrir nokkrum dögum á 200
þúsund pund.
-VS