Þjóðviljinn - 06.09.1983, Page 1
^ vi'í/*'vi[cu4 /i* .VX^ “ * O.’V $
Þriðjudagur 6. september 1983 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 9
iþrottir
Umsjón: Víðir Sigurðsson
FH er
komið í
úrslit
FH leikur til úrslita um efsta sæt-
ið í Reykjanesmótinu í meistara-
flokki karla í handknattleik.
Keppni í A-riðli mótsins fór fram í
Hafnarfirði um helgina og vann FH
alla sína leiki.
Úrslit urðu þessi:
FH-Grótta..................23:19
Breiðablik-Keflavík........3ö:22
Grótta-Keflavík............30:16
FH-Breiðablik..............28:11
Breiðablik-Grótta..........20:17
FH-Keflavík................40:14
FH fékk því 6 stig, Breiðablik 4,
Grótta 2 en Keflavík ekkert. B-
riðillinn verður leikinn um næstu
helgi en í honum eru Haukar,
Stjarnan, Akranes og Reynir frá
Sandgerði. Sigurvegari þár mætir
FH í úrslitaleik mótsins þann 14.
september.
- VS
Sjö atvinnumenn
Sjö atvinnumenn leika með ís-
lenska landsliðinu í knattspyrnu
sem mætir Hollcndingum í Evrópu-
keppni landsliða í Groningen ann-
að kvöld. Tveir bættust í hópinn
um helgina þegar þeir fengu sig
lausa frá félögum sínum í Belgíu,
Arnór Guðjohnsen og Pétur Pét-
ursson. Tvísýnt er þó um hvort Pét-
ur geti leikið þar sem hann meiddist
í leik með Antwerpen í fyrradag.
Hinir atvinnumennirnir eru Atli
Eðvaldsson, Ásgeir Sigurvinsson,
Pétur Ormslev, Lárus Guðmunds-
son og Jóhannes Eðvaldsson, sem
nú leikur að nýju með landsliðinu
eftir fjögurra ára hlé.
Knattspyrnupunktar af meginlandinu:
Ajax enn á skotskóm
nú með 7 gegn Helmond
Hollensku meistararnir í knattspyrnu, Ajax, unnu stórsigur, 7:0 á
Helmond Sport í úrvalsdeildinni þarlendu á sunnudag. Feyenoord
sigraði Haarlem 1:0 úti og þessi gamalkunnufélög, Feyenoord og Ajax,
eru efst og jöfn með 9 stig hvort. PSV tapaði óvcent 1:2 heima gegn
Tilburg og féll niður í fimmta sœti.
Félögin þrjú sem hafa einokað verðlaunin í Portúgal undanfarin ár,
Porto, Sporting, og Benftca, unnu öll um helgina og eru efst í 1.
deildinni þar með 4 stig úr tveimur leikjum.
Magdeburg tapaði 2:0 fyrir Dynamo Dresden í austur-þýsku 1.
deildinni og missti þar með efsta sœtið l Itendur Locomotiv Leipzig.
Franska 1. deildarliðið gamalkunna, Metz, á I miklumfjárhagsvand-
rœðum og hœttir starfsemi sinni í vor ef lausn fœst ekki á þeim. Liðið
skuldar stjarnfrceðilega háar upphœðir og er að auki ncestneðst í
frönsku 1. deildini.
- VS
Þór með sjö í Vík
en Óðinn gaf báða
Síðosti leikurinn í C-riðli 4. deildar fór fram um helgina, Drangur og
Þór frá Þorlákshöfn léku áður frestaðan leik á Víkurvelli. Þósarar
sigruðu 7:0 eftir 2:0 í hálfleik. Stefán Garðarsson 2, Jón Hreiðarsson 2,
Armann Einarsson, Eiríkur Jónsson ogEllert Hreinsson skoruðu
mörkin. Þór hafnaði þar með í öðru sœti riðilsins, fjórum stigum á eftir
Víkverja.
í A-riðli áttu Óðinsmenn eftir að faru vestur á firði og leika gegn
Hrafna-Flóka og Stefni. Ekki tókst að hóa saman mannskap og Óðinn
gaf því báða leikina.
-VS
Hamburger og Gremio
eigast við í Tokyo
Ákveðið hefur veriðað hinn óopinberi úrslitaleikur um titilinn „besta
félagslið í heimi" fari fram í Tokyo í Japan eins og undanfarin ár og
hefur leikdagur verið ákveðinn 11. desember. Þar eigast við Evrópu-
meistararnir og Suður-Ameríkumeistararnir í knattspyrnu sem eru í
þetta skiptið Hamburger SV frá V-Þýskalandi og Gremio frá Brasiliu.
- VS
Aðrir í landsliðshópnum eru
markverðirnir Þorsteinn Bjarna-
son og Bjarni Sigurðsson, Viðar
Halldórsson, Ólafur Björnsson,
Ómar Rafnsson, Hafþór
Sveinjónsson, Sveinbjörn Hákon-
arson, Sigurður Halldórsson og
Gunnar Gíslason. Ásgeir Elíasson
var valinn í hópinn eftir sex ára
fjarveru en datt út þegar Arnór og
Pétur bættust við. Þá var Ragnar
Margeirsson í hópnum en hann var
færður yfir í 21 árs liðið sem mætir
Hollendingum í Venlo í kvöld.
Aðrir leikmenn sem fóru með 21
árs liðinu eru: Stefán Jóhannsson
og Stefán Arnarson, markverðir,
Stefán og Birgitta
unnu fjölþrautirnar
Stefán Þ. Stefánsson, ÍR, bar
sigur úr býtum í tugþrautinni á
bikarmóti FRÍ í fjölþrautum sem
fram fór á Valbjarnarvelli í
Laugardal um helgina. Stefán hlaut
alls 6368 stig. KR fékk þó bikarinn,
sigraði í sveitakeppni, en Stefán
hlaut einstaklingsverðlaunin.
Hjörtur Gíslason, KR, varð ann-
„Látið blómin tala“ segir ein-
hvers staðar. Ekki fer sögum
af því að þessi myndarlegi
blómvöndur hafi mælt
eitthvað spaklegt, en víst er
að hann var afhentur Skaga-
mönnum þegar þeir gengu af
velli eftir leikinn gegn ÍBV á
Akranesi á laugardaginn.
Með jafntefli þar tryggðu Ak-
urnesingar sér islands-
meistaratitilinn í knattspyrnu
og hér er Sigþór Ómarsson í
þann veginn að taka við
blómakörfu og bréfi í tilefni
árangursins. Tvöfalt hjá ÍA:
Islands- og bikarmeistarar.
Sagt er frá leiknum og öðrum
í 1. deiidinni í opnunni. —
|Mynd: - eik.
Guðjón Þórðarson og Stefán Hall-
dórsson sem eru eldri leikmenn en
leyfilegt er að nota tvo slíka, Krist-
ján Jónsson, Benedikt Guðmunds-
son, Jósteinn Einarsson, Erlingur
Kristjánsson, Sigurður Jónsson,
Aðalsteinn Aðalsteinsson, Sigur-
jón Kristjánsson, Valur Valsson,
Hlynur Stefánsson, Óli Þór Magn-
ússon, Sigurður Grétarsson og
Helgi Bentsson. Okkur tókst ekki í
gærkvöldi að ná sambandi við
Guðna Kjartansson sem stýrir
yngra liðinu og vitum því hvorki
hver datt út fyrir Ragnar, né hvern-
ig byrjunarliðið verður skipað í
kvöld.
- VS
ar með 6001 stig, Gunnar Sigurðs-
son, UMSS, þriðji með 5931 stig og
Halldór Matthíasson, KR, fjórði
með 4902 stig.
Birgitta Guðjónsdóttir, HSK,
sigraði í sjöþraut kvenna með 4243
stig en Linda B. Ólafsdóttir, FH,
varð önnur með 2788 stig.
- VS
Curran
til
Everton
Everton, sem leikur í 1. deild
ensku knattspyrnunnar, keypti í
gær útherjann Terry Curran frá
Sheffield United á 90.000 pund.
Curran, eða T. C. eins og hann er
kallaður, þykir með afbrigðum
leikinn útherji og hefur leikið með
mörgum félögum en aldrei tollað
lengi á sama stað. Hann leikur með
Everton gegn Ipswich á útivelli í
kvöld.
- VS
Ovett náði
heimsmetinu
Steve Ovett, hlauparinn kunni
frá Bretlandi, er aftur handhafi
heimsmetsins í 1500 m hlaupi
karla. Því tapaði hann fyrir stuttu
til Syndey Maree frá Bandaríkjun-
um eftir að hafa haldið því í þrjú ár,
en endurheimti það á sunnudaginn
á Ítalíu, hljóp þar á 3:30,77 mínút-
um. Met Maree var 3:31,24 mín-
útur.
Fimm voru
með 12 rétta
í annarri leikviku getrauna
komu fram fimm seðlar með 12
rétta leiki og var vinningur fyrir
hverja röð kr. 47.055 og 86 raðir
reyndist með 11 rétta og var vinn-
ingur fyrir hverja kr. 1172. Fyrir
tvo 36 raða kerfisseðla sem
reyndust vera með 12 rétta var
vinningurinn fyrir hvorn seðil kr.
54.087.
Snæfelli dæmd tvö stig í 3. deild:
Armann og Selfoss vilja
Skallagrím dæmdan niður!
Héraðsdómstóll HSH hefur dæmt Snæfell úr
Stykkishólmi sigur útúr viðureign sini við Skalla-
grím úr Borgarnesi í A-riðli 3. deildarinnar í knatt-
spyrnu. Það er fyrir sömu sakir og þrjú stig hafa
áður verið dæmt af Skallagrími, fyrir að nota
Garðar Jónsson, sem dómstóll KSÍ úrskurðaði ólög-
legan gegn ÍK og Grindavík fyrir stuttu.
Engin áfrýjun hafði borist í gær frá Skallagrími.
Verði lyktir málsins endanlega þessar; tekur Selfoss
sæti í 2. deild, ekki Skallagrímur. Armann hefur
einnig kært Garðar, en hætt var við að taka hana
fyrir hjá dómstóli KRR á föstudag. Þjóðviljinn hef-
ur herrnt, að það sé vegna þess að Ármenningar fara
framá að Skallagrímur verði dæmdur niður í 4.
deild. Sama sjónarmið er uppi hjá Selfyssingum,
talsmaður þeirra sagði í gær að þeir litu þannig á
málið að það ætti að dæma Borgnesinga niður, þeir
hefðu látið Garðar leika áfram, vitandi að hann
hefði þegar verið kærður. „Við ætlum að láta taka
þetta mál upp hjá dómstól ÍSÍ ef þörf krefur“, sagði
Selfyssingurinn Sveinn Sigurðsson.
- VS