Þjóðviljinn - 06.09.1983, Blaðsíða 3
10 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Þri8judagur 6. september 1983
i|>rottir Víðir Sigurðsson
Skagamenn tvöfaldir meistarar eftir j afntefli við ÍB V:
„Þessu hefurmaður
beðið eftir í 12 ár“
Mikil gleði ríkti í búnings-
klefa Akurnesinga að lokn-
um leik þeirra við Vestmann-
aeyinga á Akranesi á laugar-
daginn. íslandsmeistaratitil-
linn var í höfn og um leið
tvöfaldur sigur í deild og bik-
ar. Þrátt fyrir að Akurnesing-
ar hafi jafnan verið í fremstu
víglínu knattspyrnunnar hér
á landi, hefur þeim ekki tekist
að ná þessum árangri fyrr.
„Þessu hefur maður beðið
eftir í 12 ár,“ sagði bak-
vörðurinn sterki, Guðjón
Þórðarson.
pressu á Akurnesinga. Það var þó
IA sem fékk fyrsta færið, Hörður
kominn inná markteig, en Eyja-
menn björguðu í horn. Á sömu
mínútu fékk svo ÍB V svipað færi en
Ómar Jóhannsson skaut framhjá.
Eitt besta tækifæri Eyjamanna
kom á tíundu mínútu hálfleiksins.
Bjarni Sigurðsson fór í misheppn-
að úthlaup að endamörkum en
Björn H. Björnsson stöðvaði skot
Eyjamannsins á marklínu.
Éegar á leið, styrktust Skaga-
menn eins og oft í sumar og
sköpuðu sér nokkur tækifæri. Það
var þó ekki fyrr en fimm mínútum
fyrir leikslok að þeim tókst að ná
forystunni. Sveinbjörn Hákonar-
son tók hornspyrnu vinstra megin,
við nærstöng lyfti Guðbjörn
Tryggvason sér vel og sneiddi bolt-
ann með skalla í netið, 1:0.
Ekki voru liðnar nema fáeinar
mínútur þegar ÍBV jafnaði með
einstaklega fallegu marki. Auka-
spyrna tekin fljótt á miðjum vallar-
helmingi Skagamanna, stungið
upp hægri kant þar sem Hlynur
sendir út á vítateigslínu vinstra
megin, Ómar tekur boltann
viðstöðulaust og þrumar honum
uppundir þverslána, 1:1.
Akurnesingar hafa oft leikið bet-
ur, einkum voru miðjumennirnir
fjórir vel undir venjulegri getu.
Fyrir vikið fengu Sigþór Omarsson
og Hörður minni þjónustu í fram-
línunni en oft áður. Aftasta vörnin
lék hins vegar af öryggi með Sigurð
Halldórsson sem besta mann.
Björn H. Björnsson lék fyrir Si-
gurð Lárusson sem var í banni og
skilað sinni stöðu með ágætum.
Hjá ÍBV var Valþór Sigþórsson
traustur að vanda í vörninni og
Hlynur drjúgur á miðjunni. Ómar
og Tómas Pálsson voru með
daufara móti en mark Ómars
minnisstætt.
Þóroddur Hjaltalín dæmdi og
það reyndi lítið á hann í þessum
friðsæla leik.
- eng/Akranesi
Leikurinn sjálfur, hann endaði
1:1, var heldur friðsæll og náði
aldrei að hrífa áhorfendur með sér,
líkt og gerðist í bikarleik sömu liða
viku áður. Það var eins og það svifi
yfir vötnum að bæði lið gætu sæst á
jafntefli. Pó brá fyrir líflegum köfl-
um, enda á vellinum tvö af sterk-
ustu liðum 1. deildar.
Eyjamenn höfðu undirtökin í
spili í upphafi og pressuðu nokkuð
að marki Skagamanna. Þó vantaði
jafnan herslumuninn á að þeir
næðu að skapa sér góð marktæki-
færi og kom þar til oftar en ekki
örugg frammistaða Sigurðar Hall-
dórssonar í vörn ÍA.
Pegar leið á hálfleikinn náðu
Akurnesingar undirtökum og sóttu
stíft. Besta færi leiksins fengu þeir
á 30. mínútu. Sigurður Jónsson
stakk þá knettinum inná Hörð Jó-
hannesson sem skaut föstu skoti af
vinstra markteigshorni, Aðal-
steinn Jóhannsson markvörður
ÍBV kom vel út og náði að „blokk-
era“ skotið, af honum hrökk knött-
urinn fyrir opið markið þar sem
Árni Sveinsson var staddur á
miðjum markteig en skaut fram-
hjá. Mikið afrek! Skömmu síðar
skallaði Sigurður Jónsson framhjá
af markteig og yfir úr svipuðu færi á
lokamínútu hálfleiksins.
f síðari hálfleik voru Eyjamenn
sterkari aðilinn lengst af. Þeir byrj-
uðu svipað og í þeim fyrri með
Slæm staða ÍBÍ eftir tap gegn Val:
„Ekki allar glufur
lokaðar enn“
„Það eru ekki allar glufur lok-
aðar enn. Við eigum eftir leik í
Keflavík, og Valsmenn tvo erfiða,
gegn Víkingi og ÍBV, og með því að
sigra með tveggja marka mun í
Keflavík getum við haldið okkur
uppi. Það er engin uppgjöf í mann-
skapnum,“ sagði Pétur Geir Heljga-
son, knattspyrnuráðsmaður á Isa-
firði, eftir að ÍBÍ hafði tapað 1-3
fyrir Val í þýðingarmiklum fallbar-
áttuleik fyrir' vestan á laugar-
daginn.
„Ég er ekkert yfir mig bjartsýnn
þrátt fyrir þennan sigur," sagði Sig-
urður Dagsson, þjálfari Vals. „Við
eigum tvo erfiða ieiki eftir, gegn
góðum liðum, og verðum að taka
einn í einu og sjá hvernig málin
þróast. Það er allt í járnum ennþá.
Ég er að mörgu leyti ánægður með
Valsliðið í þessum leik, knatt-
spyrnulega séð fannst mér fyrri hálf-
leikurinn betri þótt við værum
undir, en mörkin komu í þeim síð-
ari og það eru að sjálfsögðu þau
sem telja,“ sagði Sigurður, hinn
kunni fyrrum landsliðsmark-
vörður.
ísfirðingar gátu ekki beðið um
betri byrjun, þeir skoruðu strax á
4. mínútu. Jón Oddsson var þar að
verki rrieð góðu skoti eftir auka-
spyrnu. Valsmenn voru ívið betri
aðilinn eftir þetta en fátt var um
marktækifæri. ísfirðingar voru
slappari en búast mátti við í svona
þýðingarmiklum leik, þeir höfðu
allt með sér, heimavöll og áhorf-
endur, en náðu aldrei upp góðri
baráttu.
Þeir voru síðan vart vaknaðir
eftir hlé þegar Guðmundur Þor-
björnsson jafnaði eftir sendingu frá
| Inga Birni Albertssyni. Þar með
! voru Valsmenn komnir í gang, ís-
firðingar áttu að vísu skalla í stöng
skömmu síðar, Guðmundur Jó-
( hannsson, en Valur var betri aðil-
inn og verðskuldaði sigur þótt
1 mörkin kæmu seint. Ingi Björn ein-
lék í gegnum ísafjarðarvörnina sex
mínútum fyrir leikslok og
skoraði,l-2, og Njáll Eiðsson
þrumaði í marknet ísfirðinga
þremur mínútum síðar, ísfirðingar
sigraðir og fjallið blasir við.
Valsmenn léku vel, börðust bet-
ur, voru fljótari á boltann og lögðu
sig alla fram. Þar skildi á milli
liðanna, heimamenn náðu aldrei
að standa þeim jafnfætis í þessum
efnum. Ingi Björn var bestur Vals-
manna og Ámundi Sigmundsson
frískastur hjá ísfirðingum.
-P/VS
íslandsmótið í knattspyrnu - 2. deild:
Sigurvissa felldi FH
Staða KA mjög góð eftir sigur á Einherja
KA frá Akureyri hefur svo gott
sem tryggt sér sæti í 1. deildinni í
knattspyrnu á ný eftir 3:2 sigur á
Einherja frá Vopnafirði á Akureyri
á föstudagskvöldið. KA mátti hafa
fyrir sigrinum eftir að hafa komist í
2:0.
Leikurinn var ágætlega leikinn
af beggja hálfu og nokkuð
skemmtilegur á að horfa. KA var
komið í 2:0 eftir aðeins fimm mín-
útur og allt stefndi í stórsigur.
Gunnar Gíslason skoraði fyrst og
Ormarr Örlygsson strax á eftir.
Einherjar komist meira inn í
leikinn eftir þetta en náðu ekki að
komast á blað í fyrri hálfleik. Gísli
Davíðsson átti þó möguleika á því,
slapp innfyrir KA-vörnina en skaut
framhjá.
Fljótlega í síðari hálfleik bætti
Gísli fyrir það og skoraði, 2:1.
Varnarmaðurinn Jón Gíslason
náði síðan að jafna, 2:2. KA náði
betri tökum á leiknum síðari hluta
síðari hálfleiks og nítján mínútum
fyrir leikslok skoraði Jóhann Jak-
obsson sigurmarkið með góðu
skoti.
K&H/Akureyri
Siglfirðingar sloppnir
KS frá Siglufirði tryggði sér á-
framhaldandi sæti í 2. deild með
sigri á Húsavík gegn heillum horf-
num Völsungum, 1:0. Leikurinn
var harður, baráttan í fyrirrúmi, og
sigurinn gat lent hvoru megin sem
var.
KS fékk gullið tækifæri til að
taka forystuna í fyrri hálfleik þegar
hinn annars öruggi Björn Ingi-
marsson skaut framhjá úr víta-
spyrnu. Hann fékk dauðafæri strax
á eftir en klúðraði því líka. í
leikhléi fréttu Siglfirðingar að
Fylkir væri að vinna í Garðinum og
mögnuðust við það. Tíu mínútum
fyrir leikslok kom svo markið
mikilvæga, Hafþór Kolbeinsson
sólaði sig í gegnum vörn Völsungs
og skoraði laglega.
Heppnir Víðismenn
Fylkir varð að vinna sigur á Víði í
Garðinum til að eiga möguleika á
að halda sér uppi og Árbæjarliðið
hefði fyllilega verðskuldað bæði
stigin. Þeir Fylkismenn voru á-
kveðnari mest allan tímann en góð-
ur kafli heimaliðsins undir lokin
tryggði því sigur, 2:1.
Eftir fimmtán mínútna leik náðu
eitilharðir Fylkismenn forystunni,
Guðmundur Baldursson, skoraði.
Víðismenn björguðu síðan tvisvar
á línu en fengu þó sín færi, Daníel
og Grétar Einarssynir gátu báðir
jafnað. Loks fimmtán mínútum
fyrir leiksloklcom jöfnunarmarkið,
Guðmundur Jens Knútsson var þar
að verki. Fimm mínútum fyrir
leikslok brá svo bakvörðurinn
leikreyndi, Sigurður Magnússon,
sér í sóknina, skallaði í netið og
tryggði Víði sigur með sínu fyrsta
marki á íslandsmóti. Fylkir fallinn í
3. deild.
„Sigurvissan
okkur að falli“
„Vonin er orðin veik,“ sagði
Leifur Helgason, annar þjálfara
FH, eftir jafnteflisleik, 1:1, við
botnliðið, Reyni úr Sandgerði.
„Við verðum að treysta á að KA og
Fram tapi í lokaumferðinni. Sig-
urvissan varð mínum mönnum að
falli í þessum leik, Reynismenn
mættu fallnir og án spennu og náðu
ágætum leik. Eg var hræddur við
þennan leik fyrirfram. Við höfum
verið undir pressu í allt sumar eftir
slæma byrjun, alltaf verið með
storminn í fangið, en ég hef ekki
gefið upp alla von enn.“ Jón Erling
Ragnarsson skoraði fyrir FH í fyrri
hálfleik en hin leikreynda kempa,
Júlíus Jónsson jafnaði þegar
skammt var til leiksloka.
_____________________________Þriðjudagur 6. september 1983 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 11
i|>róttir Viðir Sigurðsson
Guðbjörn Tryggvason hefur skallað og horfir á eftir boltanum í netið, framhjá hjálparlausum markverði IBV, Aðalsteini Jóhannssyni. Þetta
mark tryggði Skagamönnum endanlega íslandsmeistaratitilinn, skipti ekki máli þótt IBV jafnaði rétt á eftir. Hinn mikli áhorfendafjöldi sést vel í
baksýn. - Mynd: - eik.
Jóhannes þrumaði
stigi til M’well!
Jóhannes Eðvaldsson, fyrrum fyrirliði ís-
Icnska landsliðsins í knattspyrnu, sem
leikur með því að nýju gegn Hollendingum
annað kvöld, kom liði sínu, Motherwell, til
bjargar á laugardaginn gegn St.Miren í
skosku úrvalsdeildinni. Aðeins þremur
mínútum fyrir leiksiok skoraði hann jöfn-
unarmark Motherwell með miklu þrumu-
skoti. Jafntefli, 1-1, sem baráttuglaðir leik-
menn Motherwell áttu svo sannarlega
skilið.
Celtic vann mikinn heppnissigur á Ran-
gers, 2-1. Ally McCoist, sem Rangers
keypti frá Sunderland, skoraði á 7. mínútu
en Aitken jafnaði. Frank McGarvey
skoraði sigurmark Celtic þremur mínútum
fyrir leikslok.
Aberdeen burstaði St.Johnstone 5-0. Er-
ic Black 2, Willie Miller, Mark McGhee og
Billy Stark skoruðu mörkin. Meistarar
Dundee United sigruðu Dundee á heima-
velli þeirra síðarnefndu, 4-1. McCall
skoraði fyrir Dundee eftir 6 mínútur en
John Reilly 2, Ralph Milne og Derek Stark
svöruðu fyrir United. Þá vann Hearts Hi-
bernian 3-2 í leik Edinborgarliðanna. John
! Robertson 2 og Jimmy Bone skoruðu fyrir
nýliða Hearts sem hafa 4 stig úr tveimur
leikjum eins og Aberdeen, Celtic og Dund-
ee United.
-VS
Stuttgart á toppn-
um í V. Þýskalandi
Svíinn Dan Corneliusson skoraði þrjú
mörk þegar Stuttgart vann Bochum 4-2 í
vestur-þýsku „Bundesligunni“ í knatt-
spyrnu. Ásgeir Sigurvinsson lagði upp tvö
marka Stuttgart.
Dusseldorf tapaði 3-0 í Frankfurt sem þar
með hefndi fyrir ófarirnar frá því í vor þegar
Atli Eðvaldsson sökkti Frankfurt með því
að skora fimm mörk fyrir Dusseldorf.
Hamburger vann Bielefeld 2-0 og Bayern
og Bremen gerðu jafntefli, 0-0. Stuttgart og
Bayern eru efst með 8 stig, Hamburger og
Uerdingen, sem tapaði í Dortmund 2-1,
hafa 7 stig hvort. Dússeldorf er síðan í
fimmta sæti með 6 stig.
í Belgíu vann Anderlecht sigur á Kor-
trijk, 1-0. Waterschei sigraði Beringen 3-1,
en Antwerpen tapaði 1-0 í Lokeren. Eng-
inn íslendinganna skoraði en Pétur Péturs-
son meiddist í Lokeren og varð að yfirgefa
völlinn.
Laval, lið Karls Þórðarsonar í Frakk-
landi, vann Lille 3-1 og er í hópi efstu liða
með 9 stig úr 7 leikjum. Teitur Þórðarson
skoraði fyrir sitt nýja lið í 2. deildinni,
Cannes, sem vann Grenoble 5-1.
-VS
1. deild
Úrslit í 1. deildinni í knatt-.
spyrnu um helgina og staðan fyrir
lokaumferðina:
Víkingur-Þór Ak................. 0-0
Breiðablik-Þróttur.............. 2-3
Ísafjörður-Valur..................1-3
Akranes-Vestmannaeyjar............1-1
Akranes..........17 10 3 4 29-11 23
KR...............17 5 9 3 18-19 19
ÞórAk............17 5 7 5 19-17 17
Víkingur.........17 4 9 4 19-18 17
Þróttur.....V....17 6 5 6 24-31 17
Breiðablik.......16 5 6 5 19-16 16
Vestm.eyjar......15 5 5 5 25-20 15
Keflavík.........17 7 1 9 21-27 15
Valur............16 5 4 7 24-30 14
Isafjörður.......17 2 9 6 16-25 13
Markahæstir:
Ingi Blörn Albertss., Val........11
SigurðurGrétarsson, Breiðabl.....11
Heimir Karlsson, Vfkingi.......... 8
Hlynur Stefánsson, Vestm.......... 7
Kristinn Kristjánsson, Isaf....... 7
Páll Ólafsson, Þrótti............ 7
Slgþór Ómarsson, Akranesi........ 7
2. deild
Úrslit leikja t 2. deildinni í
knattspyrnu um helgina og stáð-
an að þeim loknum:
KA-Einherji.......................3:2
Vlðlr-Fylklr.....................2:1
Völsungur-KS.....................0:1
FH-Reynlr S......................1:1
KA................17 9 5 3 29:20 23
Fram..............16 8 6 2 28:17 22
Viðir.............17 7 6 4 14:11 20
FH................16 6 7 3 26:18 19
Njarðvík..........17 7 3 7 17:16 17
Einherjl..........17 5 7 5 16:18 17
Völsungur.........17 6 3 8 16:17 15
KS................17 4 7 6 15:18 15
Fylklr............17 3 4 10 14:24 10
Reynlr S.......17 1 8 8 9:25 10
Markahæstir:
Guðmundur Torfason, Fram.........9
Hinrik Þórhatlsson, KA...........9
Pálmi Jónsson, FH................9
Gunnar Gíslason, KA..............8
Halldór Arason, Fram.............6
Jón Halldórsson, Njarðvik...... 6
Jón Erling Ragnarsson, FH........6
Jónas Hallgrímsson, Völsungi.....6
Björn Ingimarsson, KS............5
Hafþór Kolbeinsson, KS...........5
Haukur Jóhannsson, Njarðvík......5
Fjörug byrjun
en síðan dauft
4. deild:
Sex
mörk
Leifturs
eftir hlé
Stjarnan og Víkverji, efstu lið
A-riðilsins í úrslitakeppni 4.
deildar í knattspyrnu, skildu
jöfn, 1-1, í þýðingarmiklum leik
í Garðabænum á laugardaginn.
Víkverjar urðu fyrri til að
skora, Svavar Hilmarsson var
þar að verki, en Stjarnan jafn-
aði skömmu fyrir lcikslok. Þar
með eiga Haukar enn mögu-
leika.
Staðan í A-riðli:
Stjarnan..............3 1 2 0 6-4 4
Vikverji..............3 1 2 0 6-5 4
Haukar................2 0 0 2 3-6 0
Víkverji og Haukar mætast
annað kvöld og loks Haukar-
Stjarnan á laugardaginn.
Leiftur vann yfirburðasigur á
Hvöt frá Blönduósi, 7-0, á
Ólafsfirði. Dýrmæt mörk í bar-
áttunni við Leikni en staðan í
hálfleik var 1-0. Róbert Gunn-
arsson 2, Halldór Guðmunds-
son 2, Hafsteinn Jakobsson,
Friðgeir Sigurðsson og Stefán
Jakobsson skoruðu mörkin.
Staðan í B-riðli:
Leiftur.............3 3 0 0 10- 0 6
Leiknir..............2 10 1 6-12
Hvöt.................3 0 0 3 0-15 0
Hvöt og Leiknir leika annað
kvöld og Leiknir-Leiftur á
laugardag.
-VS
Fjörug byrjun í leik Víkings og
Þórs frá Akureyri í 1. deildinni í
knattspyrnu á Laugardalsvellinum
á laugardag lofaði góðu fyrir fram-
haldið. Hvert marktækifærið rak
annað á upphafsmínútunum, opinn
sóknarleikur í fyrirrúmi hjá báð-
um. En síðan dró af báðum, langir
kafiar voru daufír og lítt spennandi
og niðurstaðan varð markalaust
jafntefli.
Strax á fyrstu mínútu fékk Helgi
Bentsson boltann á galopnu færi í
vítateig eftir að Halldór Áskelsson
hafði brunað upp vinstri kantinn en
Helgi hitti ekki boltann. Víkingar
geystust upp og Heimir Karlsson
þrumaði á Þórsmarkið en Þor-
steinn Ólafsson markvörður náði
að slá boltann í horn. Þórssókn,
Bjarni Sveinbjörnsson með gott
skot af 25 m færi sem Ögmundur
Kristinsson markvörður Víkings
ver niðri í horninu.
Þarna dofnaði yfir leiknum en þó
sýndu bæði lið ágætan samleik úti á
vellinum og alltaf var reynt að
byggja upp spil útfrá vörnunum.
Miícið jafnræði út fyrri hálfleikinn.
Ómar Torfason komst í gott tæki-
færi í vítateig Þórs en Þorsteinn
varði. Hinum megin fékk Þór tvö
góð færi á sömu mínútu, fyrst lagði
Jónas Róbertsson boltann fyrir
Óskar Gunnarsson sem skaut í
hliðarnetið utanvert og síðan gaf
Nói Björnsson mjög óeigingjarnt á
Guðjón Guðmundsson sem þrum-
aði beint í fætur Ögmundar.
Þór náði betri tökum á leiknum
eftir hlé og átti nánast fyrri hlut-
ann. Helgi, Þórarinn Jóhannsson,
Nói og Bjarni áttu allir ágætar til-
raunir og á 63. mínútu kom opn-
asta færi leiksins. Óskarskaut, Ög-
mundur varði, boltinn hrökk til
Guðjóns sem var dauðafrír á mark-
teig en Ögmundur var snöggur og
tókst á ótrúlegan hátt að komast
fyrir skotið og koma boltanum aft-
ur fyrir.
Síðari hluta háifleiksins voru svo
Víkingar ákveðnari. Þrjú ágæt
færi, Ömar skaut í varnarmann og
framhjá, hörkuskot sem Þorsteinn
hefði átt í erfiðleikum með, Heimir
slapp upp að markinu en Þorsteinn
varði frá honum úr þröngri stöðu
og loks var Andri Marteinsson vel
staðsettur eftir aukaspyrnu en
skaut framhjá Þórsmarkinu.
Þokkalegur leikur að mörgu
leyti en mörkin vantaði tilfinnan-
lega til að krydda hann. Mar-
kverðirnir, Ögmundur og Þorstinn
voru bestu menn vallarins, vörðu
Þróttarar björguðu sér nánast
örugglega frá falli í 2. deildina í
knattspyrnu er þeir sigruðu
Breiðablik 3:2 í fjörugum og
skemmtilegum leik á Kópavogsvelli
á fostudagskvöldið.
Nýliðinn Pétur Arnórsson kom
Þrótti yfir og skoraði sitt fyrsta 1.
deildarmark af stuttu færi. Aðeins
mínútu síðar var dæmd vítaspyrna
á Breiðablik, hendi innan teigs, og
úr henni skoraði Páll Ólafsson, 0:2.
Fimm mínútum síðar gerði Sig-
urður Grétarsson eitt fallegasta
mark sumarsins, óverjandi hörk-
uskot utan vítateigs í bláhornið,
1:2. Sjö mínútum síðar jafnaði
báðir að stakri prýði go sýndu mik-
ið öryggi allan tímann. Utispilarar
beggja voru jafnir, miðverðirnir
Stefán Halldórsson og Ólafur
Ólafsson hjá Víkingi afar traustir
og Heimir kraftmikill frammi að
vanda.
Varnarmennirnir Árni Stefáns-
son og Jónas Róbertsson stóðu sig
einna best hjá Þór en Bjarni, Hall-
dór, Helgi og Óskar komust vel frá
leiknum og flestir hinna reyndar
líka.
Kjartan Ólafsson dæmdi og stóð
sig ágætlega.
-VS
hann úr vítaspyrnu eftir að Jóhann
Grétarsson hafði komist framhjá
sínum gamla vinnufélaga, Guð-
mundi Erlingssyni, markverði
Þróttar, en sá síðamefndi slæmt til
hans hendi þannig að Jói datt.
Guðmundur sýndi síðan góða
markvörslu, varði þrívegis stórvel
áður en Páll tryggði Þrótti sigur
með lúmsku en óverjandi skoti frá
vítateigshorni, 14 mínútum fyrir
leikslok.
Páll og Guðmundur markvörður
voru bestir Þróttara en Sigurður og
Jóhann Grétarssynir voru mest
áberandi hjá Breiðabliki, einkum
Sigurður.
- VS
Þróttarar sama
sem úr hættu
Erla Rafnsdóttir - sjö mörk og afbrennd víta-
spyrna að auki!
Erla skoraði
7 gegn Víði!
Islandsmeistaratign í kvennaknattspyrnu
fimmta árið í röð blasir við Breiðabliki eftir
10-0 sigur á Víði úr Garði í Kópavoginum á
sunnudaginn. Breiðabliki dugir jafntefli úr síð-
asta leiknum, gegn KR, til að titillinn sé í höfn.
KR þarf hins vegar að sigra Breiðablik og Val
og vinna í leiðinni upp fimm mörk á Blikana til
að komast í efsta sætið.
Erla Rafnsdóttir fékk að leika stöðu mið-
herja á sunnudaginn og nýtti sér tækifærið,
skoraði heil 7 mörk. Þau gátu orðið fleiri, hún
skaut framhjá úr vítaspyrnu og það gerði
Bryndís Einarsdóttir einnig. Ásta B. Gunn-
laugsdóttir skoraði 2 mörk og Sigríður
Tryggvadóttir eitt. Staðan í hálfleik var 3-0.
Staðan í 1. deild:
Breiðablik......................... 9 8 0 1 26-6 16
KR..................................8 5 2 1 19-4 12
Akranes.............................9 4 2 3 24-9 10
Valur...............................8 4 2 2 12-5 10
Víkingur............................9 2 0 7 5-15 4
Víðir...............................9 0 0 9 4-51 0
- MHM