Þjóðviljinn - 06.09.1983, Síða 4
•12 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN ' Þnðjudagur 6. Sep(témbefl983
■|>róttir
Umsjón:
Víðir Sigurðsson
Enska knattspyrnan:
1. deild:
Birmlngham-Watf ord........... 2-0
Coventry-Everton............. 1-1
Liverpool-Nott.Forest...........1-0
Luton-Sunderland...............4-1
Norwich-Wolves..................3-0
NottsCounty-lpswich.............0-2
Q.P.R.-Aston Villa.............2-1
Southampton-Arsenal.............1-0
Stoke City-Manch.United....... 0-1
Tottenham-West Ham..............0-2
W.B.A.-Leicester City...........1-0
úrslit....júrslit
2. deíld:
Brighton-Cheisea................1-2
Cambridge-Blackburn.............2-0
Carditf City-Grimsby...........3-1
Derby County-Swansea...........2-1
Fulham-Portsmouth.............. 0-2
Hudderstield-Charlton...........0-0
Manch.City-Barnsley.............3-2
Middlesborough-Leeds............2-2
Newcastle-Oldham.............. 3-0
Sheff.Wed.-Carllsle.............2-0
Shrewsbury-Cr.Palace...........1-1
3. deild:
Bradford C.-Bolton..............0-2
Bristol Rovers-Southend.........2-1
Bumley-Bournemouth..............5-1
Gillingham-HullCity.............1-2
Lfncoln-Sheffield United........0-2
Millwali-Plymouth...............1-0
Preston N.E.-Brentford..........3-3
Rotherham-Port Vale.............2-1
Scunthorpe-Exeter City........ 3-1
Walsali-Orient..................0-1
Wigan-Oxford....................0-2
Wimbledon-Newport...............6-0
4. deild:
Bury-Bristol City...............2-1
Colchester-Blackpool............2-1
Crewe-Chesterfield..............2-1
Hartlepooi-Aldershot.......... 0-1
Hereford-Halifax Town...........0-0
Mansfield-Doncaster.............1-2
Northampton-Darlington..........2-0
Reading-Stockport...............6-2
Swindon Town-Chester.......... 4-0
Torquay-Tranmere................1-1
Wrexham-Petersborough...........2-2
York City-Rochdale..............2-0
Nú eru vellirnir á Englandi grænir og sléttir og
slíkar aðstæður kunna leikmenn West Ham vel
við eins og fyrri daginn. Lundúnaliðið létt-
leikandi, sem oft gengur illa þegar vellirnir
versna, hefur byrjað 1. deildina betur öðrum
félögum, unnið fyrstu þrjá leikina og ekki feng-
ið á sig mark. A laugardagsótti West Ham
nágrannana öflugu, Tottenham, heim á White
Hart Lane og hafði með sér stigin þrjú, sigraði
2 - 0.
Tottenham var meira með boltann í
leiknum, Tony Galvin og Graham Roberts
bestu menn, en marktækifæri West Ham voru
fleiri og hættulegri. Nýi strákurinn, Steve
Whitton frá Coventry, skoraði sitt fyrsta mark
fyrir félagið á 10. mínútu, Alvin Martin skall-
aði til hans eftir hornspyrnu. Á markamín-
útunni, 43., fékk David Swindlehurst boltann
frá Tony Cottee og skoraði, 2-0. Tottenham
missti Glenn Hoddle útaf meiddan í síðafi hálf-
leik og átti sér ekki viðreisnar von eftir það.
Ekki bætti úr skák að Osvaldo Ardiles og Steve
Archibald gátu ekki leikið með vegna meiðsla.
Danny Wallace var maðurinn sem tortímdi
Arsenal, hann lék stærsta hlutverkið þegar
Southampton vann leik liðanna 1-0, Arsenal
átti fyrsta hálftímann, Graham Rix, Tony
Woodcock og Charlie Nicholas áttu allir
dauðafæri, en Wallace og félagar réðu öllu eftir
Ricky Hill og félagar í Luton hafa byrjað vel.
Luton slapp naumlega við fall í fyrra en hefur
nú unnið tvo þriggja marka sigra í röð. Hill
skoraði eitt markanna gegn Sunderland á
laugardag.
West Ham eitt
efst eftir
sigur á Spurs
það. Wallace lagði upp tvö dauðafæri sem
Frank Worthington sólundaði en á 72. mínútu
stakk Wallace Arsenalvörnina af og renndi
boltanum á Ian Baird sem gat ekki annað en
skorað sigurmarkið. Dave Armstrong var
síðan rétt búinn að bæta við öðru marki fyrir
Southampton þegar Kenny Sanson átti mis-
heppnaða sendingu til markvarðar.
Leikmenn Stoke fengu lófatak mikið þegar
flautað var til leikhlés í leiknum gegn Manc-
hester United. Þeir gerðu allt nema skora í
fyrri hálfleik og Gary Bailey markvörður Unit-
ed hélt liði sínu á floti. En allt breyttist á 10.
mínútu síðari hálfleiks. Þá skoraði Arnold
Muhren fyrir United eftir að Steve Fox mark-
vörður hafði varið hörkuskot Bryan Robson og
eftir það var aldrei spurning um úrslit. Robson
og Ray Wilkins náðu öllum tökum á miðjunni
og baráttuþrek Stoke var á enda.
Kenny Dalglish sá til þess að Liverpool vann
Nottingham Forest 1-0. Hann var allt í öllu á
miðjunni og sjö mínútum fyrir leikslok átti
hann snilldarsendingu á Ian Rush sem skoraði
sigurmarkið. Hans Van Breukelen mark-
vörður Forest átti stórleik, varði m.a. víta-
spyrnu Phil Neal. Alan Hansen, skoski
miðvörðurinn hjá Liverpool, setti mikinn
skrekk í áhorfendur á Ánfield þegar hann
sendi boltann í þverslána á eigin marki.
Notts County, með John Chiedozie frá Níg-
eríu sem besta mann, hafði yfirburði gegn Ips-
wich í fyrri hálfleik. í þeim síðari lokaði Ips-
wich fyrir sendingar á þann svarta og náði
góðum tökum á leiknum. Miðherji Notts, Just-
inn Fashanu, skallaði í eigið mark strax á ann-
arri mínútu síðari hálfleiks, vindurinn bar bolt-
ann af leið þannig að Fashanu misreiknaði
stefnu hans iliilega. Paul Mariner tryggði síðan
sigur Ipswich, 2-0, eftir slæm varnarmistök
heimaliðsins.
Luton Town er komið á fulla ferð, enginn
fallbragur nú. Ricky Hill og Paul Walsh
skoruðu snemma gegn Sunderland. Ian
Munro, varnarmaður gestanna, gerði sjálfs-
mark, 3-0, Colin West minnkaði muninn,
Chris Turner markvörður Sunderland varði
vítaspyrnu Brian Stein á glæsilegan hátt en
Stein hefndi sín með að skora síðasta markið í
leiknum, 4-1.
Simon Stainrod skoraði strax á 4. mínútu
fyrir QPR gegn Aston Villa í fyrsta 1. deildar-
leiknum sem leikinn er á gervigrasi. Peter
Withe, landsliðsmiðherji Villa, skallaði í eigið
Paul Mariner ætlar sér að vinna aftur lands-
liðsmiðherjasætið sem hann missti í fyrra og
hefur skorað í fyrstu þremur leikjunum fyrir
Ipswich.
mark, 2-0, en skoraði svo sjálfur réttu megin á
lokamínútunni, 2-1, komst inní sendingu Bob
Hazell, miðvarðar QPR, sem ætluð var mar-
kverðinum.
Tony Rees, ungur piltur hjá Birmingham,
sökkti Watford. Hann var besti maður vallar-
ins og lagði upp bæði mörk Birmingham með
snilldarsendingum, fyrst skoraði Bobby Hop-
kins, síðan Mark Halsall.
Mick Adams, sem Coventry keypti frá Gill-
ingham, skoraði gegn Everton en Kevin Shee-
dy jafnaði, 1-1.
John Deehan og Keith Bertschin skoruðu
strax í upphafi fyrir Norwich gegn Wolves og
Deehan bætti þriðja markinu við í síðari hálf-
leik.
Clive Whitehead, fyrirliði WBA, skoraði
sigurmarkið gegn nýliðum Leicester sem sitja á
botninum, án stiga og án marka. -VS
Sagt
eftir
leikina:
- John Lyall, frainkvæmdastjóri
toppliðsins, West Ham:
„Við lékum erfiða æfingaleiki áður
en 1. deildin hófst, spiluðum sex slíka
í röð án sigurs. Menn urðu ákveðnir í
að takast á við vandamálin og nú eru
allir vellandi af sjálfstrausti. Sigurinn
gegn Tottenham var sérstaklega
mikilvægur fyrir áhangendur okkar,
leikir gegn nágrannaliðum hafa alltaf
gífurlega þýðingu fyrir þá. Leikmenn
Tottenham sýndu gífurlegan baráttu-
vilja þrátt fyrir tapið og ég er viss um
að þeir komast á sigurbraut fljót-
lega.“
- Tony Barton, stjóri Villa, um
gervigrasið á Loftus Road, heimavelli
QPR:
„ÖII lið sem leika hér í fyrsta skipti
munu eiga í erfiðleikum. Völlurinn er
mjög harður og margir minna manna
voru afar varkárir. QPR verður erfitt
heim að sækja en þeir verða líka í
vandræðum á venjulegum grasvöllum
þegar þeir leika að heiman í vetur.“
- David Pleat, stjóri Luton, um af-
stöðu áhangenda liðsins til þess að fé-
lagið flytur búferlum til nágranna-
borgarinnar Milton Keynes þegar nýr
leikvangur þar verður tilbúinn:
„Þeir voru rólegri en ég bjóst við, ég
átti von á mótmælum í dag en þau
voru nánast engin. Þeir verða að
skilja að flutningurinn er nauðsyn-
legur og hann hefur engin áhrif á mig
eða leikmennina, við höldum okkar
striki.“
- Mike Bamber, stjórnarformaður
Brighton, eftir skrílslæti fylgifiska
Chelsea:
„Þessir menn eru hreint og beint
skelfilegir, ég hef aldrei orðið vitni að
annarri eins framkomu áhorfenda.
Það þarf að taka miklu harðar á svona
ólátaseggjum en gert er.“
- John Bond, stjórinn kunni, sem
nú stýrir Burnley í 3. deild, eftir 5-1
sigur á hans fyrsta félagi, Bournem-
outh:
„Heppnin var með okkur, við feng-
um gjafamark og dómarinn færði
okkur vítaspyrnu sem við áttum ekki
skilið. Þetta er allt að koma og undir
lokin hefðu mörkin getað orðið fleiri.
Það er enginn munur að ráði á að
stjórna liði í 3. og 1. deild, að vísu eru
leikmennirnir ekki eins góðir, en
þetta snýst allt um sömu hlutina og
það er virkilega gaman að starfa hér í
Burnley."
-VS
Stuttar fréttir
úr neðri deildum:
New-
castle
gefur
tóninn
Newcastle hefur gefið tóninn, liðið
ætlar sér ekkert annað en 1. deildar-
sæti. Um 23.000 manns sáu þá röndóttu
leika sannfærandi og vinna Oldham 3 -
0. Terry McDermott, Chris Waddle og
David Mills skoruðu mörkin.
....Jim Tolmie og Derek Parlane,
nýju Skotarnir hjá Manchester City,
sáu um mörkin gegn Barnsley. Tolmie
gerði tvö í 3-2 sigrinum.
....Mark Hatiey og Alan Biley, báðir
kunnir úr 1. deildinni, skoruðu fyrir ný-
liða Portsmouth í London gegn
Fulham.
....Frank Gray, vítaspyrna, og Ge-
orge McCluskey komu Leeds í 0-2 í
Middlesboro en Dave Currie jafnaði,
skoraði tvívegis fyrir Boro.
....Gordon Owen skoraði tvö mörk
Cardiff sem vann Grimsby 3-1.
....Billy Hamilton gerði þrjú skalla-
mörk þegar Burnley vann Bournemo-
uth 5-1 í 3. deild. Kevin Reeves og
Martin Dobson skoruðu hin.
.... Allan Cork var einnig með þrennu
þegar nýliðar Wimbledon sigruðu New-
port 6-0 í 3. deild.
....Roy McFarland, framkvæmda-
stjóri Derby, lék með lið sínu gegn
Swansea og það hreif. Bobby Davison
og Bobby Campell skoruðu fyrir
Derby.
....Kerry Dixon gerði bæði mörk
Chelsea í Brighton. Paul Canoville hjá
Chelsea var rekinn útaf í leiknum.
....Sheffield United, Hull, Oxford,
Bolton og Orient eru efst í 3. deild með
6 stig úr tveimur leikjum. Sama stiga-
fjölda í 4. deild hafa Doncaster, York
og Colchester.
-VS
Staðan:
1. deild: Wost Ham Ipswich ..3 3 0 0 7-0 9 ..3 2 1 0 7-3 7
lliverpool Southampton LutonTown ..3 2 1 0 3-1 7 .3 2 1 0 2-0 7 ..3 2 0 1 8-3 6
Notts County Manch. Unlted Aston Villa ..3 2 0 1 6-3 6 „3 2 0 1 5-3 6 .3 2 0 1 6-5 6 .3 2 0 1 4-3 8
Coventry Norwlch Everton Q.P.R .3 1 2 0 5-4 5 .31114-24 .31112-24 .3 1 1 1 3-4 4
StokeCity .3 1 0 2 3-3 3
Nottm.For -3 1 0 2 2-3 3
W.B.A. -3 1 0 2 5-7 3
Birmingham .3 1 0 2 3-6 3
Watford Sunderland .3 0 1 2 4-7 1 .3 0 1 2 2-6 1
Tottenham .3 0 1 2 2-6 1
Wolves .3 0 1 2 2-6 1
Leicester 3 n n 3 n.A n
Markahæstir: Trevor Christie, Notts Co 3 Eric Gates, Ipswich 3 Paul Mariner, Ipswich 3 Arnold Muhren, Man.Utd 3
2. deild: Sheff.Wod .3 2 1 0 4-1 7
Chelsea .2 2 0 0 7-1 R
Newcastle .3 2 0 1 4-1 6
Manch.City .3 2 0 1 6-4 6
Cardiff ' .3 2 0 1 5-4 fi
Shrewsbury Cambridge Charlton .3 1 2 0 3-2 5 .21102-04 .2110 2-0 4
Middlesboro .2 1 1 0 3-7 4
Leeds .3111 5.5 4
Blackburn .31113-44
Derby County Barnsley Portsmouth .31113-74 .21015-33 .2 1 0 1 2-1 3
Oldham Huddersfield Grlmsby Cr.Palace Carlisle .21011-33 .2 0 2 0 2-2 2 .20112-41 .20111-31 .3 0 1 2 0-3 1
Swansea .2 0 0 2 1-3 0
Brighton .3 0 0 3 3-6 0
Fulham .2 0 0 2 0-5 0