Þjóðviljinn - 13.09.1983, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 13.09.1983, Blaðsíða 1
Þriðjudagur 13. september 1983 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 9 » íþróttir —^Umsjón: Viöir Sigurðsson ■————— Þjálfari CariZeiss Jena tekinn tali á dansleik í Eyjum: ----------------------------------------------r Tómas, Hlynur og Omar hættulegir Eyjamenn mæta Austur-Þjóðverj- unum á Kópavogsvelli í kvöld H.J. Meyer, þjaífari austur- þýska liðsins Carl-Zeiss Jena, kom til Vestmannaeyja á laugardag. Hann fylgdist með IBV leika gegn KR en Eyjamenn mæta Jena í kvöld í UEFA-bikarnum í knatt- spyrnu. Leikurinn fer f ram á Kópavogsvelii og hefst ki. 18. Meyer brá sér á dansleik um kvöldið og þar náði undirritaður, með túlk sér við hlið, að króa hann af og ræða við hann um Eyjaliðið og leikinn í kvöld. „Mér fannst leikur ÍBV og KR ekki tilkomumikill", sagði Meyer, „en lið ÍBV verður greinilega ekki auðunnið. Það er erfitt að dæma um sterkleika þess eftir svona leik. Bestir þótti mér Tómas Pálsson, Hlynur Stefánsson og Ómar Jó- hannsson, þeir verða hættulegir". Meyer var hrifinn af grasvellin- um í Eyjum og sagðist alveg eins hafa viljað leika þar. Skrýtið fannst honum þó að sjá enga áhorfenda- palla en áhorfendur voru skemmti- lega með á nótunum í leiknum sagði hann. „Völlurinn hér er þröngur og við komum til með að nýta okkur breiddina á Kópavogs- vellinum.“ Meyer hefur verið í þrettán ár þjálfari hjá Carl Zeiss Jena en hann lék með liðinu þar til hann tók við stjórnuninni. „Þrettán er óhappa- tala og ég fer að hætta. Við töpuð- um 1-4 fyrir Locmotiv Leipzig um helgina og höfum aðeins eitt stig úr fyrstu fimm leikjunum," sagði hinn geðþekki Meyer og sötraði kókið sitt, áfenga drykki vildi hann ekki sjá. -JR/Eyjum. í> Ómar Jóhannsson gæti reynst Carl Zeiss Jena skeinuhættur í kvöld að mati austur-þýska þjálfarans. Sterkt lið Englands Jafntefli Í2. deild Fylkir og FH gerðu jafntefli, 1 - 1, í 2. deildinni í knattspyrnu í gær- kvöldi. Guðmundur Baldursson skoraði fyrst fyrir Fylki en Magnús Pálsson jafnaði fyrir FH. Staðan í 2. deild þegar einum leik er ólokið er þannig: KA 18 10 5 3 31-21 25 Fram 17 9 6 2 29-17 24 FH 17 6 8 3 27-19 21 Víðir 18 7 6 5 14-12 20 Völsungur 18 7 3 8 19-18 17 Njarðvík 18 7 3 8 18-18 17 KS 18 5 7 6 16-18 17 Einherji 18 5 7 6 17-21 17 Fylkir 18 3 5 10 15-25 11 ReynirS 18 1 8 9 9-26 10 Markahæstir: Hinrik Þórhallsson, KA...........10 Gu&mundurTorfason,Fram........... 9 Pálmi Jónsson, FH................ 9 Gunnar Gislason, KA.............. 8 Jónas Hallgrímsson, Völsungi..... 8 Meiri blóm! Skagamenn fengu Islandsbikarinn afhcntan að loknum leiknum við Þrótt í 1. dcildinni í á laugardaginn og blómum skrýddir veifa þeir til áhorfenda. Mynd: -eik. Zico er byrjaður! Brasilíski knattspyrnusnillingur- inn Zico skoraði tvö mörk og lagði upp önnur þrjú þegar Udinese vann Genoa 5 - 0 í 1. umferð ítölsku 1. deildarinnar. Eins og menn muna keypti Udinese Zico í sumar fyrir offjár og hann er strax farinn að borga það til baka. Juventus vann stórsigur, 7 - 0, á Ascoli, Fiorentina vann Napoli 5 - 1, Avellino vann AC Milano, félag Luther Blissett, 4 - 0 og Sampdoria sigraði Inter Milano 2-1. Trevor Francis skoraði bæði mörk Samp- doria. Þá unu meistarar AS Roma Pisa 2-o. í Frakklandi vann Auxerre sinn sjöunda leik í röð, St. Etienne 1 - 0, og er áfram efst. Monaco, Bor- deaux og Nantes unnu sína leiki og eru í næstu sætum. Á Spáni bar helst til tíðinda að Malaga burstaði Real Madrid óvænt, 6-2. Ár og dagur síðan hið fræga lið Real hefur fengið slíka útreið. Einn leikur var í UEFA- bikarnum í gær. Inter Bratislava frá Tékkóslóvakíu sigraði Rabat Ajax 10 - 0 á Möltu. -VS Englendingar stilla upp sterku lands- liði gegn Dönum í Evrópukeppni lands- liða í knattspvrnu í næstu viku. Breytingarnar eru ekki stórvægilegar, vonast er til að Bryan Robson geti leikið en hann meiddist uni helgina, og hann verður þá á miðjunni ásamt Ray Wilk- ins og Glenn lloddle. Trevor Francis og Luther Blissett verða báðir kallaðir heim frá Ítalíu og í hópnum er John Gregory frá OPR sem átti stórleiki í Ástralíuferð landsliðsins í sumar. Einn leikmaður í hópnum hefur ekki leikið landsleik, bakvörðúrinn Mike Duxbury frá Manch. Utd. Norður-írar mæta Austurríkis- j mönnum og þá lcikur markvörðurinn I frægi frá Arsenal, Pat Jennings, sinn ■ 100. landsleik. Einn nýliði er í hópi | Norður-íra, John O'Neill frá Leicestcr. Skotar leika vináttuleik gegn Urugu- 1 ay í Glasgow sama kvöld. Jock Stein j leflir fram ungu liði með HM 1986 í j huga. Nýliðar þar cru Paul McStay frá I Ccltic og Colin Walsh frá Nottrn. For- est og þá hafa bakverðirnir Arthur Al- i biston frá Manch. Utd og Ray Stewart 1 frá West Ham verið kallaðir í.liðið á j i nýjan leik. Framrni vcrða Frank j McGarvey og Charlic Nicholas, frá j Celtic og Arsenal, en þcir léku saman j með Ccltic sl. vetur og var samvinna [ þeirra þar rómuð. -VS ! Schumach- \ er rekinn j Toni Schumacher, hinn frægi ! markvörður vestur-þýska lands- liðsins í knattspyrnu, var í gær rek- inn frá félagi sínu, Köln. Hann hafði haft uppi mótmæli og gagnrýni sem féll ekki í kramið hjá stjórn félagsins. -VS Nýjustu fréttir frá Englandi: Enskir hræddir við Dani! Robson meiddur- „comeback“ hjá Gary-nýttlið Watford - Arsenal ólíklegir Einsmarks sigur Vals Vaiur vann Þrótt í fyrsta leik Reykjavíkurmótsins í meistara- flokki karla í Laugardalshöllinni í gærkveldi. Víkingur sigraði Ármann með 28 mörkum gegn 19 Ármenninga. Reykjavíkurmótið heldur áfram í Höllinni í kvöld kl. 19.15. Vonandi verður þar kátt eins og í höllinni forðum. Frá Heimi Bergssyni fréttamanni Þjóðviljans í Englandi: Það er kominn mikill skrekkur í ensku íþróttapressuna í kjölfar hins góða si- gurs Dana á Frökkum í síðustu viku. Englendingar fá Dani í heimsókn þann 21. september í Evrópukcppni landsliða í knattspyrnu og danska liðið fær hcr mikla umfjöllun þessa dagana. Bohby Robson einvaldur enska liðsins segir þetta verða crfiðasta leik þess undir hans stjórn. Enskir óttast mest hinn unga Michael Laudrup sem skoraði tvö mörk gegn Frökkum í 3-1 sigrinum en i Sepp Piontck, einvaldur Dana, hefur J látið hafa eftir sér að óvíst sé hvórt 1 Laudrup leiki á Wembley. „Það getur verið of erfitt fyrir unga stráka að spila á slíkum velli og óvíst að Laudrup valdi slíku verkefni,“ sagir Piontek. Bryan Robson, fyrirliöi Manchester United og enska landsliðsins, haltraöi af velli á laugardaginn þegar 13 mínútur voru eftir af leiknum við Luton. Hann meiddist á tá og ólíklegt er að hann geti leikið með liðinu gegn Dukla Prag í Evrópukeppni bikarhafa annað kvöld. Eddie Gray, framkvæmdastjóri Leeds, átti glæsilegt „comeback'' á laugardag en þá'lék hann óvænt með liði sínu gegn Cardiff. Hann lék í stöðu bakvarðar og var maðurinn á bak við allar sóknaraðgerðir Leeds. „Hvað er hægt að géra, Eddie, á hvaðá aldri sém er, er þrepi ofar öllum öðrum," sagði Len Ashurst, framkvæmdastjóri Car- diff eftir lcikinn. Eftir leik Arsenal og Liverpool sem Liverpool vann auðveldlega segja ensku blöðin að erfitt verði að ná titlin- um frá Liverpool og Arsenal sé með ólíklegri liðum til þcss. Lawric McMe- nemy, stjóri Southampton, sagði í síð- ustu viku: „Það hefur ekkert breyst í hinni þrautreyndu Liverpool-maskínu. Eini munurinn er sá að nú er Joe Fagan í skyrtu og með bindi, ekki Bob Paisl- ey!“ Eina sem Fagan lét eftir sér hafa eftir sigurinn á Arsenal var: „Við spil- uðum ekki illa." Watford kom mjög á óvart um hclg- ina, Graham Taylor stillti upp sjö nýj- um leikmönnum gcgn Notts County. „Ég þarf að brcyta liði og leikskipulagt, ég er með allt annan mannskap í hönd- unum en í fyrra." Meðalaldur liðsins gegn Notts var 22 ár. John Barncs átti stórleik og ensku blöðin segja að Wat- ford megi þakka fyrir að eiga hann að, hann geti unnið leiki uppá eigin spýtur. Þessi 19 ára gamli blökkumaður er tal- inn líklegur til að leika með enska landsliðinu gegn Dönum í næstu viku. Að lokum, um efsta liöið, West Ham. Þrátt fyrir góða byrjun eru enskir blaðamenn varkárir í spám sínum um gengi liðsins. Hópurinn sé ekki nægi- lega stór og komi upp meiðsli, eigi liðið eftir að lenda í vandræðum í vetur. Nánar um leiki helgarinnar f Ehg- landi á bls. 12. -HB/VS

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.