Þjóðviljinn - 15.10.1983, Síða 6

Þjóðviljinn - 15.10.1983, Síða 6
6 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Hdgin 15.-16. október 1983 DJOÐVIUINN Málgagn sósíalisma, verkalýöshreyf- ingar og þjóðfrelsis Útgefandi: Útgáfufélag Þjóöviljans. ' Framkvæmdastióri: Guðrún Guðmundsdóttir. l Ritstjórar: Árni Bergmann, Einar Karl Haraldsson, Kjartan Olafssen. Umsjónarmaður Sunnudagsblaðs: Guðjón Friðriksson. Auglýsingastjóri: Sigríður H. Sigurbjörnsdóttir. Afgreiðslustjóri: Baldur Jónasson. Afgreiðsla: Bára Sigurðardóttir, Kristín Pétursdóttir. Biaðámenn: Auður Styrkársdóttir, Álfheiður Ingadóttir, Helgi Ólafsson, Lúðvík Geirsson, Magnús H. Gíslason, Ólafur Gíslason, Óskar Guðmundsson, Sigurdór Sigurdórsson, Valþór Hlöðversson. íþróttafréttaritari: Víðir Sigurðsson. Utlit og hönnun: Guðjón Sveinbjörnsson, Þröstur Haraldsson. i Ljósmyndir: Einar Karlsson, Magnús Bergmann. 1 Handrita- og prófarkalestur: Andrea Jónsdóttir, Elías Mar. Auglýsingar: Áslaug Jóhannesdóttir, Ólafur Þ. Jónsson. Skrlfstofa: Guðrún Guðvarðardóttir, Jóhannes Harðarson. Sfmavarsla: Sigríður Kristjánsdóttir, Margrét Guðmundsd. Húsmóðir: Bergljót Guðjónsdóttir. Bflstjóri: Ólöf Sigurðardóttir. innheimtumenn: Brynjólfur Vilhjálmsson, Gunnar Sigurmundsson. Ólafur Björnsson. Pökkun: Anney B. Sveinsdóttir, Halla Pálsdóttir, Karen Jónsdóttir Útkeyrsla, afgreiðsla og auglýsingar: Síðumúla 6, Reykjavik, sími 81333. Umbrot og setning: Prent. Prentun: Blaðaprent h.f. ritsCjórnargrcin I --------------------*------------------- El Salvador-fundurinn í þessari viku eru þrjú ár liðin síðan þjóðfrelsisöflin í E1 Salvador tóku höndum saman og mynduðu breið- 1 fylkingu til að berjast gegn ógnarstjórn hægri aflanna. Víða um hinn lýðræðislega heim taka menn nú þátt í samstöðuaðgerðum til stuðnings þjóðfrelsisfylkingunni í E1 Salvador. Fyrir fáeinum misserum heimsótti Marianella Garcia Villas ísland til að kynna okkur þær ógnir og skelfingar, fangelsanir, fjöldamorð og pyntingar sem hin hægri- sinnaða ógnarstjórn hefur beitt í E1 Salvador. Marian- ella var hógvær og skýr, látlaus en einbeittur fulltrúi mannréttindanefndar í landi sínu. Hún eignaðist vini og liðsmenn hér á landi. Góðar óskir fylgdu henni við brottförina. Síðan liðu nokkrir mánuðir. Pá bárust þær hörmung- arfréttir um heimsbyggðina að morðsveitir ógnar- stjórnarinnar hefðu pyntað og drepið Marianellu Garcia Villas þegar hún var að safna gögnum um mann- , réttindabrot. Fyrir nokkrum dögum birtu hin virtu kaþólsku samtök Pax Christi skýrslu um morðið á Marianellu Garcia Villas. Par koma fram órækar sannanir um voðaverk ógnarstjórnarinnar. Vitnisburður Pax Christi skýrslu um morðið á Marianellu Garcia Villas. Par koma fram órækar sannanir um voðaverk ógnarstjórn- arinnar. Vitnisburður Pax Christi sýnir hve brýnt er að allur hinn siðmenntaði heimur mótmæli framferði stjórnvalda í E1 Salvador. í dag efna fjölmörg samtök á íslandi, stjórnmála- flokkar og ýmiss félög, til fundar í Gamla Bíói. Par flytur ræðu fulltrúi frá þjóðfrelsisöflunum í E1 Salvador og sýnd verður kvikmynd um þjóðfélagsbaráttuna í Mið-Ameríku. Til fundarins er boðað með ávarpi. Þar segir m.a.: „Framferði Bandaríkjanna í Mið-Ameríku er ógn- vænlegt. Jafnframt því sem stjórn Reagan heldur áfram og eykur hernaðarstuðning sinn við ógnarstjórnina í E1 Salvador hefur hún byrjað stórfellda hernaðarupp- byggingu á svæðinu, einkum í Hondúras, þaðan sem hún sendir herflokka úr liði einræðisherrans fyrrver- andi, Somoza, inn í Nicaragua meðan bandarískur floti siglir fyrir ströndum við alvæpni og æfir innrás á þau svæði sem ekki eru þóknanleg Bandaríkjastjórn. Almenningsálitið í heiminum getur haft úrslitaþýð-| ingu til að hindra að Bandaríkin leggi í enn meiri að-i gerðir til að reyna að kæfa í blóði baráttu alþýðu Mið-I Ameríku fyrir mannsæmandi lífi. Því skorum við á alla þá sem styðja baráttu alþýðunn-j ar í Mið-Ameríku og vilja stöðva hernaðaríhlutunj Bandaríkjanna á svæðinu að koma til liðs við okkur.“ Pjóðviljinn tekur undir þessi orð ávarpsins frá sam- tökunum sem gangast fyrir fundinum í Gamla Bíói í dag og hvetur fólk til að sýna samstöðuna í verki með því að fjölmenna á fundinn. Morgunblaðið kvartar aðrir þakklátir í sérstökum dálki, sem ritstjórar Morgunblaðsinsj annast daglega, var í gær kvartað yfir því að Pjóðviljinn væri að flytja fréttir af atburðum og baráttu innan Sjálfstæðisflokksins. Höfundur þessarar kvörtunar mun vera Styrmir Gunnarsson en hann hefur lengi 1 kappkostað að beita fréttaþögn til að viðhalda völdum flokkseigendaklíkunnar í Sjálfstæðisflokknum. Fjölmargir óbreyttir félagar í Sjálfstæðisflokknum hafa hins vegar haft samband við Pjóðviljann og lýst þakklæti sínu og ánægju yfir að blaðið skuli láta al- menning vita hvað er að gerast bak við tjöldin í forystu- ranghölum Sjálfstæðisflokksins. Pjóðviljinn mun því halda þessari sjálfsögðu fréttaþjónustu áfram. ör. starf 09 KJör „Maður er ekki dauður úr öllum æðum, það sýna skattarnir“, sagði Guðrún. Ljósm.-Magnús. „Marg/r hafa minna en ég“ í þessum mánuði er hátt á fímmta þúsund íslendingum ætl- að að lifa af 8.300 krónum á mán- uði. Þetta eru örorku- og ellilíf- eyrisþegar, sem ekki hafa annað fé handa á milli en tekjutryggingu og lífeyri frá Tryggingastofnun rtkisins. Og það er þessi hópur, sem viðmælandi okkar i dag, Guðrún Guðmundsdóttir, hefur í huga þegar hún svarar spurning- unni um afkomu sína þannig að það hafí það svo margir verra en hún sjálf. Guðrún er Vestfirðingur, fædd í Hælavík, en maður hennar, Kristófer Jónsson, sem lést árið 1979 var Reykvíkingur og þar bjuggu þau alla sína búskapartíð. Guðrún er 65 ára gömul og býr nú í húsi Sjálfsbjargar við Hátún.12 £ Reykjavík. Guðrún hefur verið öryrki í 35 ár. „Ég fór svona við barnsburð, þegar ég átti yngri drenginn minn 29 ára gömul“, sagði hún. „Ég var meira að segja mállaus í 3 vikur, en það hefði aldrei gengið, ég var svo ung og hafði líka svo gaman af að tala, og svo kom þetta smátt og smátt. En fullan mátt hef ég aldrei fengið“, segir hún. „Ég hef svo miklu meira en margur hér í húsinu“, segir hún, þegar hún er spurð um afkom- una. „Ég fæ nefnilega lífeyri eftir manninn minn, en hann vann í 46 ár í Hafnarhúsinu og var fastur starfsmaður Reykjavíkurborgar. Vegna þessa fæ ég að vísu minna út úr tryggingastofnun, svo út- koman er svipuð.“ - Hvað er makalífeyririnn hár? „í september voru þetta 8.072 krónur og hér er seðillinn. 2.164 krónur eru dregnar af í skattinn og útborgað er 5.908 krónur." - Þú borgar skatta af þessu? „Já, maður er svo sem maður með mönnum. Það er hægt að gleðja sig með því að maður er ekki dauður úr öllum æðum. Ég borga 15 þúsund í skatt á þessu ári og það er tekið beint frá borg- inni. Mér skilst að Dabba veiti ekki af og ekki má hann komast á vonarvöl“, segir Guðrún og hlær við. Guðrún Guðmundsdóttir fœrll þúsund ámánuðiílaun og borgar 15 þúsund í skatt í ár. - Hvað með greiðslur frá Tryggingastofnun? „Októbergreiðslan er nú ekki komin en í september voru þetta um 3 þúsund krónur. Ég vann aldrei úti, heldur bara á mínu heimili og þó ég hafi verið öryrki allan þennan tíma, þá fékk ég fyrst ororkubætur 1962 þegar það kom að giftar konur fengju hann líka. Ég er ekki komin á ellilífeyri ennþá, en örorkulífeyririnn var 2112 krónur í september, 700 krónur fékk ég í tekjutryggingu og svo hef ég haft heimilis- uppbót. En það er búið að taka hana af mér núna af því ég hef þetta úr lífeyrissjóðnum.“ - En hvernig er að búa í Há- túninu? „Hér er alveg ágætt að vera. Húsaleigan er lág og miklu lægri en úti í bæ. Víð borgum 1450 krónur í október fyrir herbergið með Ijósi og hita. Reyndar er þetta alltaf að hækka, var 500 krónur þegar ég kom hingað, en það er kannski ekki húsaleigan sjálf sem hækkar svona, heldur hiti og rafmagn. Ég borða niðri í hádeginu og þar kostar kjötmáltíðin 65 krónur . og fiskmáltíðin 55 krónur. Þetta eru helstu útgjöldin, þegar mað- ur er orðinn einhleypur, þá hefur maður ekki mikið umleikis." - En þú ert með síma og sjón- varp? „Já, það verður maður að borga, því ég fæ ekki niðurfell- ingu vegna makalífeyrisins. Ég á systur á Húsavík og bróður á Akranesi og það sést strax á reikningnum þegar ég hringi til i þeirra.“ „Það er eitt sem aldrei er reiknað með í sambandi við okk- ur sem erum fötluð, og það er hvað maður þarf að borga mikið í bílakostnað. Reyndar er mikill munur síðan Ferðaþjónustan kom, það kostar eins og í strætis- vagn, en það þarf að panta þá daginn áður. Þeir eru afskaplega liprir bílstjórarnir og skilja ekki við fólk fyrr en það er komið al- veg alla leið. En það er oft erfitt að ákveða tímann fyrirfram, - ef maður fer til læknis eða á hár- greiðslustofu, þá er ekki svo gott að segja hvenær maður er búinn. Þá er ekki hægt annað en að taka leigubíl og eins ef maður' þarf skyndilega að skreppa, t.d. út í apótek eftir meðulum.“ - Hvernig finnast þér kjörin hjá öryrkjum hafa þróast? „Þau hafa farið versnándi, á því er enginn vafi. Sérstaklega finnur maður til þess núna þegar allt hækkar annað en kaupið. Það er t.d. geypilega mikill munur á að kaupa í matinn heldur en í fyrra, mikill munur.“ - Þú ert samt hress? „Já, það þýðir ekkert að vera að barma sér. Þeir hafa aldrei verið að hlaða undir mig, - mað- ur hefur alltaf þurft að bjarga sér eftir bestu getu,og gerir áfram!“ sagði Guðrún Guðmundsdóttir. -ÁI

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.