Þjóðviljinn - 15.10.1983, Page 28
moðviuinnX Aðalsími Þjóðviijans er 81333 kl. 9-20 mánudag til föstudags. Utan þess tima er haegt að ná í blaðamenn og aðra starfsmenn blaðsins í þessum símum: Ritstjórn Aðalsími Kvöldsími Helgarsími
81382, 81482 og 81527, umbrot 81285, Ijósmyndir 81257. Laugardaga kl. 9 - 12 er haegt að ná í afgreiðslu blaðsins í sima 81663. Prentsmiðjan Prent hefur síma 81348 og eru blaðamenn þar á vakt öll kvöld. 81333 81348 81663
Helgin 15.-16. október 1983
Umferðafræðslan í fallöxinni hjá Albert
L j ó tt ás tand framiindan
Segir Óli H. Þórðarson
hjá Umferðarráði
í fjárlagafrumvarpi Al-
berts Guðmundssonar er
gert ráð fyrir talsverðri
raunlækkun á fjármunum
til fræðslu og upplýsinga-
starfsemi í umferðinni.
Aðeins eru veittar rúmar
3.7 miljónir kr. í þessu
skyni. Umferðarráð verð-
ur því að draga stórlega
saman seglin á næsta ári.
Það eru því yfirgnæf-
andi líkur á að á árinu 1984
muni slysum í umferðinni
fjölga vegna ákvarðana
ríkisstjórnarinnar um
samdrátt í fræðslu og upp-
lýsingastarfsemi. Þegar
siys urðu hlutfallslega
fæst á íslandi, árið 1968,
var veitt fjármagni í
fræðslustarfsemina sem
næmi um 9 miljónum
króna á núverandi verð-
lagi, en Albert Guðmunds-
son og ríkisstjórnin ætla
aðeins um þriðjungi þess
fjár til að koma í veg fyrir
umferðarslys.
Þjóðviljinn leitaði álits Ola H.
Þórðarsonar framkvæmdastjóra
Umferðarráðs á þessum málum.
Hann sagði m.a.:
- Það er augljóst að með aukinni
fræðslu fækkar slysum og dregur
fjölda þeirra sem tína lífinu í um-
ferðarslysum. Auk þess hefur
aukin umferðarfræðsla í för með
sér verulegan sparnað fyrir ríkið,
þareð fræðslustarfsemin fækkar
slysum og dregur þannig úr kostn-
aði við sjúkrahús og heilbrigðis-
þjóhustu. Engu að síður er ákveðið
„í sparnaðarskyni" að minnka
fjárframlög til fræðslustarfsem-
innar, - sagði Óli H. Þórðarson.
Óli sagði einnig, að Umferðar-
ráð hefði föst verkefni, sem ekki
væri hægt að sleppa. „Við rekum
skólann Ungir vegfarendur og ekki
er hægt að leggja hann niður. Þess
vegna er hætt við, að það sem um-
fram hefur verið gert á þessu ári
verði úr sögunni komi ekki aukinn
skilningur fjárveitingavaldsins til,
sem ég vonast til,“ sagði Óli H.
Þórðarson.
„Þessi raunhækkun þýðir náttúr-
lega að við gerum mun minna á
árinu 1984 en á árinu 1983. Þannig
hefur t.d. prentkostnaður hækkað
um 100% á milli ára - og verulegur
Þegar umferðarslys urðu fæst á íslandi árið 1968 var veitt sem nemur 9
miijónum króna til fræðslunnar. Með fjárlagafrumvarpi Alberts árið 1984
verða það 3.7 miljónir.
hlutiafokkarfjárveitinguhefirfar- og pólitískan vilja," sagði Óli H.
ið í prentkostnað. Svo það er ljótt Þórðarson framkvæmdastjóri Um-
ástand framundan, ef ekki rætist ferðarráðs að lokum.
úr. Þetta er spuming um peninga - óg
Borgarstjórnaríhaldið beitir flokkshagsmunum í BUR
Eimreiðargæðingurinn ráðinn
Nú er komið í Ijós að tilangur
borgarstjórnaríhaldsins með
hinum svokölluðu „skipulags-
breytingum“ á yfirstjórn BUR
var aðgera flokksgæðinginn
Brynjólf Bjarnason frá Al-
menna bókafélaginu að for-
stjóra útgerðarinnar og fisk-
vinnslufyrirtækisins.
Sjálfstæðismenn í útgerðarráði
samþykktu í gær að ráða Brynjólf
en hann hefur um áraraðir verið í
fremstu röð yngri manna innan
Sjálfstæðisflokksins sem hafa mót-
mælt rekstri opinberra fyrirtækja.
Brynjólfur Bjarnason er í hinni
frægu Eimreiðarklíku ungra
íhaldsmanna ásamt Davíð Odds-
syni borgarstjóra og Þorsteini
Pálssyni sem nú keppir að því að
verða formaður Sjálfstæðisflokks-
ins.
„Ég skil þetta
ekki, ” segir
Einar Sveinsson
sem nú var
sparkað eftir
8 ára starf
mm
Einar Sveinsson: „Ég skil þetta
ekki. Ef þetta á að vera vitnisburð-
ur um að ég hafl ekki staðið mig í
starfí þá hlýtur eitthvað annað að
liggja þarna að baki en starfsmat“.
Með þessari ákvörðun er borg-
arstjórnaríhaldið að reka úr starfi
tvo forstjóra BÚR: Einar Sveins-
son, sem stjórnað hefur BÚR í átta
ár, og Björgvin Guðmundsson.
„Þessi afgreiðsla útgerðarráðs
kemur mér mjög á óvart. Mér er
alveg ómögulegt að skilja þetta. Ef
þetta á að vera vitnisburður um að
ég hafi ekki staðið mig í starfi, þá
hlýtur eitthvað annað að liggja
þarna að baki en starfsmat", sagði
Einar Sveinsson í samtali við Þjóð-
viljann í gær en fyrir fund Útgerð-
arráðs í gær voru lagðar fram und-
irskriftir 155 starfsmanna BÚR
með stuðningsyfirlýsingu við Ein-
ar.
„Það er greinilega ekkert tillit
tekið til álits þessa fólks, en mér
þykir afskaplega vænt um þennan
stuðning. Hann er mér meira virði
en það hvernig atkvæði féllu í út-
gerðarráði.“
Heldur þú að hér hafí verið um
fyrirfram ákveðið sjónarspil að
ræða?
„Það var sérkennilegt að þegar
skipulagsbreytingarnar voru lagð-
ar fram, þá skiptust menn upp í
pólitískar fylkingar í stað þess að
leggja mat á þá hluti og mér sýnist
áframhaldið hafa verið í sama
dúr.“
Einar sagði að hann hefði verið í
góðri trú um að vera fastur starfs-
maður borgarinnar og hefði bréf
um slíkt frá fyrrverandi borgar-
stjóra. „Núverandi stjórnendur líta
öðrum augum á það mál en það á
væntanlegáeftir að reyna á það“,
sagði Einar að lokum.
1 bókum sem fulltrúar minni-
hlutans í útgerðarráði lögðu fram í
gær segir að nú sé komið í ljós að
hið raunverulega markmið með
skipulagsbreytingunum „er að
víkja úr starfi tveim mönnum, sem
unnið hafa fyrir fyrirtækið gott
starf af samviskusemi, trúmennsku
og dugnaði til að rýma sæti fyrir
pólitískt vel þóknanlegan fram-
kvæmdastjora bókafélags, sem
ekki er kunnugt um, að hafi neina
þekkingu á útgerð eða fiskvinnslu.
Við fulltrúar minnihluta útgerðar-
ráðs fordæmum þessi vinnubrögð
sem við teljum, að muni stórskaða
fyrirtækið og höfnum alfarið að
taka þátt í skrípaatkvæðagreiðslu.“
Góður
árangur
Þjóðviljans
í september
30% aukning lausasölunnar
Mikil aukning hefur orðið á iausasölu Þjóðvilj-
ans síðustu vikurnar og þær upplýsingar fengust á
afgreiðslu blaðsins að hún hcfði aukist um amk.
30% f septembermánuði síðast liðnum. - Eftir
helgina liggja fyrir tölur úr 1. lotu áskriftarher-
)
ferðar Þjóðviljans sem stóð yfír síðustu 10 dagana í
septembermánuði. Bráðabirgðatölur sýna að fleiri
hundruð áskrifendur hafa bæst við og stöðugt ber-
ast blaðinu nýjar áskriftir.