Þjóðviljinn - 20.10.1983, Page 2

Þjóðviljinn - 20.10.1983, Page 2
2 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 20. október 1983 Mýrasýsla Nautpeningi fjölgar Árið 1981 voru nautgripir í Mýrarsýslu 2358 en 1982 2504. Hefur þeim þannig fjölgað um 146. Sauðfénu hefur hinsvegar fækkað í sýslunni. Árið 1981 var það 33.764 kindur en 1982 31.586 eða 2178 kindum færra. Hrossin voru 2413 1981 en 2452 1983 og hefur þeim fjölgað lítillega eða um 39. Svínabúskapurinn er ekki stór í sniðum en hann hvorki færist í aukanna né minnkar, 24 svín hvort árið. Hænsnin eru á undan- haldi. Árið 1981 voru þau 2306 en komin niður í 1884 1982. Fækk- unin nemur 422 fuglum og er nokkuð mikið af ekki stærri stofni. Þurrheyskapurinn er allmiklu meiri 1982 en 1981. Fyrra árið var hann 101.612 rúmm. en 117.973 rúmm. 1982. Hefur þannig vaxið um 16.361 rúmm. Votheysgerð hefureinnig aukist ofurlítið. Arið 1981 nam hún 5574 rúmm. en 1982 5751 rúmm., aukningin 177 rúmm. Kartöfluuppskeran hefur minnkað um meira en helming. Árið 1981 var hún 572 hektókg, en 1982 aðeins 269 hektókg. í Mýrarsýslu finnst ekki nokkurt rófustýri. -mhg Tikkanen Viö byggjum tónlistarhús til að geta lifað menningarlífi í þessu landi, segir Jón Þórarinsson tónskáld. Hér í Reykjavík hefur aldrei verið byggt hús sem ætlað var sérstaklega til tónlistarflutn- ings nema gamli Hljóm- skálinn. Tónlistinni hefur verið smeygt inn með annarri starf- semi, og þótt sum þau hús sem hér hafa verið notuð til tónleikahalds hafi verið viðun- andi, þá eru þau nú orðin of lítil og Sinfóníuhljómsveitin, sem er sá grunnur sem tón- listarflutningurinn hér byggir á, má teljast heimilislaus. Þess vegna byggjum við tón- listarhús í Reykjavík, sagði Jón Þórarinsson tónskáld er við inntum hann eftir þeim samtökum um byggingu tón- listarhúss í Reykjavík, sem héldu stofnfund sinn um síð- ustu helgi. - Ef spurt er hvers vegna sé þörf á þessu húsi, þá má alveg eins spyrja hvers vegna sé þörf á menningarstarfsemi yfirleitt. Við viljum lifa menningarlífi í þessu landi og ég lít svo á að allt okkar efnahagsbrölt stefni endanlega að því að svo megi verða, þess vegna byggjum við tónlistarhús. - Hvernig varð þessi hugmynd, til? - Þessi hugmynd hefur blundað lengi með mönnum. En hún fékk byr undir vængi í vor þegar Ármann Örn Ármannsson skrifaði grein um þetta mál í Morgunblaðið. Ég og fleiri töld- um að úr því maður sem starfaði í byggingariðnaði sæi grundvöll fyrir þessu, þá hlyti hann að vera um 1800 einstaklingar auk 13 fé- laga og sambanda sem flest eru samtök listamanna og tónlistar- manna. Á fundinum gerðist sá ánægju- legi atburður, að þar steig upp Gunnar Guðjónsson skipamiðl- ari og tilkynnti að hann myndi færa samtökunum rúmlega hálfa miljón króna að gjöf, sem eru arf- ur frá föður hans Guðjóni Sig- urðssyni, sem dó 1915. Guðjón Sigurðsson hafði lagt svo til í erfðaskrá sinni að arfur þessi skyldi renna til þess að styðja ; tónlistarflutning hér á landi. Þá ! gerðist það einnig að einn af i stofnfélögum greiddi árgjald til ' félagsins með 10.000 krónum í ! stað 200 sem er lágmarksárgjald j félaga. - Hvað er talið að tónlistarhús muni kosta? - Pað er undir ýmsu komið, en lauslegar áætlanir frá því í vor hljóða upp á 140 miljón krónur. - Verður húsið eingöngu notað til hljómleikahalds? - Já, húsið mun fyrst og fremst verða ætlað til hljómleikahalds.: Ekki bara fyrir sígilda tónlist, heldur líka fyrir popptónlist, djass, þjóðlagaflutning og hvað eina. Þá hefur einnig verið rætt um möguleikann á að sameina í húsinu einnig aðstöðu fyrir ráð- stefnuhald, og höfum við haft samráð við fulltrúa Ferðamála- ráðs af þeim sökum. Þá mun það einnig ráðast af staðarvali hvaða starfsemi verður í húsinu, t.d. hvort þörf verður á veitingasölu o.s.frv. - Hvert verður næsta skrefið í þessu máli? - Það verður fulltrúaráðsfund- ur 30. október. Þá verður kosin stjórn samtakanna og síðan mun hún taka við. Með byggingu tónlistarhúss erum við að gera það sama fyrir tónlistina í landinu eins og gert var fyrir leiklistina með byggingu Þjóðleikhússins fyrir nærri 50 árum, sagði Jón Þórarinsson tón- skáld að lokum. ólg. Með byggingu tónlistarhúss erum við að gera það sama fyrir tón- listina í þessu landi og gert var fyrir leiklistina með byggingu Þjóðleikhúss fyrir nærri 50 árum, segir Jón Þórarinsson. fyrir hendi. Við kölluðum saman undirbúningsnefnd, sem haldinn var eftir flutning á 9. sinfóníu Beethovens í júní, og þar var á- kveðið að kalla saman stofnfund að samtökum. Fram að stofn- fundinum störfuðu síðan 4 undir- nefndir, og var þeirra starf lagt fyrir stofnfundinn. Þessar undir- nefndir höfðu fjallað um afmörk- uð mál eins og staðarval, hvernig húsið ætti að vera búið, hvaða leiðir væru til fjáröflunar og síðan átti ein nefndin að sjá um kynn- ingarstarf. - Hvað gerðist á stofnfundin- um? - Hann var fjölsóttur og voru samtökin formlega stofnuð og kosið 36 manna fulltrúaráð er stjórna mun samtökunum þar til stjórn verður kosin á fulltrúa- ráðsfundi hinn 30. okt. n.k. Fé- lagar í samtökunum eru nú orðnir í þúsund metra hæð getur maður ekki einu sinni séð úr farþega- flugvél hvort landið sem maður flýgur yfir er kommúnískt. Nemendur, sem útskrifuðust frá Iðnskólanum fyrir 40 árum síðan færðu Iðnskólanum að gjöf málverk af elsta kennara skólans Sigurði Skúlasyni magister, en um þessar mundir eru 50 ár liðin síðan hann hóf kennslu í Iðnskólanum. Málverkið af Sigurði gerði Eiríkur Smith listmálari. Myndin hér að ofan er tekin sl. föstudag þegar gjöfín var afhent. Ljósm. -eik-.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.