Þjóðviljinn - 20.10.1983, Síða 7
Fimmtudagur 20. október 1983 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 7
Kristín S.
Kvaran:
Fólkið kaus
ekki þessa
stefnu
Þá er mér spurn: Hver kaus yfir
sig þessa stjórnarstefnu, sem for-
sætisráðherra mælti fyrir hér áðan?
Svarið er einfalt og skýrt: Enginn.
Vegna þess að enginn heyrði
stjórnarliðana segja frá því á kosn-
ingafundum að þeir hygðust,
fengju þeir aðstöðu, beita þeim
gerræðislegu vinnubrögðum og að-
ferðum sem dunið hafa yfir frá
valdatöku þessarar stjórnar.
Ég reikna aftur á móti með því
að almenningur hafi kosið þessa
menn í góðri trú, trú á það að þeir
ætluðu sér að framfylgja þeirri
stefnu sem þeir lofuðu fyrir kosn-
ingar. Það er lykilatriði, að fólk fái
að vita um það fyrirfram, hvaða
stefna og hvaða stjórn það er sem
það er að kjósa sér til handa.
Guðmundur
Einarsson:
Fólkið er
að vakna
Það er þess virði að velta fyrir sér
hver hefðu orðið viðbrögð ýmissa
fjölmiðla og félagasamtaka ef
öðruvísi ríkisstjórn hefði með
lögum nauðbeygt atvinnurekendur
í landinu til að greiða fjórðungs
launahækkun og fyrirskipað að
fjármagna hana með aðhaldi í rek-
stri. Það hefði líklega heyrst hljóð
úr horni.
En nú er fólk að vakna til vitund-
ar um blekkinguna. Það er nú að
vakna til vitundar um hina dólgs-
legu sviptingu réttinda og lífskjara.
Það er að vakna til vitundar um að
ekki örlar áseinna verkefninu, þ.e.
að gera breytingar á efnahags-
kerfinu og stjórn þess. Nýsköpun-
arhugmyndir ríkisstjórnarinnar
voru nefnilega eins og nýju fötin
keisarans.
Margrét
Frímannsdóttir:
Heimilis-
reikningur
einstæðrar
móður
Ég hef aðgang að heimilisreikn-
ingi ungrar einstæðrar móður með
tvö börn á framfæri. Tekjur hennar
á mánuði eru alls 15.500 kr. og út-
gjöldin fyrir brýnustu nauðsynjum
eru 13.500 kr. Eftir eru þá aðeins
um 2.000 kr. sem hún hefur til ráð-
stöfunar, nt.a. til að kaupa föt á
börnin og sjálfa sig.
Inni í heimilisreikningi þessarar
konu er ekki rekstur á bíl, ekki
einu sinni á sparneytnum bíl, né
heldur neitt annað það sem ríkis-
stjórnin er búin að dæma sem bruðl
hjá almenningi, miðað við þær
tekjur sem fólki eru skammtaðar.
Forsætisráðherra sem sagði nýver-
ið á fundi að hann sjálfur taki á sig
ábyrgðina á aðgerðum ríkisstjórn-
arinnar í kjaramálum þykir þetta
dæmi e.t.v. ótrúlegt. En hann gæti
vissulega fengið nafn þessarar
konu og auðvitað heimilisfangið.
1. desember-kosningar í Háskólanum í kvöld
er umræðuefni sem Félag
vinstri manna býður upp á
„Hnífurinn er á lofti, - námslánin eru skert, samningsrétturinn
er afnuminn, kjarabarátta er bönnuð með lögum, lög um námslán
eru hundsuð. Við erum kölluð sjálfstæð þjóð á sama tíma og við
gerum smánarsamning við erlendan auðhring og tryggjum erlent
herveldi æ fastar í sessi hérlendis, varðhund auðvaldsins. Það er
ekki nema von að menn setjist niður og spyrji hvort sjálfstæði sé
eitthvað ofan á brauð,“ sagði Jón Gunnar Grjetarsson einn fram-
bjóðenda á lista vinstri manna við 1. desember kosningar í Háskóla
íslands sem fram fara í kvöld.
Framboðs- og kjörfundur hefst
kl. 20.00 í Félagsstofnun stúdenta
og stendur til miðnættis. Tveir list-
ar eru í framboði, Vinstri menn
bjóða upp á umræðu um Sjálfstæð-
ið og brauðið, sem áður sagði, og
Vaka vill ræða um „frið, frelsi og
mannréttindi.“
„Sá raunveruleiki að íslendingar
urðu fullvalda þjóð 1. desember
1918, gerði ráð fyrir því, að þeir
hefðu þau kjör er gerðu þeini kleift
að hafa til hnífs og skeiðar. Engu
að síður blasir sú staðreynd við, að
þeir stjórnmálaflokkar sem kenna
sig við frelsið og manndáðina,
kreppa þannig að alþýðu þessa
lands, að bæði sjálfstæði þjóðar-
innar og vissu manna um daglegt
brauð er stefnt í voða. Lagaá-
kvæðum er dembt yfir þjóðina af
fáeinunt dekurdrengjum sem með
þótta þeirra laga, ganga þvert á
grundvallarfrelsi hvers íslensks
manns, er berast í brauðstritinu“,
sagði Jón Gunnar í samtali í gær.
Gumaö af á tyllidögum
Hann sagði að FVM sæi fulla
ástæðu til að taka þessi mál til um-
ræðu og spyrja hvort sjálfstæði
þjóðarinnar væri einungis eitthvað
til að guma af á tyllidögum, en í
reynd væri troðið á mannréttindum
og frelsi alþýðunnar. Verið væri að
gera aðför að helsta baráttumáli
verkalýðshreyfingarinnar um jafn-
an rétt allra til náms, með stór-
skerðingu námslána, og því væri
brýn þörf á samstöðu námsmanna
og verkalýðs um þessi hagsmuna-
mál. Ekki mætti heldur gleyma
friðarbaráttunni og sjálfstæði
landsins í þeirn efnum. Það er
greinilegt að haustið er heitt á
öllum vígstöðvum, því getur eng-
inn neitað, og því er brýnt að okkur
verði veitt brautargengi í kosning-
unurn í kvöld til að ræða þessi mál
og upplýsa tvískinnung auðvald-
sins um sjálfstæðið, sagði Jón
Gunnar.
Kjör- og framboðsfundur hefst í
Félagsstofnun stúdenta v/
Hringbraut kl. 20.00 í kvöld og
stendur til miðnættis.
- Ig-
Jón Gunnar: Vinstri menn mega ekki láta sig vanta við kosninguna í kvöld.
Mynd - eik.
„Sjálfstæði
ofan á brau
eitthvað
Líf og land gangast fyrir ráðstefnu að Hótel Borg á laugardag
ísland og Mðarumræðan
Með þessari ráðstefnu viljum
við skoða, hvernig ísland teng-
ist þeirri umræðu um friðarmál
og afvopnun, sem átt hefur sér
stað í Evrópu og Bandaríkjun-
um á síðustu árum, sagði Gunn-
ar Gunnarsson starfsmaður
Öryggismálanefndar og einn af
aðstandendum ráðstefnunnar
ísland og friÖarumrœÖan sem
samtökin Líf og land boða til á
Hótel Borg nú á laugardag.
Ráðstefnan hefst kl. 9.30 að
morgni með fyrirlestrum, sem eiga
að vera upplýsandi um hina ein-
stöku þætti þessa máls.
Gunnar Kristjánsson prestur að
Reynivöllum í Kjós mun fjalla um
friðarhreyfingar samtímans, Sig-
urður Björnsson læknir mun fjalla
um áhrif kjarnorkugeislunar á
heilsufar og hugsanlegar afleiðing-
ar kjarnorkustyrjaldar, Ágúst
Valfelís verkfræðingur mun rekja
sögu vígbúnaðarkapphlaupsins,
Albert Jónsson stjórnmálafræðing-
ur mun fjalla um ógnarjafnvægið
og Gunnar Gunnarsson
stjórnmálafræðingur mun fjalla um
vandamál afvopnunar og Þórður
Ægir Óskarsson stjórnmálafræð-
ingur mun fjalla um hugmyndir um
stöðvun vígbúnaðarkapphlaups-
ins.
Annar hluti ráðstefnunnar hefst
kl. 13.00 með ávarpi utanríkisráð-
herra, Geirs Hallgrímssonar, og
mun hann jafnframt svara fyrir-
spurnum.
Síðan munu fulltrúar þeirra sam-
taka er hafa frið, afvopnun og ör-
yggismál á dagskrá sinni sitja fyrir
svörum, auk fulltrúa allra
stjórnmálaflokkanna. Munu þau
Margrét Heinreksdóttir og Bogi
Ágústsson fréttamenn og Gunnar
Gunnarsson varpa spurningum til
friðarsamtákanna en spyrjendur
fulltrúa stjórnmálaflokkanna
verða þeir Magnús Torfi Ólafsson,
Kjartan Ragnarsson, Þórður
Harðarson og Gunnar Kristjáns- ,
son.
Sagði Gunnar Gunnarsson að
markmiðið með þessum yfir-
heyrslum væri að fá fram yfirlit yfir
þá pólitísku vídd sem væri hér fyrir
hendi varðandi þessi mál með því
að kalla til fulltrúa stjórnvalda,
stjórnmálaflokkanna og svo hinna
sjálfstæðu friðarhópa.
Þeir hópar og samtök sem eiga
munu fulltrúa á ráðstefnunni eru
Samtök herstöðvaandstæðinga,
Happdrætti
Hjartaverndar
Dregið hefur verið í Happdrætt:
Hjartaverndar og má vitja vinn-
inga á skrifstofu Hjartaverndar að
Lágmúla 9, 3. hæð.
Vinningar féllu þannig: 1. Tredia
1600 GLX á miða nr. 57203. 2.
Greiðsla upp í íbúð kr. 300 þúsund
á miða nr. 48274. 3. Greiðsla upp í
íbúð kr. 200 þúsund á miða nr.
65498. 4. Kanadískur snjósleði að
verðmæti kr. 160 þúsund á miða nr.
31017. 5.-12. 8 utanlandsferðir
hver á kr. 20 þúsund á miða nr.
12203,22839,51724,71406,75504,
106192, 134101 og 146589.
Varðberg, Friðarhreyfing ís-
lenskra kvenna, Friðarsamtök
listamanna, Friðarhreyfing fram-
haldsskólanema, Samtök lækna
gegn kjarnorkuvá og Þjóðkirkjan.
Ráðstefnunni lýkur síðan með
pallborðsumræðum, þar sem full-
trúar friðarhópanna skiptast á
skoðunum.
í tilefni ráðstefnunnar hefur Atli
Nú fer í hönd vetrarstarf Nor-
ræna sumarháskólans. Boðið er
upp á eftirfarandi námscfni i hóp-
um: 1. Blaðamennska. 2. Framtíð
vinnunnar. 3. Unglingamcnning. 4.
Tónlist og tækni. 5. Afvopnun. 6.
Semiotik og kultur. 7. Hagfræði. 8.
Félagsleg samhjálp.
Starf Norræna sumarháskólans
Heimir Sveinsson tónskáld samið
lag við ljóð eftir Pablo Neruda, og
verður það frumflutt á undan
ávarpi utanríkisráðherra.
Erindi þau, sem flutt verða á
ráðstefnunni verða gefin út sam-
dægurs hjá ísafoldarprentsmiðju.
Ráðstefnan er opin öllu áhuga-
fólki um afvopnun og friðarmál.
ólg.
miðar að því að fylgjast með rann-
sóknum og fræðistörfum á Norður-
löndum og samtengja vísindi, sem
áður hafa verið aðskilin vegna
hefðbundinna marka einstakra vís-
indagreina. Kynningarfundur
verður haldinn í Norræna húsinu í
kvöld kl. 17.30. Þátttaka í starfi
NSH er öllum opin.
Bókari
Sementsverksmiöja ríkisins óskar aö ráða
starfsmann á skrifstofu verksmiöjunnar á
Akranesi. Reynsla viö bókhaldsstörf áskilin.
Umsóknir berist verksmiðjunni fyrir 28. októ-
ber nk.
Sementsverksmiðja ríkisins.
Norræni sumarháskólinn
Kynningarfundur