Þjóðviljinn - 20.10.1983, Qupperneq 11
Fimmtudagur 20. októbei'1983-ÞjÓÐVÍLjlNN - SÍÐA 11
íþróttir Víðir Sigurðsson
Ingi Björn á Selfoss?
Ingi Björn Albertsson, marka-
kóngur 1. deildarinnar í knatt-
spyrnu í sumar með Val, hefur ver-
ið orðaður við 3. deildarlið Selfyss-
inga. Hann hefur gefið til kynna að
hann hafi áhuga á að þjálfa lið
næsta sumar og leika með því. Ann-
ar kunnur markakóngur, Sigurlás
Þorleifsson frá Vestmannaeyjum,
þjálfaði Selfyssinga sl. sumar og lék
með þeim í 3. deildinni.
-VS
Úrslit leikja í Evrópumótunum í knattspyrnu í gærkvöldi -
2. umferð - fyrri leikir:
Evrópukeppni meistaraliða:
Liverpool (Englandi) - Atletico Bilbao (Spáni)....................0:0
Oinamo Búkarest (Rumeníu) - Hamburger SV (V.Þýskalandi)...........3:0
Raba ETO Györ (Ungverjalanai) - Dinamo Minsk (Sovétríkjunum)..... 3:6
Standard Liege (Belgíu) - Dundee United (Skotlandi)...............0:0
Olympiakos (Grikklandi) - Benfica (Portúgal)......................1:0
BohemiansPrag(Tékkósl.)-Rapid Wien(Austurríki)....................2:1
CSKASofia(Búlgariu)-ASRoma(ítaliu)................................0:1
Dynamo Berlin (A. Pýskalandi)-Partizan Belgrad (Júgóslavíu)...... 2:0
Evrópukeppni bikarhafa:
Spartak Varna (Búlgaríu)- Manchester United(Englandi)..............1:2
Beveren (Belgíu) - Aberdeen (Skotlandi)............................0:0
Rangers (Skotlandi) - Porto (Portúgal).............................2:1
Hammarby(Svíþjóð)-Haka(Finnlandi)..................................1:1
ParisSt. Germain(Frakklandi)-Juventus(ítalíu)......................2:2
NEC Nijmegen (Hollandi)- Barcelona (Spáni)........'................2:3
UjpestDoza(Ungverjalandi)-Köln(V. Þýskalandi)......................3:1
ShaktyorDonetsk(Sovétríkjunum)-Servetta(Sviss).....................1:0
UEFA-bikarinn:
Spartak Moskva (Sovétríkjunum) - Aston Villa (Englandi).......... 2:2
PSV Eindhoven (Hollandi) - Nottingham Forest (Englandi)............1:2
Austria Wien (Austurríkí)- Laval (Frakklandi)......................2:0
Anderlecht (Belgiu) - Banik Ostrava (Tékkóslóvaklu)................2:0
SportingLissabon(Portúgal)-Ceitic(Skotlandi).,.....................2:0
Sparta Rotterdam (Hollandi) - Carl Zeiss Jena (A. Þýskalandi)......3:2
Verona (Ítalíu)- Sturm Graz(Austurriki)............................2:2
PAOK Saloniki (Grikklandi)- Bayern Munchen (V. Þýskalandi).........0:0
Groningen (Hollandi) - Inter Milano (ftalíu).......................2:0
Widzew Lodz (Póllandi) - Sparta Prag (Tékkósióvakiu)...............1:1
Honved (Ungverjalandi) - Hadjuk Split (Júgóslaviu).................3:2
Lokomotiv Leipzig (A. Þýskalandi)-Werder Bremen (V. Þýskalandi)....1:0
Radnicki Nis (Júgóslaviu)- Inter Bratislava (Tékkóslóvakíu)....... 4:0
Tottenham (Englandi) - Feyenoord (Hollandi)........................4:2
Watford(Englandi)-LeviskiSpartak(Búlgaríu).........................1:1
Lené(Frakklandi)-Antwerpen(Belgíu).................................2:2
Sautján stúlkur
hópi Arnþrúðar
Sautján stúlkur hafa verið valdar
til að æfa með kvennalandsliðinu í
handknattleik sem leikur tvo leiki
við Bandaríkin í nóvember. Arn-
þrúður Karlsdóttir landsliðsþjálf-
ari gjörði í gær heyrinkunnugt
hverjar skipuðu hópinn. Hann lítur
þannig út:
Sigurborg Eyjólfsdóttir, FH
Margrét Theodórsdóttir, FH
Valdís Hallgrímsdóttir, KR
Eiríka Ásgrímsdóttir, Víkingi.
Þriðjungur þessarra stúlkna hef-
ur aldrei leikið með landsliðinu.
Evrópumótin í knattspyrnu:
Hoddle í ham!
Frá Heimi Bergssyni, frétta-
manni Þjóðviljans í Eng-
landi:
Glenn Hoddle, enski iandsliðs-
vörðurinn hjá Tottenham, sýndi
stórkostlegan leik þegar lið hans
vann Feyenoord frá Hollandi 4-2 í
UEFA-bikarnum í knattspyrnu í
gærkvöldi. I fyrri hálfleik spreðaði
hann snilldarsendingum út um allt,
Tottenham komst í 4-0 fyrir hlé pg
Hoddle lagði upp öll mörkin. Eg
fylgdist með leiknum í sjónvarpi og
hann var stórskemmtilegur, vel
lcikinn, og mörkin voru hvert öðru
fallegra.
Tottenham átti fyrri hálfleik eins
og hann lagði sig. Steve Archibald
og Tony Galvin skoruðu þá 2 mörk
hvor. Kaflaskipti urðu í hálfleik,
með sjálfan Johan Cruyff í farar-
broddi tók Feyenoord völdin og
skoraði tvö mörk sem gætu reynst
Tottenham dýrkeypt í síðari
leiknum í Rotterdam. Cruyff
skoraði sjálfur fyrra niarkið, fór í
gegnum vörn Tottenham með ein-
faldri en fallegri þríhyrningssend-
ingu og það síðara gerði Nilsson.
Ég sá einnig viðureign Liverpool
og Atletico Bilbao í Evrópukeppni
meistaraliða. Hann var mjög slak-
ur, Bilbao varðist allan tímann og
Liverpool fékk aldrei færi. Denis
Law, sá kunni kappi, var þulur í
sjónvarpinu og hann sagði: „Þetta
er einn af þessum leikjum sem er
dæmdur til að enda 0-0.“ Ian Rush
lék með, þrátt fyrir meiðsli, en
hann og Mick Robinson voru lé-
legir frammi. „Slátrarinn" frá Bil-
bao, Goicoechea, lék mjög vel í
vörninni en gat ekki látið hjá líða
að fella Rush og fá gult spjald fyrir
vikið.
Manchester United vann 2-1 í
Varna í Búlgaríu með mörkum
Bryan Robson og Arthur Graham.
Ray Wilkins fékk að líta gula
spjaldið, hans annað í keppninni,
og þar með missir hann af heima-
leiknum.
Watford brenndi af vítaspyrnu
gegn Leviski Spartak á heimavelli,
Nigel Callaghan var syndaselurinn,
og 1-1 jafntefli eru slæm úrslit fyrir
Watford. Wilf Rostron skoraði
mark Watford.
Aston Villa náði 2-2 jafntefli í
Moskvu gegn Spartak, Mark Walt-
ers og Colin Gibson skoruðu mörk-
in og Spartak jafnaði úr vítaspyrnu
á síðustu mínútunni.
„Ég held að ég sé bara ánægður“,
voru óvænt og sjaldgæf unimæli
Brian Clough, framkvæmdastjóra
Nottingham Forest sem vann
frækilegan sigur, 2-1, á PSV í Hol-
landi. Peter Davenport og Colin
Walsh skoruðu fyrir Forest, Walsh
sigurmarkið úr vítaspyrnu á síðustu
mínútu leiksins. „nn,„
Ólafur áfram
í Borgarnesi
Olafur Jóhanncsson verður ör-
ugglega endurráðinn þjálfari Skall-
agríms úr Borgarnesi. Undir stjórn
hans, varð Skallagrímur sigurveg-
ari í 3. deildinni í knattspyrnu í
sumar, annað liðið sem Ólafur
kemur upp í 2. deild á þremur
árum. Hitt var Einherji frá Vopna-
firði.
-VS
Kristinn
aftur í Val
Kristinn Björnsson, fyrrum
framherji hjá Val og ÍA, leikur að
öllu líkindum með Valsmönnum í
1. dcildinni í knattspyrnu næsta
sumar. Kristinn hefur lcikið við
ágætan orðstír í Noregi undanfarin
ár og um miðjan síðasta áratug lék
hann tvo landsleiki fyrir íslands
hönd.
-VS
Melia
er hættur
Jimmy Melia sagði í gær lausu
starfi sínu sem framkvæmdastjóri
Brighton. Hann kom félaginu í úr-
slit ensku bikarkeppninnar í knatt-
spyrnu sl. vor en náði þó ekki að
forðast fall þess í 2. deild. Gengi
Brighton í 2. deildinni í haust hefur
verið skrykkjótt, frá 7-0 sigri niður
í 0-5 tap um síðustu helgi. Chris
Cattlin, þjálfari liðsins, bakvörður
hjá Coventry um árabil, hefur
tekið við stjórninni til bráða-
birgða.
-VS
Áhuginn náði út-
fyrir gufuhvolf!
Sovésku geimfararnir Alexander Al-
exandrov og Vladimir Lyakhov komu
óvænt við sögu þegar 2. umferð Evróp-
umótanna í knattspyrnu hófst í gær-
kvöldi. Þeir tóku sér frí frá skyldustörf-
unum í geimstöðinni Salyut-7,
hreiðruðu um sig, og fylgdust með
hverjum leiknum á fætur öðrum í
beinni útsendingu. Þeir urðu m.a. vitni
að því hvernig Evrópumcistararnir
Hamburger SV voru tættir í sig í Búka-
rest og sáu landa sinn, Juri Gavrilov,
jafna fyrir Dinamo Minsk, sovésku
meistarana, úr vítaspyrnu á síðustu
mínútunni gegn enska félaginu Aston
Villa í UEFA-bikarnum. Knattspyrnuá-
huginn á sér engin takmörk, hann er til
staðar utan gufuhvolfs jarðar sem
innan þess!
Þrjú fjögurra liða Vestur-Þjóðverja
töpuðu og Bayern Múnchen náði
naumlega jafntefli í Saloniki í Grikk-
landi. Evrópumeistarar Hamburger
töpuðu 3-0 í Búkarest fyrir Dynamo
Búkarest og þurfa háifgert kraftaverk
!til að komast í 8-liða úrslit.
Brasilíski snillingurinn Roberto Falc-
ao skoraði sigurmark Roma, ítölsku
meistaranna, sem sigruðu CSKA 1-0 í
Búlgaríu.
Liðum íslendinganna gekk misjafn-
lega. Anderlecht vann Ostrava frá
Tékkó 2-0 með mörkum Larsen og
Arnesen, Kneps skoraði tvívegis fyrir
Antwerpen sem náði 2-2 jafntefli gegn
Lens í Frakklandi en Laval tapaði 2-0 í
Vín gegn Austria.
Barcelona þurfti hvorki Maradona
nc Schuster til að vinna hollenska 2.
deildarliðið Nijmegan 3-2 á útivelli.
Migueli og Urbano skoruðu og þá gerði
heimaliðið sjálfsmark.
Skotum gekk þokkalega. Dundee
United og Aberdeen náðu marka-
lausum jafnteflum í Belgíu og Rangers
vann Porto heima, naumt þó, 2-1.
Sandy Clark og ástralski landsliðsmað-
urinn Dave Mitchell skoruðu mörkin.
Öll úrslit í gærkvöldi gefur að líta hér
til hliðar á síðunni.
- VS
Keegan
skoraði
Norwich City vann botnliðið
Leicester 3-1 í 1. deild ensku knatt-
spyrnunnar í gærkvöldi. í 2. deild
vann Newcastlc 2-0 sigur á Cardiff
á útivclli, Kevin Keegan skoraði
fyrra markið, og í fyrrakvöld tap-
aði Cambridge 0-3 heima fyrir
Huddersfield. Oxford United náði
Þr>g&ja stiga forystu í 3. deil í gær-
kvöldi með því að vinna Bradford
City 2-0.
-VS
ÍSÍ en
ekki KSÍ
Villa ein all hrikaleg slæddist
inní grein hér á síðunni í gær, og
fór aíla lcið uppí fyrirsögn. Þar
var fjallað um kærumálin á
hcndur Skallagrími, og villan
var fólgin í því að í fyrirsögn og í
upphafi grcinarinnar var talað
unt dómstól KSÍ en það átti að
sjálfsögðu að vera dómstóll ÍSÍ.
Selfoss og Ármann tclja að
dómstóll ÍSÍ hafi ekki farið
að lögum. Þetta flokkast víst
undir það að hugsa eitt en skrifa
annað...
-VS
Landsliðshópur tilkynntur
Markverðir:
Jóhanna Pálsdóttir, Fram
Kolbrún Jóhannsdóttir, Val
Málfríður Sigurhansdóttir, KR
Aðrir leikmenn:
Guðríður Guðjónsdóttir, Fram
Sigrún Blomsterberg, Fram
Oddný Sigsteinsdóttir, Fram
Erna Lúðvíksdóttir, Val
Karen Guðnadóttir, Val
Rut Baldursdóttir, Fylki
Eva Baldursdóttir, Fylki
Erla Rafnsdóttir, ÍR
Ingunn Bernótusdóttir, ÍR
Kristín Pétursdóttir, FH
Landsliðshópur Islands í hand-
knattleik fyrir leikina tvo við
Tékka hér á landi í næstu viku, og
reyndar fyrir næstu misserin, var
tilkynntur í gær. Hann skipa eftir-
taldir leikmenn:
Markverðir:
Brynjar Kvaran, Stjörnunni
Ellert Vigfússon, Víkingi
Einar Þorvarðarson, Val
Jens Einarsson, KR
Aðrir leikmenn:
Þorgils Óttar Mathiesen, FH
Kristján Arason, FH
Hans Guðmundsson, FH
Atli Hilmarsson, FH
Sigurður Gunnarsson, Víkingi
Guðmundur Guðmundsson, Vík-
ingi
Steinar Birgisson, Víkingi
Karl Þráinsson, Víkingi
Páll Ólafsson, Þrótti
Sigurjón Sigtirðsson, Haukum
Jóhannes Stefánsson, KR 1
Brynjar Harðarson, Val
Jakob Sigurðsson, Val
Steindór Gunnarsson, Val
Þorbjörn Jensson, Val
Aðalsteinn Jónsson, Breiðabliki
Sigurður Sveinsson, Lemgo
Alfreð Gíslason, Essen
Bjarni Guðmundsson, Wanne-
Eickel
Þorbergur Aðalsteinsson, Þór Ve.
Hópurinn sem leikur gegn Tékk-
um verður endanlega valinn á mán-
udagskvöldið, daginn fyrir fyrri
leikinn! „Ég get ekki tilkynnt liðið
fyrr, Bjarni Giiðmundsson kemur
ekki fyrr en á sunnudagskvöld og
nær aðeins æfingu á mánudaginn,“
sagði Bogdan Kowalczyk lands-
liðsþjálfari á blaðamannafundi í
gær. -VS