Þjóðviljinn - 20.10.1983, Qupperneq 12
12 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 20. október 1983’
ALÞÝÐUBANDALAGIÐ
/ dag - / dag - í dag
Alþýðubandalagið Akureyri
Almennur félagsfundur
Alþýðubandalagið á Akureyri heldur almennan félagsfund
fimmtudaginn 20. október kl. 20.30 í Lárusarhúsi, Eiðsvallagötu 18.
Fundarefni: 1) Kosning fulltrúa á Landsfund; 2) Kynning á tillögum
laga- og skipulagsnefndar flokksins; 3) Undirbúningur fyrir Landsfund;
4) Vetrarstarfið; 5) Önnur mál. - Mætið vel og stundvíslega. - Stjórn-
in.
ABR - Starfshópur um húsnæðismál
Næsti fundur í hópnum verður fimmtudaginn 20. október að Hverfis-
götu 105, kl. 20.30. - Hópurinn. .
ABR
Starfshópur um utanríkismál
Fundur verður haldinn fimmtudaginn 20. október kl. 20.30
að Hverfisgötu 105. Olafur Ragnar mætir á fundinn og hefur framsögu
um utanríkismálin. Áhugamenn hvattir til að mæta. - Hópurinn.
/ dag - í dag - / dag
Viðtalstímar borgarfulltrúa
ABR
Borgarfulltrúar ABR munu næstu laugardaga á
milli kl. 11 og 12 verða til viðtals í flokksmiðstöð-
inni að Hverfisgötu 105. Næsta laugardag, 22.
október, mun Guðmundur Þ. Jónsson verða til
viðtals. Síðan verða viðtalstímarnir sem hér segir:
Laugardaginn 29. október Adda Bára Sigfús-
dótfir. Laugardaginn 5. nóvember Guðrún Á-
gústsdóttir. Laugardaginn 12. nóvember Sigur-
jón Pétursson. Borgarbúar eru eindregið hvattir
til að notfæra sér þessa þjónustu og koma spurn-
ingum um borgarmálefni á framfæri við borgar -
fulltrúa Alþýðubandalagsins. - ABR
Guðmundur Þ.
Jónsson er til við-
tals á laugardag kl.
11-12 að Hverfis-
götu 105.
Alþýðubandalagið Akranesi
Aðalfundur Alþýðubandalagsins á Akranesi verður haldinn mánudag-
inn 24. október kl. 20.30 í Rein. Fundarefni: 1. Venjuleg aðalfundar-
störf. 2. Kosning fulltrúa í kjördæmisráð. 3. Kosning fulltrúa á lands-
fund Alþýðubandalagsins. 4. Vetrarstarfið. 5. Önnur mál. - Félagar
fjölmennið.
Stjórnin.
Alþýðubandalagið Seltjarnarnesi
Aðalfundur félagsins verður haldinn þriðjudaginn 25. október að
Bergi (Vesturströnd 10) kl. 20.30. Fundarefni: Venjuleg aðalfundar-
störf. Geir Gunnarsson og Elsa Kristjánsdóttir koma á fundinn. Fé-
lagar fjölmennið. - Stjórnin.
Alþýðubandalagið sunnan heiða
á Snæfellsnesi
Aðalfundur verður haldinn miðvikudaginn 26. október kl. 20 að Stað-
astað. Dagskrá: 1. Inntaka nýrra félaga; 2. Tillaga laganefndar að
félagslögum; 3. Venjuleg aðalfundarstörf; 4. Kosning fulltrúa á lands-
fund AB; 5. Kosning fulltrúa á aðalfund kjördæmisráðs, - Mætið vel og
stundvíslega, - pönnukökur með kaffinu! - Stjórnin.
ÁRÍÐANDI ORÐSENDING
til styrktarmanna Alþýðubandalagsins
Þeir styrktarmanna sem fengið hafa senda gíróseöla eru vinsam-
legast beðnir að gera skil sem allra fyrst.
Alþýðubandalagið í Reykjavík
Skuldar þú árgjaldið?
Stjórn ABR hvetur alla þá sem enn skulda gjaldfallin árgjöld að greiða
þau sem fyrst. Stöndum í skilum og eflum starf ABR.
Félagsbréf ABR
Fyrsta félagsbréf vetrarins hefur verið sent til félagsmanna ABR. Þeir
félagsmenn sem ekki hafa fengið bréfið eru hvattir til að snúa sér til
skrifstofu ABR. - Stjórn ABR.
jte Námsvist í
- Sovétríkjunum
Sovésk stjórnvöld munu væntanlega veita einum íslendingi skóla-
vist og styrk til háskólanáms í Sovétríkjunum háskólaárið 1984-85.
Umsóknum skal komið til menntamálaráðuneytisins, Hverfisgötu 6,
101 Reykjavík, fyrir 1. desember 1983 og fylgi staðfest afrit prófskír-
teina ásamt meðmælum. - Umsóknareyðublöð fást í ráöuneytinu.
Menntamálaráðuneytið
13. október 1983.
Engil-
saxnesku
króníkumar
The Anglo-Saxon Chronicles.
Translated and collatd by Anne Sa-
vage. Phoebe Philips/Heinemann
1982.
Handritin að Engil-saxnesku
króníkunni eru sjö auk tveggja
brota. Króníkan hefst með frá-
sögnum af atburðum á Bretlands-
eyjum fyrir komu Rómerja til
landsins, samantekt króníkunnar
hófst á 9. öld og var haldið áfram
þar til öld eftir orrustuna við
Stafnfurðubryggjur, Hastings.
Samantektin hófst þegar England
var enn skipt upp í nokkur kon-
ungsríki, latínan var þá mál hinna
skriftlærðu, eða klerkanna. Krón-
íkan var rituð á engilsaxnesku, sem
var þá fremur óvenjulegt, frskir
annálar og fyrstu rússnesku krón-
íkurnar voru ritaðar á móðurmá-
linu um þetta leyti. Króníkan nær
fram á miðja 12. öld og þótt latínu-
notkun hæfist aftur í auknum mæli
á Englandi eftir valdatöku Nor-
manna, þá var króníkan áfram
skrifuð á móðurmálinu.
Á níundu öldinni hafði latínu-
kunnáttu farið aftur á Englandi og
því var nauðsynlegt að nota móð-
urmálið sem ritmál. Þýðing fræði-
rita á forn-ensku og notkun þess
máls sem ritmálsm, hafði ekki litla
þýðingu fyrir þróun enskunnar.
Menn vita ekki ástæðuna fyrir
því að tekið var að setja saman
króníkuna. Alfred konungur, sem
ríkti 871-899 átti frumkvæði að
þýðingum á ensku og var hvata-
maður að aukinni fræðslu, en þess
er hvergi getið að hann hafi átt
nokkurn hlut að samantekt króník-
unnar.
Talið er að munkar ef til vill í
Winchester hafi tekið að rita ann-
ála á ensku. Annállinn hefst með
fæðingu Krists. Þeir notuðu fyrri
tíma heimildir svo sem Kirkjusögu
Beda. Þessi iðja var stunduð í
nokkrum klaustrum. Króníkurnar
eru fjórar og þrjú handrit voru
skrifuð eftir þeim og tvö brot. Það
má vel vera að fleiri handrit hafi
verið til að króníkunni, en þau eru
glötuð.
Vegna fjölda handrita, nefna
höfundar þessa samræmda texta
sem hér er gefinn út, Engil-
saxnesku króníkurnar- í flt. en oft-
ast er eint. notuð.
Stjórnmál og stjórn landa og
Iandshluta er mjög umfjallaður í
króníkunum, en þar er einnig að
finna frásagnir um nærtækari efni,
sem snertu höfundana beint. Frá-
sagnir um atburði í næsta nágrenni
eða í klaustri höfundar eða hö-
funda glæða króníkuna lífi, lýsing-
ar á hörðum vetri, slæmri uppskeru
eða frásögn af leigu landskika
tengja frásögnina samtíðinni.
Utgefendur fella króníkurnar
saman í einn heildartexta. Málfarið
hefur verið sniðið að nútíma notk-
un máls. í bókarlok er bóksskrá um
hesltu Iykilverkum króníkuna.
Mikill fjöldi mynda er prentaður í
texta og ýtarlegar skýringar fylgja.
Þetta er mjög smekklega útgefin
bók, fagurlega skreytt samtíma
myndum og bókaskrauti.
Þegar komið er af vegum með
bundnu slitlagi tekur tíma
að venjast breyttum aðstæðum
í ( { FÖRUM VARLEGA!
SÖLUSKATTUR
Viöurlög falla á söluskatt fyrir september
mánuð 1983, hafi hann ekki verið greiddur í
síðasta lagi 25. þ.m.
Viðurlög eru 4% af vangreiddum söluskatti
fyrir hvern byrjaðan virkan dag eftir eindaga
uns þau eru orðin 20%, en síðan eru viður-
lögin 5% til viðbótar fyrir hvern byrjaðan
mánuð, talið frá og með 16. nóvember.
Fjármálaráðuneytið,
17. október 1983.
Siglufjarðarbær
óskar eftir að ráða fólk til eftirtalinna starfa:
1. Starfsmaður við Sundhöll Siglufjarðar.
Vinna hefjist um miðjan nóvember n.k. Um-
sóknarfrestur til 5. nóv. n.k.
2. Skrifstofumaður við bókhaldsdeild á
bæjarskrifstofum. Vinna hefjist um miðjan
desember n.k. Umsóknarfrestur til 15. nóv.
Laun eru greidd samkvæmt samningum
Starfsmannafélags Siglufjarðar.
Nánari upplýsingar veitir undirritaður.
Bæjarstjórinn á Siglufirði.
•, Blikkiðjan
Iðnbúð 3, Garðabæ
Onnumst þakrennusmiði og
uppsetningu — ennfremur
hverskonar blikksmíði.
Gerum föst verðtilboð
SIMI 46711
ÆFAB
Landsþing
ÆFAB
Æskulýðsfylking AB heldur landsþing sitt helgina 22.-23. októ-
ber að Hverfisgötu 105. Höfuðverkefni þingsins er að ræða um
starf ÆFAB að friðarmálum og um baráttuna gegn ríkis-
stjórninni og fyrir sósíalisma. Störf landsþingsins munu að
verulegu leyti fara fram í starfshópum.
Landsþingið er opið öllum félögum ÆFAB. Auk þess er
flokksmönnum AB og stuðningsmönnum flokksins heimilt að
sitja þingið með málfrelsi og tillögurétti.
Dagskrá
Laugardagur 22. okt.
10:30 Setning, kosning
starfsmanna þingsins o.fl.
11:00 Skýrsla fráfarandi
stjórnar. Reikningar
samtakanna. Umræður
umstarfiðáliðnuári.
12:00 Matarhlé (snari á
staðnum).
13:00 Inngangserindifyrir
hópstarf:
a) Skipulagsmál,
starfsáætlun;
b) Almenn
stjórnmálaályktun;
c) Utanríkis- og friðarmál;
Framsögurfyriröðrum
tillögum.
14:00 Hópstarf:
Áætlað er að hafa þrjá
meginhóþa (sbr. a, b og c
hér áöur) en þeir munu
síðan skipta sér upp í
undirhópa eftir efnum og
ástæðum.
18:30 Hópstarfi frestað.
20:30 Samverukvöld.
Sunnudagur 23. okt.
10:30 Framhaldið hópstarfi.
13:00 Matarhlé (snarl á
staðnum).
14:00 Ávarp:SvavarGestsson,
formaðurAbl. Hópar
kynnatillögursínar.
Umræöur.
Afgreiðslamála.
17:00 Kosning nýrrar stjórnar.
Þingslit.
Tímasetningar eru bara rammi. Þær geta breyst.
Tillögur verða ekki teknar til afgreiðslu á þinginu, nema þær séu kynntar á
laugardeginum eða/og hafi verið ræddar í hópum.
Tillögur um breytingar á reglugerð um ÆFAB hafa verið kynntar í fréttabréfi
samtakanna.
Ath.: