Þjóðviljinn - 28.10.1983, Blaðsíða 18

Þjóðviljinn - 28.10.1983, Blaðsíða 18
18 gÍÐA - ÞJÓÐVlLJlNN Fftstudagúr 28. októbér 1983 Skýrslutæknifélag íslands undir smásjánni BLAÐAUKI Félagáhugafólks um tölvur Skýrslutæknifélag íslands. Hvaöafyrirbæri skyldi þaö nú vera? Hverjir eru í svoleiöis félagi? Hvaöa merkingu hefur hugtakiö „skýrslutækni"?- Blaðamaöur Þjóðviljans spurði sjálfan sig þessara spurninga þegar hann sá á einhverjum staðtilkynningufrá Skýrslutæknifélagi íslands. Þar sem hann grunaöi aö í þvífélagi væru áhugamenn um tölvur gekk hann á fund tveggja forsvarsmannaþess, þeirra Kolbrúnar Þórhallsdóttur framkvæmdastjóra og Sigurjóns Péturssonar formannsfélagsins. Þauvoru fyrst spurö hvers vegna félag áhugamanna og starfsmanna við tölvur héti svo ógagnsæju nafni? „Þegar Skýrslutæknifélag íslands varstofnaö íyrir 15 árum haföi orö- iö tölva ekki unnið sér þann sess í málinu sem þaö hefur í dag. Fyrstu IBM tölvurnar komu til Islands árið 1964 og fengu í upphafi nöfn eins og reikniheili, rafreiknir og rafeindareiknivél. Þá var mönnum á þessum árum tamt aö nota orðið Kolbrún Þórhallsdóttir og Sigurjón Pétursson: Mikið um að vera hjá áhugafólki um tölvur i - Ljósm. Magnús. næsta mánuði. skýrslugerö og skýrsluvinnsla yfir þaö sem í dag nefnist gagnavinnsla eöa tölvuvinnsla. Ætli félagið okk- ar héti ekki Töluvtæknifélag ís- lands eöa eitthvaö þess háttar ef þaö hefði verið stofnaö nokkrum árum síðar? Annars erum viö á- kveðin í því að breyta um nafn á félaginu innan tíðar og höfum aug- lýst eftir tillögum aö betra nafni“. Og hverjir eru í þessu ágæta fé- lagi? „Það eru fyrst og fremst þeir sem vinna við tölvur, eins og t.d. forrit- arar, kefisfræðingar, stjórnendur í tölvuvæddum fyrirtækjum og aðrir Benco í Bolholti 4: Ný gerð NEC tölva Fyrirtækið Benco, Bolholti 4, er þcssa dagana að setja hér á markað ýmsar nýjungar í tölvutækni. Þar skal fyrst nefna hcimilistölvuna NEC APC, en það er vél sem vakið hefur athygli erlendis. Þessi tölva er byggð upp í kringum -16-bita ör- tölvuna 8086 og er með 128 KB not- endaminni og tvcim átta tommu diskdrifum. Þá er í þessari tölvu klukka og dagatai, órafmagnsháö minni, hljóðgervill ög fleira. Verð- ið fram til áramóta verður um 92.000 krónur, en það cr sérstakl kynningarverð. Þá er að koma á markað nýr Nýja NEC APC tölvan sem nú er að koma á íslenskan markað. Við hana er tengdur nýi NEC prentarinn. prentari, NEC 2000 sem þykir afar fullkominn, en. auk þess flytur Benco inn aðra NEC prentara, sem gefist hafa mjög vel. I þá er hægt að fá yfir 180 leturgerðir fyrir erlend tungumál auk þriggja ís- lenskra leturgerða með 128 tákn- um. Prentararnir kosta frá 34.000 krpnum. Síðast en ekki síst kemur hér á markað splunkuný heimilistölva, NEC PC-8201. Hér er um afar litla tölvu að ræða, sem hæglega má koma fyrir í skjalatösku enda þótt hún sé með skermi! Ensjónersögu ríkari - öll þessi undratæki eru til sýnis og sölu hjá Benco, Bolholti 4, s. 21945 og 84077. Hvað kostar að tölvuvæða fyrirtækið? VÉLBÚNAÐUR PANDA 64 tvö diskdrif, skjár og prentari, frá Kr. 69.200.- INNBYGGT ER: • 64k RAM • 20k ROM • 80 stafir í línu • tölulyklaborð prentarakort klukka DOS/6502 CP/M-Z80 HUGBÚNAÐUR ÍSLENSKUR: Viðskiptamannabókhald kr. 12.000,- fjárhagsbókhald kr. 12.000,- lagerbókhald kr. 12.000,- launaforrit kr. 12.000,- aðflutningsforrit kr. 10.000,- verðútreikningsforrit J<r. 10.000,- ERLENDUR: áætlanagerð — MULTIPLAN ritvinnsla — Gutenberg áætlanagerð. ritvinnsla — Incredible JACK of all trades skráagerð Hafið samband upplýsinga. við sölumenn okkar og leitið |a Pálmason hf* Ármúla 36 - Sími 82466 þeir sem tengjast tölvuvinnslu með einum eða öðrum hætti. Þá eru í okkar félagi áhugamenn um tölvur enda þótt þeir starfi ekki við þær og hefur á síðustu misserum farið í vöxt að slíkir menn sæki inn í fé- lagið. Núna eru félagsmenn orðnir um 560 talsins og ferört fjölgandi". Tilgangur félagsins? „Hann er að stuðla að hagrænum vinnubrögðum við gagnavinnslu í hvers konar rekstri og við tækni- og vísindastörf. Frá upphafi hefur fé- lagið gengist fyrir ráðstefnum, sýn- ingum, félagsfundum, útgáfu frétt- abréfsins Tölvumál frá 1976 og um leið miðlun upplýsinga um það nýj- asta í tölvutækninni á hverjum tíma. Þar hefur þróunin orðið svo hröð að vart er hönd á festandi og hin nýja tækni rutt sér til rúms á flestum sviðum þjóðlífsins". Þið tókuð þátt í norrænni ráð- stefnu í haust. Er samstarf mikið við systurfélög á Norðurlöndun- um? „Já, það er óhætt að segja að það sé allmikið. Við gerðumst aðilar að sambandi annarra skýrslutæknifé- laga á Norðurlöndum í fyrra og ber það nafnið Nordisk Dataunion (NDU). Dagana 15. og 16. sept- ember hélt þetta norræna samband ráðstefnu um tölvumál og menntun og tókst hún í alla staði mjög vel. Þar komu um 130 manns úr menntakerfi Norðurlandanna svo og áhugamenn um þau mái. Þarna héldu 10 fyrirlesarar erindi um al- menna tölvukennslu í skólakerf- inu“. Og fleira er á döfinni af því tagi? „í næsta mánuði verður mikið að gera hjá okkur. Dagana 10.-16. nóvember efna Skýrslutæknifélag íslands og Stjórnunarfélag íslands til sýningar undir heitinu „Skrif- stofa framtíðarinnar". Þar verða kynntar nýjungar á tölvum og hug- búnaði svo og skrifstofuhúsgögn og áhöld hvers konar og tæki fyrir nú- tíma og framtíðar skrifstofur. Sýn- ingin verður í Húsgagnahöllinni við Bíldshöfða og þar munu 22 fyr- irtæki sýna vörur sínar. í tengslum við þessa sýningu verður nám- stefna þar sem 6 fyrirlesarar, þar af 3 frá íslandi, ntunu fjalla um það nýjasta í tölvutækninni. Eins og nafn sýningarinnar ber með sér er ætlunin að þar verði framtíðarblær á hlutunum og reynt að skyggnast inn í þróun næstu ára." Er þessi sýning einnig samnor- ræn? „Já, hún er það, því að hún er aðeins einn liðurinn af mörgum í norrænni upplýsingaviku dagana segja þau Kolbrún Þórhallsdóttir og Sigurjón Pétursson í stuttu spjalli 14.-20. nóvember um tölvur. Það er norræna sambandið NDU sem ákvað að árlega skyldu aðildarfé- lögin gangast fyrir upplýsingastarf- semi um tölvumál í eina viku. Auk Sýningarinnar sem við áður nefnd- um hefur félagið beitt sér fyrir sýn- ingu á BBC þáttum um tölvur í sjónvarpinu aó undanförnu, skipu- lagt greinaskrif um tölvur í blöð og tímarit, gert kynningardagskrár fyrir skóla og fleira í þeim dúr. Er Jón Erlendsson forstöðumaður Upplýsingaþjónustu Rannsóknar- ráðs formaóur nefndarinnar og hefur hann haft veg og vanda aó þessum aðgerðum". Að síðustu langar okkur að spyrja: Erum vér mörlandar illa undir tölvubyltinguna búnir? „Sannleikurinn er sá að við ís- lendingar erum fyrir löngu komnir á bólakaf í tölvubyltinguna og hún hefur þegar sett óafmáanleg spor í okkar þjóðfélag. Sjálfsagt erum við háðari tölvutækninni en okkur sjálf grunar. Varðandi spurning- una sjálfa verður að segjast eins og er aó menntunarlega erum við allvel undir þessa nýju tækni búnir. Auðvitað þarf að stórauka kennslu á tölvur í íslensku skólakerfi og það verður eflaust gert á næstu árum, en aðalatriðið er það að menntunarstig íslendinga er það hátt að við eigum auðveldara með að aðlaga okkur þessari nýju tækni en margar aðrar þjóðir. Vió höfum ákveðna undirstöÓumenntun, hver einasti einn, sem létt verk er að byggja ofan á eftir því sem þörf er á. Erlendis, til dæmis víða í Banda- ríkjunum þar sem tölvuvæðingin skall snögglega yfir, voru stórir hópar manna illa undir breyting- arnar búnir. Afleiðingarnar voru uppsagnir og atvinnuleysi stórra þjóðfélagshópa. Sem betur fer ætti slíkt ekki að henda hér á landi ef rétt er að málum staðið", sögðu þau Kolbrún Þórhallsdóttir og Sig- urjón Pétursson hjá Skýrslutækni- félagi íslands. -v. Vector Þessi fjölhæfa! □ I28K minni (stækkanlegt í 256K) □ Tvær örtölvur: 8 bita Z80B og 16 bita 8088 □ Stýrikerfi CP/M-86, MS-DOS og CP/M-80 □ íslenskir stafir skv. staðli □ Fjölnotendakerfi með LINC- Network □ 5, 10 eða 36MB innbyggðir Winchester diskar □ Urval prentara □ Hugbúnaður: Fjárhagsbókhald, viðskipta- mannabókhald, birgðabók- hald, sölunótukerfi, tollskjala- kerfi ásamt verðútreikn- ingum, launabókhald, gjald- endabókhald f. sveitarfélög, ritvinnsla, áætlanagerð, fél- agabókhald (ASÍ) o.fl. Auk okkar býður Hagtala hf. hug- búnað fyrir Vector tölvur. □ Fjölhæfustu tölvurnar á markaðnum! MICRO Síðumúla 8 — Símar 83040 /83319

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.