Þjóðviljinn - 03.11.1983, Blaðsíða 8

Þjóðviljinn - 03.11.1983, Blaðsíða 8
í 8 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 3. nóvember 1983 Fimmtudagur 3. nóvember 1983 ÞJOÐVILJINN - SÍÐA 9 Milli áranna 1962-1983 varð heildaraukning verslunarhúsnæðis í Reykjavík 120%. Flatarmál verslanabygginga jókst úr nálega 150 þús. fermetrum í um 330 þús. fermetra. Samkvæmt nýjustu spám Borgarskipulags Reykjavíkurog Þróunarstof nunar er áætlað að verslunarrými í Reykjavík aukist í um 400 þús. fermetra árið 1995. Miðað við útþenslu verslunarbygginga á síðustu árum og þeim áætlunum sem nú eru uppi um nýja stórmarkaði og verslunarsamsteypur í Kringlumýri og víðar í borgarlandinu telja menn að 400 þús. fermetrum verði náð mun fyrr en áætlað var. Fjárfesting í verslunarhöllum sé nú komin út í algera vitleysu þar sem fermetrarými á hvern íbúa hér í Reykjavík er þegar orðið langt fram yfir það sem þykir eðlilegt í sambærilegum borgum erlendis. Kaupmannasamtök íslands hafa varað við þessari gegndarlausu uppbyggingu verslanahalla sem þeir segja enga þörffyrir. „Ég er hræddur um að það stefni í algjört óefni með svo mikilli fjárfestingu í verslun. Það er okkur kaupmönnum áhyggjuefni hversu gífurlega hefur bæst við af verslunum, sérstaklega matvöruverslunum nú á síðustu tímum og er enn að bætast við“, sagði Sigurður E. Haraldsson formaður Kaupmannasamtaka ísiands í samtali við Þjóðviljann á dögunum. Langt umfram allarspár Á síðustu tveimur áratugum hefur verslunarrými í Reykjavfk aukist að meðaltali um 9 þús. fermetra á ári. í spá aðalskipulags Reykjavíkur frá 1967 var gert ráð fyrir að verslunarrými í borginni yrði á þessu ári milli 160-205 þús. ferm. og í spá frá Hagvangi frá 1974 var spáð að verslunarrýmið í ár yrði um 273 þús. ferm. en eins og áður sagði tekur verslun í Reykj avík yfir 330 þús ferm. á þessu ári. 200 m I 1979 1980 1981 1982 Nærri fjórir fermetrar á hvern borgarbúa í verslunar- rými Verslunar- og skrifstofuhallir þjóta upp I beinu samræmi við stöplaritið hér á síðunni. Mynd - eik. 450 400 350 300 250 200 150 100 / / / /' / / / /' / / / / ■/ Y / 4 ' Y'S' ' /• í ^ S «4 // yy : P * 5 196062 '65 '70 '75 '80 '85 '90 '95 98 2000 Þessi mynd sýnir skýrt þá aukningu sem orðið hefurá verslunarhúsnæði í Reykjavík áárunum 1962-80 ásamt spám þriggja opinberra stofnana um þróunina í þessum efnum fram til 1998. Aukningin sem verður árið 1976 er vegna þess að þá var tekin upp ný aðferð við skráningu á verslunarhúsnæði sem gefur raunsærri mynd af stöðunni hverju sinni en áður var. Bakslagið sem verður árið 1979 er vegna þess að þá lagði vinstri stjórríin þáverandi á nýjan skatt á verslunar- og skrifstofuhúsnæði og er víst að margir kaupahéðnar hafa fengið skráningu á notkun húsakynna sinna breytt vegna þessarar skattlagningar. (Línuritið er úr skýrslu Borgarskipulags Reykjavíkur frá 1982 um verslunarkönnun íRvík.) Ar Gífurleg fjárfesting í skrifstofum og verslun Eftir 1980 hefur mun meira fjármagni verið veitt til uppbyggingar verslunarhalia og skrifstofubákns en mesta stóriðnaðar landsmanna, fiskvinnslunnar, þrátt fyrir að í • sjávarútvegi og fiskvinnslu hafi áttsérstaðgeysimikil - uppbygging á síðustu árurn. Eins og sést á súluritinu og tölunum hér að neðan sem fengnar eru úr þjóðhagsskýrslum hefur framlag til uppbyggingar sjávarútvegs/fiskvinnslu dregist saman miðað við fast verðlag á síðustu árum á sama tíma og geysileg fjárfesting hefur átt sér stað í verslunar- og skrifstofuhöllum og sér engan veginn fyrir endann á þeirri þróun. Verslun/skrifstofur Vinnsla sjávarafurða Árið 1979 154 miljónir 155 miljónir Árið 1980 155 miljónir 144 miljónir Árið 1981 177 miljónir 147 miljónir Árið 1982 221 miljón 148 miljónir Helmingi hærra en erlendis Til að skýra betur út þessar tölur jafngildir gólfflatarmál verslunarhúsnæðis í Reykjavík í dag því að 3.9 fermetrar verslunar séu á hvern borgarbúa. Árið 1981 voru 2.8 fermetrar á hvern borgarbúa 3.1 árið 1976 og2.0árið 1962. Fermetrafjöldi verslunarrýmis miðað við íbúa í Reykjavík hefur því nálega tvöfaldast á þessum árum. Til samanburðar má geta þess að erlendis er talið eðlilegt að um 2 fermetrar verslunarrýmis séu á hvern íbúa í borgum á stærð við Reykjavík. Samkvæmt gögnum sem kaupmannasamtökin hérlendis hafa birt þá var verslunarrými í Álaborg árið 1978tæplega300þús. ferm. eníborginni bjuggu þá um 155 þúsund manns. Það jafngildir um 1.93 fermetra á hvern íbúa. Samkvæmt áætlun þarlendra yfirvalda er ráðgert að sambærileg tala árið 1990 verði 2.05. Hlutfallsleg fækkun starfsfólks En hvað þá um starfsfólk í verslun, hefur því ekki snarfjölgað á síðustu árum? Samkvænit upplýsingum í riti Borgarskipulags Reykjavíkurfrá 1981 um verslunarkönnun í höfuðborginni, þá störfuðu um 16.9% borgarbúa við verslun árið 1963. Þeim hafði hins vegar fækkað niðurí 16.6% árið 1979, enáöllum áttunda áratugnum varð nær engin fjölgun á tölu borgarbúa. í áðurnefndri könnun kom m.a. fram að verslunarfyrirtækjum í borginni fjölgaði um 36% á árunum 1971-1979, eða úr 1057 í 1437. Nær öll fjölgunin varð í heildsölum en slíkum fyrirtækjum fjölgaði úr 435 í 722 á þessum árum en smásöluverslunum úr 622 í 715. Heildsölufyrirtæki voru þar af leiðandi orðin fleiri en smásölufyrirtæki í borginni á miðjuári 1977. Gífurleg viðbót næstuár En hvar kemur öll sú viðbót verslunarrýmis bæði í Reykjavík og í nágrannasveitarfélögunum sem gert er ráð fyrir á næstu árum? Nokkrir stórmarkaðir hafa risið í nágrenni Reykjavíkur nú á síðustu misserum og um þessar mundir er verið að taka í notkun stórmarkað í Holtagörðum við Sundahöfn. Þá hefur skipulagsnefnd Reykjavíkurborgar heimilað Hagkaupum að reisa 20 þús. fermetra stórmarkað og verslunarhöll í nýj a miðbænum í Kringlumýri og Víðir hefur heimild til að byggja stórmarkað í Mjóddinni. Hér eru þegar upptaldir hátt í 40 þús. fermetrar í hreinni viðbót við verslunarrými nú á síðustu mánuðum og það sem samþykkt hefur verið af yfirvöldum. Nánari grein verður gerð fyrir stórmarkaðsmálum í Reykjavík og víðar um land og Kringlumýrarbyggðinni í næstu tölublöðum Þjóðviljans. í Kópavogi eru hugmyndir uppi um að auka verslunarrými um nálega 5000 fermetra til næstu aldamóta. í nýju miðbæjarskipulagi Hafnarfjarðar er gert ráð fyrir 2.500 ferm. viðbót í verslunarrými. í Garðabæ er talað um 3000-5000 ferm. í viðbót til næstu aldamóta og á Seltj arnarnesi var nýlega opnaður nýr stórmarkaður. Enginn fjárskortur Það er kannski ekki að undra þótt fleiri en félagar í Kaupmannasamtökunum séum uggandi vegna þessarar gríðarlegu viðbótar í verslunarrými sem gert er ráð fyrir á næstunni. Þegarer verslunarrými á höfuðborgarsvæðinu um tvöfalt meira á hvern íbúa en þekkist í stórborgum erlendis og ekkert lát virðist á nýj um byggingum. Meðan þjóðin er látin herða sultarólina samkvæmt lögskipaðri tilskipun ríkisvaldsins, virðist vera til ótakmarkað fjármagn í öllum sjóðum þegar einhverjum dettur í hug að byggja nýja verslunarhöll. -lg- I I I I I i i

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.