Þjóðviljinn - 03.11.1983, Qupperneq 10

Þjóðviljinn - 03.11.1983, Qupperneq 10
10 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 3. nóvember 1983 Minning________________ Magnús Þorgeirsson Miðvikudaginn 26. október s.l. lést Magnús Þorgeirsson, fyrrver- andi forstjóri Verslunarinnar Pfaff í Reykjavík, 81 árs að aldri. Magnús var fæddur í Keflavík 23. janúar 1902, en í Reykjavík ólst hann upp og í Reykjavík vann hann sitt lífsstarf. Á barnsaldri var hann sendur í sveit, í Hraunkot í Þing- vallasveit. Þar kynntist hann harðri lífsbaráttu og mikilli fátækt en jafn- framt góðu fólki. í Reykjavík urðu störf Magnúsar tengd verzlun. Fyrst var hann sendisveinn, síðan afgreiðslumaður og næst verzl- unarstjóri. Þannig fékk Magnús góða reynslu af verzlunarstörfum, sem starfsmaður annarra, þar til hann hóf sinn eigin 'rekstur. Árið 1929 rekur Magnús orðið umtals- verða sjálfstæða verzlun, og það ár selur hann fyrstu Pfaff- saumavélina. Verzlunin Pfaff í Reykjavík, sem Magnús Þorgeirsson stofnaði og vann upp stig af stigi, og gerði að landsþekktu og traustu fyrirtæki, er nú, undir stjórn sonar Magnús- ar, Kristmanns, eitt af stærstu verzlunarfyrirtækjum í landinu. Sá þáttur í lífi Magnúsar Þor- geirssonar, sem tengdur er verzlunar- og viðskiptastörfum hans, er um margt býsna merki- legur. Um hann mun ég ekki fjalla og allra sízt í þessum fáu minning- arorðum. Eitt er mér þó ofarlega í huga varðandi kaupmannsþátt Magnús- ar, en það er sú almenna viður- kenning og það traust, sem hann ávann sér hjá hinum almenna við- skiptamanni og sá mikli vina- og kunningjafjöldi sem hann eignað- ist í sambandi við starfið. Að byrja með tvær hendur tóm- ar eigin verzlunarrekstur rétt upp úr fyrri heimsstyrjöldinni og skila af sér Verzluninni Pfaff eins og hún er nú, er vissulega afrek. En hitt er þó ennþá meira afrek í mínum augum, að hafa á sama tíma fengið þá viðurkenningu karla og kvenna um allt land „að örugglega megi treysta loforðum hans Magnúsar í Pfaff“ og „að þjónusta Pfaff við sína viðskiptavini bregðist aldrei". Persónulega heyrði ég og sá þessa viðurkenningu, en síðar átti ég eftir að kynnast því, að Magnús í Pfaff virtist enga óvildarmenn eiga, en hins vegar ótölulegan fjölda Lántökuheimild Stór hluti þess fjár sem Lána- sjóði íslenskra námsmanna er ætl- að á fjárlögum fyrir næsta ár er fólginn í lánt ikuheiiniliíum, segir í ályktun stjómar SHÍ m fjárlaga- frumvarp næsta árs,þar sem mót- mælt er niðurskurði til LÍN. Lántökuheimild í stað beinnar fjárveitingar er einungis til að auka vandamál sjóðsins því þannig kem- ur LÍN seinna til með að standa undir sér þegar sífellt er aukið á skulda og vaxtabyrðina. Á niðurskurðartímum sem nú telur SHÍ enn brýnna en áður að tryggt sé jafnrétti til náms. Skerð- ing til LÍN felur einungis í sér að einstaklingar sem ekki eiga efnaða að verða að hverfa frá námi. SHÍ telur kjör láglaunafólks slík að ekki sé rétt að skerða þau enn frekar með þessum hætti. F. 23. 1. 1909 — D. 26. 10. 1983 vina og kunningja. Eg kynntist Magnúsi fyrst persónulega rétt upp úr 1950. Vinátta okkar stóð því í rúm 30 ár. Magnús Þorgeirsson var um margt vel gerður maður. í mínum huga var hann að mörgu leyti dæmigerður aldamóta-maður. Fullur af orku og framfaraþrá. Hann sá möguleikana og vildi brjótast áfram og koma hlutunum í verk. Þrátt fyrir fátækt og um- komuleysi á íslandi á árunum 1904 til 1918, þá var framfarahugur í öllum þeim, sem eitthvað gátu hreyft sig. Á sviði verzlunar og viðskipta voru þessir möguleikar margir. Á þessum árum var sjálfs-nám og lífsreynsla aðalsmerki margra góðra manna. Magnús var ekki langskólamað- ur. Hann hafði sáralitla skóla- menntun. Þó var Magnús að mínu mati gagn-menntaður maður. Hann var vel lesinn, fjölfróður, hafði yndi af . skáldskap, enda góður hagyrðing- ur sjálfur. Magnús var góður mála- , maður og betri á því sviði en ýmsir j þeir, sem nú veifa háum skólapróf- um. Fyrir mig var hann fróð- leiksbrunnur um Reykjavík, um menn þar og byggðaþróun, enda hafði hann vaxið upp með Reykja- vík og tekið beinan þátt í þeim stökkbreytingum, sem hér hafa orðið s.l. 60-70 ár. Magnús var mikill áhugamaður um íþróttir. Á yngri árum stundaði hann fimleika og hann var fyrsti fimleikameistari Islands. Stangveiðimaður var Magnús góður. Flugu kastaði hann mjúkt og lipurlega eins og sönnum íþróttamanni sæmdi. Eftirlifandi kona Magnúsar er Ingibjörg Jónsdóttir Kaldal. Synir þeirra tveir eru: Kristmann, nú for- stjóri Pfaff, og Leifur, fram- kvæmdastjóri flugrekstrarsviðs Flugleiða. Vinátta okkar Magnúsar var góð. Hún varð þó ennþá nánari fyrir það að kona mín og Ingibjörg kona Magnúsar urðu strax miklar vinkonur. Nú við leiðarlok Magnúsar vilj- um við Fjóla færa þér, Ingibjörg, sérstakar þakkir fyrir vinsemd þína og góðar stundir sem við áttum með ykkur Magnúsi í Hvamminum við Norðurá. Við Fjóla vottum þér, Ingibjörg, og sonum ykkar, og öllum aðstandendum okkar dýpstu samúð. Ég kveð svo vin minn Magnús með þökk fyrir 30 ára samfylgd. Við félagarnir frá kaffiborðinu í Pfaff kveðj um góðan vin og félaga. Við minnumst glaðværðar og gamanyrða, skemmtilegra ferða- laga og eftirminnilegra heimsókna í Hvamminn góða við Norðurá. I okkar hópi eru nánustu vinir og trúnaðarmenn Magnúsar í áratugi. Aliir munum við geyma minn- inguna um góðan dreng og traustan félaga. Við vottum Ingibjörgu og sonum þeirra hjóna, Leifi og Kristmanni, og öllum aðstandendum einlæga samúð. Lúðvík Jósepsson Eggjadreifingarstöð: Hagkvæm neytendum AHmjög er nú um það deilt, hvort koma eigi upp eggjadreifing- arstöð á Reykjavíkursvæðinu eða ekki. Framleiðsluráð hefur véitt Sambandi eggjaframleiðenda heildsöluleyfi fullnægi það eðli- legum kröfum um góða vöru og þjónustu og leggur jafnframt áherslu á að framleiðendur standi saman um rekstur stöðvarinnar. Ráðgjafafyrirtækið Hagvangur hefur gert könnun á hagkvæmni stofnunar og reksturs dreifingar- stöðvar. Hún bendir til þess, að sögn Framleiðsluráðs, að kostnað- ur við aðflutninga, flokkun og dreifingu eggja verði 3% af heildsöluverði en er nú um 10%, sem er inni í verðinu. Eggjaverð ætti því að lækka. Eggjadreifingar- stöð, sem hefur fullkomna gæða- og heilbrigðisskoðun á eggjum, á að tryggja neytendum betri vöru, koma í veg fyrir að gömul og gölluð egg berist á markað, tryggja jafn- ara framboð og draga úr óeðli- legum verðsveiflum. Ekkert hefur komið fram, sem bendir til þess að eggjaframleiðsla sé hagkvæmari á mjög stórum búum en fjölskyldu- búum. Framleiðsluráð kveður sig ekki vera með neinar ráðagerðir um að þrengja sérstaklega kosti stærri bú- anna. Á hinn bóginn þoli eggja- markaðurinn ekki framleiðslu- aukningu umfram það sem unnt er að framleiða á hænsnabúunum nú og því ekki ástæða til að stækka þau. Ekkert ’bendir heldur til þess að dreifingarstöð hækki eggjaverð til bakara og annarra stórfram- leiðenda og staðhæfingar um hækkun brauðaverðs við stofnun dreifingarstöðvar því úr lausu lofti gripnar, segir Framleiðsluráð. - mhg Pjonustusiöa Pjoðviljans Reyking og sala á matvælum Adíói„ Sími 72122 i LO REYKOFNINN HF. \V Skemmuvegi 14 200 Kópavogi Hellusteypan STÉTT Hyrjarhöfða 8. - Sími 86211. XI. ALHLIÐA PÍPULAGNINGAÞJÓNUSTA Sveinbjörn G. Hauksson Pípulagningameistari Simi 46720 Ari Gústavsson Pípulagningam Simi 71577 Nýlagnir Jarðlagnir Viðgerðir Breytingar Hreinsanir VÉLA- OG TÆKJALEIGA Alhliöa véla- og tækjaleiga. Heimsendingar á stærri tækjum. Sláttuvélaleiga. Múrara- og trésmiðaþjónusta, minni háttar múrverk og smíðar. BORTÆKNI SF. Vélaleiga, sími 46980 — 72460, Nýbýlavegi 22, Kópavogi, (Dalbrekkumegin) Steypusögun — Kjarnaborun — Vökvapressa. rt ÁAAJVMVw>*i* ****** a É STEYPUSÖGUN vegg- og gólfsögun VÖKVAPRESSA i múrbrot og fleygun KJARNABORUN fyrir öllum lögnum Tökum aó okkur verkefni um allt land. — Fljót og góó þjónusta. — Þrifaleg umgengni. BORTÆKNI S/F Vélaleiga S: 46980 - 72460. Verkpantanir tri kl. 8—23. TRAKTORSGRÖFUR L0FTPRESSUR SPRENGIVINNA 46297 GEYSIR Bílaleiga Car rental BORGARTÚNI 24 - 105 REYKJAVÍK, ICELAND - TEL. 11015 LIPUR ÞJ0NUSTA VIÐ LANDSBYGGÐINA PÖNTUM - PÖKKUM SENDUM-SÆKJUM TRYGGJUM Leyfið okkur að létta ykkur sporin og losa ykkur við kvabb á vinum og vandamönnum. Ekkert er auðveldara en $lá á þráðinn og afla uppiýsinga. MM Opið frá kl. 9-19 alla virka daga. Símsvari opinn allan sólarhringinn. ^7 JLandsþjónustan s.f. Súðavogi18. S.84490 box 4290 GLUGGAR 0G HURÐIR \vönduð vinna á hagstæðu verði\ Leitið tilboða. UTIHURÐIR Dalshrauni 9, Hf. S. 54595.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.