Þjóðviljinn - 25.11.1983, Page 4
4 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 25. nóvember 1983
DlOÐVIUINN
Málgagn sósíalisma, verkalýðs-
hreyfingar og þjóðfrelsis
Útgefandi: Útgáfufólag Þjóðviljans.
Framkvæmdastjóri: Guðrún Guðmundsdóttir.
Ritstjórar: Árni Bergmann, Einar Karl Haraldsson, Kjartan Olafsson.
Umsjónarmaöur Sunnudagsblaðs: Guðjón Friðriksson.
Auglýsingastjóri: Sigríður H. Sigurbjörnsdóttir.
Afgreiðslustjóri: Baldur Jónasson.
Afgreiðsla: Bára Sigurðardóttir, Kristín Pótursdóttir.
Blaðamenn: Auður Styrkársdóttir, Álfheiður Ingadóttir, Helgi ólafsson, Lúðvík Geirsson,
Magnús H. Gíslason, Ólafur Gíslason, óskar Guðmundsson, Sigurdór Sigurdórsson,
Valþór Hlöðversson.
íþróttafróttaritari: Víðir Sigurðsson.
Utlit og hönnun: Guðjón Sveinbjörnsson, Þröstur Haraldsson.
Ljósmyndir: Einar Karlsson, Magnús Bergmann.
Handrita- og prófarkalestur: Andrea Jónsdóttir, Elías Mar.
Auglýsingar: Áslaug Jóhannesdóttir, Ólafur Þ. Jónsson,
Skrifstofa: Guðrún Guðvarðardóttir, Jóhannes Harðarson.
Símavarsla: Sigríður Kristjánsdóttir, Margrót Guðmundsdóttir.
Húsmóðir: Bergljót Guðjónsdóttir.
Bílstjóri: Ólöf Sigurðardóttir.
Innheimtumenn: Brynjólfur Vilhjálmsson, Ólafur Björnsson.
Pökkun: Anney B. Sveinsdóttir, Halla Pálsdóttir, Karen Jónsdóttir.
Útkeyrsla, afgreiðsla og auglýsingar:
Síðumúla 6, Reykjavík, sími 81333.
Umbrot og sotning: Prent.
Prentun: Blaðaprent hf.
Sveltur sitjandi kráka
en fljúgandi fœr
Sveltur sitjandi kráka en fljúgandi fær, segir máltækið.
f*að kemur upp í hugann þegar metin eru viðbrögð við
tillögum fiskifræðinga um 200 þúsund tonna hámark þorsk-
afla á næsta ári. Stjórnarliðið lætur eins og það hafi himinn
höndum tekið að fá staðfestingu á nauðsyn kauplækkunar-
stefnu sinnar, og notar mat fiskifræðinga óspart í áróðrinum
um leið og látið er í veðri vaka að hugsanlega verði ekkert
farið eftir því. Minna fer fyrir hugmyndum og tillögum
hvernig hægt sé að bæta veiðiflotanum og þjóðinni upp
minnkandi þorskafla með öðrum úrræðum.
Þjóðviljinn hefur á undanförnum árum margoft gert út-
tekt á möguleikum í sjávarútvegi með viðtölum við vísinda-
menn og útgerðaraðila. t»ar hafa margar stórkostlegar hug-
myndir verið á ferðinni en þeim hefur verið fylgt slælega eftir
bæði af ráðamönnum í sjávarútvegi og í ráðuneyti sjávarút-
vegsmála. Þó er ekki nokkrum vafa undirorpið að ef tekið er
á málum með mannsbrag er hægt að nýta meiri og fjöl-
breyttari sjávarfeng en við höfum gert.
Slógmelta og lifrarmelta eru framleiðsluvörur úr fiski sem
eiga mikla framtíð fyrir sér. Mikil eftirspurn er nú eftir
niðurlagðri lifur. Nú er þessari björg að mestu hent í sjóinn.
Ljóst er að auka má verulega veiðar á gulllaxi, úthafsrækju, I
kola og kolmunna. Tilraunir til þess að þróa þessar veiðar j
hafa verið vanburða hingað til. Það er heldur enginn efi á því |
að með fiskileit innan og utan okkar víðfeðmu fiskveiðilög- !
sögu má beina veiðiflotanum á vannýtt fiskimið og stofna.
íslendingar þurfa einnig að huga að veiðum á alþjóðlegum
hafsvæðum eins og Rockall-miðum, þegar illa árar á heima-
miðum.
Ef allir þeir möguleikar væru nýttir sem hér hafa verið
nefndir og gæði framleiðslu í sjávarútvegi aukin með vand-
aðri vinnubrögðum er ljóst að tímabundið þorskleysi myndi
ekki baga okkur til langframa. Miljarðar króna liggja í van-
nýttum möguleikum í sjávarútvegi, en vanahugsun og úr-
ræðaleysi þeirra manna sem ekkert sjá annað en kauplækk- i
un og niðurskurð hafa tekið útveginum steinbítstak, sem |
raunar er farið að nefna „Steingrímstak“, og hann losnar j
ekki úr. j
- ekh |
Harmleikur en
j
ekki kappleikur
Þjóðþing NATO ríkjanna samþykkja nú eitt af öðru að !
nýjum Evrópuatómvopnum verði komið fyrir á þeirra j
grund. Miljónir manna mótmæla þessum ákvörðunum og
nýjar skoðanakannanir sýna að ekki er meirihluti fyrir þeim '■
meðal kjósenda. Sovétmenn hafa gengið út í Genf og fyrstu
stýriflaugarnar og Pershing II eldflaugarnar eru ýmist á leið- ;
inni eða komnar á áfangastað. Fjölmiðlar lýsa atburðum
eins og um spennandi kappleik sé að ræða og spurningin
standi um það hvort liðið vinnur.
í raun gerist ekki annað en að Bandaríkjastjórn knýr fram j
vilja sinn í því efni að hlaupa enn einn hringinn í kjarnorku- j
vopnakapphlaupinu. Enginn er öruggari um sig fyrir það.
Þjóðir Evrópu hafa verið klofnar í herðar niður. Meiri-
hlutinn á þjóðþingunum er sannfæringarlaus í málinu en
telur sér skylt að standa viðskuldbindingar. Ekki eykst friðu-
rinn og réttlætið í heiminum með nýjum eldflaugum, en
kjarnorkuváin vofir enn ískyggilegri yfir siðmenningunni en
áður.
Friðarhreyfingin hefur kennt miljónum manna um allan
heim að þekkja þá „siðmenningu“ sem undirbýr sín eigin
endalok með upphleðslu kjarnorkuvopna. Þekkingin er það
vopn sem að endingu mun sigra vígbúnaðarsinna í austri og
vestri. Upp af henni sprettur listin sem nú túlkar þverstæð-
urnar í menningu okkar í listaverkum eins og í sjónvarps-
myndinni „The day after“ í Bandaríkjunum og lýsingu PC ,
Jersilds á fjörbrotum deyjandi mannkyns í „Eftir flóðið“
sem Mál og menning hefur gefið út í þýðingu Njarðar P.
Njarðvík.
klippt
Skoðanakannanir
Skoöanakannanir gerast æ vin-
sælli meðal þessarar þrautpíndu
þjóðar. Hagvangur hf. hefur
staðið fyrir viðamikilli könnun og
eru niðurstöðurnar að birtast
þessa dagana, aðallega í Morgun-
blaðinu sem er einn þeirra aðilja
sem kaupa þessa könnun.
Skoðanakannanir eru í sjálfu
sér alltaf hæpnar og þó mun frek-
ar sú list að kunna að lesa í þær.
Spurningar í könnunum geta ver-
ið leiðandi og óljósar og svörin
geta byggst á forsendum sem
ganga þvert á það sem viðkom-
andi aðstandandi könnunarinnar
þykist lesa út. Og túlkanir á
könnunum gefa enn frekari
möguleika til að skilja skoðana-
könnun á marga vegu.
Meirihluti á
móti erlendri
stóriðju
Mogginn rauk upp með fagn-
aðarlátum sl. laugardag og sagði
64.1% telja aukna stóriðju efla
atvinnulífið í fyrirsögn. Aðrar
niðurstöður í skoðanakönnun
hlutafélagsins Hagvangs í stór-
iðjuflokknum voru m.a. þær að
65.5% telji aukningu á stóriðju
stuðla að hagkvæmari nýtingu á
eigin orku, 75.8% telji að meiri
stóriðja skapi möguleika á
auknum gjaldeyristekjum.
Þetta er nú allt saman gott og
blessað og viðbúið að þeir sém
létu framkvæma könnunina geri
einsog Mogginn, að segja yfir-
gnævandi meirihluta þjóðarinnar
hafa mikla trú á stóriðjuþjóðfé-
Iaginu.
Hins vegar lentu önnur svör,
sem benda í þveröfuga átt, ekki í
fyrirsögnum. 49.3% telja að
aukning á stóriðju geri okkur of
háða erlendum aðilum. Þetta er
yfirgnæfandi meirihluti þeirra
sem taka afstöðu. 39.4% svöruðu
spurningunni neitandi en 11.2%
tóku ekki afstöðu.
Á sama veg verður niðurstað-
an úr svari við þessari spurningu:
Telur þú að aukning á stóriðju frá
því sem nú er hafi í för með sér
óhagkvæmar fjárfestingar?
50.8% svöruðu játandi, nei
sögðu aðeins 27.5% og 21.7%
gáfu ekki upp afstöðu sína.
Ef tekin eru svör við tveimur
síðarnefndu spurningunum þá er
yfirgnæfandi meirihluti þjóðar-
innar þeirrar skoðunar að aukin
stóriðja þýði óhagkvæmar fjár-
festingar og að þjóðin verði of
háð erlendum aðilum. Sá meiri-
hluti er því einnig á móti
aukningu stóriðju samkvæmt
þessum svörum. Hitt skal viður-
kennt að allt að eins er hægt að
taka svörin við öðrum spurning-
um um stóriðjuna og túlka einsog
Mogginn gerir í fyrirsögn sem
stuðning þjóðarinnar við stór-
iðju. Og Morgunblaðið hefði
með sama sanni getað sett í fyrir-
sögn: Meirihluti á móti erlendri
stóriðju. Mikill meirihluti þjóð-
arinnar óttast óhagkvæmar fjár-
festingar í stóriðjunni og erlenda
aðila. En sú túlkun þjónaði ekki
hagsmunum Morgunblaðsins.
Bjór, bjór, bjór
Ekki hefði þetta verið íslensk
skoðanakönnun hefði ekki verið
spurt um bjórinn. Einsog fram
hefur komið kosta hinir ýmsu að-
iljar spurningar sem þeir telja sig
hafa hag af að vita svör við. En
hver borgar spurninguna um
bjórinn? Máske eitthvert
heildsöluumboð fyrir þekkta
bjórtegund? í Morgunblaðinu
hefur ekki komið fram hvernig
spurningin um afstöðu til bjórsins
var orðuð. Þannig veit maður
ekki hvort þeir sem gjalda já-
kvæði sitt eiga við að heimila
svokallaðan „frjálsan markað“,
bjórsölu í einkasölu ríkis eða í
verslunum. Þannig að erfitt er að
ráða í raunverulega afstöðu
fólksins. Annað sem hlýtur að
vekja eftirtekt í því máli er mis*
munur á afstöðu eftir aldri þeirra
sem svara. Þannig eru 82.9% í
aldurshópnum 20 til 29 ára fylgj-
andi bjór (að hve miklu leyti veit
enginn) en í aldurshópnum 70 ára
og eldri eru 26.8% fylgjandi
bjórnum.
Hagvangur
og Steingrímur
Frægasta niðurstaða könnun-
arinnar er þó sú sem Steingrímur
Hermannsson kom með á alþingi
í fyrradag og Tíminn flytur í
tveggja hæða fimm dálka fyrir-
sögn í gær: UM 65% FYLGJA
LAUN ASTEFNU RÍKIS-
STJÓRNARINNAR, en Mogg-
inn er ögn hógværari og segir að
þessi prósenta „samþykki launa-
þróun næstu 12 mánaða“.
Þegar DV spurði um sama efni
á dögunum var einfaldlega spurt
hvort viðkomandi væri fylgjandi
eða andvíg(ur) efnahagsaðgerð-
um ríkisstjórnarinnar.
Forstjóri Hagvangs segir í við-
tali við DV í gær „Við spurðum
um þetta sjálfir og ég skýrði for- i
sætisráðherra frá því fyrirfram
og síðan niðurstöðunni og heimil-
aði honum notkun hennar með
þeim hætti sem hann gerði“.
Aumingja ríkisstjórnin; henni
: nægir ekki stuðningur Þjóðhags-
stofnunar, Seðlabankans, Versl-
unarráðsins og þeirra allra, held-
ur þarf hún á svona „lummó'ý
stuðningi fyrirtækis í skoðana-
könnunum að halda.
Ja, tilbúinn?
Spurningin sem gefur stjórn-
armálgögnunum og Steingrími
leyfi til að lýsa yfir yfirgnæfandi
meirihlutafylgi við kjaraskerð-
ingu ríkisstjórnarinnar hljóðaði
hins vegar á þann léiðandi hátt að
SÍS og Verslunarráðið hljóta að
klappa saman höndunum:
„Ef kjaraskerðing getur haft
áhrif til lækkunar á verðbólgu,
ertu þá sjálfur tilbúin eða ekki
tilbúinn að launahækkanir verði
ekki umfram það, sem ríkis-
stjórnin hefur boðað á næstu 12
mánuðum?"
Þegar loksins var komið að
fórnarlömbunum, að skjóta inn
jái og neii, mundi enginn lengur
eftir kjaraskerðingunni í upphafi
spurningarinnar. Og hversu *
mörg prósent þeirra sem svöruðu
vissu hvaða „launahækkanir
ríkisstjórnin hefur boðað á næstu
12 mánuðum“?
-óg
- ekh