Þjóðviljinn - 13.12.1983, Side 1
Þriðjudagur 13. desember 1983 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 11
iprottir
Umsjón: Víðir Sigurösson!
Sævar í
stóru
hlutverki
Sævar Jonsson lék stórt hlut-
verk hjá CS Briigge í belgísku 1.
deildinni í knattspyrnu á sunnu-
daginn er liðið vann góðan
sigur, 2-1, á Anderlecht, Sævar
átti góðan leik og skoraði jöfn-
unarmark liðsins, 1-1, með
skalla.
Pétur Pétursson og félagar í
Antwerpen máttu sætta sig við
jafntefli, 1-1, heima gegn botnliði
Beringen og hafði aðeins fengið 5
stig af síðustu 16 mögulegum. Wat-
erschei gerði jafntefli, 2-2, við Be-
erschot, en efsta liðið, Beveren,
tapaði í fyrsta skipti í vetur, 1-2
fyrir Standard. Beveren hefur þó
26 stig, Seraing 22 og Anderlecht
21 stig.
-VS
Barce-
lona og
United!
Á föstudag var dregið um hvaða
lið skyldu leika saman í 8-liða úr-
slitum Evrópumótanna í knatt-
spyrnu. Útkoman varð þessi:
Erópukeppni
meistaraliöa
Dinamo Minsk - Dynamo Búkarest
Liverpool - Benflca
Rapid Wien - Dundee United
AS Roma - Dynamo Berlin
Evrópukeppni
bikarhafa
Barcelona - Manchester United
Haka - Juventus
Porto - Shaktyor Donetsk
Ujpest Dozsa - Aberdeen
UEFA-bikarinn:
Anderlecht - Spartak Moskva
Nottingham Forest - Sturm Graz
Sparta Prag - Hadjuk Split
Tottenham - Austria Wien
Barcelona- Manch. Utd. erlíklega áhuga-
veröasta viöureignin og hagstætt fyrir United
að eiga heimaleikinn á eftir. í UEFA-
bikarnum er tvöfalt einvígi cnskra og
austurrískra, sýnd veiði en ekki gefin fyrir
Tottenham og Forest. Finnarnir í Haka duttu
aldcilis í lukkupottinn, verölaun fyrir aö
leggja frana og Svíana að velli í fyrstu tveimur
umferöunum er gullnáman Juventus með
Rossi, Platini, Boniek og alla hina frægu
kappana innanborðs. Leikirnir fara fram í
mars.
-VS
Leikur við Als-
írbúana í dag
Islenska karlalandsliðið í
handknattleik fór til Austur-
Þýskalands um helgina og tekur
þar þátt í erfiðu móti í vikunni.
Á morgun verður leikið við A-
lið Austur-Þjóðverja, á fimmtudag
við Pólverja, á föstudag við Tékka
og á laugardag við B-lið Austur-
Þjóðverja.
íslenska liðið er þannig skipað:
Markverðir: Einar Þorvarðarson,
Ellert Vigfússon og Jens Einars-
son. Aðrir leikmenn: Atli Hilmars-
son, Bjarni Guðmundsson, Guð-
mundur Guðmundsson, Hilmar
Sigurgíslason, Jakob Sigurðsson,
Jóhannes Stefánsson, Kristján
Arason, Páll Ólafsson, Sigurður
Gunnarsson, Sigurður Sveinsson,
Steinar Birgisson, Þorbjörn Jens-
son og Þorgils Óttar Mathiesen.
-VS
Viðar heim í frí
Keflvíkingar fá góðan liðs-
auka fyrir þrjá næstu leiki í úr-
valsdeildinni í körfuknattleik.
Viðar Vignisson er á leið heim til
Keflavíkur í jólafrí, en hann
stundar nám í Bandaríkjunum.
Hann leikur þrjá næstu leiki liðs-
ins, gegn ÍR á föstudagskvöldið.
gegn KR 30. desember og gegn
Njarðvík 6. janúar. Mikill styrkur
fyrir Keflvíkinga og aukin vörn
fyrir þá að komast í hóp fjögurra
efstu liða deildarinnar og úr-
slitaleikina um íslandsmeistara-
titilinn.
-VS
Norman Whiteside.
Frá Heimi Bergssyni,
fréttamanni Þjóðvitjans í
Englandi:
Norman Whiteside, norður-
írski táningurinn í liði Manc-
hester United, var settur út úr
liðinu fyrir leikinn gegn
Ipswich á laugardaginn. Hann
sagði í blaðaviðtali á sunnu-
daginn: „Nú er ég reiðubúinn
að fara frá United. Ég hef fram
að þessu ekkert viljað segja
opinberlega en ég er héðan í
frá reiðubúinn til að ræða öll
tilboð." ítalska stóðliðið AC
Milano var reiðubúið að borga
1,5 miljónir punda fyrir þennan
efnilega knattspyrnumann í
sumar og hefur undanfarið
sýnt honum áframhaldandi
áhuga. Það skyldi þó aldrei
fara svo að Whiteside tæki
stöðu Luther Blissett hjá AC
Milano á næstunni?
Framkvæmdastjóri Stoke rekinn:
Whiteside á för-
um frá Man. Utd?
Asakar Joe Fagan!
Frá Heimi Bergssyni, frétta-
manni Þjóðviljans í Englandi:
Richie Barker var rekinn úr stöðu
sinni sem framkvæmdastjóri knatts-
pyrnuliðsins Stoke City á föstudag-
inn. Stoke hefur gengið hroðalega
undanfarið og situr í næst neðsta
sæti 1. deildar. Barker var óspart
gagnrýndur eftir 1-0 tap fyrir Liverp-
ool á Anfield fyrr í vetur en þá lék
Stoke með 10 manna vörn allan
ieikinn. í sjónvarpsviðtali á sunnu-
daginn var Barker sár yfir þessu,
ekki síst í garð Joe Fagan, fram-
kvæmdastjóra Liverpool. „Ummæli
Fagans eftir leikinn á Anfield þar
sem hann gagnrýndi mjög leikað-
ferð átti örugglega drjúgan þátt í að
ég skyldi missa stöðuna," sagði
hann.
Miklar vangaveltur eru á lofti um eft-
irmann Barker. Fjölmargir eru tilnefn-
dir, svo sem John Barnwell, sem var
fyrir stuttu rekinn frá gríska félaginu
ÁEK, Len Ashurst frá Cardiff, Tommy
Docherty (að sjálfsögðu!), Graham
Turner stjóri Shrewsbury og Denis
Smith, sem lék með Stoke um áraraðir
en stýrir nú 4. deildarliði York.
Fer Sunderland til Sunderland? Svo
gæti hæglega farið, Sunderland vantar
reyndan framlínumann og rennir hýru
auga til Alan Sunderland, hins 31 árs
gamla framherja hjá Arsenal.
Liverpool er í þann veginn að festa
kaup á Tony Adcock, miklum marka-
skorara frá 4. deildarliði Colchester
sem hefur gert 17 mörk í vetur. Frá því
verður líklega gengið í vikunni, reiknað
er með að Liverpool verði að punga út
250 þúsund pundum og að uppí það fari
jafnvel einhver leikmanna varaliðs fél-
agsins.
Newcastle hefur sýnt mikinn áhuga á
að ná í skoska landsliðsmanninn Joe
Jordan sem leikur með Verona á Ítalíu.
Jordan er 32 ára gamall og ætlar sér
heim til Bretlandseyja að þessu leiktím-
abili loknu.
Oldham, sem er í fallbaráttu 2.
deildar, hefur beðið um að fá David
Johnson, hinn gamalreynda miðherja
Everton, að láni. Joe Royle, fram-
kvæmdastjóri Oldham, þekkir vel til
hjá Everton, var helsti markaskorari
liðsins fyrir nokkrum árum.
Billy McNeill, framkvæmdastjóri
Manchester City, hefur yfir eyðslufé að
ráða eftir að hafa selt Tommy Caton til
Arsenal. Hann leitar að sterkum mið-
verði í staðinn og hefur augastað á Mike
McCarthy frá Barnsley sem er talinn
einn allrabesti varnarmaður í 2. deild.
Newcastle vill einnig fá hann til að bæta
sína hripleku vörn.
Vestur-þyska knattspyrnan:
Eðvarð náði frá-
bærum árangri
Eðvarð Þ. Eðvarðsson, sund-
kappinn efnilegi frá Njarðvík, stóð
sig frábærlega vel á Norðurlanda-
móti unglinga í sundi sem haldið
var í Svíþjóð um helgina. Eðvarð
setti tvö Islandsmet, synti á 2:12,7
min. í 200 m baksundi og 1:00,71
mín. í 100 m baksundi. Það sem
meira var, hann varð þriðji í fyrri
greininni og annar í þeirri síðar-
nefndu.
Bryndís Ólafsdóttir, Ragnheið-
ur Runólfsdóttir og Ragnar Guð-
mundsson tóku einnig þátt í mót-
inu og stóðu sig vel, urðu yfirleitt í
6.-10. sæti í sínum greinum. Ragn-
heiður setti íslandsmet í 200 m
fjórsundi, 2:28,02 mín, og Ragnar
piltamet í 400 m skriðsundi,
4:17,25 mín. Þá setti Eðvarð pilta-
met í 100 m skriðsundi, 56,01 sek.
-VS
TB vantar miðherja:
Sigurður
hætti við
Sigurður Friðjónsson, marka-
skorarinn mikli úr Þrótti Neskaup-
stað, leikur ekki með TB í færeysku
1. deildinni i knattspyrnu næsta
sumar eins og ráð hafði vcrið fyrir
gert. í staðinn bendir allt til þess að
hann haldi áfram að hrella varnar-
menn 3. dcildarliðanna með Þrótti.
TB leitar logandi ljósi að miðherja
eða miðvallarspilara í staðinn. Þeir
sem áhuga hafa geta snúið sér til
þjálfara liðsins, Þorleifs Más
Friðjónssonar, í síma 97-7547 á
Neskaupstað. -VS
Jóhann
í Þrótt?
Jóhann Þorvarðarson, miðvall-
arspilarinn kunni í knattspyrn-
unni, hefur undanfarið æft með 1.
deildarliði Þróttar. Jóhann til-
kynnti félagaskipti úr Víkingi fyrr í
vetur og það yrði mikill fengur
fyrir Þróttara að næla í hann fyrir
slaginn næsta sumar. -VS
Bayernmisstistig
Keegan bjartsýnn á sigur gegn Liverpool:_
„Ekkert vandamál
að skora mörk...“
Bayern Munchen tókst ekki að
komast að hlið Stuttgart í
vestur-þýsku Bundesligunni í
knattspyrnu um helgina. Stutt-
gart hafði unnið frækinn sigur í
Hamborg í vikunni á undan eins
og áður hefur komið fram og Ba-
yern gerði aðeins jafntefli, 1-1,
við Bayern Uerdingen á laugar-
daginn.
Fortuna Dússeldorf gerði jafn-
ÍS tapaöi sínum þriðja leik í röð í 1.
deild karla í blaki á laugardaginn er
liðið lék við Þrótt í Hagaskólanum.
Áhugaleysi var ríkjandi í röðum
Stúdenta og þeir töpuðu þriðju hrin-
unni 16-14 eftir að hafa komist í 14-7.
Hinar tvær enduðu 15-8 og 15-10.
HK vann nauman sigur á Fram í
hörkuleik, 3-2, í Kópavogi. Fram vann
fyrst 8-15, þá HK 15-10, en síðan Fram
aftur, 13-15. Kópavogsliðið tryggði sér
sigur með því að vinna tvær síðustu
hrinurnar, 15-9 og 15-6. Framarar
tefli við Bochum, 1-1. Atli Eð-
valdsson lék að nýju með Fortuna
eftir meiðslin en varð að fara útaf
um miðjan síðari hálfleik. Pétur
Ormslev tók stöðu hans. Bochum
komst yfir í leiknum en hinn
leikreyndi Rúdiger Wenzel jafnaði
18 mínútum fyrir leikslok.
Serder Bremen vann
Braunschweig létt, 4-0, en Mönc-
hengladbach gerði 2-2 jafntefli við
Armenia Bielefeld. -VS
standa mnan tfðar uppi þjálfaralausir,
Sveinn Hreinsson hefur sagt stöðu sinni
lausri af persónulegum ástæðum.
Breiðablik kom sér í toppslaginn í 1.
deild kvenna með því að vinna ÍS 3-2.
Sneri þar með við úrslitunum frá því
liðin mættust í síðustu viku. Breiðablik
vann fyrst 15-10 og 15-9, síðan ÍS 13-15
og 12-15. Breiðablik vann loks loka-
hrinuna 15-7.
Einn ieikur var háður í 2. deild karla,
HK-2 sigraði Breiðablik 3-0 í Kópa-
vogi. _vs
Frá Heimi Bergssyni, frétta-
manni Þjóðviljans í Englandi:
„Ég er virkilega ánægður með
að leika gegn Liverpool á Anfi-
eld í 3. umferð bikarkeppninnar.
Ef við náum mjög góðum leik
gæti okkur tekist að sigra mitt
gamla félag. Fyrir okkur er ekk-
ert vandamál að skora mörk, en
því miður er of auðvelt að skora
hjá okkur,“ sagði Kevin Keegan,
knattspyrnumaðurinn frægi hjá
Newcastle, í blaðaviðtali um
helgina. Liverpool og Newcastle
leika saman í 3. umferð keppn-
innar og þótt Newcastle leiki í 2.
deild gæti þetta orðið stórleikur
umferðarinnar. Önnur fyrrum
Liverpool-stjarna, Terry McDer-
mott, leikur með Newcastle.
Eftirtalin félög mætast í 3. um-
ferðinni í janúarbyrjun:
Altrincham/Darlington-
Maidstone
Aston Villa-Norwich City
Blackpool/Bangor-Manchester
City
Blackburn-Chelsea
Bolton-Sunderland
Bournemouth/Windsor-
Manch.United
Brighton-Swansea City
Burnley/Chesterf.-Oxford/
Reading
Cambridge-Derby County
Carlisle-Swindon Town
Cardiff City-Ipswich Town
Colchester-Charlton
Coventry City-Wolves
Crystal Palace-Leicester
Fulham-Tottenham
Gillingham-Brentford
Huddersfield-Q.P.R,
Leeds-Scunthorpe
Liverpool-Newcastle
Luton Town-Watford
Middlesborough-Arsenal
Nottm.Forest-Southampton
Notts County-Bristol City
Plymouth-Newport County
Portsmouth-Grimsby Town
Rotherham-W. B. A.
Sheff.Utd/Lincoln-Birmingham
Sheff.Wed.-Barnsley
Shrewsbury-Oldham
Stoke City-Everton
West Ham-Wigan
York/Rochdale-North.ton/
Telford
Nokkrir áhugaverðir leikir að
vánda, einna hæst ber Hudders-
field-QPR, Nottingham For-
est-Southampton, Luton-Watford
og Aston Villa-Norwich. -HB/VS
Enn tapa Stúdentar