Þjóðviljinn - 13.12.1983, Page 3
12 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 13. desember 1983
Þriðjudagur 13. desember 1983 1 þjÓÐVILJINN - SÍÐA 13
KA-menn sluppu fyrir
Engu munaöi að Þróttur næði
báðum stigum af KA á föstudags-
kvöldið þegar félögin mættust í 1.
deild karla í handknattleik á Akur-
eyri. Staðan var 19-19 og leiktím-
inn að renna út þegar Páll Björg-
vinsson, staddur í hægra horni,
sendi þvert yfir í það vinstra, þar
flaug Páll Ólafsson inní vitateig KA,
greip boltann og þrumaöi í þverslá.
Leiktíminn úti.
Sanngjarnt jafntefli í þessum
baráttuleik þegar á heildina er
litið. Þróttur komst í 4-0 en þá lok-
aði Magnús Gauti KA-markinu og
KA jafnaði fljótlega 7-7. Akur-
eyrarliðið var síðan 9-8 yfir í hálf-
leik, og var með forystu framan af
síðari hálfleik. Þróttur komst yfir
14-15 eftir 13 mínútur og síðan var
jafnt allt til leiksloka, Pétur
Bjarnason jafnaði fyrir KA úr víta-
kasti þegar hálf mínúta var eftir.
Magnús Gauti var bestur hjá
KA, varði 17 skot, þar af 3 víti, og
af útispilurum liðsins bar mest á
Jóni Kristjánssyni. Páll Ólafsson
var bestur Þróttara.
Mörk KA: Jón 4, Pétur 4, Erlingur
Kristjánsson 2, Jóhann Einarsson 2, Jó-
hannes Bjarnason 2, Magnús Birgisson
2, Sigurður Sigurðsson 2, og Þorieikur
Ananíasson 1.
FH-mark í uppsiglingu gegn Víkingi á laugardaginn. Mynd: Magnús.
1. deild kvenna í handknattleik:
Jóhanna hetja Vals
Jóhanna Pálsdóttir, markvörður Vals,
bjargaði stigi fyrir lið sitt á Akranesi á
föstudagskvöldi, gegn ÍA í 1. deild
kvenna. Þegar stutt var til leiksloka var
staðan 16-15, ÍS í hag, og heimaliðið
komst tvívegis í hraðaupphlaup með
stuttu millibili. Jóhanna gerði sér lítið
fyrir og varði í bæði skiptin og síðan
tókst Ernu Lúðvíksdóttur að jafna, 16-
16, þegar 10 sekúndur voru eftir.
Valsstúlkurnar höfðu undirtökin
lengi vel og leiddu 10-8 í hléi. Þær kom-
ust síðan í 13-8 en með góðum stuðningi
fjölmargra áhorfenda sneri ÍA stöðunni
15-14 sér í hag, og hefði sigrað ef Jó-
hanna hefði ekki sýnt snilli sína undir
lokin.
Víkingur og FH léku í Laugardals-
höllinni á laugardaginn og FH vann ör-
uggan sigur, 28-20. Staðan í hálfleik var
10-6, Hafnarfjarðarstúlkunum í hag, og
Víkingur situr því áfram í næstneðsta
sæti deildarinnar. Margrét Theodórs-
dóttir skoraði 10 mörk fyrir FH og Hild-
ur Harðardóttir 6 en Eiríka Ásgríms-
dóttir gerði 5 mörk fyrir Víking og Inga
Þórisdóttir 4.
Loks mættust Fylkir og ÍR í Höllinni á
sunnudag og ÍR vann yfirburðasigur,
30-14. Staðan var jöfn framan af, 8-6
þegar langt var liðið á fyrri hálfleik, en
þá stakk IR af og var 14-7 yfir í hléi.
Munurinn jókst enn í síðari hálfleik og
ÍR þurfti engan stórleik gegn slökum
stúlkum úr Arbænum. Ingunn Bernót-
usdóttir skoraði 11 marka ÍR, sjö úr
vítum og aðeins ei'tt fyrir utan! Erla
Rafnsdóttir skoraði 6 og Kristín Arnórs-
dóttir 3. Kristín stendur vanalega í
marki ÍR en leikur þessa dagana sem
útispilari vegna meiðsla Þorgerðar
Gunnarsdóttur. Eva og Rut Baldurs-
dætur héldu uppi leik Fylkis að vanda,
Rut gerði 6 mörk, Eva 5 og Helga Sig-
valdadóttir 3. -VS
Umsjón:
Viðir Sigurðsson
Úrvalsdeildin óútreiknanleg:_
Haukar áfram á
framfarabraut
Úrvalsldeildin í körfuknattleik er svo
sannarlega óútreiknanlegri en oftast
áöur. Lítiö sem ekkert skilur liðin aö, flest
hver, og þaö kom berlega í Ijós í Hafnar-
firöi á laugardaginn. Haukar fylgdu þar
eftir góöu gengi undanfarið meö því að
sigra efsta liðið fyrir leiki helgarinnar,
KR, 67-65 í hörkuspennandi og tvísýn-
um leik í íþróttahúsinu í Hafnarfirði.
Haukarnir höfðu frumkvæðið allan tímann
og forystan var undantekningalítið í þeirra
höndum. Þeir náðu tíu stiga forskoti um
miðjan fyrri hálfleik, 24-14, en KR svaraði
með 9 stigum í röð, 24-23. Þá skipti Einar
þjálfari Bollason sjálfum sér inná og gerði
fjögur næstu stig Hauka, þeir hresstust og
voru yfir, 34-27, í hálfleik.
Síðari hálfleikur var allur hnífjafn og rétt
fyrir leikslok stóð 65-63, Haukum í hag. Þá
„stal“ Páll Kolbeinssön knettinum af Pálmari
Sigurðssyni, geystist upp í hraðaupphlaup og
fékk úr því tvö vítaskot sem hann jafnaði úr,
65-65. Þarna voru aðeins 45 sekúndur eftir en
Haukarnir léku geysilega yfirvegað, héldu
boltanum eins lengi og þeir gátu og þegar 30
sekúndurnar voru að falla á þá stökk Pálmar
upp í horninu og skoraði af sínu alkunna
öryggi, 67-65. Fimmtán sekúndur eftir en á
þeim komust KR-ingar ekkert áleiðis,
Haukarnir pressuðu þá stíft og stigin tvö voru
þeirra.
Haukarnir eru í stöðugri framför, liðið hef-
ur géysimikla samæfingu þótt meðalaldurinn
sé lágur, og leiðin virðist liggja uppá við.
Pálmar og Hálfdán Markússon voru bestu
menn liðsins, Hálfdán einkum drjúgur í vörn-
inni eins og svo oft áður.
Páll Kolbeinsson var drýgstur í sóknarleik
KR-inga og Jón Sigurðsson var sem fyrr heil-
inn á bak við allt saman. Honum hefur þó
oftast tekist betur upp í sókninni. Guðni
Guðnason komst ágætlega frá leiknum, þar
er efnilegur piltur á ferð.
Stig Hauka: Pálmar 20, Hálfdán 16, Ólafur Rafns-
son 11, Kristinn Kristinsson 9, Reynir Kristjánsson 5,
Einar Bollason 4 og Sveinn Sigurbergsson 2.
Stig KR: Páll 14, Guðni 12, Jón 10, Garðar Jó-
hannsson 10, Ólafur Guömundsson 8, Geir Þor-
steinsson 4 og Birgir Guðbjörnsson 2.
-vs
Gífuriega óvænt úrslit í Seljaskólanum:_
Baráttugleði færði
Keflvíkingum sigur
Unirritaður fór í Seljaskólann á
sunnudaginn með því hugarfari að
þarna væri einungis um skyldu-
verk að ræða, formsatriði að fara
og sjá stórsigur Valsmanna á
Keflvíkingum í úrvalsdeildinni í
körfuknattleik. Miðað við leiki og
frammistöðu að undanförnu hefði
þessi viðureign aðeins getað átt að
fara á einn veg. En Keflvíkingar
komu hressilega á óvart, unnu
sigur, 58-57, og verðskulduðu
hann fyrir ódrepandi baráttuvilja.
Strax í upphafi varð ljóst að
eitthvað óvenjulegt var á ferðinni
hjá Völsurum. Þeir skoruðu aðeins
eina körfu fyrstu 6 og hálfa mínút-
una(!) og Suðurnesjapiltar komust
Njarðvík aftur
í efsta sætinu
Njarðvíkingar eru á ný í efsta
sæti úrvalsdeildarinnar í körfu-
knattleik eftir 82-77 sigur á ÍR-
ingum í Njarðvík á föstudagskvöld-
ið. Þetta var hins vegar áttunda tap
ÍR í níu leikjum og úr þessu þarf
gamla stórveldið nánast á krafta-
verki að halda til að falla ekki úr
deildinni.
Þetta var harður leikur og mikið
dæmt. Njarðvíkingar léku mjög vei
í fyrri hálfleik og voru þá að mestu
með forystuna, mest 10 stig, 35-25,
en,í hléi var staðan 44-37. Kæru-
leysi gerði hins vegar vart við sig
hjá heimamönnum í síðari hálfleik,
ÍR-inga mættu líka ákveðnir til
leiks og seldu sig dýrt. Leikurinn
var jafn lengi vel en þegar Þorkels-
synir fóru báðir útaf með fimm vill-
ur var við ofurefli að etja fyrir ÍR.
Njarðvík náði góðri forystu og
hleypti ÍR-ingum ekki í námunda
við sig í lokin.
Valur Ingimundarson var í aðal-
hlutverki hjá Njarðvík að vanda og
Gunnar Þorvarðarson var traustur
en mest kom á óvart hinn kornungi
Kristinn Einarsson. Hjá ÍR voru
bestir þeir Gylfi Þorkelsson og
Hjörtur Oddson. Leiðinlegur
blettur á leiknum var talsmáti for-
ráðamanna UMFN á áhorfenda-
pöllunum; hann er ekki holl fyrir-
mynd ungum körfuboltaunnend-
um.
Einvígi
ÍS og ÍR
Keppnin í 1. deild kvenna í körfu-
knattleik er að þróast upp í einvígi milli
ÍS og ÍR. Bæði unnu örugga sigra um
helgina, gegn liðunum í þriðja og fjórða
sæti. ÍS vann Hauka í Hafnarfirði, 49-
38, og ÍR sigraði UMFN í Njarðvík 59-
40. Snæfell og KR áttu að leika tvívegis
í Borgarnesi en báðum leikjum var
frestað vegna próflesturs KR-stúlkna.
ÍS hafði ávallt undirtökin gegn
Haukum og leiddi 24-15 í hálfleik.
Munurinn var orðinn 15 stig undir lokin
en Haukar skoruðu fjögur síðustu stig-
in. Þórunn Rafnar skoraði 18 stig fyrir
ÍS og Kolbrún Leifsdóttir 15 en Sóley
Indriðadóttir 11 og Sólveig Pálsdóttir 7
voru stigahæstar hjá Haukum.
Sigur IR í Njarðvík var enn öruggari,
góð úrslit þar sem UMFN hafði unnið
alla sína heimaleiki fram að því. Emilía:
Sigurðardóttir skoraði 27 stig fyrir ÍR
en Katrín Eiríksdóttir 11 fyrir Njarð-
vík. -VS
Stig UMFN: Valur 31, Kristinn 22, Gunn-
ar 14, Ingimar Jónsson 8, Sturla Órlygs-
son 4, Isak Tómasson 2 og Ástþór Inga-
son 1.
Stig ÍR: Gylfi 18, Ragnar Torfason 15,
Kolbeinn Kristinsson 12, Hjörtur Odds-
son 10, Hreinn Þorkelsson 8, Jón Jör-
undsson 5, Benedikt Ingþórsson 5, Bragi
Reynisson 2 og Stefán Kristjánsson 2.
-sv/vs
Fram lá
á Selfossi
Nýliðar Laugdæla sýndu hvassar
klærnar er þeir unnu sannfærandi sigur
á toppliði Framara, 60-54, í 1. deild
karla í körfuknattleik á Selfossi á
laugardaginn. Leikurinn var hnífjafn
framan af, Laugdælir yfir 33-30 í hálf-
leik. Þeir náðu síðan ðætd forystu í
síðari hálfleik og héldu henni til leiks-
loka.
Lárus Jónsson var stigahæstur
Laugdæla, skoraði 14 stig. Sigurður
Matthíasson gerði 13, Unnar Vil-
hjálmsson og Ellert Magnússon 12,
hvor. Þorvaldur Geirsson skoraði 16
stig fyrir Fram og Davíð Arnar 10.
IS er aftur komið í seilingarfjarlægð
frá Frömurum eftir sigur á Grindvíking-
um í Njarðvík, 71-64. Staðan í hálfleik ,
var 38-33, ÍS í hag. Guðmundur Jó-1
hannsson skoraði 19 stig fyrir ÍS, Árni
Guðmundsson 15 og Björn Leósson,
fyrrum ÍR-ingur, 12. Hjálmar Hall-
grímsson gerði 21 stig fyrir Grindavík,
Eyjólfur Guðlaugsson 17 og Ólafur Jó-
hannsson 12. ÍS og Fram mætast í
Kennaraháskólanum á fimmtudags-
kvöldið og þar gætu Stúdentar náð
Fram að stigum. Laugdælir og Þór geta
líka blandað sér í baráttuna um efsta
sætið. -VS
í 9-2. Fljótlega dró saman með lið-
unum,Valurkomst yfir á9. mínútu
og leiddi með 7-11 stigum það sem
eftir var fyrri hálfleiks. Staðan í
hléi var 32-24, þeim í hag.
Sami munur hélst framan af
síðari hálfleik, 6-10 stig, en um
hann miðjan fór að draga saman.
Þremur mínútum fyrir leikslok
jafnaði ÍBK 53-53 og villuvand-
ræði voru farin að segja til sín hjá
Val. Jón Kr. Gíslason kom ÍBK
yfir 56-55 1,46 mín. fyrir leikslok
en hálfri mínútu síðar töpuðu síðan
Keflvíkingar boltanum, ótímabært
skot Þorsteins Bjarnasonar. Hann
fékk fimmtu villuna strax á eftir og
Valsmenn sigurstranglegir eftir
sem áður. En Kristjáni Ágústssyni
mistókst skot þegar 40 sek. voru
eftir og þegar klukkan sýndi 0,12
mín. skoraði Sigurður Ingimundar-
son (bróðir Vals hjá UMFN) körf-
una sem réð úrslitum, 58-55. Hans
einu stig í leiknum! Jón Steingríms-
son svaraði fyrir Val, 58-57, en þá
voru bara 3 sek. eftir.
Baráttan var númer eitt tvö og
þrjú hjá ÍBK og allir áttu drjúgan
þátt í sigrinum. Engir þó meiri en
Óskar Nikulásson og Jón Kr.
Gíslason, langbestu menn liðsins.
Nú hirtu Keflvíkingar slatta af frá-
köstum, stærsta batamerkið, og á
því átti maður síst von gegn Val.
Þorsteinn skoraði nokkrar ævin-
týrakörfur á sinn einstæða máta og
Björn Víkingur Skúlason vaknaði
til lífsins þegar leið á leikinn.
Jón Steingrímsson var alger yfir-
burðamaður í liði Vals, enda eini
maður liðsins sem ekki ljómaði af
sigurvissu strax í upphafi. Hittinn
með afbrigðum og á góðar sending-
ar. Aðrir voru slappir, nema einnæ
helst Leifur Gústafsson. Hversu
langt skyldi vera síðan Valsmenn
skoruðu 57 stig í leik?
Stig ÍBK: Jón 16, Óskar 14, Þorsteinn
11, Björn 7, Pétur Jónsson 4, Guöjón
Skulason 2, Hafþór Óskarsson 2 og Sig-
uröur Ingimundarson 2 sérstaklega
gullvæg.
Stig Vals: Jón 19, Leifur 12, Kristján
10, Torfi Magnússon 10, Jóhannes
Magnússon 2, Tómas Holton 2 og Valdim-
ar Guölaugsson 2.
Davíð Sveinsson og Jón Otti
dæmdu þokkalega. -VS
Fylkir tveimur sek-
úndum frá sigri!
Fylkismenn voru tveimur sek-
úndum frá óvægum sigri á Fram í
2. deild karla í handknattleik um
helgina. Staðan var 19-18, Fylki í
hag, og 4 sekúndur eftir þegar
Fram fékk aukakast. Það var
skemmtilega útfært, losað um
Viðar Birgisson í hægra horninu,
hann sveif inn í vítateig Fylkis og
jafnaði, 19-19, þegar klukkan
sýndi að 2 sekúndur væru til leiks-
loka.
Fylkir byrjaði strax á að taka
Dag Jónasson úr umferð og það
hreif, Árbæjarliðið komst í 7-3 og
síðan 9-5 í hálfleik. Framarar söx-
uðu í það forskot strax eftir hlé og
jöfnuði, 10-10, en þá riðluðu Fylk-
ismenn aftur leik Framara með því
að setja einnig „yfirfrakka“ á Ósk-
ar Þorsteinsson. Leikurinn var í
járnum eftir það og Fram krækti í
stigið á síðustu stundu.
Óskar Þorsteinsson og Hermann
Björnsson voru atkvæðamestir
Framara, Óskar gerði 6 mörk og
Hermann 4. Magnús var bestur
Fylkismanna ásamt markverðinum
sem var í miklum ham.
-VS
Jón Kr. Gíslason átti drjúgan þátt í
sigri Keflvíkinga á Val.
m ! •' ggPL g f ' ' f -* g MM8
______________________________
Umsjón:
Viðir Sigurðsson
Ijakob Jónsson skorar eitt sex glæsimarka sinna gegn Val. Mynd: Magnús.
Jakob einn um að
Staöan
Úrslit á islandsmótinu í
handknattleik um helgina
og staöan í deildunum:
1. deild karla:
Stjarnan-FH.... 22:30
KA-Þróttur 19:19
Valur-KR 16:13
FH ....9 9 0 0 286:180 18
Valur ....9 6 1 2 188:179 13
Vtkingur .... 9 6 0 3 210:190 12
KR ....9 4 1 4 155:149 9
Þróttur ....9 3 2 4 191:207 8
Stjarnan ....9 3 1 5 172:209 7
Haukar ....9 1 1 7 178:221 3
KA ....9 0 2 7 158:203 2
Markahæstir:
Kristján Arason, FH............89
PállÓlafsson, Þrótti...........62
Sigurður Gunnarsson, Víkingi...62
Eyjólfur Bragason, Stjörnunni..50
Hans Guðmundsson, FH...........49
Þorgils Óttar Mathiesen, FH....46
Vlggó Sigurðsson, Vikingi......45
1. deild kvenna:
Akranes-Valur...............16:16
Víkingur-FH.................20:28
Fylkir-ÍR...................14:30
ÍR 6 4 2 0 124:82 10
Fram 6 5 0 1 117:88 10
FH 6 4 11 129:108 9
Valur 6 2 13 99:114 5
KR 6 12 3 89:105 4
Fylkir 6 2 0 4 99:121 4
Víkingur 6 114 102:109 3
Akranes 6 114 77:109 3
2. deild karla:
Reynir S.-Grótta 25:26
Breiðablik-ÍR 20:16
Fram-Fylklr 19;19
ÞórVe 8 8 0 0 179:131 16
Fram 8 6 11 171:145 13
Breiðablik 8 6 0 2 166:139 12
Grótta .8 5 0 3 174:159 10
HK ,8 3 0 5 143:160 6
ÍR 8 2 0 6 120:151 4
Fylkir .8116 140:168 3
ReynlrS .8 0 0 8 161:201 0
3. deild karia:
Akranes-Keflavik..............29:25
Afturelding-Skallagrimur......26:12
Ármann-Selfoss................24:14
ógna Valsmönnum
Dauft var það í Laugardalshöll-
inni þegar Valsmenn unnu KR-
inga 16-13 í 1. deild karla í hand-
knattleik þar á laugardaginn. Lítið
skorað, KR leiddi framan af, 7-6 í
hálfleik, en skoraði síðan ekki mark
Engin breyting varð á toppi
skosku úrvalsdeildarinnar í knatt-
spyrnu um helgina. Toppliðin Celt-
ic og Aberdeen gerðu markalaust
jafntefli í Glasgow. Celtic var öllu
nær sigri þrátt fyrir að Jim Melrose
væri rekinn af leikvelli snemma í
síðari hálfleik. Liðið í þriðja sæti,
meistarar Dundee United, gerðu
einnig markalaust jafntefli, gegn
Hearts í Edinborg.
Rangers er að skríða saman,
sóttu nú Jóhannes Eðvaldsson og
félaga í Motherwell heim og sigr-
uðu sannfærandi, 0-3. Colin McA-
dam, Dave Cooper og Ástralíu-
maðurinn David Mitchell skoruðu
mörkin. Hibernian vann góðanúti-
sigur á Dundee, 3-0, og skoraði
markahæsti leikmaður úrvals-
deildarinnar, Willie Irvine, tvö
markanna. Loks vann St. John-
stone mjög óvæntan útisigur gegn
St. Mirren, 1-2.
horn!
Mörk Þróttar: Páll Ó. 6, Páll B. 4, Gísli
Óskarsson 3, Birgir Sigurðsson 3 og
Konráð Jónsson 3.
Guðmundur Kolbeinsson og
Þorgeir Pálsson dæmdu og voru
slakir, með eindæmum óákveðnir.
Það bitaði þó nokkuð jafnt á liðun-
um.
-K&H/Akureyri
fyrstu 13 mínútursíðari hálfleikslÁ
þeim tíma breytti Valur stöðunni í
11-7, sér í hag. KR minnkaði mun-
inn, 14-13 þegar skammt var eftir,
en tvö síðustu mörkin voru Vals-
manna.
Aberdeen........16 12 2 2 42- 8 26
Celtic..........16 10 3 3 39-18 23
DundeeUnited....16 9 3 4 31-15 21
Hibernian.......16 8 1 7 25-27 17
Hearts..........16 6 5 5 17-19 17
St.Mirren.......16 4 7 5 24-24 15
Rangers.........16 6 2 8 23-24 14
Dundee..........16 6 2 8 22-30 14
Motherwell......16 1 5 10 10-32 7
St.Johnstone....16 3 0 13 13-49 6
Patrick Thistle er áfram efst í 1.
deild með 25 stig, Dumbarton hef-
ur 24 og Morton 23 stig.
Það teljast ekki tíðindi lengur að
FH skori 30 mörk í 1. deildarkeppni
karla í handknatleik. Hafnarfjarð-
arliðið fyllti þann kvóta eina ferðina
enn á föstudagskvöldið í Kópa-
vogi, sigraði þar Stjörnuna
auðveldlega, 30-22. Reyndar
lægsta skor FH í fimm leikjum,
áður 35 og 44 gegn Maccabi, 39
gegn Þrótti og 38 gegn Haukum!
Urslitin réðust strax í byrjun, FH
skoraði átta fýrstu mörk leiksins,
og eftir það var ekki um neina
keppni að ræða. Munurinn var 5-
10 mörk til leiksloka, 16-8 í hálf-
leik, og FH-ingar þurftu ekki að
Miklu munaði fyrir KR að Jakob
Jónsson fékk slæmt höfuðhögg um
miðjan fyrri hálfleik og kom ekki
aftur inná fyrr en á 13. mínútu þess
síðari. Án hans var sóknarleikur
KR bitlaus, Valsmenn gengu á
lagið með því að leika vörnina flata
og loka þannig fyrir línu- og horna-
spil. Jakob kom síðan með ógnun-
ina og skoraði fimm af sex mörkum
KR í síðari hálfleik. Hann og Jens
Einarsson markvörður voru yfir-
burðamenn í slöku KR-liði, sem þó
sýndi góðan varnarleik.
Varnarleikurinn hjá Val gerði
útslagið en í sókninni var lítið um
skemmtileg tilþrif. Þar var Jakob
Sigurðsson frískastur en Einar Þor-
varðarson markvörður var besti
maður liðsins. Tvö góð stig til Vals
og allt bendir til að liðið komist í
4-liða úrslitin.
Mörk Vals: Jakob S. 5, Guðrii Bergs-
son 4, Jón Pétur Jónsson 2, Þorbjörn
Jensson 2, Björn Björnsson 1, Geir
Sveinsson 1 og Steindór Gunnarsson 1.
Mörk KR: Jakob J. 6, Ólafur Lárusson
3, Friðrik Þorbjörnsson 2, Guðmundur Al-
bertsson 1 og Haukur Geirmundsson 1.
hafa mikið fyrir því að halda Garð-
bæingum í þeirri fjarlægð.
Kristján Arason, Þorgils Óttar
Mathiesen, Hans Guðmundsson
og Atli Hilmarsson voru að vanda í
forystuhlutverkum hjá FH. Stjarn-
an saknaði Eyjólfs Bragasonar sem
var meiddur en skárstir í þeim her-
búðum voru Bjarni Bessason og
Hannes Leifsson.
Mörk FH: Kristján 9, Þorgils Óttar 7,
Hans 6, Atli 4, Pálmi Jónsson 2, Guð-
mundur Magnússon 1 og Sveinn Braga-
son 1.
Mörk Stjörnunnar: Bjarni 8, Hannes
7, Gunnlaugur Jónsson 3, Hermundur
Sigmundsson 2, Guðmundur Þórðarson
1 og Sigurjón Guðmundsson 1.
Týr..............8 7 1 0 198:141 15
Ármann...........8 7 0 1 224:173 14
ÞórAk............7 5 0 2 183:123 10
Afturelding......7 5 0 2 169:117 10
Akranes..........8 4 1 3 186:156 9
Keflavik.........8 3 0 5 186:182 6
Selfoss..........8 2 0 6 143:158 4
Skallagrímur.....8 1 0 7 129:218 2
Ögri.............8 0 0 8 112:262 0
Staðan
Úrslit á íslandsmótinu í körfu-
knattleik um hclgina og staðan í
deildunum:
Úrvalsdeild
Njarðvik-ÍR.................82-77
Haukar-KR.................. 67-65
Valur-Keflavik..............57-58
Njarðvik.........9 6 3 713-677 12
KR...............9 6 3 661-629 12
Valur............9 5 4 756-691 10
Haukar...........9 5 4 643-651 10
Keflevík.........9 4 5 610-684 8
ÍR...............9 1 8 664-715 2
Stigahæstir:
Valur Ingimundarson. Njarðvík.257
PálmarSigurðsson, Haukum......202
Kristján Ágústsson, Val.......183
Þorsteinn Bjarnason, Keflavik.163
Jón Kr. Gíslason, Kef lavík...158
Hreinn Þorkelsson, IR.........148
JónSigurðsson, KR...........141
Jón Steingrimsson, Val......142
Torfi Magnússon, Val........135
Gunnar Þorvarðarson, Njarðvfk.127
1. deild kvenna:
Snæf el l-KR..............frestað
Snæfeli-KR................frestað
Haukar-ÍS...................38-49
Njarðvik-ÍR.................40-59
ÍR 14
ÍS 14
Haukar 8 4 4 363-342 8
Njarðvík 8
Snæfell 8 2 6 254-302 4
KR 2
1. deild karla:
Laugdælir-Fram...............60-54
Grindavík-ÍS.................64-71
Fram................9 7 2 724-587 14
iS..................9 6 3 708-616 12
Laugdælir...........7 4 3 476-442 8
ÞórAk...............7 4 5 612-611 8
Grindavik...........9 4 5 612-611 8
Skallagrimur........9 0 9 536-813 0
B-ri&ill:
Reynir S.-Esja.................63-37
ReynirS..............3 3 0 227-115 6
ísafjörður...........2 2 0 170-79 4
HK...................2 1 1 107-111 2
Esja.................3 0 3 1 20-198 0
Drangur.............2 0 2 80-201 0
Jafntefli topplið-
anna í Skotlandi
Staðan í úrvalsdeildinni:
~VÍ> -B/VS
FH skoraði
„bara“ þrjátíu