Þjóðviljinn - 13.12.1983, Blaðsíða 4
Enska
TerryGibson var
maðurinn á bak
við tortímingu
Liverpool á High-
fíeld Road í Co-
ventry.
Umsjón:
Víðir Sigurðsson
Enska knattspyrnan:
„A ekki eitt
einasta orð“
Sputniklid Coventry rústaði Liverpool!
Stórleikur Sheff. Wed. á Maine Road:_
Betur getum
við ekki gert
íí
„Við sýndum okkar allra
besta, betur getum við ekki
gert,“ sagi Howard Wilkinson,
framkvæmdastjóri Sheffield
Wednesday, eftir að hans
menn höfðu unnið
sannfærandi sigur á Manchest-
er City, 2-1, á útivelli í 2.
deildinni. Rúmlega 40 þúsund
manns fylgdust með þessari
yiðureign og sáu frábæran leik.
Kevin Bond skoraði fyrst fyrir
City úr aukaspyrnu en Imre
Varadi tryggði Wednesday
sigur með tveimur mörkum.
Wednesday átti allan síðari
hluta leiksins og hefði getað
unnið enn stærri sigur á liði City
sem þó sýndi góðan leik.
Newcastle vann Huddersfield 5-
2 en trúi því hver sem vill, sigurinn
gat lent hvoru megin sem var. Ke-
vin Keegan skoraði fyrst fyrir
Newcastle en Phil Wilson jafnaði.
Peter Beardsley svaraði, 2-1, en
Jones jafnaði aftur. Chris Waddle
skoraði síðan 2 fyrir Newcastle í
síðari hálfleik og Terry McDer-
mott eitt, gegn gangi leiksins!
Portsmouth vann Derby 3-0 með
mörkum Alan Biley, Kevin Dillon
og Nicky Morgan. Blackburn nálg-
ast efstu liðin, vann Cardiff 1-0 úti
með marki Pattersons.
Önnur umferð bikarkeppninnar
var fjörug að vanda. Par vakti
mesta athygli að Allan Clarke,
fyrrum stjarna Leeds, lék með liði
sínu, Scunthorpe, en það hefur
hann ekki gert að vana sínum, hef-
ur haldið sig utan vallar sem fram-
kvæmdastjóri. En Clarke var í
peysu númer 9, lék þó ekki frammi
eins og hann var frægur fyrir, held-
ur sem aftasti maður í vörn. Það
hreif, Scunthorpe vann Bury 2-0 og
er komið í 3. umferð. Andstæðing-
arnir þar? Hverjir aðrir en Leeds,
gamla liðið hans Clarke!
- HB/VS.
„Ég á ekki eitt einasta orö yfir
þennan leik. Ég man ekki eftir
svona frammistöðu hjá Liver-
pool í mörg ár, ekki síðan við
töpuðum 5-1 fyrir Aston Villa
um árið“, sagði Joe Fagan,
framkvæmdastjóri Liverpool, á
laugardaginn eftir að lið hans
hafði fengið herfilega útreið, 4-
0, í Coventry. Meistararnir
halda þó efsta sætinu í 1. deild
þrátt fyrir þennan skell.
Coventry byggði upp nýtt lið í
sumar, níu af fastamönnunum nú
voru keyptir fyrir þetta keppnis-
tímabil og árangurinn er undra-
verður, fjórða sætið eftir þennan
glæsta sigur. Strax eftir 45 sekúnd-
ur varð ljóst hvert stefndi. Nicky
Platnauer skoraði þá eftir sendingu
Terrys Gibson og 29,500 áhorfend-
ur voru vel með á nótunum. Þeir
áttu glaðan dag, Gibson hinn smá-
vaxni skoraði þrjú mörk sjálfur, á
20. mínútu eftir fyrirgjöf Daves
Bennett, á 45. mínutu og loks á 84.
mínútu með skoti í stöngina og inn.
Milli tveggja síðustu markanna
varði Bruce Grobelaar markvörð-
ur Liverpool frá honum á undra-
verðan hátt. Coventry sótti og sótti
allan tímann, og Liverpool var í
óvanaiegu hlutverki; það var um
hreinustu nauðvörn að ræða hjá
meisturunum allan tímann. Til
marks um það er að bakverðirnir
Phil Neal og Alan Kennedy, sem
eru á bakvið fjölmargar sóknar-
lotur Liverpool, einbeittu sér að
því að koma boltanum sem hæst og
lengst í burtu frá marki!
Tíunda tap Arsenal
West Ham gefur ekkert eftir og
vann sætan sigur, 3-1, á Arsenal.
Enn eitt áfallið fyrir Terry Neill,
stjóra Arsenal, og hann verður æ
valtari í sessi. Tíunda tap liðsins í
17 leikjum. Trevor Brooking og
Alan Devonshire stjórnuðu gangi
leiksins á miðjunni fyrir West Ham
og Brooking skoraði sjálfur á 34.
mínútu, með skalla! Strax á eftir
lentu John Kay hjá Arsenal og Da-
vid Swindlehurst hjá West Ham í
ryskingum með þeim afleiðingum
að báðir voru reknir af leikvelli.
West Ham komst í 2-0 þegar Chris
Whyte sendi boltann í eigið markið
eftir fyrirgjöf Devonshire og síðan
fékk Geoff Pike boltann frá Brook-
ing og skoraði þriðjá markið.
Whyte bætti örlítið fyrir sitt brot
með því að skora sárabótarmark
fyrir Arsenal undir lokin en tæpast
nokkur maður hafði fyrir því að
fagna! Arsenal lék með 5 manna
vörn og leikmönnum liðsins var líkt
við vélmenni með ósjálfstæða
hugsun.
Manchester United vann góðan
2-0 sigur í Ipswich og var ávallt með
undirtökin. Arthur Graham skall-
aði í mark á 11. mínútu eftir horn-
spyrnu Ray Wilkins en United var
heppið þegar Kevin O’Callaghan
skaut í þverslá fyrir hlé. Garth Cro-
oks reyndi og reyndi að sýna getu
sína í framlínu United en í fyrri
hálfleik mistókst allt hjá honum.
Hann fékk uppreisn æru þegar
hann skoraði annað mark United í
síðari hálfleik í kjölfar mistaka
Kevins Steggles.
Þrenna Walsh
Alltaf er skorað þar sem Luton
fer og nú vann liðið frá Hattaborg-
inni 4-2 sigur í Stoke. Paul Walsh
skoraði þrennu fyrir Luton og hinn
18 ára Ray Daniel gerði eitt mark
en Robbie James svaraði tvívegis
fyrir framkvæmdastjóralaust lið
Stoke sem stefnir beint í 2. deild.
Watford er að lifna við og tókst
að leggja Nottingham Forest 3-2 í
sviptingasömum leik. Maurice
Johnston, George Reilly og Nigel
Callaghan skoruðu fyrir Watford
en Garry Birtles sá um bæði mörk
Forest.
QPR lék sannfærandi í West
Bromwich og vann 2-1. Terry
Fenwick og Simon Stainrod komu
Lundúnaliðinu í 2-0 en Tony Morl-
ey svaraði fyrir WB A í sínum fyrsta
leik með liðinu eftir söluna frá Ast-
on Villa.
Notts County tók gífurlegan
fjörkipp og rúllaði Sunderland
upp, 6-1. Staðan var 3-1 í hálfleik,
Trevor Christie, Nigel Worthing-
ton og Ian McPharland skoruðu'þá
fyrir Notts en Paul Bracewell fyrir
Sunderland. John Chiedozie bætti
tveimur mörkum við fyrir Notts
eftir hlé og bakvörðurinn svarti
sem er fæddur í Kanada, Pedro
Richards, innsiglaði sigurinn, 6-1.
Flóamarkaður
í Leicester!
Ekki var síður flóamarkaður
fyrir Leicester að fá botnlið Wolves
íheimsókn. Leicestervann5-1 eftir
4-1 í hálfleik. Alan Smith var í aðal-
hlutverki, skoraði 3 mörk. Gary
Lineker og Steve Lynex gerðu eitt
hvor. Wayne Clarke skoraði mark
Wolves.
Norwich tapar ekki þessar vik-
urnar og vann nú Birmingham 1-0 á
St. Andrews. Bakvörðurinn Greg
Downs skoraði eina markið í
leiknum í fyrri hálfleik.
Gaf dómaranum
tönnina!
Rétt fyrir leik Everton og Aston
Villa kom í Ijós að Nigel Spink
markvörður Villa gæti ekki leikið
með vegna meiðsla. Hringt var í
snarhasti í varamarkvörðurinn
Mervyn Day sem komst í leikinn á
síðustu stundu. Eftir fimm mínútur
lenti hann í árekstri við leikmann
Everton og missti framtönn. Húm-
orinn var þó í lagi, Day labbaði til
dómarans og gaf honum tönnina.
Af leiknum er það að segja að hann
endaði 1-1. Paul Rideout skoraði
fyrir Villa en Andy Gray jafnaði
Paul Walsh - þrenna í Stoke.
fyrir Everton þegar stutt var til
leiksloka með glæsilegu vinstrifót-
arskoti. Réttáðurhafði Kevin She-
edy skotið yfir mark Villa úr víta-
spyrnu.
Tottenham mátti sætta sig við
markalaust jafntefli heima gegn
Sunderland og dróst afturúr topp-
liðunum fyrir vikið.
- HB/VS.
26- 13 34
30-14 33
30- 17 33
28-20 31
27- 16 29
28- 23 29
26- 21 29
31- 27 29
18-13 28
25-26 28
30-25 27
21-25 23
27- 23 22
11-18 22
18-26 22
27- 25 21
14-20 18
24- 28 17
28- 32 16
25- 35 16
18-33 12
12-42 7
1. deild:
Liverpool....
West Ham.....
Manch. Utd...
Coventry.....
Q.P.R........
Tottenham....
Norwich......
Luton Town....
Southampton..
AstonVilla...
Nottm. For...
W.B.A........
Ipswich......
Everton......
Sunderland...
Arsenal......
Birmingham....
Nötts Co.....
Watford.........
Leicester....
StokeCity....
Wolves.......
.17 10
.17 10
.17 10
.17 9
.17 9
.17 8
.18 8
.17 9
.17 8
.17 8
.17 8
,.17 7
„17 6
.17 6
.17
.17
, 17
.17
..17
.18
.17
4
3
3
4
2
5
5
2
4
4
3
2
4
4
4
0 10
3 9
2 10
4 9
4 10
6 9
4 12
Markahæstir:
lan Rush, Liverpool............13
Terry Gibson, Coventry.........11
David Swindlehurst, West Ham...11
Tony Woodcock, Arsenal.........11
Steve Archibald, Tottenham.....10
Simon Stainrod, QPR............10
2. deild:
Sheff.Wed......18
Chelsea........20
Newcastie......18
Manch.CÍty.....18
Charlton....... 19
Huddersfield...18
Blackburn......18
Carlisle.......18
Grimsby........17
Shrewsbury.....18
Barnsley.......18
Portsmouth.....18
Middlesbro.....18
Brighton.......18
Cr. Palace.....18
Leeds.^........17
Cardiff........18
Oldham.........17
DerbyCo........18
Fulham.........18
Cambridge......18
Swansea........18
12 5
10 8
11 2
11 2
8 7
8 6
8 6
7 7
7 6
6 7
7 3
7 2
6 5
6 4
6 4
5
6
5
5
~3
2
1 32-14 41
2 41-18 38
5 40-27 35
5 32-21 35
4 24-23 31
4 27-20 30
4 25-25 30
4 17-12 28
4 24-20 27,
5 22-23 25
8 28-25 24
9 31-22 23
7 21-19 23
8 31-33 22
8 20-22 22
7 21-26 20
11 19-23 19
8 19-29 19
9 16-34 19
10 18-28 14
12 15-36 10
13 13-34 9,
Markahæstir:
Kevin Keegan, Newcastle......12
Kerry Dicon, Chelsea.........11
Derek Parlane, Manch. City...11
Simon Garner, Blackburn......10
Mark Hateley, Portsmouth.....10
■úrslit... úrslit... úrslit...<
1. deíld:
Birmingham-Norwich City........0-1
Coventry City-Liverpool....(1) 4-0
Everton-Aston Villa........(x) 1-1
Ipswich Town-Manch. United..(2) 0-2
Leicester City-Wplves.....(1) 5-1
Notts County-Sunderland.....<1)6-1
Stoke City-Luton Town.......(2) 2-4
Tottenham-Southampton......(x) 0-0
Watford-Nottingham Forest...(1)3-2
W.B.A.-Q.P.R................(2)1-2
WestHam-Arsenal......y......(1) 3-1
2. deild:
Barnsley-Chelsea............(x) 0-0
Cardiff Citv-Blackburn....... 0-1
Crystal Paiace-Carlisle........1-2
Fulham-Charlton Athletic.......0-1
GrimsbyTpwn-Oldham Athletic frestað
Leeds United-Swansea City...frestað
Manch. City-Sheff. Wednesday... (2) 1-2
Middlesborough-Brighton........0-0
Newcastle-Huddersfield...1.....5-2
Portsmouth-Derby County........3-0
Shrewsbury-Cambrtdge United....1-0
4. deild:
Aldershot-Stockport..............1-1
Enska bikarkeppnin
2. umferð:
Bangor City-Blackpool............1-1
Bolton-MansfieldTown.............2-0
Brentford-Wimbledon..............3-2
Bristol Rovers-Bristol City......1-2
Chesterfield-Burnley.............2-2
Colchester-Wealdstone.............4-0
Darlington-Altrincham............0-0
Gillingham-Chelmsford...........6-1
HarrowBorough-NewportCounty... 1-3
Lincoln City-Sheff ield United..0-Ó
Maidstone United-WorcesterCity... 3-2
MillwallClty-SwindonTown........2-3
Northampton-Teiford United......1-1
Plymouth Argyle-Barking.........2-1
Reading-Oxford United...........1-1
Rotherham United-Hull City......2-1
Scunthorpe-Bury.................2-0
Wigan Athletic-Whitby...........1-0
Windsor/Eton-Huddersfield...frestað
York City-Rochdale..........frestað