Þjóðviljinn - 17.12.1983, Qupperneq 6
6 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Helgin 17.-18. desember 1983
Spjallað við Árna Björnsson þjóðháttafrœðing
„í jólaskapi“
kemur öllum í jólaskap
Hjá Bjöllunni er nýkomin út bók,
sem er einstök í sinni röð. Hún
nefnist „í jólaskapi" og höfund-
ar hennar eru þeir Árni Björns-
son, þjóðháttafræðingurog
Hringur Jóhannesson,
listmálari. HefurÁrnisamiðog
tekið saman lesefnið en Hring-
ur myndskreytt bókina í stíl við
efnið. Hefursamvinnaþeirra
félaga tekist með miklum ágæt-
um.
f bókinni lýsir Árni, á lifandi og
skemmtilegan hátt, þeim marg-
háttuðu athöfnum, sem menn hafa
iðkað á jólum, allt aftan úr heiðni
og fram á þennan dag. Eru ekki
hvað síst dregnar fram þær
breytingar, sem orðið hafa á jóla-
siðum og jólahaldi síðustu 100 árin
en þá fer ýmislegt að ryðja sér til
rúms í þessum efnum, sem óþekkt
var áður. Inn í frásögnina fléttar
Árni svo Ijóðum, þulum, sögum og
þjóðsögum frá ýmsum tímum og
köflum úr fornsögunum, að sjálf-
sögðu allt tengt jólunum. Innlendir
heimildarmenn eru á milli 30 og 40,
auk þess sem sótt hefur verið ti!
erlendra bóka og rita. Á víð og
dreif um bókina eru svo hartnær 40
litkrítarmyndir og teikningar eftir
Hring, sannkölluð bókarprýði. En
nú gefum við Árna orðið:
- Ég vil nú fyrst af öllu færa
Bjöllunni mínar bestu þakkir fyrir
það hvað vel hún sinnir skólunum
með útgáfustarfsemi sinni. Annars
átti ég alls ekki frumkvæðið að
gerð þessarar bókar. Ég tók þetta
verk að mér eftir beiðni annarra og
það var alls ekki svo auðvelt að ýta
mér af stað. Einir fimm útgefendur
voru búnir að minnast á þetta við
mig. En ég er latur og þybbaðist
við. Bjallan gaf hinsvegarekki eftir
og þar k.om að ég lét undan og byrj-
aði á þessu verki á skírdag í ár. Og
ég var eiginlega óvenju geðvondur
á meðan á þessu stóð. Líklega ekki
hægt að segja að ég hafi verið í
neinu jólaskapi.
Nú, það þótti sjálfsagt að auka
gildi bókarinnar með því að
myndskreyta hana. Var þá tvennt
til: Að nota sögulegar myndir að
því leyti sem þær eru til eða að fá
listamann til þess að gera nýjar
myndir. Það varð ofaná. Við á-
kváðum að fá Hring og ég fæ ekki
betur séð en þar höfum við hitt
naglann á höfuðið.
Eg tók nú saman bók, „Jól á ís-
landi“ og kom hún út 1963 og það
sem sagt er um jólahald á íslandi
fyrir miðja 19. öld er að mestu
byggt á henni og þeim heimildarrit-
um, sem þar er stuðst við. Og svo
því til viðbótar það sem í leitirnar
hefur komið um þetta tímabil síð-
an, eða síðustu 20 árin. Að öðru
leyti er þessi bók mjög frábrugðin
hinni, m.a. vegna þessara ágætu
verka Hrings. Óþarfi er svo að
gleyma því, að fyrir einum 40 árum
kom út bók skyld þessari, Jólavaka
Jóhannesar úr Kötlum, og í þessari
bók minni nú er dálítið úr henni.
Ljóðin í bókinni eru að drjúgum
hluta til frá síðustu 40 árum og
stinga sum þeirra kannski nokkuð í
stúf við það, sem áður hefur verið
ort um jólin. Og ég verð að játa, að
þegar ég las fyrstu próförk af þess-
um ljóðum fannst mér nú textinn
hálf svona kaldranalegur. En þegar
búið var á hinn bóginn að dreifa
þessum beisku pillum innan um allt
sælgætið, þá breyttist þetta.
Skemmtilegast þótti mér nú að
fást við ýmsa þætti um jólahald síð-
ustu 100 árin, en þá hefur það tekið
mestum breytingum vegna
breyttra ytri aðstæðna. Til hafa
komið rýmri verslunarhættir,
nteira vöruval, augíýsingar o.fl.
Lokakaflinn í bókinni Eallar svo
um jól í öðrum löndum. Ég var nú
4, -
. m r
«í' „V* sr ;■ .
Bryndís í Koti brýst áfram í hríð og fannfergi með munaðarleysingjann í
fanginu, sbr. jólasögu Jóhannesar Friðiaugssonar.
hálf hræddur við hann, enda er
hann stuttaralegur. Ég bar hann nú
undir fólk, sem þessu er kunnugt
en þess ber að gæta, að jólahald er
mjög breytilegt jafnvelInnan sama
lands. Og svo vil ég að lokum segja
að þetta er ekki barnabók.
Bókin er prentuð í Prentstofu G.
Benediktssonar en litgreiningu
annaðist Prentmyndastofan hf. og
Arnarfell bókbandið.
Undirritaður vill svo að lokum
bæta því einu við að þessi bók er
hreinasta gersemi. - mhg.
Ný bók frá Guárúnu HelgadóUiir
- jólagjöf barnanna lár
■
Sitji Guðs englar
SITJI GUÐS ENGLAR eftir Gudrúnu Helga-
dóttur. Heillandi og nœrfcerin saga um
marga krakka í litlu húsi. Þar húa líka afi
og amma og auðvitaö mamma og siundum
kom pahhi og ruglaði öllu. Brœöumir hjól-
uðu upp í eldhús og Páll táhraut hermann-
inn. En petta hjargaðist alltpví krakkarnir
unnu stríðið.
Ungir lesendur bíða með eftirvcent-
ingu eftir hverri nýrri bók frá Guð-
rúnu Helgadóttur. SITJI GUÐS ENGLAR
er jólagjöf barnanna í ár.
Kr. 348.25
Bræðraborgarstíg 16 Pósthólf 294
AUK hf. Auglýsingastofa Kristinar 83.75
121 Reykjavík Sími 12923-19156