Þjóðviljinn - 17.12.1983, Qupperneq 7

Þjóðviljinn - 17.12.1983, Qupperneq 7
Helgin 17.-18. desember 1983 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 7 B ar áttusaga hálfu á móti kaupfélagsstjóranum á Patreksfirði. Andrés tók tilboð- inu og báturinn var gerður út á dragnót. Seinna eignuðust þeir fé- lagar stærri og gangmeiri bát og leiðin með hann lá svo suður til Sandgerðis, er. Andrés og kona hans settust að í Keflavík. Pessi bátur hét Gyllir. En eftir síidar- sumarið mikla 1944 þá var stórhug- ur í mönnum og réðust þeir félag- arnir Andrés og Baldur ásamt þremur öðrum í að kaupa 74 lesta bát með 180 hestafla vél frá Sví- þjóð og hlaut hann nafnið Svanur. Petta var 1945, en það ár byrjaði síldin að fjarlægjast norðurlandið. Andrés fluttist nú til Reykjavíkur og hefur búið hér síðan. Á ýmsu gekk með útgerðina næstu árin sem á eftir fóru. Mest var gert út á línu héðan úr Reykjavík á vetrarvertíð en á síld að sumrinu. Ýmis óhöpp hentu útgerðina. Skipta varð um vél í Svaninum og gera á honum ýmsar endurbætur svo hann dygði í hinnu hörðu sjósókn. En áfram var haldið. Oft náðu endar ekki sam- an. En þegar rekstrartap og óhöpp höfðu étið upp allt hlutaféð þá vildu meðeigendur Andrésar losna, sem endaði með því að hann tók einn yið bátnum og skuldunum og hélt útgerðinni áfram. En það voru fleiri en Andrés og félagar hans sem töpuðu á útgerð þessi ár. Andrés Finnbogason að störfum sem framkvæmdastjóri loðnunefndar. því um 1960 varð fiskiflotinn að fara í skuldaskil. En þrátt fyrir þetta var það fiskiflotinn sem stóð undir gjaldeyrisöfluninni og fram- förum í landinu, svo undarlega sem það hljóðar. Það urðu endalok vélbátsins Svans, að Andrés leigði bátinn vestur í Hnífsdal, en þar fórst hann í aftakaveðri haustið 1966 með allri áhöfn, mest ungum mönnum úr plássinu. Áður hafði þessi bátur tekið á sig mörg aftakaveður, en alltaf náð landi og Andrés á honum bjargað bát og mannskap úti af Faxaflóa í foráttuveðri og komið til hafnar. Endurminningar Andrésar eru ekki nema að öðrum þræði per- sónusaga hans sjálfs og þá sá þáttur sem snýr að lífsstarfi hans á sjón- um. Hinn þátturinn er um útgerð og sjósókn á löngu tímabili og er þar að finna mikinn fróðleik, m.a. um lánakerfi bankanna til útgerðar sem komið er inná í frásögninni. Sagnfræðingar framtíðarinnar geta því sótt ýmsar heimildir í þessa sögu. Andrés hefur hent margt á lífsleiðinni og hann ber samferðar- mönnum vel söguna, þegar hann lítur tii baka yfir farinn veg. Guðmundi Jakobssyni ber þökk fyrir að hafa skráð þessa sjósóknar- og baráttusögu. Jóhann J. E. Kúld Nú erfleytan í nausti Andrés Finnbogason segirfrá Ægisútgáfan 1983. Þetta er baráttusaga. Sjötíu og tveggja ára gamall maöur lítur til baka yfir farinn veg og rifjar upp ýmsar minningar sínarfráliðinniævi. Andrés er fæddur í Krossadal í Tálknafirði 19. des. 1911. Petta er ysti bærinn við fjörðinn, þar sem brimaldan brýtur á landinu og kveður sína baráttusöngva. Snemma mun því þetta mikla haf, ýmist úfið eða slétt og spegilfagurt, hafa heillað huga drengsins, sem þarna fæddist og ólst upp. Þegar Andrés er á tíunda árinu er hann ráðinn til sumardvalar að Botni í Arnarfirði til sæmdarhjóna. En vistin verður þar lengri en ætlað var, því faðir hans veikist og deyr. Hann verður svo heimilisfastur þarna fram á tvítugs aldur. En hug- urinn stefnir alltaf til sjávarins. Hann er ákveðinn í því að verða sjómaður. Á páskum þegar hann er á fjórtánda ári ræðst drengurinn á handfæraskútuna Olivettu frá Patreksfirði, eign Vatneyrarbræðra og þar með var sjómennskuferill hans hafinn. En sjóveikin ætlaði alveg að drepa hann í byrjun. Drengurinn vildi þó ekki gefast upp og yfirvann hana. Næsta ár eftir ferminguna fer hann svo aftur um borð í þessa gömlu seglskútu. Eftir þessi tvö handfæraúthöld stefnir hugur drengsins að því að hann vill verða útgerðarmaður. Næst skerður það að lítil vél er sett í litla skektu sem Ágúst hús- bóndi hans á og eiga þeir bátinn saman og gerðu hann út á Arnar- fjörðinn. Pá er drengurinn orðinn 17 ára. Næsta ár selja þeir þennan litla bát og Andrés ræðst í það að láta smíða 2ja smálesta opinn vél- bát á Bíldudal, sem hlaut nafnið -Svanur. Fyrst áttu þeir Ágúst þennan nýja bát saman, en svo eignaðist Ándrés hann einn. Hart var sóttur sjór þó fleytan væri ekki stór, og gert út frá Suðureyri. Að- allega var róið vor og haust. Sumarið 1930 heldur svo Andrés norður til Akureyrar og ræðst á síldarskipið Lív sem Guðmundur Pétursson útgerðarmaður átti, og þar með var nýr þáttur í sjó- mennsku hans hafinn. Nú var heimskreppan mikla gengin í garð. Allar afurðir til lands og sjávar í lágu verði og erfitt um alla sókn fyrir efnalausan mann. Árið 1933 er viðburðaríkt í lífi Andrésar. Þá kvænist hann kærustu sinni Guðnýju Þorbjörgu Sigurðardótt- ur og þau hefja búskap í einu her- bergi á Patreksfirði. Andrés fær þá skipsrúm á togaranum Gylfa sem háseti og þau hafa fest kaup á húsi árið eftir. Hásetapláss á togara á þessum árum voru eftirsótt og komust ekki í þau nema afburða- menn, enda einna best borguð atvinna á íslandi þá og fengu færri en vildu. Andrés er svo togarasjó- maður frá Patreksfirði í sem næst áratug, en seint á þeim tíma, eða 1939, fer hann í Stýrimanna- skólann í Reykjavík og lýkur það- an prófi eftir hálfan annan vetur með 1. einkunn. Hann er annar stýrimaður á Gylfanum á undan- þágu eftir fyrri veturinn, en þá fóru nemendur á vetrarvertíð á fyrri vetri. Eftir að hafa lokið prófi verð- ur hann svo annar stýrimaður á togaranum Verði frá Patreksfirði. Á þessum árum voru íslenskir tog- arar fáir og menn þurftu oft að bíða árum saman til þess að verða skip- stjórar, þó úrvalsmenn væru. Það urðu því örlagarík straumhvörf í sjómannsferli Andr- ésar þegar honum var boðin skip- stjórn á 13 lesta vélbát og eign að \ IÍIK fW* ! IlJ 11 % 1

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.