Þjóðviljinn - 17.12.1983, Side 10
10 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Helgin 17.-18. desember 1983
dægurvnál (sígiid?)
í Hamrahlíð. „Jam“ er svo að segja
óbreytt frá fyrstu upptöku. Ekkert
hefur verið hreyft við því nema að
örlitlum trommuleik var bætt inn.
Textinn í „Drek-Lek“ er mjög
dramatískur, segir frá hetjudáðum
dreka nokkurs við að bjarga köng-
uló úr vef einum ógurlegum. Það
tekst en drekinn er nær dauða en
lífi og er það drekafrúin sem segir
söguna af afrekum manns síns.
„Beri-Beri“ er diskó stef við þenn-
an alræmda sjúkdóm, og er það
læknirinn að tala við sjúklinginn.
Textinn er fenginn að láni frá Dave
Coverdale („Stormbringer“) en
staðfærður. Ein mesta perla plöt-
unnar er lagið „Get ekki sofið“ en
textinn er eftir Sigríði Eyþórsdótt-
ur. Varast ber að taka lagið of há-
tíðlega, það er í senn ótrúlega
væmið og fyndið. Heyra má „un-
aðslegar" bakraddir Jakobs en að
sögn þeirra Tappameðlima er Jak-
ob einn fárra íslendinga meðlimur í
Bakraddafélaginu. Þetta er frábært
lag, með því skemmtilegasta sem
ég hef heyrt lengi. Strax eftir „Get
ekki sofið" kemur svo lokalagið,
„Miranda" (long versíon) þar sem
Kobbi fer á kostum í söngnum.
Miðað við fyrri plötu Tappans er
Miranda spor fram á við. Lögin eru
að vísu ósamstæð en það kemur til
af því að þau eru samin á mismun-
andi tíma. Tónlistin er komin í
greinilegri farveg. Flutningur er
allur hinn ágætasti, enda í öruggum
höndum Tony Cooks, en hann var
upptökustjóri á þessari plötu.
Mikið hefur verið rætt og ritað
um það hvort Tappinn sé að hætta.
Meðlimir Tappans segja að það
komi ekki öðrum við en þeim sjálf-
um. Það sé verið að búa til úlfalda
úr mýflugu. Hvort svo sem Tapp-
inn hættir eða ekki þá er Miranda
góð plata og á allt gott skilið og
vonandi drukknar hún ekki í því
jólaflóði sem nú er að færa allt í
kaf. Húná miklu betri örlög skilin.
JVS
Tappi tíkarrass í Klúbbnum fyrir rúmu ári: Eyþór gítarleikari, Gunni trommari, Björk söngvari, hljóm
borðs- og flautuleikari og Jakob bassaleikari. Ljósm.: Jón Hólm.
Miranda, Miranda...
Þá er plata Tappa tíkarrass kom-
in út. Loksins. Platan heitir Mir-
anda, var hljóðrituð og hljóð-
blönduð í júlí og átti að vera komin
út fyrir löngu síðan. En líkt og um
plötu Frakkanna, 1984, hefur lánið
ekki leikið við hana og hún tafist á
hinum ýmsu stigum vinnslunnar.
Hvað um það, út er hún komin og
það er jú fyrir mestu.
Platan hefur að geyma 13 lög
sem Tappinn hefur leikið á tón-
leikum undanfarin ár. Þetta eru lög
sem flestir Tappa-aðdáendur
lima nafnið á fyrrverandi ástmey
bassaleikara hljómsveitarinnar og
er óður til hennar.
Tónlistin á plötunni er ekki eins
létt og á fyrri plötu hljómsveitar-
innar, orðin harðari og kröftugri.
Textar plötunnar eru ansi skondnir
og kunna að koma mörgum á
óvart. „Kríó“ fjallar um gamlan
mann sem er að leita að kríunum
sínum. Hugmyndin á bak við text-
ann er fengin úr ritgerð sem einn
meðlima hljómsveitarinnar skrif-
aði á áfanga 110 í Menntaskólanum
kannast við. Nafn plötunnar, Mir-
anda, er dregið af fyrsta lagi henn-
ar og er, að sögn þeirra Tappameð-
Jón Viðar
Sigurðsson
skrifar
wm
Verö kr. 48,
LITSTÆKKUN með 20% afslætti er stór-
góð gjafahugmynd. Auk þess
eigum við mikið úrval af
fallegum MYNDA-
RÖMMUM.
KODAK DISK myndávélarnar eru einfaldar og
ódýrar. Gjöf sem heldur áfram aö gleðja.
RAMMAn MiB-WI
EGUM LITMYND-
UM, mikið úrval.
Tilvaldir i
barnaher-
bergið.
jlVIYNDAMÖPPUR
fyrir laus blöð o.fl.
Margir litir.
KODAMATIC skyndimyndavelm. Nu færöu
þynnri og þægilegri skyndimyndir með
3^, nýju Kodamatic Trimprint film-
unni. Samt á sama góða
verðinu.
Verö kr. 525
KODACOLOR VR GJAFAPAKKI. Allar
fjórar nýju Kodacolor VR film-
urnar í einum pakka og
72ja síðna upplýs-
ingabækl-
ingur. S
HflNS PETERSEN HF
GLÆSIBÆR
S: 82590
BANKASTRÆTI
S:20313
AUSTURVcR
S: 36161
HflNS PETERSEN HF
BANKASTRÆTI
S:20313
GLÆSIBÆR
S:82590
AUSTURVER
S: 36161
Jo Boxers í einkennisklæðnaði sín-
um.
Jói
boxari
Nýverið snaraði breska hljóm-
sveitin JoBoxers sér fram í sviðs-
ljósið. Þetta er hálfgerð huldu-
hljómsveit því að erfitt er að
grafast fyrir um fyrri afrek hennar
og þeirra sem hana skipa. Hljóm-
sveitin hefur skapað sér vinsældir
m.a. fyrir lagið „Just got lucky“
sem er að finna á seinustu plötu
hennar, Like Gangbustcrs er kom
út ekki alls fyrir löngu.
Þeir félagar leika létta og fjöruga
tónlist. Tónlist sem minnir um
sumt á Joe Jackson og Men at
Work og annað á Graham Parker.
Þessi loðna skilgreining segir von-
andi eitthvað en þeir félagar
blanda ýmsum áhrifum saman í
tónlist sinni og er útkoman nokkuð
skemmtileg áheyrnar á köflum.
Tónlistin er kraftmikil og lætur
bara nokkuð vel í eyrqm.
Það sem vekur mesta athygli við
þessa plötu er hin skemmtilega
röddun sem heyra má á henni. All-
ir fimm meðlima hljómsveitarinnar
syngja mjög vel. Röddunin gefur
tónlist JoBoxers sérstakan blæ og
segja má að það umfram annað sé
einkennandi fyrir hljómsveitina.
Hljómsveitin hefur skapað sér á-
kveðna ímynd, í stíl við karlana á
„eyrinni" í Englandi, eða úti-
göngumenn frá því um 1930. Ekki
svo slæm samlíking, eða hvað?
Þessi stuttaralega umfjöllun fæl-
ir vonandi engan frá „Like Gang-
busters“ því að hún er um margt
athyglisverð og á allt gott skilið.
JVS
Myndabók
Myndabók Fjölva um rokk er að sönnu
glæsileg Ijósmyndabók, með myndum af 100
rokkstjörnum. Textinn sem fylgir myndunum
er hins vegar ansi yfirborðslegur, ekki við
öðru að búast þar eð honum er þröngur
stakkur búinn vegna myndanna. Samt finnst
manni hann gæti verið sannleikanum sam-
kvæmari, þó að ekki só hægt að segja að
farið sé með beinar lygar. Langan formála
ritar íslenskur höfundur bókarinnar, Þor-
steinn Thorarensen, en hefði átt aö fá ein-
hvern sór fróðari mann í rokkmálum til þess.
Sem sagt: Hór er um skemmtilega bók að
ræða myndanna vegna, en ef fólk vill fá upp-
lýsingar af viti um rokkhljómsveitir verður
það enn að róa á erlend mið, þrátt fyrir út-
komu þessarar bókar. A