Þjóðviljinn - 17.12.1983, Qupperneq 15
Helgin 17.-18. desember 1983 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 15
íslenskar hljómplötur
Ný plata með
píanóleik Eddu
Erlendsdóttur
Franz Schubert (1797-1828):
Þrír píanóþættir
(Drei Klavierstiick) D. 946.
Alban Berg (1885-1935):
Sónata op. 1.
Arnold Schönberg (1874-1951):
Þrír píanóþættir
(Drei Klavierstiicke) op. 11.
Flytjandi: Edda Erlendsdóttir (Píanó)
Utgefandi: Classicorama
FLK 547009, 1983
Dreifing: Fálkinn.
Nýlega barst íslenskum hljóm-
plötuunnendum sending aö utan í
formi hljómplötu og er það Edda
Erlendsdóttir sem leikur píanótón-
list eftir þrjú austurrísk öndvegis-
tónskáld. Platan er hljóðrituð í
Háskólabíói og sá Sigurður Rúnar
Jónsson og Studio Stemma um þá
hlið mála. Skurður og pressun fór
svo fram í Frakklandi þar sem
platan er gefin út.
Það er eflaust óþarfi að kynna
Eddu Erlendsdóttur fyrir íslensku
áhugafólki um tónlist, svo oft hefur
hún haldið hljómleika hér við góð-
an orðstír og viðtökur hafa verið í
samræmi við vaxandi styrk þessa
unga píanista. Auk einleikshljóm-
leika hér heima og erlendis, hefur
Edda leikið ásamt Sinfóníuhljóm-
sveit íslands, nú síðast fyrir jólin í
fyrra. Hún er búsett í París en starf-
ar sem kennari við Tónlistarhá-
skólann í Lyon.
Val tónverka á þessari hljóm-
plötu er í samræmi við efnisskrá
hljómleika sem Edda hélt hér á
Kjarvalsstöðum og í Stokkhólmi á
þessu ári og hlaut þá mikið lof fyrir
tök sín á klassískri píanótónlist
jafnt sem túlkun á tónlist tuttug-
ustu aldar tónskálda. Þeir eru ekki
svo margir píanóleikararnir sem
helga sig repertorium frá Schubert
til Schönbergs með sannfærandi ár-
angri. Þetta hefur Eddu tekist með
afbrigðum vel og sannast ótvírætt á
plötunni. Eflaust má þakka það
innsæi hennar og skilningi á tónlist
almennt, að hún afneitar þeirri út-
þvældu staðhæfingu að Vínar-
skólamennirnir (Schönberg, Berg
og Webern) hafi brennt allar brýr
að baki sér með fráhvarfi frá hefð-
bundinni, díatónískri tónlist.
Þar með skipar Edda sér á bekk
með píanistum sem ekki láta sér
nægja að túlka misjafnlega sam-
þætta efnisskrá, heldur leitast við
að opinbera eðli þeirrar tónlistar
sem hún flytur og opna eyru
áheyrandans fyrir tengslum ólíkra
tónverka frá ólíkum tíma. Hún vill
m.ö.o. beina eyrum hlustandans
að órofá samhengi tónsögunnar.
Fátt er vænlegra til árangurs í þeim
efnum en leika Þrjá píanóþætti
eftir þá Schubert og Schönberg,
en, eins og franska tónskáldið Phil-
ippe Manoury bendir á í ágætum
fylgitexta á plötuumslagi, er
uppbygging tónverkanna síður en
svo frábrugðin. Enda stóðu þeir á
mörkum tveggja tíma, formbrjótar
og formskapendur í senn.
Edda flytur bæði verkin af
sannfærandi innlifun. Hún opnar
1. þátt Schuberts með hressandi ör-
yggi og fer næsta létt gegnum hin
misjöfnu tempo sem verða á vegi
hennar. Milliköflunum skilar hún
af festu og íhygli. í 2. þættinum
„all-’italiano“ sýnir Edda mikil til-
þrif án þess að fórna þumlungi af
skýrleik þessa slungna verks þar
sem millikaflinn er hraður í mót-
sögn við byggingu 1. og 3. þáttar.
Lokaþátturinn, sá 3. og týpískasta
rondóið af þeim öllum, er hreint
„brilljant" í túlkun Eddu. Áköfum
og hvikulum upphafs- og loka-
köflunum skilar hún meistaralega,
en millikaflanum af miklum inni-
leik. Óneitanlega hefur maður það
á tilfinningunni eftir að hafa hlust-
að á leik Eddu, að hún nái til kjarn-
ans í píanóverkum Schuberts,
höndli jafnt hinn klassíska bak-
grunn tónskáldsins sem og róman-
tískt eðli hans.
Um það hefur verið deilt hvað
vakað hafi fyrir Schubert með Pí-
anóþáttunum þrem. Óvíða minna
þeir á sónötu, einkum vegna áber-
andi tengsla sem skapa þeim heild.
Erfitt væri að hugsa sér þættina
eina og sér, slitna úr innbyrðis sam-
hengi. Hið sama gildir um Þrjá pí-
anóþætti Schönbergs op. 11, sem
hann samdi árið 1909. Edda fer
nærfærnum fingrum um þessa
tímamótandi perlu í þróun tón-
skáldsins. Líkt og í verki Schuberts
er það lokakaflinn sem ósjálfrátt
dregur að sér athygli áheyrandans
umfram hina, enda leikur Edda
hann afburðavel og dregur fram
expressiónískt eðli hans á tilþrifa-
mikinn hátt. Ósjálfrátt skýtur því
upp í huga manns að 1909 málaði
Kandinsky einmitt fyrstu óhlut-
bundnu myndir sínar undir ex-
pressiónískum hætti.
En úr því minnst er á expressión-
íska list, hlýtur Sónata Albans
Bergs að teljast enn ljósara dæmi
sökum rómantískrar náttúru sinn-
ar. Hér eru engin ákvæði um að
„þrýsta lyklunum hljóðlega nið-
ur“, heldur svella hljómarnir í
stríðum fans sem óneitanlega
minnir á Liszt. Reyndar er Sónata
Bergs eins þátta og í h-moll og þarf
vart að tíunda frekari skyldleika
við Sónötu Liszts, en þó er Sónata
Bergs op. 1 fremur í ætt við seinni
tíma verk ungverska tónskáldsins.
Oft er yfirbragðið sláandi líkt.
Edda sýnir hér vel vald sitt yfir
blæbrigðum hljóðfærisins, sterkri
og veikri hrynjandi og e.t.v. hrífur
hún áheyrandann fyrr gegnum
Berg en hin tónskáldin. Það gerir
hin frjálsa og ljóðræna stemmning
verksins, sem hljóðfæraleikaran-
um tekst að koma til skila á þrótt-
mikinn hátt.
Hljóðritunin er vel úr garði gerð
og skýr. Hvergi er að finna kæfða
hljóma eða flata. Þá er pressun og
frágangur allur hinn besti og eins
og ég gat um áður, þá er verkunum
fylgt úr hlaði með ítarlegum skýr-
ingum á bakhlið umslagsins. Þessi
hljómplata er fyrsta flokks og
kærkomin öllum þeim er unna
góðri tónlist. HBR
GENERAL
ELECTRIC
KENWOOD
HEIMILISTÆKI
Á HAGSTÆÐU VERÐI
Kenwood Mini
Verð kr. 1.245.-
KENWOOD
Kenwood Chefette
G.E. Hrærivél
WIGO
Rafmagns handsnyrtisett
Verð kr. 3.130.- Verð kr. 2.694.-
GENERAL ELECTRIC
. . kr. 8.430.- Gufustraujárn kr. 1.240.-
. . kr. 11.820.- Gufustraujárn kr. 1.837.-
. . kr. 13.490.- Dósahnífur kr. 1.871.-
. . kr. 2.695.- Brauðrist kr. 1.625.-
rn kr. 1065.- Grænmetis- og kjötkvörn . . kr. 4.670.-
. . kr. 233.- SONA
. . kr. 6.630.- Kaffivél frá kr. 2.140.-
Djúpsteikingapottur kr. 4.965.-
frá kr. 1.475.- Dósaupptakari & brýni . . . kr. 1.365.-
frá kr. 595.- Hraðsuðukatlar kr. 1.935.-
. . kr. 2.119.-
. . . kr. 1.066.-
HF
V
Laugavegi 170-172 Símar 21240-11687