Þjóðviljinn - 06.01.1984, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 06.01.1984, Blaðsíða 1
Vestfjarðarkratar í baráttuham í Alþýðuflokknum: Kjartan hætti formennsku! „Mestu máli skiptir“ segir í leiðara jólablaðs Skutuls mál- gagns Alþýðuflokksins á Vest- fjörðum, „að flokksmenn reyni að komast að því, af hverju Al- þýðuflokkurinn - flokkur jafn- aðarmanna í áratugi - er að hrynja saman undan sjálfum sér“. „Sumir kenna um forystu flokksins, og þá sérstaklega for- manni flokksins, sem ekki þykir gera sig vel í sjónvarpi. Aðrir skýra fylgishrunið með skorti á pólitík“, segir enn fremur í þessum leiðara sem er reiði- þrunginn fyrirlestur yfír núver- andi forystu flokksins. „Fram- tíð Alþýðuflokksins er í hönd- um sex manna, og hún ræðst á næstu mánuðum“. í leiðara Skutuls segir ennfrem- ur: „Komist menn að þeirri niður- stöðu að flokkurinn, eða sú pólitík sem hann hefur búið til á grundvelli jafnaðarstefnunnar, sé tíma- skekkja í þessu landi, nú þá taka menn niðurstöðuna alvarlega og leggja flokkinn niður. Ef menn hins vegar komast að því að það sé forysta flokksins sem ekki kunni fótum sínum forráð á ísilögðum velli stjórnmálanna, nú þá verða aðrir menn að taka við. Svo einfalt er það“. „Hobbý“ fyrir kyrrsetumenn í leiðara er ekki einungis vegið að Kjartani Jóhannssyni formanni Alþýðuflokksins heldur fá aðrir forystumenn einnig á baukinn: „Stjórnmál og stjórnmálabarátta er ekki „hobbý“ fyrir kyrrsetu- menn. Þeirra hobbý eru krossgátur". Og síðar er vísað í sali alþingis: „Það er forystunnar - þingmannanna sex - að ræða það í mikilli alvöru fyriropnum tjöldum, af hverju þeir eru ekki fleiri". „Framtíð Alþýðuflokksins er í höndum sex manna og hún ræðst á næstu sex mánuðum“. Sjá 2, 3 Og 16 Fjárhagsáætlun borgarinnar afgreidd í gær: Óskhyggja og skuldasöfnun sagði Sigurjón Pétursson Stórtjón af völdum sjógangs Þrjú fiskiskip, þar af eitt 450 lesta, og 9 litlir fiski- bátar slitnuðu frá bryggju í Sandgerðishöfn í ofsaveðri seint í fyrrinótt. Tvö hús hrundu á Akranesi og nokkur brotnuðu í sjógangi sem gekk yfir Skagann. Stór- skemmdir urðu á varnargarði hafnarinnar á Akranesi og undirstaða olíutanks brotnaði. Vatn flæddi inn í kjallara húsa á Seltjarnarnesi og í Grindavík urðu minniháttar skemmdir. Stórstreymt var og stormur að suðvestan og foráttubrim. „Það er veruleg ástæða til að gera ráð fyrir að tekjuá- ætlun borgarinnar sé röng, enda byggir hún á sömu óskhyggju og fjárhagsáætlun síðasta árs, þar sem reiknað er með að 164 einbýlis- og raðhúsalóðir í Graf- arvogi gangi út og í gatnagerðargjöld þar fái borgin 66 miljónir króna“, sagði Sigurjón Pétursson m.a. við af- greiðslu fjárhagsáætlunar borgarinna í gær. í gær var verið að hífa bátana sem rak upp í fjöru í Sandgerðishöfn upp á bryggju. Það er Sóleyin sem verið er að lyfta þarna en eftir sjóganginn eru fimm bátar stórskemmdir. Ljósm. eik. Sigurjón minnti á að frá því í sumar hefðu aðeins 5 lóðir gengið út í Grafarvogi, en sem kunnugt er var á þriðja hundr- að ióðum þar skilað sl. vor. Hann lýsti stuðningi við tillögur um að íækka útsvar í Reykjavík og lengja lán sem borgin hefur tekið vegna Grafarvogsævin- týrisins. „Þó slæmt sé að safna lánum,“ sagði Sigurjón, „er það þó skárra en að láta höggið af Grafarvogsævintýrinu ríða á útsvarsgreiðendur á þessu ári ofaní alla kjaraskerðinguna.“ Pá lögðu fulltrúar Alþýðu- bandalagsins til að gatnagerð- arframkvæmdum í Grafarvogi, 2. áfanga yrði frestað og sagði Sigurjón að lóðabankinn þar væri nógu stór og engin ástæða væri til þess að halda áfram að stækka hann. Sigurjón benti á að allir gjaldaliðir sem hægt væri að leggja á almenning, skattar og þjónustugjöld væru hækkuð langt umfram tekjuhækkun borgarbúa og á sama tíma væru framkvæmdir og útgjöld borg- arinnar sem vörðuðu almenn- ing miklu skornar niður. Hann ítrekaði gagnrýni sína á skatta- stefnu meirihlutans og skulda- söfnun, en á þessu ári fer þriðja hver króna sem afgangs er í af- borganir og vexti. Engu að síð- ur er reiknað með nýju láni uppá 90 miljónir króna á árinu. -ÁI. Sjá bls. 3 DJÚBVIUINN Danmörku gæti tvöfaldað þingfylgi sitt, en þó á kostnað sam- starfsflokka og ríkisstjórnarsetu. Sjá6 janúar 1984 föstudagur 49. árgangur 4. tölublað Sandgerði - Akranes

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.