Þjóðviljinn - 06.01.1984, Blaðsíða 5
Föstudagur 6. janúar 1984 ÞJOÐVILJINN - SÍÐA 5
Blöðruhálskrabbamein í körlum
Hormónagjöf eða vönun
eru helstu
ráð lækna-
vísindanna
Nýlega þinguðu evrópskir
læknar í Rómaborg um ráð
við lækningu á krabbameini í
blöðruhálskirtli karla. Hafa
læknar orðið æ fráhverfari
hinni hefðbundnu með-
höndlun með österogen-hor-
món vegna alvarlegra hliðar-
verkana sem komið hafa
fram á hjarta og æðakerfi.
Krabbamein í blöðruhálskirtli er
algengasta krabbameinið sem hrjá-
ir karlmenn og er það kynhormón-
inn testosteron sem örvar vöxt á
æxlinu. Eitt atriði sem gerir lækn-
ingu þessa sjúkdóms erfiða er að
æxli í blöðruhálskirtli geta bæði
verið góðkynja og illkynja en ekki
hefur reynst mögulegt að greina á
milli slíkra æxla á frumstigi æxlis -
myndunar.
Hefðbundin lækning við æxlis-
myndun íblöðruhálskirtli hefur allt
frá þvf á 6. áratugnum verið í því
fólgin að gefa mönnum kven-
hormóninn österogen. Kven-
hormón þessi veldur því að æxlis-
vöxtur stöðvast og æxlið minnkar
þannig að sjúklingar fá allgóðan
bata í mörgum tilfellum. Með-
höndlun með österogen-hormón
þarf hins vegar að vara alla ævina
eftir að hún er hafin og hún hefur
sýnt sig hafa hættulegar hliðarverk-
anir: áhrif á hjarta og æðakerfi hafa
aukið á líkur þessara manna á að fá
blóðtappa og hjartaslag og auk
þess hefur þessi meðhöndlun haft
sálræn áhrif sem lýsir sér í þung-
lyndi og kynferðislegu getuleysi
auk þess sem kvenhormóninn veld-
ur óeðlilegum vexti á brjóstum.
Þegar nóbelsverðlaunahafinn
Charles Huggins kom fram með
österogenmeðferð sem lækningu
við blöðruhálskrabba gat hann
Bæði hjá konum og körlum er myndun kynhormóna stjórnað af tveim hormónum í heiladinglinum. Hann
sendir boð til eistnanna sem sjá um mestalla framleiðslu karlhormónsins testosterons. Nýrnahetturnar geta
þó einnig framleitt testosteron-kynhormón, og gera það í auknum mæli ef eistun eru fjarlægð. Stöðugt
„upplýsingastreymi“ á sér stað á milli eistnanna, nýrnahettnanna og heilans um hið eðlilega kynhormóna-
jafnvægi.
þess jafnfrarrit að vönun myndi
hafa sömu áhrif. Hún hefur þann
kost fram yfir österogenmeðferð
segja læknar, að hún 'veldur ekki
truflun á blóðrás og ekki þarf ævi-
langa lyfjatöku. Hins vegar er ekki
hægt að endurvekja kyngetuna
eftir vönun eins og hægt væri með
því að hætta að gefa östrogen.
Vönun hefur hins vegar sáralítið
verið beitt gegn þessum sjúkdómi,
þar sem hún er talin hafa í för með
sér alvarlega fötlun. Hafa sumir
læknar haldið því fram að hér sé
um félagslega skilyrt viðbrögð að
ræða þar sem gildi karlmannsins sé
í svo ríkum mæli tengt við kyngetu
hans á meðan það þykir ekki sérs-
takt tiltökumál að vana konur með
því að fjarlægja eggjastokkana svo
dæmi sé tekið.
Tilraunir og rannsóknir eru nú
gerðar með aðra valkosti í með-
höndlun þessa sjúkdóms. Beinast
þær að því að stöðva með lyfjagjöf
framleiðslu þá á karlhormóninum
testosteron, í eistunum og nýrna-
hettunum. Hafa vísindamenn í
Kananda náð nokkrum árangri í
þessum efnum með því að beita
svokölluðum anti-androgenum
ásamt með svokölluðum LHRH-
hormón sem framleiddur er í heila-
dinglinum.
Þegar æxlismyndunar verður
vart í blöðruhálskirtli áður en hún
hefur náð að breiðast enn frekar út
er ýmist að beitt er geislalækn-
ingum eða þá að blöðruhálskirtill-
inn er fjarlægður með skurðað-
gerð. Það er þó í fæstum tilfellum
sem sjúkdómurinn uppgötvast svo
snemma að hægt sé að beita slíkri
aðgerð. Skurðaðgerð hefur þann
galla að hún eyðileggur hæfileika
mannsins til að halda þvagi og veld-
ur jafnframt kynferðislegu getu-
leysi.
Krabbamein í blöðruhálskirtli
er algengasta krabbameinið sem
bundið er við karlmenn á sama hátt
og brjóstakrabbi er algengasta
krabbameinið sem bundið er- við
konur. Ástæðan fyrir því að ekki
hefur verið lagt jafn mikið upp úr
fyrirbyggjandi aðgerðum og rann-
sóknum á körlum er meðal annars
sú að krabbameins í blöðruháls-
kirtli verðursjaldanvartinnan við
50 ára aldur. Nú eru heilbrigðisyf-
irvöld í Svíþjóð hins vegar að gera
sérstakt átak í þessu sambandi þar
sem skipulögðum sérfræðirann-
sóknum á öllum grunuðum tilfell-
um verður beitt.
ólg./DN
3.358 atvinnulausir
í desembermánuði sl. voru
skráðir atvinnuleysisdagar á
landinu öllu 47.436, 24.403 hjá
konum og 23. 033 hjá körlum. Þetta
jafngildir því að 2.190 manns hafi
verið skráðir atvinnulausir allan
mánuðinn. Síðasta virkan dag
mánaðarins voru hins vegar á skrá
3.358 manns, 1.868 konur og 1.490
karlar. Fjöldi skráðra atvinnu-
leysisdaga í desember svarar til
þess að 20% af áætluðum mannafla
á vinnumarkaði í mánuðinum sam-
kvæmt spá Þjóðhagsstofnunar hafi
verið á atvinnuleysisskrá. I nóv-
embermánuði sl. voru skráðir
27.194 atvinnuleysisdagar og því
aukningin milli mánaða rösklega
20 þúsund dagar og hlutfall af
mannafla úr 1,1% í 2,0%, sam-
kvæmt tölum félagsmálaráðuneyt-
isins.
f desembermánuði árið 1982
voru skráðir 30.607 atvinnuleysis-
dagar á landinu öllu eða 16.829
dögum færri en nú. Aukningin er
um 55% og er það minni aukning
en í flestum öðrum mánuðum árs-
ins þar sem yfirleitt hefur verið um
tvöföldun að ræða, miðað við árið
á undan. Skráðir atvinnuleysisdag-
ar í desember sl. eru hins vegar
fleiri en nokkru sinni frá árinu
1980, svo sem fram kemur á töflu 1.
í heild voru á árinu 1983 skráðir
307.660 atvinnuleysisdagar, sem
jafngildir að um 1.200 manns hafi
verið atvinnulausir allt árið eða
1.0% af mannafla samkvæmt áætl-
un Þjóðhagsstofnunar. Árið 1982
voru skráðir um 200 þúsund at-
vinnuleysisdagar, sem jafngildir
770 manns eða 0,7% af mannafla.
Aukning skráðra atvinnuleysis-
daga milli ára er því rétt um 54%,
sem er nokkru minni aukning en
spár gerðu ráð fyrir.
í þessu sambandi ber þó að hafa í
huga að skráð atvinnuleysi jókst
verulega síðustu daga desember-
mánaðar sl. m.a. vegna uppsagna
kauptryggingarsamninga í frysti-
húsum, en þær uppsagnir hafa ekki
veruleg áhrif á fjölda skráðra at-
vinnuleysisdaga í desember, vegna
þess hve seint þær áttu sér stað.
Þessa mun vafálaust gæta í tölum
janúarmánaðar.
Síðar er væntanleg nánari
greinargerð frá félagsmálaráðu-
neytinu um þróun atvinnuástands á
einstökum stöðum og landssvæð-
um árið 1983.
Fjöldi skráðra atvinnuleysisdaga og atvinnulausra
í desembermánuði 1980 - 1983.
Atvinnuleysisdagar: Desember Atvinnulausir: Desember
Svæði: 1980 1981 1982 1983 1980 1981 1982 1983
Höfuðborgarsvæói 2.670 2.387 9.350 15.518 123 110 432 716
Vesturland 220 1.163 1.112 4.076 10 54 51 188
Vestfirðir 0 44 264 521 0 2 12 24
Norðurland vestra 869 1.824 4.623 3.758 40 84 213 173
Norðurland eystra 4.242 3.619 7.129 9.778 196 167 329 451
Austurland 1.432 1.290 3.127 3.892 66 60 144 180
Suðurland 2.088 3.885 3.087 4.406 96 179 142 203
Reykjanes 836 1.900 1.915 4.971 39 88 88 229
Landið allt: 12.357 16.112 30.607 47.436 570 744 1.412 2.189
( hlutfalli af mannafla: 0,6 0,7 1,3 2,0
Sífellt
fleiri
skilja
Alls voru 11.842 mál afgreidd hjá
Borgardómaraembættinu í
Reykjavík í fyrra, en 8611 árið áð-
ur. Þingfestingar voru 12.744 en
voru 8660 á árinu 1982.
Skilnaðarmálum fer stöðugt
fjölgandi og fengu 193 leyfi til
skilnaðar að borði og sæng á árinu
1983, en 173 árið áður. Skilnað-
armál voru 577, en voru 521 1982,
og sifjamál vegna slita á óvígðri
sambúð voru 1983 99 en 83 1982.
Dæmt var í 1063 málum hjá
Borgarfógetaembættinu á árinu
1983, sætt varð í 779 málurn og hætt
var við 1305 mál. Áskorunarmálin
voru flest eða 8623 á móti 5929
1982.
UMFERÐARMENNING
STEFNULJÓS skal jafna gefa
í tæka tíð.