Þjóðviljinn - 31.01.1984, Síða 7
Þriðjudagur 31. janúar 1984 ÞJÓÐVILJINN - SÍÖA 7
Skákmót Búnaðarbankans
Pía Cramling hefur
tekið forystuna!
Einhver athyglisverðasta viðureignin
var án efa skák Guðmundar og Nicks
DeFirmian. Mikið tímahrak setti svip
sinn á taflmennskuna. Lítum á stöðuna
eftir 28 leiki:
Mikil og spennandi barátta fer
fram þessa dagana að Hótel
Heklu þar sem skákmót Búnað-
arbanka íslands hið fyrsta í röð-
inni fer fram. Búnaðarbanki ís-
lands hefur um langt árabil verið
stórveldi á sviði skákarinnar
svo sem flestir þeir sem til skák-
mála þekkja vita. Þarf ekki ann-
að tii upprifjunar en hina gegnd-
arlausu sigurgöngu sveitar
bankans í Stofnanakeppninni
sívinsælu svo og öðrum þeim
sveitakeppnum sem boðið er
upp á á landi hér.
Þremur umferðum er lokið á mótinu í
þessum skrifuðum orðum og hefur
sænska skákdrottningin Pia Cramling
óvænt náð forystunni, hefur hlotið 21A
vinning. Næstir koma Nick DeFirmian,
undirritaður og líkur voru á því að Jó-
hann Hjartarson eða Margeir Péturs-
son næðu tveimur vinningum að lokn-
um biðskákum sem tefldar voru í gær.
Gangur mála fram til þessa hefur orðið
sem hér segir:
1. umferð:
Pia Cramling-Jón L. Árnason 1:0
Shamkovich
-Margeir Pétursson 1/2:1/2
DeFirmian-Helgi Ólafsson 1/2:V4
Knezevic—Jón Kristinsson biðskák
Jóhann Hjartarson
- Guðmundur Sigurjónss. biðskák
Sævar Bjarnason-Albúrt biðskák
Sigur Piu yfir Jóni vakti feiknarlega
athygli enda tefldi sænska stúlkan allt
að því óaðfinnanlega. Jón hætti sér út í
vafasamt afbrigði og fékk aldrei rönd
við reist.
Mikil barátta var í skák Shamkovich
og Margeirs og virtist Margeir eiga í
erfiðleikum á tímabili, en hann varðist
af öryggi og hélt jöfnu. DeFirmian og
Helgi sömdu jafntefli þegar sýnt var að
báðir kæmust í alvarlegt tímahrak.
Þær aðrar skákir sem fóru í bið stóðu
þannig áður en þær voru til lykta leiddar
í gær, að Guðmundur Sigurjónsson er
með tapaða stöðu gegn Jóhanni Hjart-
arsyni, Jón Kristinsson er einnig með
allt að því tapaða stöðu gegn Knezevic.
Jafnteflisúrslit voru líklegust í skák Sæ-
vars Bjarnasonar og Alburts.
2. umferð:
Pla Cramling-Knezevic 1/2:1/2
Guðmundur Sigurjónsson
-Sævar Bjarnason 1:0
Jón L. Árnason-Helgi Ólafss. 0:1
Margeir Pétursson
- Jóhann Hjartarson biðskák
Aiburt-DeFirmian 0:1
Jón Kristinsson—Shamkovich 0:1
Pia og Knezevic sömdu fljótlega um
jafntefli en aðrar skákir voru tefldar í
botn. DeFirmian vann Alburt glæsilega
með svörtu eftir að Rússinn landflótta
hafði teflt ónákvæmt í byrjuninni.
Guðmundur vann Sævar. Sævar
lenti í krappri vörn, en þegar hann fékk
kjörið tækifæri til þess að rétta úr kútn-
um og gott betur lét hann sér það úr
greipum ganga.
Jón Kristinsson tefldi byrjunina illa
gegn Shamkovich og tapaði fljótt. Hann
hefur ekki getað stundað skáklistina
starfsins vegna í fjöldamörg ár en öllum
er þó Ijóst að hann þarf ekki að tefla
mikið til þess að ná sínum fyrri styrk-
leika.
Jón L. Árnason var í vígahug eftir
skákina við Piu Cramling en teygði sig
heldur of langt í flóknu miðtafli.
Skák Margeirs og Jóhanns fór í bið
og var Margeir með heldur betri stöðu.
Það fer ekkert á milli mála hver
vekur mesta athygli á skákmóti
Búnaðarbankans: Pia Cramlig
hefur hlotið 2Vi vinning úr þrem
skákum og er til alls vís.
3. umferð:
Helgi Ólafsson-Alburt Vir.V.2
DeFirmian
- Guðmundur Sigurjónss. Vv.'h.
Sævar Bjarnason
- Margeir Pétursson biðskák
Knezevic-Jón L. Arnason Vi\Vi
Shamkovich-Pia Cramling 0:1
Jóhann Hjartarson
- Jón Kristinsson 1/2:1/2
Enn var Pia Cramling hetja dagsins
en hún vann Shamkovich með glæsi-
brag. Ef svo heldur sem horfir ætti
sænska stúlkan að geta blandað sér í
baráttuna um efsta sætið. Það verður
að vísu að segjast eins og er að Sham-
kovich tefldi allof linkulega gegn stúlk-
unni og nýtti sér hvergi þau færi sem
honum buðust í miðtaflinu.
Helgi og Alburt sömdu fljótt um jafn-
tefli en frá fræðilegum sjónarhóli séð
var skákin hin athyglisverðasta.
Jóhann Hjartarson fékk yfirburðar-
stöðu gegn Jóni Kristinssyni en Jón
varðist vel og hélt jöfnu.
Knezevic og Jón L. slíðruðu sverðin
eftir skamma stund.
abcdefgh
Lengi vel átti Guðmundur við erfið-
leika að etja en hér er hann kominn yfir
það erfiðasta. Klukkan sýndi að kepp-
endur áttu vart meira en fjórar mínútur á
12 leiki. Nú gerast forvitnilegir hlutir:
29. Hf7?? b5??
30. axb5?? axb5
31. h3
- og skömmu síðar sömdu keppendur
um jafntefli.
Þegar grannt er skoðað kemur í Ijós
að Guðmundur misti af röktum vinningi
í tvígang: 29.- Bc5!l vinnur nær sam-
stundis. Hugmyndin er sú að eftir 30.
Dxc5 kemur 30. - Dxf7! ogsvarturvinnur
lið. Ef t.d. 30. Df4 þá 30. - Hxe5!! 31.
Dxe5 Dxf7! o.s.frv.. Eftir 30. axb5 átti
svartur enn þess kost að leika biskupn-
um til c5 en hann kaus að drepa peðið
aftur. Vanaviðbrögð!
Um framkvæmd mótsins er ekkert
nema gott að segja. Aðstæður á
keppnisstað eru fullkomlega viðun-
andi, þó e.t.v. sé helst til þröngt um
áhorfendur, en þess má geta að ef að-
sókn verður enn meiri en verið hefur er í
ráði að flytja skákskýringar yfir í útibú
Búnaðarbankans sem er handan göt
unnar.
Örstutt svar til Björns Dagbjartssonar:
Allir vissu en þ'ógðu þó
Björn Dagbjartsson, varaþing-
maður og forstjóri Rannsóknar-
stofu fiskiðnaðarins, veitir mér
þann vafasama heiður að draga
mig inní deilur sem standa yfir milli
líffræðinga innan og utan Haf-
rannsóknarstofnunar um fiskrann-
sóknir, vistfræði sjávar og annað
þeim málum viðkomandi, svo og
hugmynd Jóns Kristjánssonar
fiskifræðings um að veiða smáfisk
til að auka æti í sjónum.
Björn segist ekkert skilja í því að
ég skuli hafa skrifað jafn mikið um
kenningar líffræðinganna, utan
Hafrannsóknarstofnunarinnar og
raun ber vitni, en spyr svo: Getur
það verið að þetta komi Alþýðu-
bandalaginu vel????
Ég spyr á móti? Getur það verið
að Björn Dagbjartsson hafi ger-
spillst svo við það að sitja sem vara-
maður inná Alþingi í haust að hann
skrifi svona með góðri samvisku,
eða er hann að vinna sig í álit í
Sjálfstæðisflokknum með svona
fáránlegum skíifum? Lítum nú á
málið í heild.
Pað var alls ekki Þjóðviljinn,
sem opnaði þetta mál, heldur
Morgunblaðið, sem átti gott viðtal
við Jón Gunnar Ottósson, skömmu
fyrir jól. Varla hefur það verið til
styrktar sjávarútvegsstefnu Al-
þýðubandalagsins. Síðan tók for-
sætisráðherra Stengrímur Her-
mannsson ummæli Jóns Gunnars
upp, bæði í áramótaskrifum sínum
og ræðum og þóttu kenningar hans
athyglisverðar. Varla til styrktar
Alþýðubandalaginu eða hvað?
Síðan gerist það að haldinn er
fundur á vegum Líffræðingafélags
íslands og Hafrannsóknarstofnun-
arinnar um málið og átti forsætis-
ráðherra hlut að því að fundurinn
var haldinn. Þar endurtók Jón
Gunnar margt af því sem hann
sagði í viðtalinu við Mbl. og bætti
ýmsu nýju við. Þar á meðal sagði
hann að ekkert samband væri á
milli stærðar hrygningarstofns og
LAi-C.A.KÓACíUK S* JANt’AK 13
Fiskveiðipólitík eða
pólitísk fískifræði
— cfti? 8jÖrr<
IMighjfírfmnt
.Ólá.Wf.. *ftí.:ft>:U*K» ::
>í Ui»s» lítíft: :
•.t.p.r.f.A voiíjftái lioíiiiw'.yitKÍ'
\(y"
1<»
<UI rir* x» » x (otíirj'.l 'íl
'Mzvhfí <■■/, aíilir.wsoi:
áfex'xt MdffRí.r
t.útiufiia á »..'lraí»t':l)ft og
nr. ftdlk'Síri) 6 it» jviiskx.
iMxiliagnr HxftMtmáknx'
.itofnimxr. sík: toisín fynr
N'mðörbiMli jan.-iiix:.;
Mrftníhébríui >>g wcáalWagi)
súéar »ift SuAur oj Aitaur
imd
::«! rá: .:,3 Sil S,l
■ .■vu»Mrs*>!r.iM
MoíjJóu ->j< iftftéallc&g'i á
l-iftnu í ftiSvcnthrr
mn-im
■%<»:»***>•
IW. ’ "ií>
ji
Mmmt
'fcrwAt*: <í«J» s&iNvvkw. t*ni-
>xtsa> />::< < í.'riftX, >ii<! tjí
**»■»». t.ftUira f!:o::ot4kft«.
'Mtr.iíft SsftRr :
t.vxyr ir :M-t: )ii» : |<t<«W>^»
hftkUto : «ttft «ft )o?o:u, Vi» ».ktxx
5 tl:tS:«xlft kftMw i IfOe *S ftó fWt«I
i sr.iakpm xót. >* )»(*
aCi rálh-li :«itiftl ntytlti (n; lfti:«»>
.,Þ*t' fct vifts fjwri aö
kenttlngar fv'irra féia^a
ntítt t iÁbvftr n< sannindi.
■SsojhaniLleyaíá (f) millt
ftta.-iðftt hrygningarstnfns
ojí njlifKiuar hafs fiski
fræáins'nr þekkl í mvira
<>» hilfa it|«l.-‘
friðunarkenningin kom fram. Ég
frétti af þessu og spurði Jón Kristj-
ánsson hvort rétt væri og hann
sagði svo vera og útlistaði sínar
kenningar fyrir mér. Ef slíkt er
ekki stórfrétt, þá veit ég ekki hvað
stórfrétt er, og lái mér hver sem vill
að ég gerði hana að aðalfrétt blaðs-
ins þann daginn. En hvernig Björn
Dagbjartsson kemur þessum frétt-
aflutningi heim og saman við hvað
hentar Alþýðubandalaginu eða
ekki, það fæ ég ekki skilið. Nú er
það svo að ég er hvorki varaþing-
maður né í Sjálfstæðisflokknum,
en ef til vill þarf maður að vera
hvoru tveggja til að geta tekið svo
skakkan pól í hæðina og Björn ger-
ir í ásökunum sínum í minn garð.
-S.dór
nýliðunar. Þetta þótti mér sem
blaðamanni fróðlegt, þar sem ég er
ekki líffræðingur og hef tekið mark
á því sem fiskifræðingar á Hafrann-
sókn hafa sagt. Björn segir aftur á
móti að þetta hafi verið löngu vitað
og það hefur Jakob Jakobsson
fiskifræðingur einnig sagt opinber-
lega eftir þennan fund. En lítum þá
nánar á málið.
Tökum sem dæmi skýrslu Hafr-
annsóknarstofnunar um aflahorfur
og ástand nytjastofna á íslands-
miðum 1980. Þar segir: „Haf-
rannsóknarstofnunin ítrekar fyrri
skoðanir sínar og telur brýnt að
byggja upp hrygningarstofninn enn
frekar til þess að tryggja að há-
marksafrakstur fáist sem fyrst úr
þessum þjóðhagslega mikilvæga
stofni.“
í skýrslu sömu stofnunar 1982
stendur: „Meðan 1976 árgangsins
nýtur við mun hrygningarstofn þó
haldast óbrey ttur næstu 2 árin mið-
að við 450 þúsund tonna afla árið
1983. Hafrannsóknarstofnunin
leggur því til að aflinn árið 1982
miðist við 450 þúsund tonn.“
Þá er þess enn að geta að í lögum
landsins um fiskveiðar í landhelgi
íslands, mig minnir að það séu lög
númer 13 frá 1981, þar segir efnis-
lega að viðhalda verði hrygningar-
stofninum svo eðlileg nýliðun eigi
sér stað.
Hafi það verið vitað í áratugi að
ekkert samband væri þarna á rriilli,
hvers vegna hefur þá Hafrann-
sóknarstofnunin alltaf sett sama-
sem merki þarna í milli eins og of-
angreind dæmi sýna og fjölmörg
önnur, sem hægt væri að tilfæra. Ég
hafði sem leikmaður í þessum efn-
um trúað fiskifræðingum og þegar
svo kemur ungur líffræðingur og
segist hafa farið í gegnum öll gögn
Hafrannsóknar og að ekkert sam-
band sé þarna í milli, þá þótti mér
það frétt og það stórfrétt og skrif-
aði ítarlega um málið.
Nú veit ég ekki hvort Bjöm Dag-
bjartsson hefur unnið við frétta-
mennsku. Ég er helst á því að svo
sé ekki ef marka má átölur hans í
minn garð. Ég hef skrifað um sjá-
varútvegsmál í Þjóðviljann í
allmörg ár og heyrt þá kenningu
tekna sem heilög sannindi allt síð-
an 1977 að vernda bæri smáfisk
með öllum ráðum. Þessu hef ég
líka trúað. Svo kemur ungur fiski-
fræðingur með grisjunarkenningu
studda rökum, fyrstur allra eftir að
w
Óskað er eftir tilboðum í múrverk í hluta áfanga 2A
Fjörðungssjúkrahúss á Akureyri. Útboðsgögn eru af-
hent á skrifstofu vorri, Borgartúni 7, Reykjavík og hjá
verkfræðistofu Sigurðar Thoroddsen, Glerárgötu 36,
Akureyri, gegn skilatryggingu kr. 2.000.- og skal til-
boðum skilað til Innkaupastofnunar Ríkisins eigi síðar
en kl. 11.00 f.h. þriðjudaginn 7. febrúar nk. og verða
þá opnuð í viðurvist viðstaddra bjóðenda.
INNKAUPASTOFNUN RÍKISINS
Borgartuni 7, Reykjavík SÍMI: 26844
Systir okkar
Bergþóra Hólm Sigurgarðsdóttir
Vesturvallagötu 5
andaðist í Borgarspítalanum 17. janúar. Jarðarförin hefur
farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Systkinin og fjöiskyldur þeirra.
Maðurinn minn og faðir
Björn Bjarnason
fyrrverandi formaður Iðju,
Bergstaðastræti 48 a,
lést á Vífilsstaðaspítala 19. janúar sl.
Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey, að ósk hins látna. Þeim
sem vilja minnast hans er bent á Sigfúsarsjóð.
Guðný Sigurðardóttir
Þórir Björnsson