Þjóðviljinn - 31.01.1984, Síða 2

Þjóðviljinn - 31.01.1984, Síða 2
10 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 31. janúar 1984 Þriðjudagur 31. janúar 1984 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 11 Umsjón: Vlðir Sigurðsson Umsjón: Víðir Sigurðsson Ásgeir sýndi snilldarleik Ásgeir Sigurvinsson sýndi snilld- Hamburger SV malaði Dortmund arleik þcgar Stuttgart vann stór- 7-2. Wolfram Wuttke gerði tvö sigur, 5-1, á Kaiserslautern í markanna. Aðrirleikirfóruþannig vestur-þýsku Bundesligunni í að Mönchengladbach sigraði Of- knattspyrnu. Hann lagði upp flest fenbach 3-2, Frankfurt og Uer- markanna. þrjú þeirra fyrir Svíann dingen gerðu jafntefli, 2-2, Boc- Dan Corneliusson, og skoraði síðan hum og Bremen 3-3, Núrnberg tap- fimmta markið sjálfur með hörku- aði 2-3 fyrir Bayer Leverkusen og skoti skömmu fyrir leikslok. Peter Mannheim gerði 2-2 jafntefli við Reichert gerði eitt markanna. Eintracht Braunschweig. Leik Bayern Múnchen heldur foryst- Kölnar og Dússeldorf var frestað. unni, vann Armenia Bielefeld 3-1 í Bayern hefur 28 stig, Stuttgart Múnchen. Michael Rummenigge 27, Hamburger 26, Bremen og skoraði 2 mörk og Karl-Heinz stóri Mönchengladbach 25. bróðir hans eitt úr vítaspyrnu. -VS Andreas Wenzel frá Liechtenstein komst í annað sætið í stigakeppni heimsbikarkeppni karla á skíðum á laugardaginn er hann sigraði í stórsvigi í Garmish-Partenkirchen í V. Þýska- landi. Hann fékk samanlagðan tíma 1:36,62 mín. Pirniin Zurbriggen frá Sviss varð annar á 1:36,71 mín. og Hans Enn frá Austurríki þriðji. Zurbriggen hefur nú 31 stigs forystu í stigakeppn- inni, Wenzel er annar og Ingemar Sten- mark frá Svíþjóð þriðji, 22 stigum á eftir Wenzel. I ólíkt KR-ingar báru sigurorð af Haukum í íþróttahúsinu í Hafnar- firði sl. laugardag í úrvalsdeildinni í körfuknattleik. Lokatölur urðu 81:75, eftir að KR-ingar höfðu haft yfir í hálfleik 42:35 og Vesturbæj- arliðið jók þar með möguleika sína á sæti í 4-liða úrslitunum. KR-ingar komu ákveðnir til leiks og komust fljótlega í 10:2, Haukarnir voru þó ekki af baki dottnir, minnkuðu muninn í 13:15 en nær komust þeir ekki. KR leiddi í hálfleik eins og áður sagði 42:35. Er 5 mínútur voru liðnar af síðari hálfleik misstu Haukarnir sinn aðal markaskorara, Pálmar Sigurðsson útaf með 5 villur. Staðan var þá 53:43 KR í hag. Haukarnir náðu síðan að minnka forskot KR niður í 5 stig, 67:72 og 4 mínútur til leiks- loka. En næstu 8 stig voru KR-inga sem breyttu stöðunni í 79:67 og það var meira en Haukarnir réðu við! Þeim tókst að rétta hlut sinn ör- lítið. Lokatölur 81:75. Guðni Guðnason og Jón Sig- urðsson voru bestir menn KR-inga í leiknum. Þá áttu Birgir Guð- björnsson og Garðar Jóhannesson ágæta spretti. í jöfnu Haukaliði var Sveinn Sig- urbergsson bestur ásamt Pálmari Sigurðssyni, þegar hans naut við. Þá var Kristinn Kristinsson góður. Þeir Gunnar Bragi Gunnarsson og Kristinn Albertsson dæmdu leikinn ágætlega. Stig KR: Guöni Guðnason 24, Jón Sigurðsson og Garðar Jóhannesson 14, Birgir Guðbjörnsson 12, Þorsteinn Gunn- arsson 6, Kristján Rafnsson og Ólafur Guðmundsson 4, Páli Kolbeinsson 3. Stig Hauka: Kristinn Kristinsson 13, Sveinn Sigurbergsson 12, Pálmar Sig- urðsson, Olafur Rafnsson og Hálfdán Markússon 11, Einar Bollason 9, Reynir Kristjánsson og Eyþór Þ. Árnason 4. Frosti - Besti leikur Vals- manna í langan tíma Valsmenn unnu nokkuð öruggan sigur á Keflvíkingum í leik er háður var um helgina í úrvalsdeild körfu- boltans. Lokatölur urðu 92-69 eftir að Valsmenn höfðu haft yfir í hálf- leik‘48-31. Valsmenn sem sýndu sinn besta leik í langan tíma komust fljótlega í 13-2. Keflvíkingar fóru þá að koma meira inn í myndina án þess þó að takast að minnka forskotið. I hálf- leik höfðu Valsmenn náð 17 stiga forystu, 48-31. Valsmenn juku síðan forskotið í 22 stig, 57-35 og gátu leyft sér að nota alla leikmenn liðsins. Loka- tölur sem fyrr sagði 92-69. Valsmenn náðu að þessu sinni sínum besta leik í Iangan tíma. Leikmenn liðsins börðust mjög vel og uppskáru eftir því. Hinn stórefnilegi Tómas Holton var bestur Valsmanna. Hann átti stórkostlegan leik í fyrri hálfleik. Torfi Magnússon, Jóhannes Magnússon og Valdimar Guð- laugsson einnig góðir. Keflvíkingar virtust nokkuð miður sín lengst af, brutu oft mjög klaufalega af sér auk þess sem í sóknarleiknum komust þeir oft lítið áleiðis gegn sterkri Valsvörn. Jón Kr. Gíslason var bestur Keflvíkinga. Þá áttu þeir Sigurður Ingimundarson og Björn Víkingur ágæta spretti. Stíg Vals: Tómas 18, Kristján Ágústsson og Jóhannes 13, Torfi 11, Valdimar 10, Leifur Gústafsson og Björn Zoega 8, Jón Steingrimsson 6, Helgi Gústafsson 3, Póll Arnar 2. Stig Keflavfkur: Jón Kr. 18, Björn 12, Óskar Nikulásson 11, Sigurður Ingimund- arson og Guðjón Skúlason 10, Þorsteinn Bjarnason 4, Pétur Jónsson og Matthías Stefánsson 2. Jón Otti og Gunnar Bragi dæmdu leikinn vel. Kristján Ágústsson gnæfir yfir varnarmenn Keflvíkinga og „leggur“ bolt- Frosti.- ann í körfuna. Mynd: -eik „Héldum Pétri fyrir neðan 30 stigin Wenzel í annað sætið Konurnar kepptu í stórsvigi í Frakk- landi og þar sigraði Erika Hess frá Sviss eina ferðina enn. Hún fékk tímann 2:24,05 mín, en önnur varð Christine Cooper frá Bandaríkjunum, tæpri sek- úndu á eftir. -VS „Við stefndum að því að halda Pétri Guðmundssyni neðan við 30 stig og það tókst með góðri vörn. í sókninni spiluðum við okkar vana- lega leik, skutum mikið fyrir utan og við það ræður Pétur að sjálf- sögðu ekki“ sagði Gunnar Þor- varðarson, þjálfari og leikmaður Njarðvíkinga eftir sigur á ÍR, 83- 72, í úrvalsdeildinni í körfuknatt- leik í Njarðvík á föstudagskvöldið. Fyrri hálfleikur var jafn en sveiflukenndur. ÍR náði góðri for- ystu undir lok hans, 30-23, en Njarðvík hafði snúið stöðunni sér í hag þegar flautað var til hvíldar, 34-32. í byrjun síðari hálfleiks tryggðu Njarðvíkingar sér svo góða stöðu, 44-32 og síðan 61-43 og sigri þeirra varð ekki ógnað eftir það. Þeir hittu mjög vel fyrir utan og í vörninni settu þeir mann framan við Pétur og loícuðu þannig mikil- vægum samgönguleiðum til hans. Risinn var auðvitað óviðráðan- legur þegar hann náði knettinum Norsarar ólíkt hress- Hafnarfirðinum ari Norðmenn komu nokkuð á óvart með því að ná jafntefli við landann í öðrum landsleik þjóð- anna í handknattleik er háður var í Hafnarfírði á laugardag- inn. Lokatölur urðu 24-24 eftir að Norðmenn höfðu leitt mest- an hluta leiksins. Það var Atli Hilmarsson sem tryggði íslend- ingum jafntefíið aðeins 20 sek- úndum fyrir leikslok. Atli fékk þá boltann í hægra horninu eftir góða sendingu frá Steinari Birg- issyni. ísland hafði undirtökin í byrjun, komust í 5-3 en baráttuglöðum Norðmönnum tókst fljótlega að jafna, 5-5. Liðin skiptust síðan á að skora, íslendingar komust yfir 8-7 en Norðmenn svöruðu með 3 mörkum og Norðmenn skyndilega komnir yfir 12-10, Steinar Birgis minnkaði muninn í eitt mark. Norðmenn svöruðu strax fyrir sig með 2 mörkum. íslendingar áttu síðan tvö síðustu mörk hálfleiksins. Staðan í hálfleik 13-12 Noregi í vil. Norðmenn hófu síðari hálf- leikinn með miklum látum, skoruðu 4 mörk gegn 1 marki landans og staðan nú orðin 17-13. ísland skoraði næstu 4 mörk og jafnaði metin. Liðin skiptust síðan á að skora allt til leiksloka. Atli Hilmarsson skoraði jöfnunarmark íslands aðeins 20 sekúndum fyrir leikslok, lokatölur sem áður sagði 24-24. Atli Hilmarsson, Kristján Ara- son og Steinar Birgisson voru bestu menn íslands að þessu sinni. Þá áttu Jakob Sigurðsson og Þorgils Óttar þokkalegan leik. Aðrir voru nokkuð frá sínu besta. Það vakti nokkra athygli að Sigurður Sveins- son var hafður á bekknum allan tímann án þess að fá að spreyta sig. Þá var Þorbergur Aðalsteinsson lítið notaður í sóknarleiknum. Norska liðið var ólíkt hressara nú en í fyrsta leiknum og átti skilið að vinna þennan leik. Allir leikmenn liðsins börðust mjög vel. Það háir þó liðinu mikið að það virðist ekki búa yfir neinum sér- stökum stórskyttum. Þeir vinna þó að nokkru leyti bug á því með því að spila nokkuð mikið upp á horna- mennina. Tore Johannesen var bestur Norðmanna, hann var hreint ó- stöðvandi í fyrri hálfleiknum. Þá var Káre Ohrvik mjög drjúgur Norðmönnum síðasta hluta leiksins. Hann skoraði þá grimmt fyrir Norðmenn úr langskotum og var jafnframt sá eini þeirra er virt- ist vera sæmilega að sér í þeim fræðum. Dómararnir voru danskir, þeir voru mjög strangir á sóknarvillur ólíkt íslenskum kollegum þeirra en höfðu þó prýðisgóð tök á leiknum. Mörk íslands: Atli Hilmarsson 6, Kristján A. 5, Steinar B. 4, Jakob Sig. 3, Þorgils Óttar og Páll Ólafsson 2, Þorberg- ur og Þorbjörn Jens. 1. Mörk Noregs: Tore Johannesen 6, Káre Horvik 5, Vidar Bauer og Gunnar Pettersen 4, Lars C. Haneborg, Hans Skadberg, Jan Rundhovde, Ketil Larsen og Odd Sönsterud 1. -Frosti. undir körfunni. Hann og Þor- kelssynirnir voru bestu menn ÍR en hjá Njarðvík voru Valur Ingi- mundarson, Gunnar Þorvarðarson og Sturla Örlygsson í aðalhlutverk- um. Stig UMFN: Valur 29, Gunnar 16, Sturla 15, Arni Lárusson 7, Kristinn Einarsson 7, Júlíus Valgeirsson 5 og isak Tómasson 4. Stig ÍR: Pétur 26, Gylfi Þorkelsson 19, Hreinn Þorkelsson 18, Hjörtur Oddsson 5 og Benedikt Ingþórsson 4. -svws Staðan Körfuknattleikur Úrvalsdeild: Njarðvík-ÍR.... Haukar-KR... Valur-Kefiavík. Njarðvík.13 KR.......14 Haukar...14 Valur.......14 Keflavik.13 ÍR...... 14 ...........83-72 ...........75-81 ...........92-69 3 1048- 966 20 6 1005- 988 16 6 1015-1025 16 8 1159-1089 12 8 854- 969 10 10 1059-1103 8 Stigahæstir: Valur Ingimundarson, Njarðvík..360 PálmarSigurðsson, Haukum.......308 Kristján Ágústsson, Val........273 Torfi Magnússon, Val...........228 Hreinn Þorkelsson, ÍR..........220 Jón Kr. Gislason, Keflavik.....214 Þorsteinn Bjarnason, Keflavik..208 Jón Sigurðsson, KR.............207 Gylfi Þorkelsson, ÍR...........198 Gunnar Þorvarðarson, Njarðvfk.,196 Islandsmótið í blaki: Auðveldir sigrar Þróttar og HK Þróttur vann auðveldan sigur á Fram eins og vænta mátti, 3-0, í 1. deild karla í blaki á laugardaginn. Hrinurnar enduðu 15-9,15-5 og 15- 6 og sigurinn aldrei í minnstu hættu. Það er einungis formsatriði fyrir Þróttara að Ijúka leikjum sín- um í mótinu, þeir missa vart af meistaratitiinum héðan af. Aðeins HK getur leyft sér örlitla von en Kópavogsliðið sigraði Vík- ing 3-0. Víkingar voru óheppnir að vinna ekki fyrstu hrinuna, voru komnir í 14-10, en HK náði að sigra 16-14. Þar með voru Víkingarnir sprungnir og HK vann hinar tvær létt, 15-5 og 15-6. Staðan í 1. deild karla: Þróttur............9 9 0 27- 7 18 HK.................9 6 3 19-14 12 ÍS.................8 3 5 14-20 6 Fram...............9 2 7 14-25 4 Víkingur...........7 1 6 11-19 2 Breiðablik sigraði Þrótt 3-2 í 1. deild kvenna en sigurinn var mun öruggari en tölurnar gefa til kynna. Breiðablik vann fyrstu tvær hrin- urnar auðveldlega 15-6, 15-5, en tefldi fram hálfgerðu varaliði í næstu tveimur, tapaði báðum, 4- 15, 11-15, en vann síðan lokahrin- una 15-6. ÍS lék við Víking og vann 3-0. Stúdínur tefldu aðeins fram sterk- asta liðinu í þriðju hrinu og lentu þá í mesta baslinu, 15-10, en hinar tvær fyrri enduðu 15-3 og 15-6. Völsungur vann KA 3-0 á Akur- eyri. Staðan í 1. deild kvenna: ÍS................11 9 2 29-12 18 Völsungur......... 9 8 1 24- 3 16 Breiðablik........12 7 5 26-19 14 Þróttur........... 8 3 5 12-19 6 KA................ 7 1 6 5-19 2 Víkingur.......... 9 0 9 3-27 0 Samhygð kom á óvart með því að bursta HK-2 á Selfossi, 3-0, en HK tefldi fram stórstirnum á borð við Harald Geir Hlöðversson og Pál Ólafsson. Hrinurnar enduðu 15-9, 15-13 og 15-13, _VS Guðrún og Asta ótrúlega jafnar Þær Guðrún H. Kristjánsdóttir og Ásta Ásmundsdóttir frá Akur- eyri háðu ótrúlega jafna og spenn- andi keppni í svigi kvenna á fýrsta bikarmóti vetrarins í alpagrcinum á skíðum í Bláfjöllum við Reykja- vík á sunnudaginn. Ásta hafði for- ystu eftir fyrri ferð, renndi sér á 59,03 sek. en Guðrún á 60,24. í síðari ferðinni snerist þetta við, en engu mátti muna, Guðrún fékk þá tímann 59,02 en Ásta 60,26. Þegar upp var staðið hafði því Guðrún sigrað með samanlegt 3/100 úr sek- úndu betri tíma, 119,26 sek. á móti 119,29 hjá Ástu. Þriðja varð svo Signe Viðarsdóttir frá Akureyri á 121.58 sek. Ólafur Harðarson frá Akureyri sigraði í karlaflokki, skaust í síðari ferðinni uppfyrir þá Tryggva Þor- steinsson úr Reykjavík og Árna Grétar Árnason frá Húsavík sem báðir fengu betri tíma en hann í fyrri ferð. Ólafur fékk saman- lagðan tímann 99,25 sek, Tryggvi varð annar með 99,36 sek, og Árni Grétar þriðji, renndi sér samanlagt á 99,49 sekúndum. Keppni í stórsvigi átti að fara fram á laugardaginn en henni varð að fresta vegna veðurs. Næsta bikarrnót verður haldið á Akureyri dagana 11.-12. febrúar. -VS Rangers slapp fyrir hom Rangers og Celtic eru einu liðin -sem komin eru í 4. umferð skosku bikarkeppninnar í knattspyrnu. Tólf leikjum af 16 í 3. umferð þurfti að fresta á laugardaginn vegna óveðursins sem enn hrjóir Skota. Rangers sigraði Dunfermline 2-1 og Celtic vann Berwick 4-0. Hibernian varð að sætta sig við markalaust jafntefli heima gegn 2. deildarliði East Fife og Meadowbank náði sömu úrslitum heima gegn St. Mirren. Allt stefndi í gífurlega óvænt úr- slit á Ibrox Park í Glasgow þegar 2. deildarlið Dunfermline kom þar í heimsókn. Gestirnir náðu forystu á 60. mínútu með marki Ralph Stew- art en undir lokin gerði Rangers tvö mörk á þremur mínútum, fyrst Colin McÁdam og síðan Álly McCoist, og tryggði sér nauman sigur. Celtic fór suður fyrir landamærin og lék við enska félagið Berwick Rangers, sem þrátt fyrir þjóðernið leikur í 2.deild í Skotiandi. Brian McClair skoraði tvö mörk í fyrri hálfleik og þeir Frank McGarvey og Jim Melrose bættu tveimur við í þeim síðari - 0-4 öruggur Celtic- sigur. -VS KR hélt forystunni allan leiktímann Jakob Sigurðsson stekkur svipbrigðamikill inní vítateig Norð manna og skorar annað marka sinna í leiknum síðasta. Vlynfl- -éik m gg tr, Tveggja sigra forystu náð gegn Norðmönnum ísland náði tveggja sigra forystu i landsleikjum við Norðmenn í hand- knattleik karla á sunnudagskvöldið með því að vinna 25-20 í Laugardals- höllinni. Sigurinn var ekki eins örugg- ur og lokatölurnar gefa til kynna, fímm mínútum fyrir leikslok munaði einungis einu marki á liðunum, en stórgóður lokasprettur tók af öll tví- mæli um hvort ætti vinninginn skilinn. Norðmenn byrjuðu strax á að taka Atla Hilmarsson úr umferð, enda hafði hann gert þeim miklar skráveifur í fyrri leikjun- um tveimur. Þeir léku mjög framaríega með vörnina en ísland komst þó í 3-0 á fyrstu átta mínútunum. Þá riðlaðist leikur íslenska liðsins, og Norðmenn jöfnuðu 3- 3 á næstu tveimur mínútum. Eftir það náði ísland undirtökum á ný, leiddi með einu til tveimur mörkum lengst af en komst síðan í 11-7 og þar á eftir 12-8 sem var hálfleiksstaðan. Fyrri hálfleikurinn var köflóttur hjá íslenska liðinu, vörnin mjög öflug, og flestir 100 prósent með á nótunum þar. Sóknin skilaði mörgu lag- legu en stóð þó um tíma uppi ráðvillt gegn framarlega leikinni norskri vörn. Síðari hálfleikur byrjaði hörmulega, Norðmenn skoruðu sex mörk á fyrstu níu mínútunum og staðah orðin þá jöfn, 14- 14. Þarna opnaðist hin áður heilsteypta vörn nokkrum sinnum illa og klaufalega. ísland skoraði næstu tvö mörk, 16-14, og var yfir eftir það, en fimm mínútum fyrir leikslok stóð þó 20-19. Þá komu fjögur falleg mörk í röð, 24-19, og leikurinn var unninn. íslenska liðið var nokkuð jafnt þegar á heildina er litið. Sigurður Gunnarsson gerði laglegustu hlutina í sókninni, skoraði fjögur gullfalleg mörk. Þar óx einnig Steinar Birgisson eftir því sem á leið, einnig í vörninni þar sem hann byrj- aði illa. Þorbjörn Jensson nýtist glettilega vel sem línumaður og í vörninni er hann kjölfestan ásamt Kristjáni Arasyni, sem varði fjölda skota. í sókninni er Stjáni hins vegar enn of hógvær. Atli var mikið tekinn úr umferð en gerði þó góða hluti inná milli, braust í gegn og skoraði tvíveg- is og nældi þannig í tvö vítaköst. Þorberg- ur Aðalsteinsson átti góðan varnarleik en var lítið með í sókninni. Léttari hefur hann fyrrum verið. Jakob Sigurðsson er maður framtíðarinnar en þarf að bæta varnarleikinn. Reynsluleysið er honum að sjálfsögðu enn fjötur um fót. Páll Ól- afsson og Sigurður Sveinsson voru lítið notaðir og Steindór Gunnarsson kom aldrei inná. Jens Einarsson stóð lengst af í markinu. Hann varði prýðilega í fyrri hálfleik en í seinni hálfleik vörðu hann og Einar Þorvarðarson einungis tvö skot sem eitthvað kvað að. f því efni ber vörnin að vísu dálítinn ábyrgðarhluta. Norska liðið var þokkalegt en vantaði ávallt herslumuninn til að snúa leiknum sér í hag, margir leikmanna þess fóru greinilega á taugum þegar búið var að jafna og möguleiki á að komast yfir. Skytturnar Gunnar Petterson fyrirliði og Kaare Ohrvik voru erfiðastir og Jan Rundhovde gerði einnig lagleg mörk. Þeir verða erfiðir á eigin heimavelli í B- keppninni að ári liðnu. Mörk íslands: Kristján 8 (5 viti), Sigurð- ur G. 4, Steinar 4, Þorbjörn 3, Atli 2, Jakob 2, Sigurður Sv. 1 og Þorbergur 1. Mörk Noregs: Ohrvik 7 (4), Rundhovde 4, Petterson 4, Johannessen 2, Haneborg 1, Soensterud 1 og Sletten 1. Dönsku dómararnir voru Iélegustu menn vallarins að þessu sinni og lítið sam- ræmi í ýmsum áflautunarefnum þeirra. Vafalítið verið orðnir þreyttir, greyin. -VS Bogdan Kowalczyk: mikið - kraftleysi vandamál“ „Ég er ánægður með fyrsta og þriðja leikinn - en það er mikil vinna framundan. ís- lensku leikmennirnir gerðu sig mikið seka um taktísk mis- tök - Norðmenn lcku langar sóknir og þegar ísland fékk boltann var bráðlætið stund- um of mikið, skotið of fljótt. Liðið þarf að lengja sóknirn- ar, en annars er ég ánægður með þær að mörgu leyti, það voru skoruð 24-25 mörk í öllum þremur leikjunum og nú_eru flestir með á nótunum um hvað þeirra hlutvcrk er á vellinum,“ sagði Bogdan Kowalczyk landsliðsþjálfari í handknattleik í samtali við Þjóðviljann eftir þriðja og síð- asta landsleikinn gegn Noregi í Laugardalshöllinni í fyrra- kvöld. „Stærsta vandamálið -sem ráða þarf bót á er kraftlevsi nokkuð margra leikmanna. Það kom best í Ijós nú í þriðja leiknum að menn eins og Atli Hilmarsson og Páll Ólafsson voru orðnir mjög þreyttir og þarna er að miklu leyti um að kenna ónógri kraftþjálfun hjá félagsliðum. Eftir þessa þrjá leiki skil ég betur góða frammistöðu Norðmanna gcgn Frökkum og Svíum, þeir leika mun betur en áður, en þar ber að gæta þess að þeir hafa nú spilað 27 landsleiki á sama tímabili og íslenska liðið er aðeins með 10 leiki. Við leikum of lítið, það eru 7-9 leikir eftir á tímabilinu og það cr 50 prósent of lítið. Þetta kemur niður á leik ein- stakra leikmanna þegar á hólminn er komið, þeir eru taugaóstyrkir og ná ekki að sýna sitt besta fyrir vikið,“ sagði Bogdan Kowalczyk. -VS Gunnar Petterson: „Atli kom okkur langmest á óvart“ „Þetta tslenska lið er mjiig gott og í því eru margir efni- legir strákar. Atli Hilmarsson kom okkur mest á óvart, við vissum að Alfreð Gtslason frá Essen yrði ekki með og töldum það veikja sóknarleik íslands en Atli olli okkur miklum vandræðum. Lslenska liðið á framtíðina fyrir sér, það á eftir að spjara sig,“ sagði Gunnar Petterscn, fyrirliði norska landsliðsins í hand- knattleik eftir þriðja landsleik þjóðanna í fyrrakvöld. „íslenska liðið vantar það sama og okkur, stöðugleika og yfirvegun. Gallinn cr sá sami og kom vel í Ijós hjá okkur nú í ■ kvöld, við vinnum upp gott forskot en klikkum síðan,“ sagði Gunnar Pettersen.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.