Þjóðviljinn - 16.02.1984, Síða 9
Fimmtudagur 16. febrúar 1984 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 9
„Sú ákvörðun sem ríkisstjórnarflokkarnir ásamt Alþýðuflokknum ieggja til að tekin verði um stórfelldar
lántökur erlendis til byggingar of stórrar flugstöðvar einmitt nú, einsog skuldamálum þjóðarinnar er háttað,
er ögrun við það fólk sem berst nú örvæntingarfullri baráttu fyrir því að láta stórskert laun duga fyrir
lífsnauðsynjum heimila sinna og er á sama tíma talin trú um að það verði að leggja á sig og fjölskyldur sínar
þessa lífskjaraskerðingu til þess að þjóðin geti grynnt á skuidum sínum erlcndis".
Hefur fólk, sem horfir opnum
augum á það sem hefur verið að
gerast, fengið staðfestingu á því að
samræmi sé milli orða og athafna
ráðherra svo að réttlætanlegt sé að
gefa baráttulaust eftir • verulegan
hluta launa sinna? Öðru nær. Þeg-
ar launatekjur stórrýrna að kaup-
mætti og svo mjög þrengir að þeim
sem verst eru settir að þeir eygja
ekki hvernig þeir eiga að láta
launin endast til næstu útborgunar,
þá er það á hinn bóginn svo að
atvinnurekendur sem njóta þess að
raunlækkun launa almennings þýð-
ir stórminnkun útgjalda hjá fyrir-
tækjum, þeir auka gróða sinn.
4 milljónir
í ráðherrabíla
Eftir að lagasetningu hefur verið
beitt til þess að þvinga launafólk og
lífeyrisþega til að herða sultarólina
m.a. vegna bágrar stöðu ríkissjóðs
þá upplýsa dagblöðin að einmitt
þeir menn sem harðast leggja að
aðþrengdu alþýðufólki að sýna nú
þegnskap til þess að bjarga ríkis-
sjóði og þjóðarbúinu, hafa látið
ríkissjóð greiða. niður kaup á
einkabifreiðum sínum svo að nem-
ur samtals 3,5-4 millj. kr. Geta líf-
eyrisþegar, einstæðir foreldrar, at-
vinnuleysingjar og láglaunafólk yf-
linað á mestu lífskjaraskerðing-
unni sem er að koma mörgum á
vonarvöl.
Ríkisstjórnin og Alþ.flokkurinn
ætlast til þess á sama tíma að Al-
þingi samþykki að þjóðin taki er-
lent lán að upphæð áður en lýkur
um 616 milj. kr. til þess að byggja
nýja flugstöð á Keflvíkurflugvelli,
flugstöð sem jafnvel forsætisráð-
herra viðurkennir að sé of stór mið-
að við þarfir þjóðarinnar. Raun-
vextir dollaralána eru ærnir og ekki
hafa fengist upplýsingar um hversu
háan má áætla heildarfjármagns-
kostnað við byggingu flugstöðvar-
innar, þ.e. hver vaxtakostnaður
verður orðinn af lánunum þegar
millj. kr. erlendrar lántöku, auk
vaxta, til framkvæmdar sem er
tímaskekkja eins og á stendur ef
ætlast er til þess að láglaunafólk
sem aðrir taki mark á fullyrðingum
ráðamanna þjóðarinnar um þær
forsendur sem þeir staðhæfa að séu
grundvöllur fyrir raunverulegri
nauðsyn á kjaraskerðingu, jafnvel
hjá gamalmennum og öryrkjum.
Ef þetta frumvarp verður sam-
þykkt hefur hver og einn launþegi
og lífeyrisþegi gildar ástæður til
þess að telja þær forsendur sem
stjórnarflokkarnir hafa lagt til
grundvallar stórfelldri kjaraskerð-
ingu, uppspuna og lygi. Og stað-
festingu þess að þeir sem að kjara-
varp væri fellt. Um þetta þýðir ekki
að ræða við dygga stuðningsmenn
erlendrar hersetu á íslandi, en
þann hóp fylla nú í þessu máli ein-
staklingar sem ég hugði að þyrftu
lengri tíma til að tileinka sér aron-
skuna en raun ber nú vitni. Og létt-
væg er sú afsökun fyrir þessum
auknu tengslum við herliðið að
með byggingu flugstöðvarinnar
verði unnt að fela hernámsliðið
fyrir augum allra þeirra innlendra
sem útlendra manna sem gera sér
ljósa þá þjóðernislegu niðurlæg-
ingu sem dvöl herliðsins og yfirráð
þess yfir íslensku landsvæði eru
sjálfsvirðingu þjóðarinnar. Sú
smán verður að sjálfsögðu ekki fal-
sjúkrahúsa eða heilsugæslustöðva,
val þeirra er ekki nýjar fram-
kvæmdir í þessum málaflokkum.
Nei, val þingmanna stjórnarflokk-
anna og Alþ.flokksins er ekkert af
þessu, heldur stórfelld lántaka er-
lendis til þess að byggja einmitt
núna nýja flugstöð á Keflavíkur-
flugvelli og sú framkvæmd er ekki
skorin við nögl. Jafnvel aðalforing-
inn, forsætisráðherra, er á því að
líklega sé hún of stór. Hvaða máli
skiptir það á þessum tímum fyrst
um er að ræða flugstöð suður á
Keflavíkurflugvelli?
Ekki hœgt að
taka þá alvarlega
Það er ljóst að það láglaunafólk
sem berst nú í bökkum vegna sífellt
rýrnandi kaupmáttar launa og sér
fram á áframhald á þeirri
kaupskerðingu þarf sannarlega
ekki að taka alvarlega þau rök sem
stjórnvöld hafa beitt sem heilagri
nauðsyn fyrir kjaraskerðingu. Þeg-
ar skuldir þjóðarinnar nema um
60% þjóðarframleiðslunnar þar
sem verulegur hluti lánanna hefur
þó verið tekinn til þess að auka
gjaldeyrisöflun eða spara gjaldeyri
þá fylgja þessir flokkar rökum sín-
um um nauðsyn þess að keyra al-
þýðu manna niður í sárustu fátækt,
eftir - með því að efna til nær 620
millj. kr. erlendra skulda til þess að
byggja glæsibyggingu á Keflavíkur-
flugvelli. Til þessara framkvæmda
Geir Gunnarsson alþingismaður í þingræðu
Fátækt innleidd á Islandi
og lán slegið í flugstöð
irleitt tekið alvarlega kröfur þess-
ara ráðamanna um að það sýni
þann þegnskap að sætta sig við ó-
skert laun, við launakjör sem
hæstv. ríkisstj. auglýsir nú út um
allan heim sem ágóðavænlegan
þátt í rekstri fyrirtækja á íslandi
umfram það sem gerist í öðrum
löndum. Og sýnilegt er að erlendir
auðhringar eiga að geta treyst á að
þessi lágu laun sem verkafólk býr
nú við séu ekkert stundarfyrir-
brigði.
Þess er því naumast að vænta að
aðþrengt launafólk geti tekið al-
varlega kröfur þessara sömu
manna um að hafa engin viðbrögð
uppi gegn stöðugri skerðingu lífs-
kjara þegar svo er staðið að dreif-
ingu þeirra byrða sem útmálað er
að þjóðin verði að leggja á sig.
Frumvarp til laga um lán vegna
flugstöðvar á Keflavíkurflugvelli,
er enn einn veigamikill þáttur í því
efni að launafólk getur ekki tekið
alvarlega kröfur ríkisstj.flokkanna
um að það láti yfir sig ganga
stöðugt meiri rýrnun kaupmáttar
launa til þess að gegna því hlut-
verki sem ríkisstjórnin hefur á það
lagt í því skyni að slík rýrnun
kaupmáttar launa leiði til sam-
dráttar í innflutningi og úr skulda-
söfnun þjóðarinnar dragi erlendis.
Flugstöðin
ekki arðbær
Ríkisstjómarflokkarnir hafa lagt
á það áherslu að þær lántökur sem
þó verði leyfðar, verði að tak-
marka við þær allra arðbærustu
framkvæmdir sem fyrirfinnist, þar
sem stefnt er að framleiðslu sem
annað hvort auki gjaldeyriseign
þjóðarinnar eða dragi úr gjald-
eyriseyðslu hennar. Og hvað eru
svo þessir sömu flokkar, og þar má
bæta garminum honum Katli, Al-
þ.flokknum við, að leggja til að
samþykkt verði hér á Alþingi þá
sömu daga og allt er gert til þess að
leggjast á og halda niðri kröfum
launafólks um að í einhverju verði
þau hafa verið 'endurgreidd. Og
eins og áður hefur verið bent á hér í
umræðunum þá er gert ráð fyrir að .
einnig allur innlendur kostnaður
við framkvæmdina verði greiddur
með erlendum lánum. Og um arð-
semi af flugstöðvarbyggingunni
þarf ekki að ræða, hin nýja mun
verða miklum mun dýrari í rekstri
en sú sem fyrir er.
Brýnni þarfir
hunsaðar
Það er ljóst að aðstæður til þess
að taka á móti farþegum á Kefla-
víkurflugvelli mættu vera betri en
nú, en hversu margvíslegar og
brýnar voru ekki þær þarfir sem
ekki var unnt að sinna við af-
greiðslu fjárlaga fyrir síðustu ára-
mót og brýnni en ný flugstöð í Kefl-
avík, og enginn vildi þá leysa með
stórfelldum lántökum erlendis,
heldur var ákveðið að lausn þeirra
yrði að bíða betri tíma vegna þess
að mark var tekið á upplýsingum
um hvernig ástatt væri f efna-
hagsmálum og hvernig skulda-
stöðu þjóðarinnar væri komið og
um væri að ræða þátt í ákvörðunum
um að draga úr skuldasöfnun þjóð-
arinnar.
Sú ákvörðun sem ríkisstjórnar-
flokkarnir ásamt Alþ.flokknum að
leggja til að tekin verði um stór-
felldar lántökur erlendis til bygg-
ingar of stórrar flugstöðvar einmitt
nú, eins og skuldamálum þjóðar-
innar er háttað, er ögrun við það
fólk sem berst nú örvæntingarfullri
baráttu fyrir því að láta stórskert
laun duga fyrir. lífsnauðsynjum
heimila sinna og er á sama tíma
talin trú um að það verði að leggja
á sig og fjölskyldur sínar þessa
lífskjaraskerðingu til þess að þjóð-
in geti grynnt á skuldum sínum er-
lendis.
Taka ekki mark
á eigin orðum
Hér er verið að efna til nær 620
skerðingunni standa taka a.m.k.
sjálfir ekki minnsta mark á sínum
eigin rökstuðningi fyrir lífskjara-
skerðingunni.
Vorkenni lands-
byggðarþingmönnum
Þar fyrir utan ætti hverjum
manni að vera ljóst, og ekki síst
alþingsmönnum sem hafa trausta
þekkingu á því hvar framkvæmda-
þarfirnar hvarvetna umlandið eru
brýnastar, að mjög víða brenna
þær þarfir heitar í samgöngumál-
um, heilbrigðismálum, hafnarmál-
um og skólamálum en um er að
ræða varðandi aðbúnað fyrir far-
þegaflug á Keflavíkurflugvelli og
dreg ég þó ekkert úr því að þar þarf
úr að bæta þegar þjóðin hefur betri
efni á því en nú. Ég satt að segja
vorkenni þeim mönnum sem eru
fulltrúar fólks úti á landsbyggðinni
sem berst fyrir framfaramálum í
sínum byggðarlögum og nefni ég
þar t.d. 3. þingmann Norðurlands
eystra, Guðmund Bjarnason, að
koma hér í ræðustól til að réttlæta
þá ákvörðun sem hér á að fara að
taka um lántöku sem mun áður en
lýkur nema 6-7 hundruð millj. kr.
til að reisa allt of stóra flugstöð á
Keflavíkurflugvelli einmitt nú þeg-
ar viðskiptahalli og erlendar
skuldir þjóðarinnar er notað sem
grundvallarrök fyrir því að skera
laun almennings svo stórlega niður
að mörg heimili líða nauð.
Fáheyrð
niðurlœging
Ég ætla í þessu sambandi ekki að
fara mörgum orðum um þá fá-
heyrðu niðurlægingu sem felst í því
að íslendingar skuli ganga með
betlistaf til herraþjóðarinnar á
Suðurnesjurh þegar bæta á aðstöðu
til farþegaflugs á Keflavíkurflug-
velli. Væri sú betliganga þó ein sér
næg ástæða til þess að þetta frum-
in frekar en hægt er að sópa niður-
greiddum Mercedes Bens undir
teppið.
Þeir hafa valið
Um þennan þátt málsins ætla ég
ekki að hafa fleiri orð, en koma
aftur að vali þeirra manna sem að
þessu frumvarpi standa á því hvaða
framkvæmdir skuli sitja í fyrirrúmi
á erfiðleikatímum í þjóðfélaginu.
Þingmenn hafa yfirleitt talið sér
skylt að leggja sig fram um að vinna
að því að bæta úr erfiðleikum í
samgöngumálum, stuðla að auknu
öryggi í rekstri vanbúinna flugvalla
og efla framkvæmdir á hafnarmál-
um og skólamálum og tryggja við-
unandi aðstöðu í heilbrigðismálum
þar sem þessar þarfir eru brýnastar
í þjóðfélaginu hvort sem er í þeirra
eigin kjördæmi eða öðru. Við af-
greiðslu núgildandi fjárlaga voru
framlög til þessara málaflokka
skorin niður að raungildi og sér-
staklega ákveðið að engar nýjar
framkvæmdir í þessum málaflokk-
um yrðu hafnar á þessu ári. Þessa
stefnu ríkisstjórnarinnar studdu
þingmenn stjórnarflokkanna með
tilvísun til erfiðleika í efna-
hagsmálum, halla á ríkissjóði og of
mikilla erlendra skulda þjóðarinn-
ar. En þeir eru nú á hinn bóginn að
velja hvað skuli taka fram yfir það
að framlög til slíkra nausynlegustu
framkvæmda hvarvetna í landinu
' haldi raungildi og þeir hafa ákveð-
ið hvað skuli meta meir heldur en
að leyft verði að hefja nokkra slíka
nauðsynjaframkvæmd hér í þétt-
býlinu eða úti á landsbyggðinni.
Það frumvarp sem hér liggur
fyrir er staðfesting á því hvað þing-
menn stjórnarflokkanna og Al-
þ.flokkurinn hafa valið. Val þeirra
er ekki óskert eða aukið fjármagn
frá fyrra ári til nauðsynlegustu
framkvæmda í öryggismálum á
flugvöllum úti á landi eða til bygg-
ingar flugafgreiðslustöðva þar sem
engar eru fyrir. Val þeirra er ekki
óskert fjármagn eða meira fjár-
magn til hafnarmannvirkja, skóla-
húsnæðis, dagvistarmála eða
á að auka skuldir þjóðarinnar um
10 þús. kr. á hverja fjölskyldu í
landinu. Þessi upphæð dygði til
þess að greiða 10.300 manns fimm
þúsund kr. launahækkun á mánuði
í heilt ár.
Falsrök og auðsœr
tilgangur
Stjórnarflokkarnir hafa lagt sig
fram um að koma á framfæri við
þjóðina því mati að hún sé illa
stödd, hafi eytt um efni fram, búið
við ofurþunga af skuldabyrði er-
lendra lána og að auknir erfiðleikar
séu á endurgreiðslu þeirra lána
vegna rýrnandi þjóðartekna, fram-
tíðin sé uggvænleg og óvisu háð, en
út úr vandanum sé hægt að komst
með því að skerða kjör launafólks
stórlega og að þjóðin neiti sér um
að uppfylla ýmsar brýnustu þarfir á
nýrri fjárfestingu.
Með því að leggja fram það
frumvarp sem hér liggur fyrir, þar
sem lagt er til að efnt verði til um
620 millj. kr. erlendrar lántöku til
glæsibyggingar á Keflavíkurflug-
velli eru stjórnarflokkarnir að
leysa almenning algerlega undan
því að taka nokkurt minnsta mark
á ákalli hæstv. ríkisstjórnar um
þjóðarsamstöðu um lausn
efnahagsvandans. Og ríkisstjórnin
er með flutningi þessa frumvarps
að gera hverjum manni ljóst að
ekkert nema falsrök liggja að baki
kröfu stjórnarflokkanna um að
launafólk sætti sig við að þurfa að
neita sér um brýnustu daglegar
þarfir í heimilisrekstri og sífellt
skertan kaupmátt launa. Ríkis-
stjórnin er með flutningi þessa
frumvarps að staðfesta að forsend-
ur sem haldið hefur verið á lofti
sem rökum fyrir efnahagsaðgerð-
um hennar, sem ekkert hafa verið
annað en kjaraskerðing hjá launa-
fólki, eru falskar og einasti til-
gangur og markmið þeirra hefur
verið að minnka hlut launafólks af
verðmætasköpuninni í þjóðfé-
laginu, þeirri verðmætasköpun
sem launafólk í landinu stendur
undir með vinnu sinni.