Þjóðviljinn - 21.02.1984, Side 1
Þriðjudagur 14. febrúar 1984 ’ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 9
Engin
Noregsför?
Flest bendir til þess að Þórsar-
arnir Bjarni Sveinbjörnsson og
Jónas Róbertsson verði kyrrir á
Akureyri í sumar og leiki með Þór
í 1. deildinni, í stað þess að spila
með Nybergsund í norsku 3.
deildinni í knattspyrnu eins og
líkur voru á.
-K&H/Akureyri
Þór vann
Bautamótið
Þór varð sigurvegari í Bauta-
mótinu í innanhússknattspyrnu
sem haldið var á Akureyri um
helgina. í úrslitaleik mættu Þórs-
arar „gamlingjum" úr KA-c sem
hafði óvænt slegið a- og b-lið KA
út úr riðlakeppninni. Gunnar
Blöndal kom þeim gömlu yflr í
byrjun en Þór hafði betra úthald
og vann 6-1. í c-liði KA léku
kempur á borð við Kára Árna-
son, Eyjólf Ágústsson og Þormóð
Einarsson.
A-lið KA hafnaði í þriðja sæti,
vann Völsung 2-1 í úrslitum þar
að lútandi. Alls hófu 18 lið af
Norðurlandi keppni og mótið
gekk vel fyrir sig.
-K&H/Akureyri
Meistarar
9, ár í röð
KR-inga urðu um helgina ís-
landsmeistarar i borðtennis karla
níunda árið í röð er þeir sigruðu
a-lið Arnarins 6-0 í sínum síðasta
leik. KR-a hlaut þar með 14 stig
en mjótt var á mununum í þetta
skiptið því Vikingur-a fékk 13
stig. Örninn-a varð í þriðja sæti
með 7 stig, KR-b fjórða með 4 stig
en Víkingur-b rak iestina með 2
stig og fellur í 2. deild. Keppni í 2.
deild er skammt á veg kominn og
staðan mjög óljós.
-VS
Pétur fékk
bikarinn
Pétur Yngvason, HSÞ, sigraði í
bikarglímu Glímusamhands Is-
lands sem haldin var í fimleikasal
Melaskólans í Reykjavfk á
laugardaginn. Hann hlaut 8'/2
vinning af 9 mögulegum, gerði
jafnglímu við Ólaf H. Ólafsson,
KR, sem varð annar með 8 vinn-
inga. Þriðji varð Eyþór Péturs-
son, HSÞ, með 7*/2 vinning. Arn-
grímur Jónsson, HSÞ, sigraði í
flokki unglinga og drengja, vann
Davíð Jónsson, HSÞ, en þeir voru
einu keppendurnir í flokknum.
Þór sneri
blaðinu við
Tveir þýðingarmiklir leikir
voru háðir í 2. deild kvenna í
handknattleik um helgina. Þór
vann Hauka 19-13 á Akureyri
þrátt fyrir að Haukastúlkurnar
hefðu leitt 9-41 hálfleik! ÍBV vann
Þrótt 17-15 í Reykjavík.
-K&H/VS
Umsjón: Viöír Sigurðsson
Sex nýir
í hópinn
Bobby Robson, landsliðseinvaid-
ur Englands, valdi í gær sex nýja
leikmenn í 20 manna hóp sinn fyrir
landsleik í knattspyrnu gegn
Frökkum í París eftir átta daga.
Steve Williams og Mark Wright frá
Southampton, Paul Walsh og Brian
Stein frá Luton, Chris Woods
markvörð frá Norwich og Viv
Anderson frá Nottm.Forest en sá
síðastnefndi er valinn á kostnað
Phil Neal frá Liverpool.
Skotar mæta Wales í bresku
meistarakeppninni eftir viku og
hafa sett Charlie Nicholas frá Arse-
nal útúr sínum hópi. Paul Sturrock
frá Dundee United kemur í staðinn
Chris Woods - orðinn varamark-
vörður Englendinga.
og þá er talið líklegt að Colin
Walsh frá Nottingham Forest fái
þar sinn fyrsta landsleik.
-VS
Evrópudeild?
Frá Heimi Bergssyni frétta-
manni Þjóðviljans í Englandi:
ítalska knattspyrnusambandið
hefur lagt til við knattspyrnusam-
band Evrópu, UEFA, að komið verði
á Evrópudeild með þátttöku allra fé-
laga sem sigrað hafa í Evrópu-
mótunum þremur frá upphafi.
Keppnin myndi hefjast næsta ár,
1985, og standa yfir í tvö keppnis-
tímabil.
Alls myndu ein 42 félög mynda deild
þessa og yrði skipt í riðla. Tillaga ítal-
anna hljóðar þannig að bresku liðin,
sem eru fjölmennust, eða þriðjungur,
leiki saman í riðli, ítölsku og spænsku
félögin saman og Norður- og Austur-
Evröpuliðin saman.
„Sumir segja að við spilum nógu
mikið og vissulega kæmi þetta aukna
leikjaálag til að valda vandræðum. En
peningarnir sem eru í húfi eru ekkert
smáræði, þarna verður alltaf um topp-
leiki að ræða,“ sagði C.M. Edwards,
stjórnarformaður Manchester United,
um málið. David Hay, framkvæmda-
stjóri skoska félagsins Celtic, tók í svip-
aðan streng, sýndi keppninni mikinn
áhuga og telur hana hafa marga og góða
kosti.
Góður sigur hjá IA
Akurnesingar eru komnir á fleygiferð
í toppslag 3. deildar karla í handknatt-
leik. Þeir lögðu annað toppliðið að velli
í röð, sigruðu Aftureldingu 17-14 á
Akranesi í hálfleik og þegar 9 mínútur
voru eftir af leiknum hafði Afturelding
ekki skorað mark í hálfleiknum, staðan
15-7!
Ármenningar áttu í basli í Keflavík
og leiddu naumlega, 13-12, í hálfleik.
Þeir tóku sig á í seinni hálfleik og unnu
örugglega, 30-22. Selfoss lenti í erfið-
leikum með Skallagrím í Borgarnesi en
vann 16-14 eftir að staðan hafði verið
13-13 skömmu fyrir leikslok.
Staðan í 3. deild:
Týr .. 14 10 2 2 338-232 22
Armann .. 14 11 0 3 395-309 22
Afturelding .. 14 10 0 4 333-241 20
ÞórAk .. 13 9 1 3 339-229 19
Akranes .. 13 9 1 3 330-239 19
Keflavík .. 13 6 0 7 324-287 12
Selfoss .. 14 3 0 11 240-294 6
Skallagrímur.... .. 13 1 0 12 191-342 2
Ögri .. 14 0 0 14 195-512 0
Toppleikir sem eftir eru:
Afturelding-Þór, Þór-Akranes og Týr-
Akranes. Eftir 16 umferðir tekur við
tvöföld úrslitakeppni fjögurra efstu lið-
anna um tvö sæti í 2. deiid.
-VS
Lárus með sigurmark
Lárus Guðmundsson skoraði sigur- Lokeren. I toppbaráttunni gerðu Be-
mark Waterschei, 1-0, gegn Waregem í veren og Seraing 1-1 jafntefli og Bever-
belgísku 1. deildarkeppninni í knatt- en hefur því áfram 7 stiga forskot, 38
spyrnu á sunnudaginn. Markið kom stig gegn 31 hjá Seraing og Anderlecht.
átta mínútum fyrir leikslok. FC Brugge hefur 28 stig, Standard
Pétur Pétursson og félagar í Liege 27 og Antwerpen 26. Waterschei
Antwerpen eru á uppleið, unnu Beer- og CS Briigge eru um miðja deild með
schot 4-1. CS Brúgge, lið Sævars Jóns- 23 og 22 stig.
sonar, gerði markalaust jafntefli við -VS
Dregið f ensku bikarkeppninni:
Sheff.Wed. gegn
Southampton
Derby rekið úr keppninni?
Southampton, sem talið er lík-
legast til sigurs í ensku bikar-
keppninni t knattspyrnu, fékk
erflðasta leik sem hugsast gat í 6.
umferð keppninnar þegar dregið
var í gær. Ándstæðingarnir verða
Sheffield Wednesday, sem senni-
lega cr besta lið 2. deildar, og það
á Hillsborough í Sheffield. Lawrie
McMenemy, framkvæmdastjóri
Southampton, var meðal áhorf-
enda á Manor Ground í Oxford á
laugardag þar sem ShefT. Wed.
vann sannfærandi, 3-0, og veðj-
aði greinilega á réttan hest þar!
Þessi lið mætast í 6. umferð
þann 10. mars:
Plymouth-Derby County
Birmingham-Watford
Notts County-Everton
Sheff.Wed.-Southampton
Það er þó ekki víst að Derby
leiki í 8-liða úrslitunum. í gær
lýsti Ted Croker, ritari enska
knattspyrnusambandsins, að fé-
lagið stæði í skuldum til mótherja
sinna í bikarkeppninni og yrði
vísað úr henni ef það gerði ekki
skil strax. Bankareikningi Derby
var lokað fyrir skömmu.
-VS
Lírurnar flæddu
í Mílanó!
Juventus er komið með fjögurra
stiga forystu í ítölsku 1. deildinni í
knattspyrnu eftir 3-0 sigur á útivelli
gegn AC Milano. Michel Platini og
Paolo Rossi skoruðu tvö fyrstu
mörkin. Hvorki fleiri né færri en 80
þúsund áhorfendur fylgdust með
leiknum og innkoman er met í ít-
alskri knattspyrnu, 1,2 miljónir
líra. Fiorentina tapaði 1-2 fyrir
Udinese á útivelli og Zico skoraði
tvö markanna. Hefur gert 17 alls
sem er stórkostlegt afrek í hinni erf-
iðu ítölsku 1. deild. Roma vann
Genoa 2-0 úti og Torino sigraði
Avellino 4-2. Juventus er mcð 30
stig, Roma og Torino 26 en Fiorent-
ina 25.
Á Spáni hefur Real Madrid náð
tveggja stiga forystu, sigraði Sal-
amanca 1-0 úti meðan Atletico Bil-
bao gerði jafntefli. Barcelona er
fjórum stigum á eftir Real, burst-
aði Valladolid 5-0 og skoruðu Di-
ego Maradona og Bernd Schuster
sitt markið hvor.
Ajax komst að hlið Feyenoord í
Hollandi, vann Sittard 5-1 meðan
Feyenoord tapaði óvænt 1-0 í
Groningen. Breskur leikmaður,
Rob McDonald, skoraði sigur-
mark Groningen. Nóg af mörkum
þar, Sparta vann Dordrecht 8-1 og
Excelsior sigraði Utrecht 7-4.
-VS
Inter býður miljón
í Steve Archibald!
Frá Heimi Bergssyni frétta-
manni Þjóðviljans í Eng-
landi:
ítalska stórliðið í knattspyrnu
Inter Milano er reiðubúið til að
borga eina miljón punda fyrir Steve
Archibald, framherjann mark-
sækna hjá Tottenham Hotspur.
Það er meira en helmingi hærra en
boð Manchester United nú fyrir
helgina, sem hljóðaði uppá 450
þúsund pund. Gífurleg fjárhæð, og
einnig kom vel fram að Tottenham
vill heldur selja hann úr landi en
láta hann fara til andstæðinga í
ensku knattspyrnunni. Man.Utd
mun líklega í staðinn einbeita at-
hygli sinni að Gary Shaw hjá Aston
Villa en samningur hans við félag
sitt rennur út í vor.
Vetrarólympíuleikarnir í Sarajevo:
Tvíburarnir náðusér
loksins á strik
Það hefur farið óvenju lítið fyrir
skíðatvíburunum frægu frá Banda-
ríkjunum, Phil og Steve Mahre, í
vetur, en þeir skutust í fremsta
geisla sviðsljóssins á ný í fyradag er
þeir hlutu gull og silfur í svigi karla
á ólympíuleikunum í Sarajevo. Að-
eins helmingur keppenda komst
báðar ferðirnar, meðal þeirra sem
féllu voru íslendingarnir Árni Þór
Árnason og Guðmundur Jóhanns-
son. Sömu örlög hlaut Nanna
Leifsdóttir í svigi kvenna á föstu-
daginn. Þriðji í sviginu í fyrradag
varð Didier Bouvet frá Frakklandi.
Sovétmenn hlutu flesta verð-
launapeninga á leikunum sem lauk
í fyrrakvöld, þökk sé sigri Igors
Malkov í 10 þúsund metra skauta-
hlaupi á laugardaginn. Þeir fengu
25 peninga alls, Austur-Þjóðverjar
24, en þeir síðarnefndu nældu í
fleiri gull, níu gegn sex. Þeir fengu
um helgina ólympíugull í bobsleð-
akeppni, 4-manna, og er Katarina
Witt sigraði í listhlaupi kvenna á
skautum.
Finnar urðu í þriðja sæti, fengu
fern gull. Maria-Liisa Hamelainen
hlaut sitt þriðja er hún vann 30 km
gönguna og Matti Nykanen sigraði
glæsilega í stökki af 90 m palli, var
vel á undan Austur-Þjóðverjanum
unga, Jens Weissflog, sem vann 70
m stökkið fyrr á leikunum.
-VS
Steve Archibald - annar marka-
hæsti leikmaður í 1. deild knatt-
spyrnunnar - á leið til Ítalíu?