Þjóðviljinn - 28.02.1984, Side 1
Þriðjudagur 28. febrúar 1984|ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 11
170 þúsund í Mad-
rid og Torino
Firnrn breytingar
á liði Skotlands
Jock Stein, landsliðseinvaldur
Skota í knattspyrnu, hefur gert
rimm breytingar á liði sínu sem
mætir Wales í bresku meistara-
keppninni í kvöld. Jim Bett, fyrr-
um leikmaður Vals og Rangers sem
nú leikur í Belgíu með Lokeren, er
kominn í liðið á ný ásamt David
Cooper frá Rangers sem síðast lék
með því fyrir hálfu fimmta ári
síðan, Pauí Sturrock frá Dundee
United, Arthur Albiston frá Man-
chester United og Willie Miller frá
Aberdeen. Níu leikmenn liðsins
leika með skoskum félögum, aðeins
tveir, Albiston og Graeme Souness,
með enskum.
Nigel Vaughan og Paul Price
hafa verið settir útúr velska lands-
liðinu frá síðasta leik, jafnteflinu
örlagaríka við Júgóslavíu, en í stað-
inn koma inn Jeremy Charles,
QPR, og Alan Curtis, Southamp-
ton. Kevin Ratcliffe, Everton,
tekur við fyrirliðastöðunni af Bry-
an Flynn, Burnley.
Bobby Robson, einvaldur Eng-
lands, hefur ekki enn tilkynnt byrj-
unarliðið gegn Frökkum annað
kvöld. Flest bendir til aðSteve Wil-
liams frá Southampton fái tækifæri
- á miðjunni við hlið Bryans Rob-
son, Glenns Hoddle og Sammys
Lee. „Ég hef engan markaskorara
á takteinum", sagði Robson um
helgina. Rétt hjá honum, Tony
Woodcock hefur ekkert skorað
fyrir Arsenal að undanförnu og lík-
legtertaliðaðRobsonsetjihannút ,
og gefi markadúettnum frá Luton,
Paul Walsh og Brian Stein, tæk-
færi. - HB/-VS.
ítalir enn á eftir Bryan Robson!
Forseti Fiat verður í
Forseti Fiat-verksmiðjanna ítöl-
sku, Agnelli, sem áður var forseti
knattspyrnustórveldisins Juventus
(þetta er allt nánast eitt og sama
fyrirtækið), ætlar til Parísar annað
kvöld til að fylgjast með Bryan
Robson, fyrirliða Englands og
Manchester United, í landsleiknum
við Frakka.
Samkvæmt ítölskum fréttum er
Agnelli reiðubúinn til að leggja
fram þrjár miljónir punda eða
jafnvel meira til að kaupa Robson í
stað Pólverjans Boniek sem að
öllum líkindum verður seldur frá
Juventus í vor. Agnelli hefur mjög
gagnrýnt Pólverjann í vetur.
„Ég hef aðeins fengið óbeinar
fréttir um þessar fyrirætlanir Ju-
ventus og segi ekkert fyrr en ítal-
irnir hafa beint samband við mig,“
sagði Ron Atkinson, fram-
kvæmdastjóri Man. Utd. um helg-
ina. Robson er nýbúinn að lýsa því
yfir að hann ætli að vera kyrr hjá
París
Man. Utd. og Atkinson að fyrirliði
sinn sé ekki falur, hvað sem í boði
væri, en upphæðir sem þessar geta
auðveldlega fengið menn til að
skipta um skoðanir.
- HB/Englandi
HSÍ bannaði landsliðsstúlkunum að
leika á íslandsmótinu í innanhúss-
knattspyrnu!
Það voru toppleikir víða í deilda-
keppnunum í knattspyrnu í Evrópu og
áhorfendafjöldi mikill. Hvergi þó meiri
en í Madrid á Spáni þar sem 100 þúsund
manns sáu Real Madrid vinna Barce-
lona 2-1. Juanito og Santillana skoruðu
fyrir Real en Diego Maradona fyrir
Barcelona. Maradona tognaði á kálfa í
leiknum og ólíklegt er að hann geti
leikið gegn Manch. United í Evrópu-
keppni bikarhafa í næstu viku.
Rúm 70 þúsund sáu Torinoslaginn á
Ítalíu þar sem Juventus vann Torino
2-1. Michel Platini átti enn einn stór-
Ieikinn og skoraði bæði mörk Juve. Ju-
ventus hefur þar með 5 stiga forystu á
meistara Roma sem eru einir í öðru sæti
eftir 2-2 jafntefli gegn sfnum ná-
grönnum í Róm, Lazio.
í toppleiknum á Hollandi tók Feyen-
oord forystuna á ný með því að bursta
Ajax, 4-1. Hefnd fyrir 8-2 tapið í Am-
sterdam í fyrri leiknum. Johan Cruyff,
Týr, Þór og Ár-
mann í úrslit
Þór Akureyri, Týr Vestmannaeyjum
og Ármann eru komnir í 4-liða úrslitin í
3. deild karla í handknattleik eftir leiki
helgarinnar. Þór vann góðan sigur á
Aftureldingu í Mosfellssveit, 23-21, og
síðan nauman sigur í Keflavík, 20-19.
Týr gerði jafntefli við Akranes í Eyjum,
19-19. Þór og Týr hafa því 23 stig og
einn leik eftir, Ármann 22 og tvo eftir en
fer örugglega í úrslit vegna hagstæðrar
útkomu úr innbyrðis leikjum við Aftur-
eldingu og Akranes. Akuresingar eru
með 20 stig og eiga tvo leiki eftir en kostnað Aftueldingar mcð því að fá 3
Afturelding hefur 20 stig og aðeins einn stig úr leikjum sínum við Þór og Kefla-
leik eftir. Akranes kæmist því áfram á vík. - VS.
hinn 37 ára gamli snillingur, lék Ajax,
sitt gamla félag, grátt. Hann skoraði
eitt marka Feyenoord og lagði hin þrjú
upp. Feyenoord hefur nú 38 stig en
Ajax 36. _ y§_
Ársæll Kristjánsson fyrirliði Þróttar hampar íslandsbikar karla í innan-
hússknattspyrnu. Til vinstri eru íslandsmeistarar ÍA í kvennaflokki. Nán-
ar um mótið á opnunni. Myndir: - eik.
Frábært sund Ragnars!
Ragnar Guðmundsson, hinn
bráðcfnilegi 16 ára piltur, setti
glæsilegt íslands- og piltamet í 1500
m skriðsundi á jóska meistaramót-
inu í sundi um helgina. Hann varð
annar í sundinu á 16:11,8 mín, og
bætti eigið met um rúmlega hálfa
mínútu! Frábært sund hjá Ragn-
ari, og í leiðinni setti hann (slands-
og piltamet í 800 mctruin, millitími
hans þar var 8:34,64 mín. sem er 14
sekúndum betra en gamla mctið
sem Ingi Þór Jónsson átti. Ragnar
hefur þar með náð lágmarkinu
fyrir Evrópumeistaramót ung-
linga.
Ragnar keppti cinnig i 400 m
skriðsundi og varð fjórði á 4:09,3
mín, aðeins 2/100 frá hálfsmánaðar
gömlu íslandsmeti sínu á þeirri
vegalengd. Með hinu stórkostlega
1500 m sundi sínu er hann orðinn
þriðji besti sundmaður Norður-
landa í sfnum aldursflokki.
Systir hans, Þórunn Kristín,
keppti einnigá mótinu. Hún varð 8.
í 800 m skriðsundi á 9:41,58 mín.
og bætti þar með eigið stúlknamet
úm rúmlega sekúndu. Hún var að-
eins 8/100 frá íslandsmetinu á vega-
lcngdinni. Neptun, félag þeirra
systkina sem faðir þcirra, Guð-
mundur Harðarson, þjálfar, náði
góðum árangri á mótinu og átti sig-
urvegara í sex greinum.
„Of mikil
slysahætta“
Kvennalandsliðsnefnd HSÍ
bannaði Qórum stúlkum, Erlu
Rafnsdóttur og Guðrúnu Guðjóns-
dóttur úr Breiðabliki, Ernu Lúð-
víksdóttur úr Val og Kolbrúnu Jó-
hannsdóttur úr KR að taka þátt í
íslandsmótinu í innanhússknatts-
pyrnu um helgina. Að öðrum kosti
fengju þær ekki að fara með í
Bandaríkjaferðina með landsliðinu
í handknattleik sem hefst í dag.
„Landsliðsnefndin og þjálfari
töldu slysahættuna of mikla og ekki
rétt að leyfa stúlkunum að taka
þátt í mótinu þegar svona erfitt
ferðalag er fyrir höndum. Þær hafa
verið að leika erfiða leiki í íslands-
mótinu í handknattleik og álagið
hefði verið alltof mikið. Þetta samá
hefði verið gert ef karlalandsliðs-
menn hefðu átt í hlut, sagði Björg
Guðmundsdóttir, sem á sæti í
landsliðsnefndinni, í samtali við
Þjóðviljann í gær.
Þarna skaut landsliðsnefndin
yfir markið. Með þessu er greini-
lega verið að þvinga stúlkurnar til
að velja aðra íþróttagreinina fram-
yfir hina en þegar svona er staðið
að málum er hætt við að þetta beri
þveröfugan árangur. Greinilegt
var að gífurleg óánægja ríkti meðal
stúlknanna og félaga þeirra í
knattspyrnunni um helgina. Varð-
andi samanburðinn við karlalands-
liðið er rétt að benda á að landsliðs-
maður og Frakklandsfari, Páll Ól-
afsson, lék stórt hlutverk í íslands-
meistaraliði Þróttar í innanhúss-
knattspyrnunni um helgina. _ VS