Þjóðviljinn - 28.02.1984, Qupperneq 4
14 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 28. febrúar 1984
íþrottir
Umsjón:
Viðir Sigurðsson
„Ég var alltaf hræddur þegar
QPR sóttl. Liðið spilar góða
sóknarknattspyrnu og Terry
Venables framkvæmdastjóri
hefur unnið frábært verk,“
sagði Joe Fagan, fram-
kvæmdastjóri Liverpool, eftir
leik iiðanna á Anfield á laugar-
daginn.
-HB/Englandi
Samvinna þeirra Ians Rush og
Mikes Robinson í framlínu Liver-
pool er með ólíkindum þessa dag-
ana. Með slíka jöfra innan sinna
vébanda, kemst hvaða lið sem er
býsna langt, hvort sem það heitir
Hartlepool eða Liverpool. Á
laugardaginn náði Liverpool ijög-
urra stiga forystu í ensku 1.
deildinni. Sú spá margra að Li-
verpool væri að missa tökin á topp-
num virðist ekki byggð á traustu
rökum. Það þurfti ekki nema 8
mínútur í leiknum gegn QPR til að
taka af öll tvímæli um það hvar
stigin þrjú myndu hafna. Langur
bolti frá varnarmönnum Liverpool
hafnaði á hausnum á Robinson.
Þaðan fór hann til Rush, sem lék á
Ian Dawes, bakvörð QPR, og síðan
ekki söguna meir, í fjærhornið
flaug knötturinn.
Ekki voru Lundúnastrákarnir á
þeim buxunum að gefast upp og
nokkrum sinnum mátti Bruce
Zimbabwebúi stíga trylltan dans í
Liverpoolmarkteignum. Á 54.
mínútu gerði Liverpool, með So-
uness karlinn sem besta mann, út
um leikinn. Enn á ný voru það fél-
agarnir Rush og Robinson sem
voru á ferð og að þessu sinni kom
það í hlut Robinsons að skora.
Undir lokin varði Peter Hucker,
þorgarmaður QPR, vítaspyrnu
Phils Neal. Hinir 32 þúsund áhorf-
endur hurfu glaðir til síns heima og
fyrir hina fjölmörgu Liverpoolað-
dáendur má geta þess að Kenny
vinur þeirra Dalglish kemur vænt-
anlega ferskur af verkstæðinu beint
í slaginn þann 10. mars.
Kevin Moran
hetja Man.Utd
Manchester United sýndi það í
leiknum gegn Sunderland að þeir
ætla ekki að leyfa Liverpool að
marsera einum í áttina að meistar-
atitlinum. Ekki leit þó gæfulega út
eftir stundarfjórðungs leik á Old
Trafford. 40 þúsund áhorfendur
fylgdust agndofa með dágóðri
sendingu Shauns Elliott sem rataði
beint fyrir fætur Lees Chapman og
þaðan framhjá Bailey í United-
markinu. Aðeins 4 mínútum fyrir
leikhlé náði Man. Utd að jafna.
Arnold Muhren tók hornspyrnu og
uppúr gnæfði Kevin Moran og fast-
ur skalli hans þandi út netmöskv-
ana hjá Turner. Eftir hlé var Mor-
an enn á ferðinni og aftur kont
markið uppúr hornspyrnu. Ray
Wilkins tók spyrnuna, vel fyrir
Sunderland-markið, Frank Stap-
leton stökk manna hæst, nikkaði
knettinum til Morans sem birtist
eins og óséður rússneskur kafbátur
í sænskri og norskri landhelgi, og
skoraði sitt annað mark í leiknum,
2-1. Mörkin hefðu getað orðið
„Ég velt ekki enn hvort Gary
Shaw frá Aston Vllla sé fáan-
legur en ég hef mikinn áhuga á
honum og Steve Archibald frá
Tottenham," sagði Ron Atkln-
son, framkvæmdaatjórl Man>
Utd, um helglna._ Ekkert hefur
heyrst frekar frá Inter Mllano á
Ítalíu sem um daglnn lýstl slg
reiðubúlð til að grelða eina
mlljón punda fyrlr Archlbald.
-HB/Englandl
Liverpool komid meö fjögurra stiga forystu:
Rush og Robinson
afgreiddu QPR
Steve Williams sýndi Bobby Robson landsliðseinvaldi snilldartakta á
laugardaginn.
fleiri ef Turner hefði ekki flækst
fyrir skotum Whitesides. Undir
lokin var Moran hylltur er hann
haltraði af leikvelli með sáran
ökkla.
Paul Mariner hefur engu gleymt,
það sýndi hann á City Ground í
Nottingham er hann færði Arsenal
óvæntan 0-1 sigur með marki á síð-
ustu mínútu. Þar með var bundinn
endir á sigurgöngu Forest. David
O’Leary sendi langa sendingu
fram, Hans Van Breukelen, mark-
vörður Forest, misreiknaði stefnu
knattarins og Paul Mariner var í
námunda við hann og skoraði sitt
fyrsta mark fyrir Arsenal. Forest
var betri aðilinn í fyrri hálfleik með
Colin Valsh og Garry Birtles síógn-
andi en Arsenal náði sér á strik á 20
mínútna kafla í seinni hálfleik.
Það er greinilegt að án Brooking
og Devonshire er West Ham ekki
sama lið og fyrr, þeir Dickens, All-
en og Bonds ná ekki að sýna sömu
snilli. The Hammers töpuðu 1-0 á
Carrow Road í Norwich, skot
Johns Deehan sem rataði rétta leið
á 78. mínútu dugði heimaliðinu til
sigurs.
Bobby Robson, enski landsliðs-
einvaldurinn, var mættur á The
Dell í Southampton til að fylgjast
með Mark Wright og Steve Wil-
liams, sem hann valdi nýlega í
landsliðshópinn fyrir leikinn við
Frakka í París. Og enn eina ferðina
sýndi Williams það og sannaði að
erfitt verður fyrir Robson að trítla
framhjá honum þegar hann stillir
upp 11 leikmönnum fyrir næsta
landsleik. Williams sýndi snilldar-
leik og honum getur Southampton
öðrum frekar þakkað velgengni
sína í vetur. Southampton var allan
tímann betra liðið, og mörkin
hefðu vel getað orðið fleiri. Á 31.
mínútu skoraði Mark Wright með
skalla sitt fyrsta mark á keppnis-
tímabilinu. í sömu mund og flauta
dómarans gall við til merkis um
leikhlé, laumaði David Armstrong
sér innfyrir Lutonvörnina og
skoraði með skalla. í síðari hálfleik
sótti Southampton án afláts, Wort-
hington skaut í stöng, Paul Elliott
barg á línu, og þeir Moran og
Armstrong fóru illa með upplögð
marktækifæri sem Williams hafði
skapað. Á lokamínútunum náði
Mal Donaghy að særa fram eina
mark Luton í leiknum, 2-1.
Sjö mörk í
seinni halfleik
Ef einhver hefur verið búinn að
fá nóg af leik Watford og Everton
eftir fyrri hálfleikinn og farið heim í
kaffi, getur sá hinn sami nagað sig
vel í handarbökin og olnbogana
líka. John Barnes kom Watford í
1-0. Það var síðan engu líkara en
varnir liðanna hefðu orðið eftir í
búningsklefanum í hálfleik. Gra-
eme Sharp jafnaði, 1-1, en síðan
skoraði Maurice Johnston sitt regl-
ubundna mark fyrir Watford, 2-1,
John Barnes bætti síðan öðru
marki sínu við. Þá leiddist Andy
Gray þófið og skoraði fyrir Evert-
on, 3-2. Nú, nú, áfram var skorað,
og nú var það Wilf Rostron fyrir
Watford, 4-2, og leit nú út fyrir að
Arsenal
vill Souness!
í enskum blöðum nú um helg-
ina er greint frá því að Arsenal
hyggist bjóða i skoska lands-
liðsmanninn Graeme Souness
hjá Liverpool, og tilgangurinn
sagður sá að Don Howe, fram-
kvæmdastjóri Arsenal, vilji
þannig fá meira útúr Charlie
Nicholas, Souness sé rétti mað-
urinn til að mata hann á send-
ingum. Heldur er þó ólíklegt að
Liverpool líti við þessu og Soun-
ess sagði við þessum fréttum:
„Ég er nýbúinn að kaupa mér
nýtt hús í Liverpool og hef aldrei
verið ánægðari en núna.“
-HB/Englandi
Everton myndi loksins bíða ósigur.
En þeir Sharp og Adrian Heath
voru á öðru máli og náðu að jafna,
4-4.
Hverjir falla með
County og Úlfunum?
Eftir leikina á laugardaginn er
það varla spurning hvaða lið verða
í tveimur neðstu sætunum. Úlf-
arnir töpuðu Miðlandaeinvíginu-
gegn Aston Villa (Peter Withe 2,
Paul Birch og Mark Walters
skoruðu mörk Villa).
Notts County lét dýrmæt stig fara
forgörðum á Victoria Ground í
Stoke. Það var Mark Chamberlain
sem skoraði eina markið í fyrri
hálfleik. Leicester þokast af hættu-
svæðinu. Á laugardag náðust þrjú
dýrmæt stig í leiknum gegn Ipswich
sem nú virðist vera heillum horfið.
Alan Smith skoraði í fyrri hálfleik
og John O’Neill í þeim seinni.
WBA er annað lið sem á í miklu
basli um þessar mundir. Því tókst
einungis að krækja í eitt stig í
leiknum gegn Coventry. Nicky
Cross kom inná sem varamaður og
skoraði fyrir Albion en gleðin var
skammvinn því Terry Gibson jafn-
aði fyrir Coventry. Birmingham
vann góðan sigur á útivelli gegn
Tottenham. Það var Mick Harford
sem afgreiddi Spurs með eina
marki leiksins í seinni hálfleik.
Kemst Grimsby
upp í 1. deild?
Jórvíkurliðið Sheff. Wed. er á ný
Ensku blöðin eru orðin mjög
neikvæð í garð Phils Neal, bak-
varðarins hjá Liverpool sem
missti landsliðssætið í síðustu
viku. Hann átti afar slakan leik
gegn QPR á laugardaginn,
virðist útbrunninn, og ólíklegt
annað en Liverpool reyni að ná
í nýjan hægri bakvörð fyrir
næsta keppnistímabil.
-HB/Englandi
komið á toppinn í 2. deildinni, eftir 2-1
sigur gegn Brighton. Það voru þeir
Gary Bannister og Imre Varadi sem
skoruðu mörkin tvö. Það lið sem einna
mest hefur komið á óvart í 2. deildinni
er Grimsby. Liðið er í þriðja sæti og
vann Cr.Palace á útivelli með marki
Tonys Ford. Hvort drengjunum hans
Davids Botth tekst að halda þriðja sæt-
inu skal ósagt látið.
Kevin Keegan og hinir gaurarnir í
Newcastle unnu Cardiff snoturlega og
skoraði Keegan 2 mörk, þar af annað úr
víti. Chris Waddle bætti þriðja markinu
við. Paul Powe fékk hreint út sagt ein-
stakt tækifæri til að skora fyrir Man.C-
ity gegn Middlesboro. Hann komst
einn innfyrir Borovörnina og fimm
metra frá marki lét hann skotið vaða en
boltinn fór uppí stúku og er enn verið
að leita að honum. Það er að segja bolt-
anum, því Power fannst í markinu. Col-
in Pascoe tryggði Swansea langþráðan
sigur. Cliff Carr brenndi af tveimur vít-
um í leik Fulham gegn Shrewsbury en
það kom ekki að sök því Dan Coney
kom Fulham á sporið með sínu fyrsta
marki á Craven Cottage í 18 mánuði.
Því miður tókst strákunum mínum í
Leeds ekki að bera sigurorð af Barnsley
og er það hreint óskiljanlegt, eftir að
Tommy Wright hafði skorað, 1-0.
-AB/Húsavík
„Jú, líklega getum við farið
upp í 1. delld, þetta eru bara
góðar horfur!“ lét loks Howard
Wilkinson framkvæmdastjóri
Sheff. Wed. hafa eftir sér eftir
2-1 sigur á Barnsley á laugar-
daginn sem kom liðinu á ný í
efsta sæti 2. deildar. Wilkinson
hefur fram að þessu sagt að
markmið Sheff.Wed. væri að
halda sér í deildinni, stefnan
væri sú að fá nógu mörg stig til
þess að forðast neðstu sætin!
-HB/Englandi
Staöan
1. deild:
Liverpool .29 17 8 4 47-20 59
Manch.Utd ,29 15 10 4 54-31 55
Nottm.For .29 16 5 8 54-33 53
West Ham .29 15 5 9 48-31 50
Southampton.. .28 14 7 7 35-24 49
Q.P.R .28 14 4 10 45-26 46
Norwich . 29 11 9 9 34-30 42
Watford . 29 12 5 12 56-54 41
Tottenham .29 11 8 10 46-45 41
Aston Villa .28 11 8 9 43-42 41
LutonTown .28 12 4 12 42-43 40
Coventry .28 10 9 9 38-37 39
Arsenal .29 11 5 13 44-40 38
Everton .27 9 9 9 25-32 36
Birmingham.... .28 9 6 13 28-33 33
Sunderland .28 8 9 11 28-39 33
Ipswich .28 9 5 14 36-40 32
Leicester .28 8 8 12 44-49 32
W.B.A .28 9 5 14 31-46 32
Stoke . 29 7 8 14 27-49 29
Notts.Co 5 6 17 36-58 21
Wolves .28 4 7 17 22-58 19
Markahæstir:
lan Rush. Liverpool............21
Steve Archibald, Tottenham.....16
Terry Gibson, Coventry....... 15
Gary Llneker, Leicester...... 14
Maurice Johnston, Watford......13
PaulMariner, Arsenal...........13
Tony Woodcock, Arsenal.........13
2. deild:
Sheff.Wed.....28 17 7 4 55-26 58
Chelsea.......30 16 10 4 60-32 58
Grimsby.......29 15 10 4 42-28 55
Newcastle.....28 17 3 8 56-39 54
Man.City......29 15 7 7 47-31 52
Carlisle......29 13 11 5 33-19 50
Blackburn.....28 12 12 4 36-31 48
Charlton......29 13 7 9 38-38 46
Huddersfield... 28 10 10 8 38-36 40
Leeds.........28 11 6 11 39-39 39
Middlesbro....28 9 9 10 30-29 36
Portsmouth....29 10 5 14 48-42 35
Brighton......28 9 7 12 43-43 34
Barnsley......28 9 6 13 40-40 33
Fulham........29 8 9 12 38-38 33
Shrewsbury....27 8 9 10 30-37 33
Oldham........29 9 6 14 30-47 33
Cardiff.......28 10 2 16 34-45 32
Cr.Palace.....28 8 7 13 29-36 31
Derby.........29 6 7 16 26-53 25
Swansea.......29 4 6 19 24-55 18
Cambridge.....28 2 8 18 21-53 14
Markahæstir:
1. deild:
Aston Villa-Wolves.............4-0
Leicester-lpswichTown..........2-0
Llverpool-Q.P.R................2-0
Manch.United-Sunderland........2-1
NorwichCity-WestHam............1-0
Nottm.Forest-Arsenal...........0-1
Southampton-LutonTown..........2-1
StokeCity-NottsCounty..........1-0
Tottenham-Birmingham...........0-1
Watford-Everton................4-4
W.B. A.-Coventry Clty..........1-1
úrslit...úrsli
2. deild:
Cambridge-Portsmouth............1-3
Chelsea-Carlisle United.........0-0
Crystal Palace-Grimsby Town....0-1
DerbyCounty-Huddersfield.......1-1
Fulham-Shrewsbury..............3-0
Leeds United-Barnsley..........1-2
Middlesborough-Manch.City.......0-0
Newcastle-Cardiff Clty.........3-1
Oldham-Blackburn Rovers.........0-0
Sheff.Wednesday-Brighton.......2-1
Swansea City-Charlton...........1-0
t...úrslit... .............
3. deild:
Bolton-Port Vale................2-0
Brentford-Sheffield United......1-3
Burnley-Lincoln City............4-0
Gillingham-Wigan Athletic.......3-0
NewportCounty-ExeterCity........1-0
Orient-Southend United..........1-0
Oxford-Borunemouth..............3-2
Plymouth-Hull City..............2-0
Preston N.E.-Millwall Clty......0-0
Rotherham-Wimbledon.............1-2
Scunthorpe-Bristol Rovers.......2-2
Walsall-Bradford City...........1-2
4. deild:
Bristol City-Aldershot.........2-1
Chesterfield-Blackpool.........1-1
Colchester-SwindonTown.........0-0
HalifaxTown-Doncaster...........1-2
Hartlepool-Mansfield...........4-1
Hereford-Torquay...............1-1
Northampton-Crewe...............2-0
Reading-YorkCity...............1-0
Rochdale-Darlington............2-0
Stockport-Chester..............2-1
Tranmere-Peterborough...........0-0
Wrexham-Bury....................3-0
Kevin Keegan, Newcastle..........20
Kerry Dixon, Chelsea.............17
Mike Quinn, Oldham...............16
MarkHateley, Portsmouth..........15
Enskar
getraunir
Stig fyrir leiki á Littlcwoods- og Vern-
onsgetraunaseðlunum sem ekki eru
annars staðar í blaðinu:
3 stig: nr. 49 og 55. lVi stig: nr. 47,52
og 54.