Þjóðviljinn - 10.04.1984, Blaðsíða 1
'*«<** «T<ps .01 Tif«c4wí8'iT<3( - -í'
„Vid getum sjalfum okkur
kennt um aö vera ekki bestir,
viö áttum aldrei aö selja As-
geir til Stuttgart,*- sagði Udo
Lattek, þjálfari Bayern Munc-
hen, eftir 2-2 jafntefli liöanna
í Munchen á laugardaginn.
Ásgeir var yfirburðarmaður a
vellinum og fékk alls staðar
hæstu einkunn allra leik-
manna beggja liða í blöðum.
-JHG/V. þýskalandi
Einar Vilhjálmsson með lengsta
Þriðjudagur 3. apríl 1984 ÞJOÐVILJINN — SÍÐA 9
Elnar
Vilhjálmsson.
í 31. leikviku Getrauna
komu fram 52 raðir með
12 réttum, vinningur kr.
7.950 á röð, og 823 raðir
með 11 rétta og var vinn-
ingur kr. 215 á röð.
í úrslit
Getraunir
Asgeir
Sigurvinsson.
i.Umsjón: Viðir Sigurðsson
Lárus skoraði
Lárus Guðmundsson skoraði annað marka
Waterschei sem sigraði Beerschot 2-1 í belg-
ísku 1. deildarkeppninni í knattspyrnu á
sunnudaginn. Arnór Guðjohnsen lék með
Anderlecht sem sigraði Sævar Jónsson og fé-
laga í.CS Briigge 7-0. Beveren heldur tveggja
stiga forskot á Anderlecht, sigraði Standard
2-0 og er með 43 stig gegn 41 hjá Arnóri og
félögum.
Rummenigge kyrr?
Frá Jóni H. Garðarssyni fréttamanni Þjóðviljans í
V. Þýskalandi:
Svo gæti farið að Karl-Heinz Rummenigge, knattspyrnu-
maðurinn frægi, fari alls ekki frá Bayern Miinchen til Inter
Milano á Italíu í vor eins og ráð var fyrir gert. Inter ætlar að
kaupa hann á 10 miljónir marka, en nú getur félagið ekki lagt
fram tryggingu fyrir þeirri upphæð. „Verði Inter ekki búið
að ganga frá tryggingunni innan fjögurra vikna, munu
kaupin fyrirhuguðu verða dregin til baka,“ sagði Uli Höness,
framkvæmdastjóri Bayern, nú um helgina.
ísland komst í gærkvöld í úrslit
3. deildar á Evrópukeppni lands-
liða í badminton sem nú stendur
yfír í Preston á Englandi. íslenska
liðið vann Ítalíu með gífurlegum
yfírburðum, sigraði alla leikina
með glæsibrag og lokatölurnar
urðu 5-0. Áður hafði íslenska liðið
sigrað Norðmenn 5-0 og F rakka 4-1
og andstæðingarnir í úrslitunum
verða líkast til Svisslendingar. Þar
ætti ísland að eiga ágæta mögu-
leika.
Danir eru komnir í úrslit 1.
deildar, sigruðu Sovétmenn 5-0 í
gær og Svía 4-1 í fyrradag. England
leikur líklega við þá dönsku,
vann Holland 5-0 en
Spennan í 1. deildarkeppninni í
knattspyrnu á Spáni er að verða ólýsan-
leg eftir 0-2 tap meistara Atletico Bilbao
gegn Real Betis um helgina. Real Ma-
drid vann Murcia 3-2 og Barcelona
vann Real Zaragoza 1-0. Bilbao og Real
Madrid hafa 43 stig en Barcelona 42
þegar aðeins þremur umferðum er ó-
lokið.
Gomez hinn marksækni skoraöi 4
mörk þegar Porto sigraði Penafiel 8-1 í
portúgölsku 1. deildinni. Benfica hefur
áfram tveggja stiga forskot á Porto,
vann Boavista 1-0.
Aukastig
Feyenoord náði tveggja stiga forystu
í Hollandi, vann Roda 5-2 meðan PSV
Eindhoven gerði markalaust jafntefii
við Haarlem. Ajax vann Go Ahead 3-1.
Feyenoord hefur 46 stig, PSV 44 og
Ajax 43 stig þegar 6 umferðum er ólok-
ið.
Monaco vann toppeinvígið gegn Bor-
deaux í Frakklandi, 2-1, og komst þar
með stigi upp fyrir Bordeaux sem hefur
verið efst í marga mánuði. Monaco er
með 47 stig, Bordeaux 46 þegar 34 um-
ferðir af 38 hafa verið leiknar.
Frí var á Ítalíu vegna landsleiks ítala
og Tékka sem endaði 1-1. Salvatori
Bagni kom ítölum yfir á 33. mínútu en
Griga jafnaði á 67. mínútu. Leikið var í
Verona á Ítalíu.
-VS
Fram sigraði Ármann 3-0 á
Reykjavíkurmótinu í knattspyrnu
á Melavellinum í gærkvöldi. Guð-
mundur Torfason skoraði tvö
markanna og Trausti Haraldsson
eitt. Fram fékk aukastig fyrir vikið.
I kvöld leika Fylkir og Víkingur á
Melavellinum kl 18.30.
Reynir upp
Reynir Sandgerði tryggði sér 1.
deildarsæti í körfuknattleik um helgina,
vann Snæfell 78-59 og ÍME 74-48 í úr-
slitakeppninni á Egilsstöðum. ÍME
varð númer tvö, vann Snæfell 76-75.
Sterk liðsheild
íslenska landsliðið sigraði fra-
nskar stöllur sínar í stórskemmti-
legum leik sem háður var í Laugar-
dalshöllinni í gærkvöld.
Frönsku stúlkurnar voru heldur
ákveðnari í byrjun komust í 3-1 en
þá tók íslenska liðið heldur betur
við sér, skoruðu næstu sex mörk,
þar af Guðríður Guðjónsdóttir 5
og ísland komið með fjögurra
marka forskot 7-3. Þær náðu síðan
að komast í 9-4. í hálfleik höfðu
þær frönsku minnkað muninn nið-
ur í 2 mörk, 12-10.
íslenska liðið missti „taktinn" í
byrjun seinni hálfleiks og þær frön-
sku gengu á lagið og náðu að jafna
13-13 og síðan 14-14.
ísland náði síðan 4 marka for-
skoti 19-15 þær höfðu síðan í fullu
tré við Frakkland á lokamínútun-
um og sætur sigur íslands stað-
reynd. Frakkland náði að vísu að
mætir Skotum í dag
og þarf að vinna þann
leik til að komast í úr-
slit. -VS
kast í heiminum 1984
Spjótio var
lengi, lengi
á lofti...
og ætlaöi aldrei að lenda!
Janus Guðlaugsson.
Janus laus
úr gipsinu
Janus Guðlaugsson landsliðs-
maður í knattspyrnu losnaði úr
gipsi í gær en hann meiddist í leik
með Fortuna Köln fyrir nokkru.
Hann gerir sér nokkrar vonir um
að geta teikið með liði sínu áður en
keppnistímabilið er úti.
-JHG/V. Þýskalandi.
minnka muninn niður í 1 mark 24
sek. fyrir leikslok en Margrét The-
ódórsdóttir innsiglaði íslenskan
sigur eftir að Frakkar höfðu í ör-
væntingu sinni beitt leikaðferðinni
„maður á mann“. Lokatölur urðu
sem fyrr sagði 23-21.
Guðríður Guðjónsdóttir var
best í íslenska liðinu ásamt mark-
verðinum Kolbrúnu Jóhannsdótt-
ur. Þá áttu þær Erna Lúðvíksdóttir
og Margrét Theódórsdóttir mjög
„Ég byrjaði á 86 metra kasti,
spjótið fór mjög hátt og stakkst
skakkt í völlinn. Þá varð ég
sannfærður um að með því að lag-
færa útkastshornið gæti ég náð
lengra og það heppnaðist svakalega
vel í öðru kasti. Hornið varð 100
prósent og spjótið var lengi, lengi á
lofti, það virtist aldrei ætla að
lenda,“ sagði Einar Vilhjálmsson
spjótkastarinn snjalli í samtali við
Þjóðviljann í gær. Hann sigraði
glæsilega á sterku móti í Austin í
Texas á föstudaginn, kastaði 92,40
metra sem er ekki aðeins glæsilegt
íslandsmet, heldur besti árangur í
spjótkasti í heiminum í dag.
góða spretti. Barátta liðsins og góð
samheldni voru þó grunnurinn að
sigrinum.
Leikmaður númer 14, C. Martin
var best í léttleikandi frönsku liði.
Mörk íslands: Guðríður 9/4v, Margrét
og Erna 4, Rut Baldursdóttir 3, Kristjana
Aradóttir, Erla Rafnsdóttir og Sigrún
Blómsturberg 1.
Markahæstar hjá Frökkum voru
þær C. Martin 7/2v og J. Pascale 4.
Óli Ólsen og Karl Jóhannsson
dæmdu leikinn vel. -Frosti
„Þetta kast mitt sló keppinauta
mína greinilega alveg útaf laginu
og enginn þeirra komst í námunda
við mig. Eftir kastið þurfti að kalla
út fjölda dómara til viðbótar og
það tók 20 mínútur að fá þetta allt
saman staðfest."
- Attirðu von á að ná þessum
árangri um þetta leyti árs?
„Eftir að ég kastaði 85,78 metra
um miðjan mars, einbeitti ég mér
að tækniæfingum í tvær vikur,
tæknin er jú lykillinn að þessu öllu
saman. Síðan hvíldi ég virkilega vel
fyrir mótið til að sjá hvað byggi í
mér og ég er að sjálfsögðu í sjö-
unda himni með árangurinn. Nú
nota ég mótin sem markvissan
undirbúning, nota aðeins þrjú köst
eins og verður til að komast í úr-
slitakeppnina á sjálfum Ólympíu-
leikunum, og einungis 2 upphitun-
arköst eins og þar verður leyft. Þá
nota ég ávallt annarra manna spjót
og set á þennan hátt á mig eins
mikla pressu og mögulegt er. Á
næstunni reyni ég að bæta mig eins
og kostur er, Óskar Jakobsson kúl-
uvarpari benti mér t.d. á að ég ætti
talsvert inni í hraða í atrennunni,
miðað við síðasta sumar, og ég er
bjartsýnn á að geta fljótlega bætt
árangur minn enn frekar," sagði
Einar Vilhjálmsson.
-VS
skóp sigur